Dagur - 05.02.1986, Síða 1
69. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 5. febrúar 1986
24. tölublað
Bæjarráð Akureyrar:
8 milljónir að
auki til VMA
- Breytt fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar afgreidd til
síðari umræðu í bæjarstjórn á fimmtudag
Síðari umræða um fjárhags-
áætlun Bæjarsjóðs Akureyrar
fyrir árið 1986 mun fara fram
næsta þriðjudag, viku seinna
en upphaflega var áætlað.
Bæjarráðsmenn fjölluðu um
fjárhagsáætlunina á 9 klukku-
stunda löngum fundi á mánudag-
inn og héldu svo framhaldsfund í
gær. Á morgun verður svo einn
fundur enn og þar verður vænt-
anlega gengið frá formlegum
bókunum að tillögum bæjarráðs.
Líkur benda til að einhugur verði
um afgreiðslu fjárhagsáætlunar-
innar í bæjarráði.
Eftir því sem Dagur kemst
næst eru stærstu breytingar milli
umræðna þær að 8 milljón króna
viðbótarfjármagni verður veitt til
Luuna.
Metvertíð á
Raufarhöfn
„Við erum hættir að bræða
núna og Iítum þannig á að
loðnuvertíðinni sé lokið hjá
okkur,“ sagði Árni Sörensson
verksmiðjustjóri hjá Sfldarverk-
smiðjum rfldsins á Raufarhöfn.
„Þetta er metvertíð hjá okkur,
þrátt fyrir að við séum búnir
fyrr en venjulega. Síðasta
loðnan barst til Raufarhafnar
17. janúar.“
Oftast hefur verið vinna við
bræðslu á Raufarhöfn fram í
mars. En þar sem loðnan er
gengin langt suður með Aust-
fjörðum er hún hætt að ber-
ast til Norðurlandshafna. Einnig
hafa loðnubátar siglt með aflann
þar sem betur er borgað fyrir
loðnuna erlendis.
Alls voru brædd 81 þúsund
tonn á Raufarhöfn á þessari
vertíð. Er það mun meira en ver-
ið hefur áður. Byrjað var að
bræða í ágúst á s.l. ári og lauk
bræðslunni síðastliðinn föstudag.
Næstbesta vertíðin var í fyrra og
bræddi verksmiðjan þá 55 þús-
und tonn af loðnu. „Þrátt fyrir
mikla vinnu á vöktum hefðu
menn þegið að fá einn mánuð til
viðbótar,“ sagði Árni Sörensson.
gej-
Verkmenntaskólans á Akureyri.
Áætlað er að það fjármagn nægi
til þess að ganga frá innangerð
þriðja áfanga VMA þannig að
hægt verði að taka hann í notkun
á hausti komanda.
Einnig er gert ráð fyrir að
veruleg hækkun verði á gjöldum
til Sjúkrasamlags Akureyrar. Svo
virðist sem Akureyringar þurfi að
borga hærri gjöld til sjúkrasam-
lagsins en gerist og gengur í öðr-
um stærri bæjarfélögum.
Sem fyrr segir mun bæjarráð
væntanlega afgreiða fjárhags-
áætlunina til seinni umræðu í
bæjarstjórn á fundi sínum á
morgun. BB.
„Þessi þröskuldur er nú í hærra lagi!“
Mynd: KGA.
Háskólaráð um háskólakennslu á Akureyri:
Ýmislegt enn óljóst
- sem þarf að liggja fyrir, áður en bindandi ákvörðun
um kennslu á háskólastigi á Akureyri verður tekin
Það er álit háskólaráðs að
ekki megi taka um það bind-
andi ákvörðun að hefja há-
skólakennslu á Akureyri fyrr
en nákvæm svör liggi fyrir
varðandi ýmis atriði sem enn
eru óljós. Þá telur ráðið að
taka beri tillit til þess að Há-
Það voru margir orðnir langeygir eftir þíðviðri - þó ekki væri til annars en að geta þvegið bílinn sinn. Mynd: KGA.
skólinn sé illa búinn í dag til
þess að halda uppi kennslu á
einum stað, hvað þá að taka
upp kennslu víðar á landinu.
Menntamálaráðuneytið óskaði
eftir umsögn Háskóla íslands
varðandi það hvernig megi vinna
að því að efla Akureyri sem mið-
stöð mennta og vísinda utan
höfuðborgarinnar, en álitsgerð
nefndar sem skipuð var til að
gera tillögur um þetta efni var
send öllum deildum Háskólans
og var fjallað um hana á fundum
háskólaráðs. í ályktun háskóla-
ráðs segir m.a.:
„Áætlanagerð um háskólahald
á Akureyri er enn skammt á veg
komin og ekki hafa enn verið til-
greindar neinar námsgreinar sem
hagkvæmt væri að taka upp
nyrðra. Skoða þarf nákvæmlega
hvaða gögn og gæði eru nauðsyn-
leg til háskólakennslu, og hvort
þau eru þar þegar til staðar eða
hvernig mætti afla þeirra - og
hvað þau myndu kosta . . .“
Þá segir í ályktuninni að óráð-
legt sé að stefna að kennslu í
greinum sem nú eru kenndar við
Háskóla íslands og þetta þurfi
m.a. að liggja fvrir áður en
ákvörðun verður tekin um að
hefja háskólahald á Akureyri.
Kolbeinsey land-
aði 120 tonnum
Kolbeinsey ÞH 10 kom til
Húsavíkur í gærmorgun úr
sinni fyrstu veiðiferð eftir að
íshaf hf. eignaðist skipið.
Skipið var með um 120 tonn af
þorski eftir 9 daga veiðiferð.
Togarinn var að veiðum fyrir
Norðurlandi og er fiskurinn talinn
ágætur að gæðum.
Vinna í Fiskiðjusamlagi Húsa-
víkur hófst sl. mánudag. I blað-
inu í dag er sagt frá fyrsta vinnu-
degi þar eftir hið langa hlé. IM
Sjá bls. 6-7.
Kolbeinsey bundin við bryggju á
Húsavík. Mynd: IM.