Dagur - 20.01.1986, Blaðsíða 12
Akureyri, mánudagur 20. janúar 1986
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 2 222
Siglufjörður:
Lóð fengin fyrir
nýja lögreglustöð
- Óvíst hvort framkvæmdir hefjast á árinu
Svo sem fram hefur komið í
Degi er lögreglustöðin á Siglu-
firði í afar slæmu ástandi og
ekkert útlit fyrir að úr rætist á
næstunni.
Heilbrigðisnefnd Siglufjarðai
skoðaði fangaklefana í lok nóv
ember og komst að þeirri niður-
stöðu að ástand þeirra væri óvið-
unandi. Nefndin samþykkti þó
fyrir sitt leyti að nota mætti þrjá
fangaklefa í neyðartilvikum fram
til 1. maí, ef þeir yrðu málaðir
strax og loftræsting bætt o.s.frv.
Heilbrigðisnefnd lagði áherslu á
að byggingu nýrrar lögreglu-
stöðvar yrði hraðað eftir föngum.
Að sögn Erlings Óskarssonar
bæjarfógeta á Siglufirði er ekki
gert ráð fyrir fjárveitingu til
byggingar nýrrar lögreglureglu-
stöðvar í fjárlögum þessa árs.
„Ég held að allir hljóti að sjá,
að þetta er ófremdarástand og ég
trúi ekki, og get reyndar ekki
ímyndað mér annað en að við
Blönduós:
Hreinsunargjöld
hækka um 100%
Alagningarseðlar fasteigna-
gjalda hafa verið sendir gjald-
endum á Blönduósi fyrir árið
1986, þar kemur meðal annars
í Ijós að svokallað hreinsunar-
gjald hefur hækkað um 100%
frá fyrra ári.
í bréfi sem fylgir álagningar-
seðlunum kemur meðal annars
fram að gjaldendur verða nú
sjálfir að standa skil á fasteigna-
gjöldum en á síðasta ári voru þau
innheimt hjá vinnuveitendum um
leið og útsvör. f>á kemur fram að
Jökull Raufarhöfn:
Rekstur
gengur
vel
„Framleiðslan gekk nokkuð
vel á síðast ári miðað við árin
á undan,“ sagði Hólmsteinn
Björnsson hjá frystihúsinu
Jökli á Raufarhöfn. Eins og
kunnugt er stórskemmdist
frystihús fyrirtækisins í bruna
og voru miklar blikur á loft í
atvinnumálum staðarins eftir
það.
Undanfarin ár hefur rekstur
frystihússins gengið illa, en brá til
betri tíðar árið 1985. Þakkar
Hólmsteinn það meiri og betri
afla og meiri mannskap í vinnsl-
unni. Nokkuð af aðkomufólki
var við vinnu hjá Jökli á síðasta
ári auk fleiri heimamanna en
áður.
Bygging nýs frystihúss sem
ráðist var í eftir brunann hefur
gengið vel. Lítið vantar upp á að
húsið sé fokhelt. Ólokið er
uppsteypu á litlum hluta þess
Aætlanir eru uppi um að hefja
vinnslu í nýja húsinu um næstu
áramót. Sagði Hólmsteinn að
ekkert ætti að vera því til fyrir-
stöðu að svo gæti orðið. gej-
elli- og örorkulífeyrisþegar fá af-
slátt af fasteignagjöldum allt að
kr. 6000.00.
Vatnsskattur hækkar úr 0,15%
í 0,18% vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda vatnsveitunnar, og mun
ekki af veita. Talsverð hækkun
verður á lóðarleigu og hagagjöld-
um eða um 35%.
Að sögn Snorra Björns Sig-
urðssonar sveitarstjóra gekk inn-
heimta gjalda til sveitarsjóðs vel
á síðasta ári og var innheimtu-
prósenta fasteignagjalda 98,6%
en útsvars og aðstöðugjalda
91,7%, Snorri Björn sagði að
innheimtan jengi alltaf vel á
Blönduósi og hefði oft verið betri
en nú.
Einnig vildi hann að fram
kæmi að þrátt fyrir mikla hækkun
hreinsunargjalds stæði það tæp-
lega undir kaupum á ruslapokum
og væri hreinsunin sjálf greidd úr
sveitarsjóði. G.Kr.
fáum aukafjárveitingu til þess að
geta hafið framkvæmdir í vor,“
sagði Erlingur.
