Dagur - 05.02.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 05.02.1986, Blaðsíða 5
5. febrúar 1986 - DAGUR - 5 Jesendahornið- „Þá er eitthvað að hjá þeim sómakæm - Athugasemd við grein Óskars Sigtryggssonar Jóna Sigurgeirsdóttir, skrifar: Ástæðan fyrir því að ég sest niður til að skrifa þessar línur, er grein eftir Óskar Sigtryggsson í Degi 3. febrúar, þar sem hann fjallar um sjónvarpsþáttinn „Spjallað við listamann“. Ég segi nú bara, aumingja maðurinn, að láta sér detta í hug að skrifa um efni, sem hann ber ekkert skyn- bragð á. Mér fannst þessi umræddi þáttur, þar sem Megas talaði við Bubba Morthens, alveg frábær, enda ætlar sjónvarpið að endur- sýna hann á laugardaginn kemur. Mér finnst aðdáunarvert, þegar fólk hefur kjark til að koma fram í sjónvarpi, til að segja heiðar- lega frá sjálfu sér. Bubbi er ekki að sýnast neitt annað en hann er. Og það, að kenna Bubba um það að unglingar hafa leiðst út í óreglu er svo fáránlega heimskulegt, að það tekur engu tali. Ég held að Óskar Sigtryggs- son ætti að kynna sér þessi mál betur, áður en hann hleypur með þau í blöðin. Óskar talar um að Bubbi hugsi ekki mikið um afdrif þeirra ungl- inga, sem tekið hafa lífsmáta hans til fyrirmyndar. Þarna hefur Óskar ekki mikla hugmynd um hvað hann er að segja. Bubbi hefur gert mikið af því að vara unglinga við hættulegum eitur- lyfjum. Á tónleikum sínum hefur hann talað um þessi mál af hrein- skilni og reynslu. Þegar fólk lend- ir í óreglu, þá er þar engum utan- aðkomandi um að kenna. Það er fólkið sjálft sem kemur sér út í þetta. Óskar talar um, að það sé niðurlægjandi að lenda í eitur- Utsölunni lýkur föstudaginn 7. febrúar Enn er hægt að gera góð kaup á barnafatnaði og leikföngum á frábæru verði. \Jw Bubbi Morthens lyfjum. Vissulega er hörmulegt að lenda í slíku. En ég kýs frem- ur að kalla þetta sjúkdóm, því svo sannarlega verður þetta sjúklegt. En með hjálp er hægt að ná sér út úr svona hörmungum og ég lít upp til þeirra sem geta staðið upp og sagt frá sinni reynslu, því með því eru þeir að vara aðra við. Þannig hjálpa þeir öðrum, sem eru sjúkir. Það getur komið fyrir alla, að lenda í óreglu. Satt best að segja hélt ég að fólk væri ekki lengur haldið slíkum fordómum, sem fram koma í grein Óskars. Hann talar um að umræddur sjónvarps- þáttur sé ósvífni við „sómakæra sjónvarpsáhorfendur“. Sko, ef fólk þolir ekki að til séu menn, sem þora að koma heiðarlega fram og segja frá sér og sínu lífi, og eru ekki að sýnast eitthvað allt annað en þeir eru, ja, þá held ég að eitthvað sé að hjá þeim „sómakæru". Þessi sjónvarpsþáttur var frá- bær og þeir sem ég hef talað við um þáttinn voru mjög hrifnir. Þar var þó um að ræða fólk á öllum aldri, þar af einn 64 ára. Bubbi og Megas eiga því aðdáendur á öllum aldri. Óskar talar líka um tónlistina hans Bubba. Ég hef þó grun um, að Óskar hafi ekki mikið hlustað á hana, þannig að hann ætti ekki að dæma það sem hann ekki þekkir. Ég vil benda Óskari á, að hlusta á plötuna „Kona“ og hlusta vel eftir textunum, sem all- ir eru verulega góðir, auk þess sem lögin eru verulega falleg. En ef til vill eru textarnir hættulegir fyrir þessa „sómakæru“, sem ekki þola að heyra sannleikann um lífið. Þessi sjónvarpsþáttur var frá- bær og ég vona að þessir „sóma- kæru“ hætti þessari afbrýðisemi út í fólk, sem þorir að vera það sjálft. Oskudagurinn nálgast Fyrir öskudaginn: Grímur, hattar, búningar, indíána- fjaðrir, byssur, andlitslitir, andlits- og hár- „spray“. Einnig margt annað sniðugt t.d. nef í lausu og fleira. Kiwanismenn munu knýja dyra dagana 7.-9. febrúar og bjóða barmmerki til sölu. AHur reirner

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.