Dagur - 20.01.1986, Qupperneq 1
69. árgangur
Akureyri, mánudagur 20. janúar 1986
12. tölublað
Framsóknarfélögin á Akureyri:
Útboðið er
úr sögunni
- Kolbeinsey er nú föl fyrir 178 millj. króna,
sem er tryggingaverðmæti skipsins
kjósa aftur á milli tveggja efstu
manna eöa þeirra sem hafa feng-
ið meira en 25% atkvæða. Fram-
bjóðendur skulu allir vera við-
staddir kjörfund eða hafa full-
gildan fulltrúa úr hópi kjörfund-
armanna. Heimild er til að af-
þakka sæti sem frambjóðandi
hefur verið kosinn í og skal þá
endurtaka kosninguna.
Almenn ánægja var á fulltrúa-
ráðsfundinum með þetta fyrir-
komulag, sem m.a. veldur því að
menn geta hagað kosningu í aft-
ari sæti á listanum með tilliti til
þess hverjir þegar hafa verið
kosnir. í kjörnefnd hafa verið
kosnir Bragi V. Bergmann, Gísli
Kr. Lórenzson, Ólafur Ásgeirs-
son, Sigurlaug Gunnarsdóttir og
Þorgerður Guðmundsdóttir. Til
vara Áskell Þórisson, Áslaug
Magnúsdóttir, Dórothea Bergs,
Jóhann Sigurðsson og Stefán
Jónsson.
HS
Snæfell:
Þarf að
skipta
um vél?
„Skipið er bilað það er stað-
reynd. Hvað framundan er
gagnvart Fiskveiðasjóði,
bankakerfinu og ráðuneytinu
er allt saman í lausu Iofti,“
sagði Kristján Ólafsson sjávar-
útvegsfulltrúi KEA. Snæfellið,
skip Kaupfélags Eyfirðinga
sem gert er út frá Hrísey varð
fyrir vélarskemmdum og sagði
Kristján að vélin væri mjög
léleg.
Búist er við því að skipta þurfi
um vél í skipinu. Eins hefur
heyrst að lengja eigi skipið og
jafnvel gera það að frystitogara.
Varðandi þær hugmyndir sagði
Kristján að engar ákvarðanir hafi
verið teknar. Stefnt er að fundi í
dag um hvað gert verði í þessu
máli.
Hálfgerður hringlandaháttur
virðist nú einkenna Kolbeins-
eyjarmálið svonefnda, því nú
er skipið ekki lengur til sölu
samkvæmt þeim tilboðum
sem gerð voru í það, heldur
standa tilboðsgjafar frammi
fyrir því að fá skipið
á tryggingaverðmæti, sem er
178 milljónir króna, eilegar
ekki.
Þctta kont fram í þeim við-
ræðum sem fulltrúar íshafs á
Húsavík áttu við Fiskveiðasjóð
íslands fyrir helgina. Húsvík-
ingar munu hafa verið tilbúnir
til að ganga inn í tilboð út-
gerðarfélags Akureyringa sem
hljóðaði upp á um 163 milljónir
króna, það er að ganga inn í
hæsta tilboðið að frágengnum
Norður-Þingeyingum. Þessu
mun Fiskveiðasjóður hafa hafn-
að og má raunar segja að öllum
tilboðum í skipið hafi verið
hafnað - útboðið úr sögunni.
Reynir nú væntanlega á það
hvort lysthafendur vilja kaupa
skipið fyrir þessa upphæð. Þetta
er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir
Húsvíkinga og ekki vitað hvern-
ig brugðist verður við. Einn
stjórnarmanna ÚA sagði í sam-
tali við Dag að til athugunar
kæmi að kaupa skipið fyrir
þessa upphæð. Ólafsfirðingar
eru einnig inni í myndinni, með
tilboð sem var svipað tilboði
Húsvíkinganna en með lakari
greiðslukjörum. Þá er stór
spurning hvort Norður-Þingey-
ingar eru alveg út úr myndinni.
Allt er mál þetta orðið hið
furðulegasta og má segja að
Fiskveiðasjóður sé búinn að
fara heilan hring í ntálinu.
HS
Nýstáriegar reglur um
val á framboðslista
Á fundi fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna á Akureyri á
fimmtudagskvöld voru sam-
þykktar reglur fyrir val á fram-
boðslista til bæjarstjórnar á
Akureyri.
Skipa skal kjörnefnd sem í eiga
sæti 5 aðalmenn og 5 til vara.
Fulltrúaráðið skipar nefndina.
