Dagur - 12.02.1986, Blaðsíða 1
Svalbarðseyri:
Uppboðunum
var frestað
Kaupfélags Svalbarðseyrar í
gær.
Lögfræðingar kröfuhafa, sýslu-
maður Þingeyinga, og stjórnar-
formaður kaupfélagsins voru
mættir til uppboðsins kl. 11.00 í
gærmorgun. Samkomulag náðist
hins vegar við kröfuhafa um að
fresta uppboðinu um þrjá mán-
uði og greiddi kaupfélagið eina
milljón króna upp í skuldir sínar.
____________________gej-
Akureyrarbær:
Afnám
fastrar
yfirvinnu
A fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær var samþykkt að
gera sérstakt átak til að
minnka yfirvinnu og sumar-
afleysingar hjá starfsmönnum
bæjarins. Sem skref í átt að
þessu markmiði var ákveðið að
segja upp allri fastri yflrvinnu
starfsmanna bæjarins frá og
með 1. mars n.k., með lög-
bundnum þriggja mánaða
fyrirvara.
Samkvæmt þessari ákvörðun
bæjarstjórnar eiga forstöðumenn
allra stofnana bæjarins að gera
áætlun um hvernig best verði
hægt að halda yfirvinnu og
sumarafleysingum í lágmarki í
þeirra stofnun eða deild. Þessar
áætlanir þurfa að berast bæjar-
ráði fyrir lok þessa mánaðar.
Einnig verða fastar yfirvinnu-
greiðslur til einstakra starfs-
manna teknar til gaumgæfilegrar
endurskoðunar og á þeirri endur-
skoðun að vera lokið fyrir 1. maí
n.k. Þeir starfsmenn sem fá
greidda fasta yfirvinnu skulu
halda vinnuskýrslur frá 15. febrú-
ar til 15. apríl. Þessar aðgerðir
gilda einnig fyrir veitustofnanir
bæjarins og aðrar rekstrareining-
ar sem hafa sjálfstæðan fjárhag.
í samræmi við þessar aðgerðir
færði bæjarstjórn flesta launaliði
fjárhagsáætlunarinnar niður um
2.5% og dró þannig úr útgjöldum
um sem nemur þremur milljón-
um króna. Taliö er að hægt verði
tð lækka launagjöld mun meira
jf aðhaldsaðeerðirnar heppnast
vel. ~ BB.
69. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 12. febrúar 1986
29. tölublað
Ekkert varð af uppboði því
sem átti að verða á hluta eigna
Á Svalbarðseyri í gær. Starfsmaður Kaupfélags Svalbarðseyrar opnar hér dyr á skemmu sem bjóða átti upp. Lögfræðingarnir Benedikt Ólafsson og Jón
Kr. Sólnes fylgjast með, á bak við þá má sjá Halldór Kristinsson sýslumann,þá Tryggva Stefánsson formann stjórnar Kaupfélags Svalbarðseyrar og lengst
til hægri er lögregluþjónn sem fylgist vel með öllu. Mynd: KGA.
Bæjarsjóður fær 15 milljónir
- að láni hjá vatnsveitunni - Formaður vatnsveitustjórnar sagði af sér
Tillaga sjálfstæðismanna um
að fresta framkvæmdaáætlun
Vatnsveitu Akureyrar um
óákveðinn tíma og taka meg-
inhluta framkvæmdafjár stofn-
unarinnar að láni til bæjar-
sjóðs Akureyrar, var sam-
þykkt með 6 atkvæðum gegn
einu á fundi bæjarstjórnar í
gær.
f fjárhagsáætlun vatnsveitunn-
ar var gert ráð fyrir 15 milljón
króna fjárveitingu til að hefja
framkvæmdir við byggingu vatns-
geymis á Miðhúsaklöppum. Auk
þess var gert ráð fyrir 2,5 milljón-
um í óráðstafað rekstrarfé. Full-
trúar Sjálfstæðisflokks lögðu
fram tillögu um að fella niður
þann lið í fjárhagsáætlun vatns-
veitunnar sem fjallar um fram-
kvæmdir við vatnsgeyminn en
færa 15 milljónirnar yfir á liðinn
„óráðstafað fé“. Síðan yrði það
fé tekið að láni til framkvæmda
við Dvalarheimilið Hlíð, Skjald-
arvík og e.t.v. Síðuskóla, en
framkvæmdafé bæjarsjóðs er sem
kunnugt er af skornum skammti.
Freyr Ófeigsson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks og formaður vatns-
veitustjórnar, var mjög á móti
þessari tillögu. Hann taldi að
þarna væri um dulbúna skatt-
heimtu að ræða og mjög óeðlilegt
að fara þessa leið á meðan tekju-
stofnar bæjarins væru ekki full-
nýttir.
Fulltrúar Kvennaframboðs og
Alþýðubandalags lýstu sig sam-
þykka tillögunni en framsóknar-
menn lögðu frarn aðra tillögu
sem ekki gekk eins langt. Þar var
lagt til að framkvæmdaáætlun
vatnsveitunnar yrði frestað þar til
línur skýrðust um fjárframlag til
Hlíðar úr Framkvæmdasjóði
aldraðra og framlag ríkisins til
Síðuskóla en ekki ákveðið strax
að taka þessa peninga frá vatns-
veitunni. Tillagan fékk ekki
meirihlutafylgi.
