Dagur - 10.12.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 10.12.1985, Blaðsíða 12
Vantar þig smurt brauð, snittur, cocktailsnittur, ostapinna, ostabakka, smurbrauðstertur eða rjómatertur, hafið samband við smurbrauðsstofu Bautans sími 21818 og hún uppfyllir óskir þínar fljótt og vel. 3 sveitarfélög í Eyjafirði: Sameiginleg skrifstofa - Hugsanlega fyrsta skrefið að sameiningu hreppanna Þrjú sveitarfélög í Eyjafiröi hyggjast opna sameiginlega skrifstofu um eða fljótlega eftir áramótin. Þessi sveitarfélög eru Hrafnagilshreppur, Saur- bæjarhreppur og Ongulsstaða- hreppur. Skrifstofan verður til húsa í gamla barnaskólanum á Syðra-Laugalandi í Önguls- staðahreppi. Að sögn Birgis Þórðarsonar oddvita Ongulsstaðahrepps hafa hrepparnir keypt tölvu til að nota við bókhaldsvinnuna og reiknað er með að ráða mann í hálft starf til að sjá um skrifstofureksturinn. Aðspurður hvort þetta væri fyrsta skrefið í sameiningu hreppanna þriggja, sagði Birgir að því væri vandsvarað en mikil Dalvikingar hafa verið heldur óhressir með snjómoksturinn á leiðinni milli Dalvíkur og Akureyrar í vetur, aðallega vegna þess að mokað er frá Akureyri til Dalvíkur í stað þess að byrja moksturinn á Dalvík. Margir telja hagkvæmara að vinna verkiö frá Dalvík sökum þess að mestu snjóþyngslin eru í nágrenni Dalvíkur en mun minni snjór þegar nær dregur Akureyri. Að sögn Stefáns Jóns Bjarna- sonar bæjarstjóra þurfa Dalvík- ingar oft að bíða eftir að veghefl- ar ryðji veginn alla leið til Dal- víkur áður en þeir geta lagt af stað þótt einu höftin á veginum séu við Dalvík. Þá benti hann á að umferðin á morgnana væri aðallega frá Dalvík til Akureyrar enda sæktu margir Dalvíkingar þjónustu til Akureyrar. Pétur Reimarsson býr á Akur- umræða hefði átt sér stað um hvort rétt væri að sameina þá í eitt sveitarfélag. „Skoðanir um það eru mjög skiptar. Sumir vilja sameina hreppana þrjá sem fyrst en aðrir telja að rétt sé að fara hægt í sam- einingarmálunum. Hins vegar er það ljóst að ef þetta samstarf með skrifstofureksturinn gengur vel þá er um að ræða skref í átt til sameiningar. Þarna er óneitan- lega um mikla hagræðingu að ræða því að þegar skrifstofan verð- ur opnuð verða oddvitar hrepp- anna ekki eins niðursokknir í bók- haldsvinnuna og nú er og geta því sinnt öðrum málefnum sveit- arfélaganna í auknum mæli,“ sagði Birgir Þórðarson. BB. eyri en rekur fyrirtæki á Dalvík og þarf því að aka á milli tvisvar á dag. Hann staðfesti að umferð- in á morgnana væri nær öll frá Dalvík. „Það hlýtur að vera skynsam- legra að hefja moksturinn þaðan. Frá því að ég fór að aka á milli hefur það ekki gerst nema einu sinni eða tvisvar að einhver snjór væri að ráði annars staðar en inni á Ársskógsströnd og yfir hálsinn og svo rétt sunnan við Dalvík,“ sagði Pétur. Þessi leið er nú rudd tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtu- dögum. Ekki er rutt aðra daga, jafnvel þótt ekki þurfi að ryðja á snjómokstursdögunum og hafa margir viljað fá því breytt. Þess má geta að reglur um snjómokstur eru nú í endurskoð- un hjá samgönguráðuneytinu og er niðurstaða þeirrar endur- skoöunar væntanleg einhvern næstu daga. BB. Dalvíkingar: Vilja mokstur „hina leiðina“ Húsavík: Innheimta svipuð Innheimta skatttekna hjá Húsavíkurbæ er mjög svipuð og á sama tíma í fyrra. