Dagur - 10.12.1985, Qupperneq 9
10. desember 1985 - DAGUR - 9
JþróttÍLi
Umsjón: Kristján Kristjánsson
íslandsmótið í handknattleik:
Þórsarar sigruðu
í öllum floKkum
- í Norðurlandsriðli yngri flokka
Á sunnudag fór 1. umferð ís-
landsmóts yngri flokka í hand-
bolta fram í íþróttahöllinni á
Akureyri og var það Norður-
landsriðiil. Lið frá KA, Þór og
Völsungi mættu til leiks. Að
vísu mættu Völsungar aðeins
með lið í 3. fl. kvenna og 4.
flokki karla.
í fyrsta leik áttust við Þór og KA
í 5. fl. og sigruðu Þórsarar örugg-
lega 11:8, þó leikurinn hafi verið
jafnari en um daginn í Haustmóti
HKRA. Mörk Þórs skoruðu
Guðmundur Benediktsson 4,
Steindór Gíslason 3, Árni Páll
Jóhannsson 2 og þeir Hákon
Örvarsson og Ómar Kristjánsson
1 mark hvor.
Mörk KA skoruðu Sveinn
Tryggvason 4, Höskuldur Þór-
hallsson 3 og Gunnar Sigfússon
1.
Næsta leik spiluðu KA og
Völsungur í 4. fl. og hafði KA
mikla yfirburði og sigraði 19:6.
Mörk KA skoruðu: Halldór
Kristinsson 6, Arnar Davíðsson
4, Karl Karlsson 4, Jón Egill
Gíslason 3 og þeir Rúnar Magn-
ússon og Kristinn Magnússon 1
mark hvor.
t>á léku KA og Þór í 3. fl. og
var sá leikur mjög skemmtilegur
á að horfa. Honum lauk með
nokkuð öruggum sigri Þórs, sem
skoraði 16 mörk gegn 12 mörkum
KA. Mörk Þórs skoruðu, Árni
Árnason 5, Páll Gíslason 4, Guð-
mundur Jónsson 4, Kjartan Guð-
mundsson 2 og Ásgrímur Reisen-
hus 1.
Mörk KA skoruðu, Svanur
Valgeirsson 4, Björn Pálmason 3,
Torfi Halldórsson 2, Arnar Krist-
insson 2 og Jón Einar Jóhannsson
1 mark.
Næst léku lið KA og Þórs í 4.
fl. og sigruðu Þórsarar með 17
mörkum gegn 14 nokkuð örugg-
lega. Skoruðu Þórsarar mörg
mörk úr hraðaupphlaupum í
þessum leik. Mörk Þórs skoruðu,
Axel Vatnsdal 8, Þórir Áskelsson
3, Sverrir Rúnarsson 2 og þeir
Gauti Hauksson, Ármann Héð-
insson, Aðalsteinn Pálsson og
Rúnar Sigtryggsson 1 mark hver.
Mörk KA skoruðu, Halldór
Kristinsson 6, Karl Karlsson 3,
Jón Egill Gíslason 2 og þeir Arn-
ar Dagsson, Rúnar Magnússon
og Ingvar Ingvarsson 1 mark
hver.
Þá var komið að kvenfólkinu,
er áttust við lið Þórs og Völsungs
í 3. fl. Leiknum lauk með nokk-
uð öruggum sigri Þórs, 16:1 og
má segja að Völsungs- stelpurnar
hafi greinilega mætt ofjörlum sín-
um í þessum leik. Mörk Þórs
skoruðu, Steinunn Geirsdóttir 7,
Hulda Sigurðardóttir 4, Ellen
Óskarsdóttir 2 og þær Sveindís
Benediktsdóttir, Harpa Örvars-
dóttir og Inga Júlíusdóttir 1 mark
hver. Mark Völsungs gerði
Steina Adolfsdóttir.
Síðasti leikurinn var á milli
Þórs og Völsungs í 4. fl. og lauk
honum með öruggum sigri Þórs
24:6 og var mikill munur á þess-
um liðum hvað getu varðar.
Mörk Þórs skoruðu, Þórir
Áskelsson 7, Axel Vatnsdal 7,
Atli Rúnarsson 4, Rúnar Sig-
tryggsson 4 og þeir Hjalti Hjalta-
son og Sverrir Ragnarsson 1
mark hvor.
Mörk Völsungs skoruðu,
Tryggvi Guðmundssön 2 og þeir
Ásmundur Arnarson, Arnar
Bragason, Jónas Emilsson og
Karl Sigurðsson 1 mark hver.
í þessum leikjum sáust margir
snjallir handboltamenn, sem ör-
ugglega eiga eftir að láta mikið
að sér kveða í framtíðinni.
