Dagur - 12.02.1986, Blaðsíða 9
12. febrúar 1986 - DAGUR - 9
JþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Bekkpressumót í Jötunheimum:
Kraftlyftingamenn
unnu vaxtarræktarmenn
Nýstárleg og skemmtileg
keppni fór fram í hinum nýja
sal Lyftingaráðs Ak., Jötun-
heimum á laugardag. En þar
kepptu kraftlyftingamenn
gegn liði vaxtarræktarmanna
í sveitakeppni í bekkpressu.
í hvorri sveit voru 5 menn og
einn til vara og var árangur síð-
an reiknaður út samkvæmt al-
þjóðlegri stigatöflu. Keppt var
um veglegan farandbikar sem
Gunnar Eiríksson leiðtogi gaf
og flutti hann jafnframt setning-
arræðu mótsins. Fóru leikar svo
að kraftlyftingamenn sigruðu
örugglega að þessu sinni.
í sigursveit kraftlyftinga-
manna voru þeir Kári Elíson en
hann hlaut 109,244 stig, Víking-
ur Traustason með 104,200 stig,
Flosi Jónsson með 79,177, Örn
Traustason með 71,316 stig og
Jóhannes Hjálmarsson með
64,986 stig. Samtals fengu kraft-
lyftingamenn 428,923 stig, vara-
maður í liðinu var Þorvaldur
Vestmann.
í sveit vaxtarræktarmanna
voru þeir Sigurður Gestsson en
hann hlaut 94,224 stig, Sigurður
Pálsson með 88,768 stig, Jón
Knútsson með 75,219 stig, Sæv-
ar Símonarson með 73,657 stig
og Björn Broddason með
70,748 stig. Samtals fengu
vaxtarræktarmenn því 402,616
stig. Varamaður þeirra var
Brynjar Ágústsson.
Utan keppni voru tveir kepp-
endur. í 56 kg flokki keppti
Sverrir Gestsson 14 ára og setti
hann ísl. met unglinga í öllum
greinum. { hnébeygju lyfti hann
25 kg, í bekkpressu 70, í rétt-
stöðulyftu 70 kg og samanlagt
165 kg. Hinn keppandinn var
Kristjana ívarsdóttir í 67,5 kg
flokki og setti hún Ak. met í
bekkpressu í kvennaflokki, lyfti
55 kg.
Keppni þessi þótti takast vel
og hefur önnur slík verið ákveð-
in í lok maí. Víst er að sigur
kraftlyftingamanna verður ekki
jafn öruggur þá því vaxtarrækt-
armenn leggja mikla ástundum
við bekkpressu og eru í mikilli
framför.
Kári Elíson var stigahæstur í keppninni.
Sigurður Gestsson var stigahæstur vaxtarræktar-
manna.
Guðrún H. Kristjánsdóttir er ósigrandi á skíðum.
Guðrún H.
vann tvöfalt
- á skíðum í Hlíðarfjalli
Það var einnig keppt í flokki
fullorðinna í svigi og stórsvigi í
Fjallinu um helgina. Á laugar-
dag fór fram KA-mót í stór-
svigi en á sunnudag Akureyr-
armót í stórsvigi.
í flokki kvenna á KA-mótinu
sigraði Guðrún H. Kristjánsdótt-
ir KA á 139,37, önnur varð Anna
Göngumót í Hlíðarfjalli:
Haukur Eiríksson
öruggur sigurvegari
- Ólafsfirðingar duglegir í yngri flokkunum
Guðmundur Svansson.
Kvennaknattspyrna:
Guðmundur
þjálfar
Þór
Allt bendir til þess að Guð-
mundur Svansson verði áfram
þjálfari kvennaliðs Þórs í knatt-
spyrnu í sumar.
Guðmundur hefur verið þjálf-
ari liðsins síðustu 3 ár með góð-
um árangri. Árið 1983 sigraði lið-
ið í 2. deild undir stjórn Guð-
mundar og hefur leikið í þeirri 1.
síðan.
Liðinu hefur bæst góður liðs-
auki og hafa stúlkurnar sett
markið hátt á komandi keppnis-
tímabili.
Tvö göngumót fóru fram í
Hlíöarfjalli um helgina. KA-
mót með frjálsri aöferð á laug-
ardaginn og Þórsmót með
hefðbundinni aðferð á sunnu-
daginn. Keppt var í 7 flokkum
fyrri daginn og 6 þann síðari.
KA-mót, frjáls aðferð
í KA-mótinu sigraði Magnea
Guðbjörnsdóttir Ó í flokki
stúlkna 13-15 ára. Hún gekk 3,5
km á 16:35. í flokki drengja 8 ára
og yngri sigraði Helgi Jóhannes-
son A, hann gekk 1 km á 7:19.
í flokki drengja 11-12 ára sigr-
aði Kristján Hauksson Ó, hann
gekk 2 km á 8:44, annar Kári Jó-
hannesson A á 9:15, þriðji Arin-
björn Þórarinsson A á 10:20 og
fjórði Sverrir Guðmundsson A á
13:02.