Hún gerir lista yfir minnst 24
flokksbundna menn, sem vilja
gefa kost á sér. Kjörfundur, sem
á skulu boðaðir allir félagsbundn-
ir framsóknarmenn í félögunum
á Akureyri, velur síðan í 1.-8. sæti
á listanum. Kjörnefnd gengur
endanlega frá framboðslista og
leggur fyrir fulltrúaráðið til
endanlegrar samþykktar.
Kjörnefnd tekur á móti uppá-
istungum um frambjóðendur þar
til þremur vikum fyrir kjörfund,
sem halda skal eigi síðar en laug-
ardaginn 15. mars kl. 14. Kosið
er um hvert sæti og byrjað á
1. sæti. Frambjóðandi þarf að fá
a.m.k 50% atkvæða til að hljóta
kosningu. Að öðrum kosti skal
Samtök um jafnrétti milli iandshiuta héldu vel sóttan fund í Sjallanum a laugardaginn. Her ma sja framsogumenn,
en meðal þeirra voru þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra. í ræðustól er Hólmfríður Bjarnadóttir frá Hvamms-
tanga. Mynd: - KGA.
Siglufjörður:
A-flokkarnir
sögðu nei
Á fundi framsóknarfélaganna
á Siglufirði, sem haldinn var
þann 15. janúar sl. var tekið
fyrir bréf frá Sjálfstæðisflokkn-
um á Siglufirði þar sem fram
kemur að Alþýðuflokkurinn
og Alþýðubandalagið vilja
ekki taka þátt í sameiginlegu
prófkjöri allra flokka fyrir
næstu bæjarstjórnarkosningar.
Ákveðið var á fundinum að
láta fara fram skoðanakönnun á
meðal félagsmanna þar sem
stungið verði upp á hugsanlegum
frambjóðendum flokksins. Síðan
verður röðun á endanlegan fram-
boðslista ákveðin af uppstill-
ingarnefnd eða með prófkjöri.
Ætlunin er að Ijúka uppstill-
ingunni fyrir 10. mars n.k. Fram-
undan er mikið starf hjá Fram-
sóknarflokknum um sveitar-
stjórnarmál og þurfa því nýir
frambjóðendur tíma til að kynna
sig og þau málefni sem áhersla
verður lögð á á næsta kjörtíma-
bili. ^ BB.
Fjölmennasti bændafundur
á Akureyri í mörg ár
- var haldinn á Hótel KEA á fímmtudagskvöldiö
Kristján sagði að ekki hafi ver-
ið hráefnisskortur í Hrísey síðan
skipið bilaði, en búast mætti við,
að það gerðist fljótlega. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
öflun hráefnis fyrir Hríseyinga
ennþá, en þau mál eru í athugun.
Enda ekki ákveðið hvort skip fé-
lagsins veiði samkvæmt aflamarki
eða sóknarmarki. Ákvörðun um
það verður væntanlega tekin á
fundinum í dag. Samkvæmt upp-
lýsingum tekur 3-4 mánuði að
skipta um vél í skipi af svipaðri
stærð og Snæfellið er, gej-
Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra hélt fund með bænd-
um í Eyjafirði á Hótel KEA á
fimmtudagskvöldið. Um 200
manns mættu á fundinn og er
þetta fjölmennasti bændafund-
ur sem haldinn hefur verið á
Akureyri í mörg ár.
Landbúnaðarráðuneytið boð-
aði til þessa fundar sem var einn
af mörgum í röð funda sem Jón
Helgason hefur haldið með
bændum um allt land.
Megintilgangur fundarins var
að kynna bændum hin nýju lög
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins svo og ný viðhorf og hug-
myndir í landbúnaðarmálum.
Landbúnaðarráðherra flutti
langa og yfirgripsmikla ræðu þar
sem hann rakti gang mála á síð-
ustu árum og sagði frá því mark-
verðasta sem áunnist hefði í mál-
efnum landbúnaðarins. Síðan
voru almennar umræður og gátu
rnenn komið ineð fyrirspurnir til
ráðherra sem hann síðan svaraði
í lok fundarins.
Á annan tug manna stigu í
pontu og komu með fyrirspurnir,
athugasemdir og ábendingar.
Fundinum lauk ekki fyrr en
klukkan var langt gengin í 2 á
föstudagsnóttina.
Aðspurður sagðist Jón Helga-
son vera mjög ánægður með
þennan fund.
„Hann var mjög málefnalegur
og ég fékk þarna margar og góð-
ar ábendingar. Þetta er líklega
12. fundurinn sem ég held í þess-
ari „hringferð" og sá langfjöl-
mennasti til þessa,“ sagði land-
búnaðarráðherra.
Nánar verður skýrt frá fundin-
um í blaðinu á miðvikudag. BB.