Freyr Ófeigsson greiddi at-
kvæði á móti tillögu sjálfstæðis-
manna en fulltrúar Framsóknar-
flokks og annar fulltrúi Kvenna-
framboðs sátu hjá.
Þegar atkvæðagreiðslu var lok-
ið bað Freyr urn orðið og sagði
m.a.:
„Þessi samþykkt stríðir alger-
lega mót mínum hugmyndum og
kippir fótunum undan allri áætl-
anagerð vatnsveitunnar. Minn
starfsgrundvöllur er brostinn og
ég sé mér ekki annað fært en að
segja af mér sem formaður
stjórnar Vatnsveitu Akurevrar."
BB.
Skilyrði að ekki verði um
fjármagnsflutninga að ræða
„Þaö virðist liggja á borðinu
að ávöxtunarkjör lífeyrissjóð-
anna ntuni batna og kjör sjóð-
félaganna varðandi lántökur
einnig með þessu nýja kerfi.
Út frá því sjónarmiði er æski-
legt að taka þátt í þessu. Hitt
veldur miklum áhyggjum, ef
þátttaka í þessu felur í sér
fjármagnsflutninga af svæðinu
inn í miðstýrt kerfl, sem hugs-
anlega myndi beina fjármagns-
straumum fyrst og fremst í
áframhaldandi stóruppbygg-
ingu á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, sem þegar hefur búið við
of mikla þenslu á húsnæðis-
markaði,“ sagði Valur Arn-
þórsson, stjórnarmaður í líf-
eyrissjóði KEA, en hugmyndir
að nýju húsnæðislánakerfl
voru ræddar í stjórn sjóðsins í
gær.
„Það liggur ekki fyrir endanleg
niðurstaða stjórnar sjóðsins, en
það má segja að meginviðhorfið
sé það, að augljóst virðist sem
ávöxtun sjóðsins muni batna við
það að taka þátt í þessu nýja
kerfi. Ríkið tryggir að það fjár-
magn sem inn í þetta fer frá líf-
eyrissjóðnum beri þá ávöxtun
sem ríkið greiðir af skuldabréfum
á hverjum tíma, nú 9,5%. Nú eru
þau bréf sem sjóðurinn kaupir af
stofnlánadeildum atvinnuvega
með 7% vöxtum og lán til sjóð-
félaga eru með 5%. Jafnhliða
þessu er augljóst að lánakjör
sjóðfélaga munu batna frá því
sem er nú, þegar þeir taka lán
beint frá sjóðnum. Lán til sjóð-
félaga samkvæmt þessu nýja kerfi
bæru aldrei hærri vexti en 3% í
stað 5% nú. Þannig myndu
vaxtakjör sjóðfélaganna batna og
auk þess myndu þeir fá hærra lán
með þessu móti heldur en saman-
lagt úr lífeyrissjóði og húsnæðis-
lánakerfinu í dag. Þess utan
myndu þeir eiga aðgang að láni
eftir 2 ár samkvæmt þessu nýja
kerfi.
Út frá þessum sjónarmiðum er
æskilegt að taka þátt í þessu en
hitt veldur miklum áhyggjum ef
þátttaka í þessu nýja kcrfi veldur
fjármagnsflutningum þeim sem
ég nefndi áður. Þátttaka í þessu
kerl'i er því að okkar mati, eins
og rnálið liggur fyrir núna, skilyrt
á þann hátt að hið nýja kerfi
verði deildaskipt og hér verði
stjórn fyrir þá deild sem hér yrði,
skipuð fulltrúum húsnæðismála-
kerfisins og fulltrúum lífeyris-
sjóðanna sem þátt taka í þessu
héðan. Um gæti verið að ræða
Akureyrar- eða Eyjafjarðar-
deild, en það mætti vissulega
skoða það hvort hentara þætti að
láta deildina ná yfir stærra svæði.
Þessi svæðisstjórn myndi sjá um
lánveitingar á þessu svæði. ráð-
stafa því fjármagni sem hér félli
til. Ef það þyrfti ekki allt á þessu
svæöi myndi sú stjórn að sjálf-
sögðu vera tilbúin til þess að
semja um að það fjármagn færi
inn í sameiginlega kerfið fyrir allt
landið. Á sama hátt fengi svæðis-
stjórnin fjármagn úr sameigin-
— segir Valur Arnþórsson
um hugmyndir að nýju
húsnæðislánakerfi
lega kerfinu ef hér vantaði
fjármagn.
Með þessu móti sýnist okkur
að hagsmunir allra gætu verið
tryggðir. sjóðsins. sjóðfélaganna
ag svæðisins í varðveislu
fjármagns, auk þess sem við yrð-
um þá þátttakendur í því að
koma betri skikk á húsnæðismál-
in í landinu í heild. Það blandast
víst engum hugur um það að
miklir erfiðleikar hafa verið í
húsnæðismálum. Það hefur vald-
ið einstaklingum miklum erfið-
leikum og verið verðbólguvald-
andi í þjóðfélaginu." sagði Valur
Arnþórsson. Hann sagði að eftir
ætti að kanna ýmsa efnisþætti
áður en .endanleg afstaða yrði
mótuð. - HS