í flokki drengja 13-14 ára sigr-
aði Guðmundur Óskarsson Ó,
hann gekk 3,5 km á 11:56, annar
Sveinbjörn Sveinbjörnsson D á
14:41 og þriðji Stefán Guð-
mundsson A á 19:07.
í flokki drengja 15-16 ára sigr-
aði Grétar Björnsson Ó, hann
gekk 5 km á 18:27 og annar varð
Ásgeir Guðmundsson A á 23:34.
I flokki karla 17-34 ára sigraði
Haukur Eiríksson A, liann gekk
10 km á 28:16, annar Ingþór
Eiríksson A á 30:11 og þriðji
Þorvaldur Jónsson Ó á 31:15.
í flokki karla 50 ára og eldri
sigraði Rúnar Sigmundsson A,
hann gekk 7,5 km á 33:38 og ann-
ar varð Ásgrímur Stefánsson A
á 43:40.
Þórsmót,
hefðbundin aðferð
Á Þórsmótinu þar sem keppt var
með hefðbundinni aðferð sigraði
Helgi Jóhannesson A í flokki
drengja 8 ára og yngri, hann gekk
1 km á 7:36. í flokki drengja 9-10
ára sigraði Ragnar Ingi Jónsson
A, hann gekk 2 km á 14:13.
í flokki drengja 11-12 ára sigr-
aði Kári Jóhannesson A, hann
gekk 2,5 km á 11:24, annar Arin-
björn Þórarinsson A á 11:53 og
þriðji Sverrir Guðmundsson A á
12:51.
í flokki drengja 13-14 ára sigr-
aði Sveinbjörn Sveinbjörnsson
D, hann gekk 5 km á 22:33 og
annar varð Stefán Guðmundsson
A á 30:42. í flokki drengja 15-16
ára sigraði Ásgeir Guðmundsson
A, hann gekk 7,5 km á 30:22.
í flokki 17 ára og eldri þar sem
gengnir voru 15 km sigraði Hauk-
ur Eiríksson A á 44:35, annar
Ingþór Eiríksson A á 47:36 og
þriðji Sigurður Aðalsteinsson A
á 49:08.
Ólafsfirðingar voru ekki með
á mótinu á sunnudag en þeir
stóðu sig mjög vel á laugardag-
inn og sigruðu í nokkrum yngri
flokkanna.
:( -:í
V.
+**k
: JBOtt mm mm.
Sveinn Sigtryggsson.
Röng mynd
I blaðinu í gær varð ruglingur
með mynd um sundmenn úr
Óðni sem eru að fara að æfa með
unglingalandsliðinu. Myndin átti
að vera af Sveini Sigtryggssyni og
látum við hana fylgja með í blað-
inu í dag, einnig var hann rangt
feðraður í greininni og er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
M. Malmquist Þór á 141,49 og
þriðja Bryndís Ýr Viggósdóttir
KA á 142,22.
í karlaflokki sigraði Brynjar
Bragason KA á 132,41, annar
Ingólfur Gíslason Þór á 133,20 og
þriðji Rúnar I. Kristiánsson á
138,66.
í Akureyrarmótinu á sunnu-
daginn sigraði Guðrún H.
Kristjánsdóttir KA einnig, á
150,56, á hæla hennar kom Anna
M. Malmquist Þór á 151,01 og
þriðja varð Bryndís Ýr Viggós-
dóttir KA á 152,20.
í karlaflokki sigraði Guð-
mundur Sigurjónsson KA á
142,47, annar Ingólfur Gíslason
Þór á 145,03 og þriðji Rúnar 1.
Kristjánsson á 145,77.
Guðrún H. Kristjánsdóttir
vann þarna örugga sigra um helg-
ina og virðist hún vera í nokkrum
sérflokki í kvennaflokki enda æft
vel erlendis að undanförnu.
Getraunir:
Enginn
með 12
Engum tókst að ná í tólfuna í
getraunum um helgina en fram
komu 6 ellefur og er vinningur á
hverja þeirra 178.265. Tíurnar
urðu 92 og er vinningur á hverja
þeirra 4.982.
Það leit lengi vel út fyrir 4 KR-
inga á besta aldri því fram til kl.
14 á mánudaginn voru þeir einir
með 11 rétta en þegar leið á dag-
inn bættust hinir 5 við og brosið
fraus smám saman á KR-ingun-
um.
Fimrn leikjum var frestað á
seðlinum og var því kastað upp
teningi um merki í þeim leikjum.
Svo vildi til að teningurinn kom 4
sinnum upp með merkinu x. Það
er eftirlitSmaður getrauna sem
kastar upp teningnum. Teningur-
inn er tólfflötungur fimm fletir
með merkinu 1, fjórir með merk-
inu x og þrír með merkinu 2.
Alls seldust 814.944 raðir og er
vinningspotturinn því 1.528.020.
Knattspyrnudeild Fram var sölu-
hæst með um 62.000 raðir.