Erlingur benti á að um síðustu
helgi hefðu verið nokkur ólæti í
bænum og raunverulega hefði
þurft að setja 7-8 manns í „svart-
holið“ en ekki hefði reynst unnt
að hýsa nema þrjá vegna þessa
Ófremdarástands.
Lögreglan hefur þegar fengið
lóð undir nýja lögreglustöð,
nokkru neðar í Gránugötunni.
Gert er ráð fyrir tveggja hæða
byggingu þar sem lögreglustöðin
verður á neðri hæðinni en skrif-
stofur á efri hæð. Talið er að slík
bygging kosti a.m.k. 15 milljónir
króna.
„Við hefðum helst viljað að
hægt yrði að gera bygginguna
fokhelda í sumar þannig að hægt
yrði innrétta hana um veturinn.
Þessi mál horfa mjög ógæfulega í
dag, svo ekki sé meira sagt,“
sagði Erlingur að lokum. BB.
Ljósastaurar urðu tvisvar fyrir barðinu á bflum á föstudag og laugardag.
Þessi sendibfll fór heldur illa út úr viðkynningunni. Mynd: - KGA.
Sæplast á Dalvík:
„Horfumar em bjaitar
„Þaö er óhætt að segja að
reksturinn hafí gengið vonum
framar á síðasta ári. Við seld-
um meira af framleiðslunni en
reiknað var með, svo horfurn-
ar eru bjartar,“ sagði Pétur
Reimarsson framkvæmdar-
stjóri Sæplasts á Dalvík. Það
fyrirtæki framleiðir fískiker
fyrir markað innanlands og
utan.
Á síðasta ári framleiddi Sæ-
plast 3800 fiskiker. Af þeim voru
flutt út 25%. Aðalkaupendur er-
lendis eru Færeyingar, írar,
Hjaltlandseyingar, auk þess sem
Bandaríkjamenn hafa keypt
nokkuð af framleiðslunni. Pétur
sagði að Sæplast væri með í hópi
ýmissa fyrirtækja á Akureyri og
víðar sem vinna sameiginlega að
könnunum á útflutningi þessara
fyrirtækja. Bjóst hann við því að
þessar kannanir gætu farið að
skila árangri á þessu ári. Aðal-
lega er stefnt á markaði í Banda-
ríkjunum og Kanada.
Þrátt fyrir að Sæplast hafi aðal-
lega einbeitt sér að framleiðslu
fiskikerjanna, hefur það framleitt
nokkuð af brettum undir fiski-
kassa, frystipönnur og flaka-
bakka sem notuð eru í frystihús-
um. Reiknaði Pétur með því að
framleiðsla í þessum vörum ykist
á næstu árum. Sæplast er í tiltölu-
lega litlu og ótryggu leiguhúsnæði
á Dalvík og eru því hugmyndir á
lofti um að byggja yfir fyrirtækið
á næstu 2 árum eða svo.
Pantanir eru fleiri nú en á sama
tíma í fyrra og sagði Pétur Reim-
arsson að gott hljóð væri í mönn-
um og bjartar horfur varðandi
framtíðina. gej-
Frá afmælistónleikunum á laugardaginn.
Mynd: - KGA.
Tonlistarskóli Akureyrar:
Á afmæli
í dag
Tónlistarskólinn á Akureyri er
40 ára í dag. Hann var stofnað-
ur 20. janúar árið 1946. Nem-
endur voru þá 27 og stunduðu
allir nám í píanóleik. Fyrsti
skólastjóri og kennari var Mar-
grét Eiríksdóttir. Forgöngu um
stofnun skólans höfðu Karla-
kórinn Geysir, Tónlistarfélag
Akureyrar, Lúðrasveit Akur-
eyrar og Kantötukórinn.
Við Tónlistarskólann á Akur-
eyri stunda nú nám um 500 nem-
endur og er kennt á 25 mismun-
andi hljóðfæri. Kennarar eru 25.
Skólastjóri er Jón Hlöðver
Áskelsson. Við segjum nánar frá
Tónlistarskólanum í blaðinu á
morgun. -mþþ