Dagur - 10.02.1986, Page 3
10. febrúar 1986 - DAGUR - 3
Baldvin og Kjartan nýkomnir úr flugi.
„Ætli ég láti ekki
sólóprófið nægja“
- Flugkennari og flugnemi teknir tali á Akureyrarflugvelli
Ertu flugrædd(ur)? Já svar-
aður, ertu flughrædd(ur)? Ef svo
er veistu hvað er best til að yfir-
vinna flughræðslu? Álit margra
er að best sé að fljúga aldrei.
Það er út í hött því samgöngur
eru það háðar flugi, að menn
komast stutt ef ekki er flogið.
Hvað dregur ungt fólk að flugi?
Ævintýraþrá, von um góða og
vel launaða vinnu, eða eitthvað
annað?
AlLa vega eru nógu margir í
flugnámi. Þegar við áttum leið
um Akureyrarflugvöll um
daginn, renndi lítil flugvél sér
inn til lendingar. Þar sem flug-
áhugi ..er innbyggður í okkur
fórum við til móts við flugvélina
litlu og náðum mynd af tveimur
ungum mönnum sem stigu út úr
þessu kríli. Þar voru á ferðinni
Baldvin Birgisson flugkennari
og nemandi hans Kjartan
Bjarnason flugvirki.
- Hvað er flugvirki að gera í
flugnámi?
„Þetta getur varla kallast nám
ennþá, því þetta er annar tím-
inn sem ég tek í fluginu,“ segir
Kjartan, 27 ára gamall og vinn-
ur hjá Flugfélagi Norðurlands.
- Eru þessir tveir tímar nóg
til að kveikja flugbakteríuna
frægu?
„Já, ég held það. Þetta er
geysilega gaman. Jú ætli ég
haldi ekki áfram.“
- Ætlarðu þá að hætta í flug-
virkjun og gerast flugmaður?
Kjartan brosir. „Nei ætli ég
láti mér ekki nægja sólópróf í
byrjun. Kannski tek ég einka-
flugmanninn seinna, hver veit?“
Baldvin er flugkennari hjá
F.N. Auk þess er hann líka
flugmaður á áætlunarleiðum fé-
lagsins. Er flugkennsla
skemmtileg?
„Já, mjög skemmtileg.“
- Eitthvaðkostarþað,erþað
ekki?
„Ef taka á einkaflugmanns-
próf þarf að taka minnst 66
flugtíma auk bóklegs nám-
skeiðs. Hver flugtími kostar svo
2.400 krónur. Svo ég reki áróð-
ur fyrir flugkennslunni, þá geta
menn borgað 10 tíma fyrirfram,
en fá síðan 11.“
- Er mikill áhugi?
„Geysilega mikill. Það er al-
veg nóg að gera í þessu.“
Ekki lætur þú þér nægja að
fljúga þessum litlu rellum. Hver
er draumurinn?
„Hann er að komast á stærri
og skemmtilegri flugvélar.“
- Eru einhverjir möguleikar
á því?
„Það er aldrei að vita,“ segir
Baldvin og bætir við, „má ég
ekki bjóða þér í smá flug?“
- Gamla flugmannshjartað
tekur kipp. Jú takk. Og við fór-
um í flug. Ætli við segjum ekki
frá því seinna? gej-
Leikklúbbur Skagstrendinga:
Ekkert leikrit sýnt
á 10. afmælisárinu
Það byrjar heldur illa 10 ára verður ekkert leikrit á dagskrá
afmælisárið hjá Leikklúbbi þeirra í vetur.
Skagstrendinga, en að sögn „Það gekk ekkert hjá okkur að
Guðmundar Hauks Sigurðs- fá leikstjóra og auk þess reyndist
sonar formanns leikklúbbsins mjög erfitt að fá fólk í hlutverk,
Vetrarhörkur á Hólsfjöllum
Sannkölluð vetrarveðrátta var
á Hólsfjöllum allan janúar-
mánuð. Hörku stórhríðar með
fannkomu lokuðu öllum veg-
um til og frá hreppnum en til
áramóta var fært til allra átta.
Menn urðu að grípa til snjó-
sleðanna og eins hafa póstferðir í
janúar verið farnar á snjóbíl. Um
tíma herti svo að með haga, að
taka varð alla hesta á gjöf og er
það næsta fátítt á Hólsfjöllum og
gerðist síðast snjóaveturinn 1975.