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórn- ar s.l. föstudag. Innheimtan nú nemur 74,92% nú á móti 75,59% á sama tíma í fyrra. Innheimta orkugjalda hef- ur lagast mjög mikið. í lok nóvember voru útistandandi orkuskuldir sem svaraði til eins mánaðar notkunar, en á miðju ári svöruðu þessar skuldir til tveggja mánaða notkunar. Álagningareglur fasteigna- gjalda á Húsavík fyrir árið 1986 verða óbreyttar frá yfirstandandi ári. Það þýðir ]/i% álagningu á íbúðarhúsnæði og 1% á atvinnu- húsnæði. Engum álögum mun verða beitt á fasteignagjöld. Sorpgjöld munu hækka um 30%. Að lokinni dagskrá fundar bæjarstjórnar sl. föstudag voru samþykkt þau afbrigði að bæjar- stjórn fjallaði um mál á lokuöum fundi og urðu fréttamenn þvf að yfirgefa fundinn. IM Jól, jól, jól. Það er meira að segja orðið jólaiegt á mjólkurfernunum, þær eru komnar í jólabúning. Starfsmenn Mjólkursamlags KEA voru að pakka mjólkinni í nýja búninginn í gær. Mynd: KGA. FN kaupir stóra flugskýlið á Akureyrarflugvelli: „Stefnan að flugmálastjóm eigi ekki flugskýli" - segir Pétur Einarsson flugmálastjóri „Við erum að losa okkur við flugskýli í eigu ríkisins. Stefn- an er sú að Flugmálastjórn eigi ekki flugskýli,“ sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri, að- spurður um ástæður þess að Flugmálastjórn hefur yerið að selja flugskýli sín á ísafirði, Egilstöðum og nú síðast á Ak- ureyri. Fyrir skömmu var gengið frá kaupsamningi milli Flugfélags Norðurlands og Flugmálastjórn- ar um kaup FN á stóra flugskýl- inu á Akureyrarflugvelli. Kaup- verðið jafngilti fasteignamats- verði og verður greitt á nokkuö löngum tíma. Pétur sagði að Flugmálstjórn hefði lengi haft meiri kostnað en tekjur af þess- um flugskýlum og hann teldi það mun eðlilegra að þau væru í eigu einkaaðila á hverjum stað, þ.e. þeirra sem nota þau helst. Ástæðuna fyrir því að Flug- málastjórn reisti þessi skýli á sín- um tíma taldi Pétur vera þá að litið hafi verið svo á að þetta væru nauðsynleg mannvirki á flugvöllum, en aðrir en ríkið hefðu ekki bolmagn til að standa undir byggingu og rekstri þeirra. Nú hafi hinsvegar annað komið á daginn og Flugmálastjórn hefði nóg annað við sitt takmarkaða fjármagn að gera en að binda það í flugskýlum. Sigurður Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri FN, segir að flugfé- lagið hefði staðið frammi fyrir því að þurfa að koma sér upp ein- angruðu og upphituðu skýli þar sem þeir koma ekki Twin Otter vélum félagsins inn í sitt eigið. Þeir hefðu verið að hugsa um að byggja skýli þegar þeim bauðst að kaupa skýli Flugmálastjórnar og hefði það orðið ofan á. Skýlið er algjörlega óeinangrað og óupphitað og er ætlun félagsins að einangra það og koma í það hita. En hvað verður um þá aðila, aðra en FN, sem hafa leigt pláss fyrir sínar flugvélar hjá Flug- málastjórn, verður þeim úthýst? Sigurður sagði að engum yrði út- hýst en leigan hækkaði örugglega þó að reynt yrði að stilla henni í hóf, enda hefði leigan hjá Flug- málstjórn verið ákaflega lág og hefði bæði FN og aðrir notið góðs af til þessa. -yk. Aðalskipulag Húsavíkur kynnt Á fund bæjarstjórnar Húsavík- ur sl. föstudag mættu arki- tektarnir Helgi Hafliðason og Reynir Vilhjálmsson, og kynntu þeir tillögur um endur- skoðað aðalskipulag Húsa- víkur. í því kemur fram áætluð þróun byggðar á næstu 20 árum. Miðað við íbúðaaukningu og mann- fjöldaspár mun íbúðabyggð geta haldist innan marka frá Höfðan- um að Þorvaldsstaðaá á þessu tímabili en í framtíðinni er áætl- að að byggðin þróist til suðurs. Gert er ráð fyrir nýtingu lands utan þessara marka fyrir iðnaðar- svæði. Skipulagstillagan mun liggja frammi á bæjarskrifstofunum næstu 6 vikur almenningi til sýnis. Síðan verða teknar til skoðunar þær athugasemdir sem fram hafa komið og afstaða tekin til þeirra. Að því loknu munu bygginganefnd og bæjarstjórn af- greiða tillögurnar og senda aðal- skipulagsstjóra ríkisins til stað- festingar. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.