Dagur - 10.12.1985, Side 5

Dagur - 10.12.1985, Side 5
10. desember 1985 - DAGUR - 5 Jesendahorniá Það er ekki nema brot af hestamönnum með „blettasótt“, segir Hólmgeir Valdemarsson, en hann tekur jafnframt fram að það sé Ijóður á þeirra háttum. Omaklega vegið að hestamönnum í Degi dagsettum 25. nóvem- ber sl. er grein er ber fyrir- sögnina „Hestamenn með blettasótt“. Undirrituðum fannst fyrirsögnin forvitnileg þar sem hann hafði aldrei orð- ið var við slíka sótt hjá hesta- mönnum, þó að fram komi síðar í greininni við hvað sé átt með orðinu blettasótt. Greinarhöfundi er vill af ein- hverjum ástæðum ekki rita grein sína undir öðru nafni en dýravin- ur skal frá því skýrt að stjórn hestamannafélagsins Léttis hér í bæ skrifaði Jarðeignanefnd Akureyrarbæjar sl. vor bréf þess efnis að þróun beitarmála í bæjarlandinu sé í miklum ólestri eins og greinarhöfundur bendir réttilega á, en í grein hans má skilja að hestamenn yfir höfuð séu sekir um slíka „blettasótt", sem er að sjálfsögðu alrangt þar sem þetta er ekki nema brot af þeim hestamönnum er stunda hestamennsku. En rétt er að þetta er ljóður á þeirra háttum er þetta gera, en þarna er vettvang- ur Jarðeignanefndar Akureyrar- bæjar en ekki félagsskapar hesta- manna að koma betra skipulagi og eftirliti á. Því næst víkur greinarhöfundur orðum sínum að hesthúsahverfunum og sýnir skýringarmynd þar um og telur langflesta hestamenn á Akureyri lifa eftir þeirri mynd er síðri er. Þetta tel ég alrangt. Undanfarin tvö ár hafa orðið miklar breyting- ar til batnaðar í hverfunum og vil ég frekar telja til undantekninga heldur en hitt að sjá ruslahauga og ýmislegt drasl kringum hest- húsin. En hestaskítur hættir ekki að koma frá hesthúsum fyrr en hestar hætta að vera í þeim. Því miður vill það þó oft vera í öllum félagsskap að þar finnast svartir sauðir og á það eins við um hesta- menn. En hestamenn á Akureyri geta varla gert að því þótt bæjar- yfirvöld láti það afskiptalaust að hús og lóðarskiki sem voru í upp- hafi ætluð sem hesthús og gerði, séu nú orðin bifreiðaverkstæði og/eða bílakirkjugarður. í lok greinar bendir greinar- höfundur hestamönnum á að fara nú að planta trjám. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að hestamenn eru farnir að planta trjám. Sl. sumar plöntuðu hesta- menn út nær 4000 plöntum á mótssvæði þeirra á Melgerðis- melum og er það aðeins byrjunin á enn meiri gróðursetningu þar. Mér finnst annars ágæti bréfritari að þó svo að nokkur sannindi leynist í sumu af þínum skrifum þá séu þau að mestu óréttlát, ansi hvöss og séu skrifuð af vanþekk- ingu um hagi akureyrskra hesta- manna. Hólmgeir Valdemarsson. Ábending til foreldra - Ég trúi því ekki að foreldrar taki ekki eftir því þegar börnin koma með eitthvað nýtt inn á heimilið, segir „móðir“ „Móðir“ skrifar: Dóttir mín varð fyrir því óláni að rándýrum og vönduðum skóm hennar var stolið í síðustu viku í íþróttahöllinni, þar sem hún dvaldi hluta úr degi. í framhaldi af því vil ég koma með smá ábendingu til foreldra. Ég hef heyrt að það séu einnig mikil brögð að þessu í skólunum og það sé ekki eingöngu skótau, heldur einnig hjól sem hverfa. Manni getur gramist að senda barn sitt af stað svo vel búið og sjá það svo koma heim á sokka- leistunum (eða gangandi). Ekki ætla ég að sakast við starfsfólk íþróttahallarinnar þó að mér finnist að reyna eigi að hafa eitthvert eftirlit með þessu. Væri ekki hægt að koma upp læstum geymsluhólfum sem hægt væri að fá aðgang að gegn greiðslu. Ég er sannfærð um að það mæltist vel fyrir alla vega af þeim aðilum sem orðið hafa fyrir svona óhappi og betra er að borga nokkrar krónur en að missa skóna. Foreldrar! ÉG vona ykkar og barna ykkar vegna að þið hafið eftirlit með því hvað börnin ykk- ar koma með heim og sjáið um að þau skili því til réttra aðila aftur. Því ekki trúi ég að þið tak- ið ekki eftir því ef eitthvað nýtt berst inn á heimilið hvort sem það er keypt, tekið í misgripum eða á einhvern óheiðarlegan hátt. Óánægöur Þórsari Mig Iangar að þakka íþrótta- félaginu Þór fyrir nýútkomna bók í tilefni 70 ára afmælis. Hún er í flesta staði mjög skemmtileg. í flesta staði, því ýmislegt má að henni finna. Að mínu áliti mætti t.d. hafa meira heildaryfirlit yfir sögu félagsins samankomið í ein- um kafla. Það er t.d. mjög slæmt að í bók sem þessari sé ekki skrá eða listi yfir stjórnir félagsins. Mér finnst að í sögulegu riti sem þetta rit ætti að vera, þá ætti að geta betur þeirra, sem mikla orku og tíma hafa lagt í þetta. Og enn eitt; eftir mikla leit þá sannfærð- ist ég um að þið hefðuð gleymt að geta þess hverjir hefðu verið for- menn félagsins, starfstíma þeirra og fleira í þeim dúr. Gleymt því, ég trúi því ekki upp á ykkur að þið hafið ætlað ykkur að skilja svo við þetta afmælisrit, sem hugsanlega á eftir að vera sögu- leg heimild kraftmikils félags. Það má ekki ætlast til þess að hin- ar ungu kynslóðir sem nú eru að taka við starfi okkar í félaginu þekki alla þá miklu menn sem byggt hafa upp Þór. I von um að ritið verði betra á 80 ára afmælinu. . . . Þórsari. Pennavinur Degi hefur borist bréf frá tvítugri franskri stúlku sem óskar eftir pennavinum á Akureyri. Hún hefur áhuga á að komast í bréfasamband við karlmann sem er tvítugur eða eldri, jafnvel með það í huga að um heimsókn- ir gæti orðið að ræða síðar meir. Stúlkan sem heitir Laurence hefur lært ensku í fimm ár og skrifar á því tungumáli. Hennar aðaláhugamál eru lestur, íþróttir og tónlist. Þeir sem hafa áhuga á að skrifa henni skrifi til: Laurence Soddu Cháleau ST Loup BT A2 13010 Marseille France. ■ r m m ■■ mm r r Jolagjofm i ar frá afa og ömmu er jogginggallar St. 86-116. 2 litir. Verð aðeins 460.- yu Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 sími 22275 Það kemst til skila í Degi Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^ Ekki ef þú notar ostalengjuna frá Mjólkursamlagi KEA Reyndu nýju ostalengjurnar næst þegar þú ætlar að útbúa eitthvað gott Mjólkursamlag KEA Akureyri Simi 96-21400

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.