Dagur - 12.02.1986, Qupperneq 3
12. febrúar 1986 - DAGUR - 3
Góð veiði í Mývatni
Mjög góð veiði hefur verið í
Mývatni síðan byrjað var að
veiða þar gegnum ísinn. Bæði
dorga menn og veiða í net.
Hefur veiðin bæði verið meiri
en undanfarin ár og fiskurinn
vænni. Dorgveiðin hófst 1.
febrúar. Hafa vatnabændur,
en svo eru kallaðir bændur
sem eiga jarðir að vatninu,
veiðileyfi 2 daga í viku. Síðan
eru almenn Ieyfi seld um
helgar. Kosta þau 400 krónur.
Hámarkskvóti er 15 fiskar.
Mývetningar hafa lengi haft
sérstakar aðferðir við netaveið-
ina gegnum ísinn. Nota þeir lang-
an tréplanka sem kallast kafari.
Stinga þeir kafaranum gegnum
vök og renna honum undir ísinn
og taka hann upp í annarri vök,
eða þeirri fjarlægð sem lengd
netsins ségir til um. Nú hefur
trésmiðjan Sniðill tekið að sér að
smíða nýja tegund kafara. Er
hann styttri og meðfærilegri en
eldri gerðin.
Hefur veiðitækni Mývetninga
þótt það árangursrík að þeir hafa
farið í aðrar sýslur til að kenna
hana. Héðinn bóndi Sverrisson á
Geiteyjarströnd hefur farið um
Húnavatnssýslur og víðar til að
kynna mönnum aðferðir Mývetn-
inga. gej-
Bæjarsjóður Akureyrar:
Styrkir til félaga
Á fjárhagsáætlun Akureyrar
fyrir þetta ár er gert ráð fyrir
að veita um 11,3 milljónum
króna til styrktar félögum og
félagasamtökum í bænum.
Hæstu framlögin fara til Leik-
félags Akureyrar (3,8 milljónir
króna) og íþróttabandalags
Akureyrar (3 milljónir króna).
í töflunni hér að neðan má sjá
hvernig styrkirnir skiptast milli
einstakra félaga.
Sundurliðun á fjárveitingum til
styrktar félögum á árinu 1986.
Félagsmál og almannatryggingar:
Styrkir til félaga:
Styrktarfélag
vangefinna 100.000
Barnaheimilið Ástjörn 70.000
ÆSKH v/sumarbúða 70.000
KFUM v/sumarbúða 70.000
Foreldrafélag barna
með sérþarfir
- rekstrarstyrkur 40.000
-v/sumardvalarbarna 160.000
AA-samtökin
Akureyri 70.000
Mæðrastyrksnefnd 25.000
Kvennasamband
Akureyrar 15.000
Félagið Vernd,
Reykjavík 10.000
Neytendasamtökin 50.000
Náttúrulækninga-
félag Akureyrar:
-byggingastyrkur 350.000
SÁÁ Akureyri
v/námskeiða 100.000
Geðverndarfélagið
v/húsakaupa 130.000
Félag aldraðra
-ferðastyrkur Heilbrigðismál: Styrkir til félaga: Rauðakrossdeild 130.000 Alls: 1.390.000
Akureyrar Menningarmál: Styrkir til félaga: 54.000 Alls: 54.000
Karlakórinn Geysir 50.000
Karlakór Akureyrar 50.000
Passíukórinn 50.000
Lúðrasveit Akureyrar Tónlistarfélag 110.000
Akureyrar 65.000
Skákfélag Akureyrar 85.000
Leikfélag Akureyrar 3.800.000
Leikklúbburinn Saga Zontaklúbbur 60.000
Akureyrar 50.000 Alls: 4.320.000
Fegrun og skrúðgarðar:
Styrkir til félaga:
Garðyrkjufélag
Akureyrar 15.000
Skógræktarfélag
Eyfirðinga 65.000
Alls: 80.000
íþrótta- og æskulýðsmál:
Styrkir til félaga:
(þróttabandalag
Akureyrar 3.000.000
íþróttasvæði KA 340.000
íþróttasvæði Pórs 340.000
Golfvöllur að Jaðri 340.000
Skautafélag Ak.
v/íþróttasvæðis 340.000
Svifflugfélag
Akureyrar 30.000
Fallhlífaklúbbur
Akureyrar 30.000
Hestamannafélagið
Léttir 45.000
Bílaklúbbur Akureyrar 30.000
Skátafélögin á
Akureyri 130.000
Sunnudagaskóli
þjóðkirkjunnar 15.000
Nökkvi,
félag siglingamanna 45.000
Styrkir til ýmissa
félaga v/vélal. 340.000
íþróttafélagið Eik 50.000
Alls: 5.075.000
Eldvarnir og öryggismál:
Styrkir til félaga:
Flugbjörgunarsveitin 95.000
Hjálparsveitskáta ____________95.000
Alls: 190.000
Ýmis útgjöld:
Styrkir til féiaga:
Veiðifélag
Eyjafjarðarár 15.000
Ferðamálafélag
Akureyrar:
- v/upplýsinga-
miðstöðvar 160.000
Alls: 175.000
Aðalfundur
Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar
Aöalfundur Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar
veröur haldinn laugardaginn 15. febrúar kl. 14.30.
Fundarstaður: Mánasalur Sjallans.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Ath.: Á eftir aðalfundinum veröur haldinn kynningar-
fundur um hjarta- og æðasjúkdóma og starfsemi
Hjartaverndar. Sjá aöra auglýsingu.
Stjórnin.
tr
Yomm að taka
upp gluggatjöld
í niiklu úrvalí
Meistari
heldur hljómleika í
Sjallanuni Sólarsal fímmtud. 13. febrúar
kl. 22.00.
Húsið opnað kl. 21.00.
Missið ekki af einstakri uppákomu
Sjáumst.