Hér hefur einn KA-maður sloppið í gegnum vörn Þórs og skorar örugglega. Þessi viðureign var í 5. fl. Mynd: KK
Haustmót Júdósambands Islands:
Glæsilegur árangur
Auðjóns og Gauta
- Unnu alla andstæöinga sína á mótinu
Um helgina fór fram í Reykja-
yík haustmót Judosambands
íslands í unglingaflokki. Tveir
keppendur frá Akureyri fóru
á mótið, þeir Auðjón Guð-
mundsson og Gauti Sigmunds-
son. Þeir félagar gerðu sér lítið
fyrir sigruðu hvor í sínum
flokki og báðir unnu þeir alla
sína keppendur á Yppon, eða
fullnaðarsigri.
Gauti keppti í flokki 56 kg og
þyngri og skellti hann öllum
andstæðingum í gólfið. Til gam-
ans má geta þess að Gauti er að-
Laugamótið í innanhússknattspyrnu:
KA sigraði Þór
í úrslitaleik
eins 57 kg, en hann glímdi við
stráka sem eru allt að 70 kg og
skipti það engu máli fyrir hann,
því hann fleygði þeim öllum í
gólfið. Gauti var langléttastur í
sínum flokki aðeins 57 kg.
Eins var það með Auðjón, en
hann keppti í 50 kg flokki og létt-
ari. Hann var langléttastur í sín-
um flokki aðeins 42 kg. Auðjón
sigraði alla andstæðinga sína á
Yppon, með því að halda þeim
niðri við gólf í 30 sek. En bæði er
hægt að vinna á Yppon með
kasti, eða þá að halda manni
niðri eins og Auðjón gerði.
Þessi árangur þeirra félaga er
glæsilegur þegar tekið er tillit til
Gauti Sigmundsson júdókappi.
þess að báðir voru langléttastir
hvor í sínum flokki. Sannarlega
menn framtíðarinnar.
Um helgina fór fram á Laugum
í Reykjadal, hið árlega Lauga-
mót í innanhússknattspyrnu.
Um 20 lið mættu til leiks og
voru í mörgum tilfellum 2 lið
frá sama félagi.
Leikið var í 6 riðlum og kom-
ust tvö lið áfram úr hverjum riðli.
Þá var þeim liðum skipt í 3 riðla
og komst 1 lið úr hverjum riðli
áfram í úrslitin. Það voru KA a,
KA b og Þór a sem það gerðu og
fyrst léku saman KA a og Þór a
og lauk leiknum með sigri Þórs 8-
5. Því næst léku KA a og KA b
og sigraði b liðið 9-4. Var hér
komið að úrslitaleik mótsins og
nægði KA b jafntefli við Þór,
vegna hagstæðara markahlutfalls
úr viðureigninni við KA a. Fóru
leikar líka þannig að jafntefli
varð 6-6 og dugði það KA b til
sigurs á mótinu.
í liði KA b voru, Tryggvi
Gunnarsson, Friðfinnur Her-
mannsson, Haukur Bragason,
Árni Hermannsson, Guðjón
Guðjónsson og Þorvaldur Örlygs-
son.
Nýir menn
til KA
Miklar líkur eru á að KA fái til
liðs við knattspyrnulið sitt hinn
stórefnilega markvörð úr Fram
Hauk Bragason. Haukur þykir
eitt mesta markmannsefni
landsins í dag og yrði það mikill
styrkur fyrir' KA að fá hann í
sínar raðir. Þá eru líkur á að
tveir útileikmenn spili með KA
næsta ár, þeir Steinar Ingi-
mundarson úr KR og Halldór
Halldórsson úr ÍR.
Friðfinnur og félagar í KA sigruðu á Laugamótinu en Siglfirðingar mættu
ekki til leiks.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Þorleifur skorar
á Val Amþórsson
Þorleifur talaði um það síðast að hann myndi afgreiða Níels með
stæl sem hann og gerði. Að vísu naumt, Þorleifur hafði 5 leiki rétta,
en Níels 4 og er hann þar með úr leik. Þorleifur heldur áfram og
hann hefur skorað á Val Arnþórsson kaupfélagsstjóra. Valur hefur
lítið getað fylgst með ensku knattspyrnunni í vetur, en hann hefur
haft sterkar taugar til bæði Tottenham og Q.P.R í gegnunt tíðina.
Við skulum sjá hvernig honum gengur gegn „atvinnumanni," sem
Þorleifur er þegar enska knattspyrnan er annars vegar.
Þorleifur:
Valur.
Arsenal-Liverpool
Aston Villa-Man.U
Chelsea-Sheff.Wed.
Ipswich-Q.P.R.
Man.City-Coventry
Newcastle-Southampt.
Nottm.Forest-Luton
Oxford-W.B.A.
Watford-Tottenham
Barnsley-Charlton
Blackburn-Sunderland
Oldham-Norwich
2 Arsenal-Liverpool
x Aston Villa-Man.U
1 Chelsea-Sheff.Wed
1 Ipswich-Q.P.R.
1 Man.City-Coventry
1 Newcastle-Southampt.
1 Nottm.Forest-Luton
1 Oxford-W.B.A.
2 Watford-Tottenham
x Barnsley-Charlton
1 Blackburn-Sunderland
2 Oldham-Norwich
Athugið!
Fólk sem spilar í getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir
hádegi á fimmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2