Nú um mánaðamótin gerði
tveggja daga hláku og voru þá
troðnar slóðir með jeppum til
Mývatnssveitar og austur á Jök-
uldal, og er það von manna að
veður stillist svo að hægt verði að
hafa not af þessum slóðum.
Á mánudag fundust tvær kind-
um á Hólssandi norðan við
Hólssel. Voru þær furðuvel á sig
komnar miðað við veðurhaminn
sem geisað hefur. Eigandi þeirra
er Benedikt Sigurðsson í Gríms-
tungu. G.Ó.
sérstaklega karlhlutverkin, en
meiningin var að setja upp „Ást-
in sigrar“ eftir Ólaf Hauk Símon-
arson en þar eru þrjú hlutverk
sem í þyrftu að vera vanir karlar
um þrítugt," sagði Guðmundur.
„Hins vegar erum við ekkert
stopp, því við munum standa að
þorrablóti þann 8. febrúar ásamt
kvenfélaginu og þá er meiningin
að gera afmælisdagskrá með
ýmsu úr sögu klúbbsins og hafa
skemmtun um páskana.
Annars er héðan allt gott að
frétta en kannski má segja að
menn gleðjist helst yfir því að nú
virðist loks ætla að verða mögu-
legt að nota skíðalyftuna en hana
hafa menn lítt getað notað síðan
nýr skíðaskáli var reistur sumarið
1984, því það hefur varla fest
snjó síðan,“ sagði Guðmundur
Haukur að lokum. G.Kr.
’ ———................. ' ' ' '
Toshiba örbylgjuofninn fæst hjá okkur
Veriö velkomin og kynnist þvi hvernig hægt er aft matrei&a allan venjulegan mat i Toshiba örbylgjuofninum
á otrulega stuttum tíma. Hvers vegna margir réttir verfta betri úr Toshiba ofninum en gömlu eldavélinni.
Og þér er óhmtt aft láta börnin baka.
Og siftast en ekki sist. Svo þú fáir fulikomið gagn af ofninum þinum holdum vift matreiftslunámskeift fyrir
________________________eigendur Toshiba ofna._______________
Nýkomin búsáhöld fyrir örbylgjuofna
SIEMENS
Þvottavélar, eldavélar, ísskápar
og fleira, einnig smá heimilistæki
í úrvali
til dæmis:
Hitateppi:
Tilvalin gjðf handa pabba og mömmu
eöa afa og ömmu.
Einnig kaffikönnur,
handhrærivélar ásamt fylgi-
hlutum, brauðristar með hita-
grind, eggjasjóðarar,
straujárn með og án gufu,
hraðgrill og ótal margt fleira.
Blomberq
þvottavélar, ísskápar
og eldavélar.
Viðurkennd gæðavara.
2ja ára ábyrgð.
Búsáhöld í úrvali
Tótu barnastollinn
Sérstaklega hentugur og þsgilegur í flutningi.
PETRA
smá heimilistæki í úrvali.
Mýjung t.d. hraðsudukanna,
nytsöm til margra hluta.
^ NYLAGNIR
wnúr "
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400
Verslið hjá fagmanni.
Framsóknarfélag Húsavíkur
Fundarboð
Almennur félagsfundur verður haldinn í Framsókn-
arfélagi Húsavíkur mánudaginn 10. febrúar kl.
20.30. í Garðari.
Dagskrá:
a. Hvað hefur áunnist í atvinnumálum á kjörtímabil-
inu?
b. Kosningaundirbúningurinn.
c. önnur mál.
Mætið vel. stjórnln
-A Hjúkrunarfræðingar
aB Ijósmæður
Eftirtaldar stöður við heilsugæslustöðvar eru
lausar til umsóknar nú þegar:
Keflavík, staða hjúkrunarfræðings
Seltjarnarnes, staða hjúkrunarfræðings
Selfoss, staða hjúkrunarfræðings
Dalvík, hálf staða hjúkrunarfræðings
Djúpivogur, staða hjúkrunarfræðings
Eyrarbakki, staða hjúkrunarfræðings og
Ólafsvík 75% staða Ijósmóður.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga
málaráðuneytinu fyrir 10. mars 1986.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
5. febrúar 1986.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
óskar að ráða
skrifstofumann
í hálfa stöðu á Launadeild. Verslunarskólapróf-
eða hliðstæð menntun æskileg, ásamt einhverri
reynslu í launaúrvinnslu.
Upplýsingar um starfið veitir launafulltrúi í síma
22100. Umsóknir, sem greini frá menntun og fyrri
störfum, berist á skrifstofu F.S.A. fyrir 21. febrúar
n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.