Dagur - 10.12.1985, Page 6

Dagur - 10.12.1985, Page 6
6 - DAGUR - 10. desember 1985 - Akureyringar greiddu andvirði íbúðar í sektir fyrstu níu mánuði ársins fyrir of hraðan akstur og fyrir að leggja bílum sínum ólöglega Það er ekki óalgengt, að sjá bfla á gangstéttinni fyrir framan Teríuna. Þessi fékk sekt. Dýr kaffibolli það. „Þá breytast peir í mestu villimenn“ Fyrstu níu mánuði ársins voru 359 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri. Þar af voru 216 kærðir í innanbæj- arakstri, en 143 ökumenn voru staðnir að of hröðum akstri utan bæjarmarkanna. Samtals greiddu þessir ökumenn ná- iægt einni milljón króna í sektir, auk þess sem margir þeirra misstu ökuskírteini sín. Þar við bætist, að Akureyringar greiddu um 200 þúsund kr. í sektir vegna þess að þeir höfðu lagt bílum sínum ólöglega. Akureyringar virðast því ekki vera á horriminni íjárhagslega, því fyrstu níu mánuði ársins hafa þeir greitt jafnvirði sex Skoda í sektir vegna áðurnefndra laga- brota og fleiri sektargreiðslur koma til. Hraði þeirra sem kærðir voru var mjög mismunandi. Sá sem hraðast ók fór 76 km yfir leyfðan hámarkshraða á klukkustund. Hann var sviptur ökuskírteini á staðnum, auk þess sem hann þurfti að greiða háa sekt. Fleiri ökumenn þurftu að sjá á eftir ökuskírteini sínu vegna fiðrings í bensínfætinum, t.d. vegna endur- tekinna lagabrota. Lögreglan hefur nefnilega spjaldskrá yfir þá sem hún hefur afskipti af. Komi í ljós, að sami ökumaður- inn er tekinn oft fyrir of hraðan akstur, við skulum segja í þrígang, þá getur hann átt á hættu að missa ökuskírteinið sitt. Það er því skynsamlegt að trampa ekki allt of fast á „fjöl- inni“. • Ekki gosar - Eru Akureyringar óttalegir gosar í umferðinni? „Nei, það vil ég nú ekki segja,“ svaraði Ólafur Ásgeirsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn, í sam- tali við Dag. „Þeir haga sér þó stundum eins og gosar, t.d. á vorin, því þá hleypur stundum galsi í mannskapinn. En heilt yfir eru Akureyringar þokkalegir ökumenn. Hins vegar verða hér mörg umferðaróhöpp og mörg þeirra má rekja til hraðaksturs.“ - Er árekstrahlutfall á Akur- eyri hærra heldur en gengur og gerist á öðrum stöðum? „Já, það fer ekki hjá því, enda þurfa Akureyringar að greiða hærri tryggingaiðgjöld af bifreið- um sínum en flestir aðrir norðanlands. Það hefur jafnvel komið til tals, að setja bíla með A-númerum á sama áhættusvæði og Reykjavík. Og of hraður akst- ur er talinn aðalorsök umferðar- slysa. Sem dæmi um það má nefna Svíþjóð, en þar var há- markshraði lækkaður úr 110 km á klukkustund í 90 km. Þar með fækkaði dauðaslysum í umferð- inni þar til muna. í Bandaríkjun- um er hámarkshraði víðast 55 mílur, eða um 88 km á klukku- stund, og þar eru mjög ströng viðurlög við of hröðum akstri. Og þar eru löggæslumenn mun nákvæmari en hér tíðkast, því ökumenn eru umsvifalaust sekt- aðir þó að þeir fari ekki nema fáa kílómetra fram úr mörkunum. Hér var hins vegar meðalhraði þeirra sem kærðir voru, fram yfir leyfileg mörk, 31,45 km á klukkustund. Það er því ekki hægt að segja með sanni, að við séum með smámunasemi í lög- reglunni. Því er svo við að bæta, að aðstæður hér á Akureyri, brekkurnar allar, geta reynst ökumönnum skeinuhættar. Það er því fyllsta ástæða til að fara með gát.“ • Vantar á menninguna - Er umferðin menningarlegri á öðrum stöðum? „Já, ég er ekki frá því, það vantar talsvert á að umferðar- menningin hjá okkur sé nægjan- Iega góð. Sérstaklega ef við ber- . . . Og var þar engum öðrum fært e fljúgandi . . . Bflar hefta oft umferð um gangstéttir og gangbrautir á Akui Gissur Jónasson og Ragnhildur Gunnarsdóttir eru hér í þungum þönkum. Andstæðingarnir eru Grettir Frímannsson og Hörður Blöndal. „Fór eitthvað úrskeiðis?“ Ormarr og Sturla Snæbjörnssynir. Þær eru margar baktcríurnar sem herja á mannfólkið. Sum- ar eru hættulegar, aðrar ekki. A þessum síðustu tímum ótrú- legrar tækni eru til iyf sem vinna á flestum tegundum baktería. Ein er þó til sem ekk- ert lyf vinnur á en væri kannski frekar verðugt viðfangsefni sálfræðinga. Það er spilabakt- erían. Sumir verða svo hel- teknir af henni að annað kemst varla að nema í stutta stund í einu. Að spila verður að ár- áttu, að þörf sem verður að fullnægja reglulega. Þeir sem haldnir eru spilafíkn segja að um mjög ánægjulegan sjúk- dóm sé að ræða. Algengt er að spilasjúklingar stofni með sér félög og jafnvel landssamtök og komi á fót, í skjóli þeirra, alls konar sainkomum og mót- um til þess að veita fíkninni útrás. Dæmi um slíkt félag er Bridgefélag Akureyrar. Meðlimir Bridgefélags Akur- eyrar eru fjölmargir. Þeir hittast reglulega á þriðjudagskvöldum klukkan hálf átta í Félagsborg, sem er samkomusalur á þriðju hæð í húsi Sambandsverksmiðj- anna á Akureyri. Þar sitja karlar og konur fram eftir kvöldi og spila á spil. Í margra augum er bridds al- gerlega óskiljanlegt fyrirbrigði. „Briddsarar" eru að sjálfsögðu ekki á sama máli. Þó má fullyrða að bridds er hugaríþrótt sem krefst mikillar einbeitni og ástundunar ef árangur á að nást. „Hvað ætlar maðurínn að gera?“ hugsar Rögr sem Páll Jónsson hefur náð taki á. Gísli Páls brigði. Áður en hvert spil er spilað „melda" menn spil sín eftir kúnstarinnar reglum og hafa þessar „meldingar“ oft í för með sér ótrúlega mikil heilabrot. Bridds er spil fyrir fjóra eða öllu heldur fyrir tvö pör af spilurum. Markmiðið með öllum sögnunum er að upplýsa spilafélagann um það á hvernig spilum maður held- ur hverju sinni og ná bestá hugs- anlega „samningi“ eða lokasögn, hvort sem um er að ræða: „Stubb, „geim“ eða „slemmu". Þegar komið er út í „alvöru- keppni“ eins og hjá bridgefélög- um yfirleitt mega spilararnir ekki mæla sagnirnar af munni fram heldur nota þeir svo kallaða „sagnbakka" sem hengdir eru utan á borðin og hafa að geyma spjöld með öllum hugsanlegum Alfreð meistai

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.