Dagur - 13.02.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, fimmtudagur 13. febrúar 1986 30. tölublað
Trúlofunarhringar
afgrelddir
samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Tjörnes:
Merkja-
blys
fannst
í gær fann Aðalgeir Egilsson á
Mánárbakka merkjablys rekið
á fjöru. Hann lét Landhelgis-
gæsluna vita af fundi sínum og
verður blysið sótt við fyrsta
tækifæri.
Þessum blysum, „Marker“ svo-
kölluðum, þarf að eyða því í
þeim er fosfór er gæti brennt illa.
Einnig geta þau sprungið í hönd-
um fólks ef fiktað er við þau.
Blysið er tæpur hálfur metri að
lengd.
f>ess má geta að Aðalgeir fann
sams konar blys á sama stað í
fyrra. IM.-Húsavík
Þórshöfn:
Bræðslan kemur
Um helgina kemur til Þórs-
hafnar skip það sem flytur tæki
í hina nýju loðnubræðslu, sem
keypt hefur verið til staðarins.
Er það Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar sem fest hefur kaup á not-
aðri verksmiðju frá Noregi og
mun hún verða sett upp í húsi
gömlu síldarbræðslunnar. Búið
er að rífa vélar þar niður og bíður
húsið eftir nýju tækjunum.
Uppskipun á tækjunum mun
taka 3-4 daga, en uppsetning
verksmiðjunnar sjálfrar tekur
nokkra mánuði. Er stefnt að því
að hún verði tilbúin fyrir næstu
loðnuvertíð. eei-
Kartöfluverksmiðjan
Svalbarðseyri:
Ráðherrar
vilja
leysa
vandann
„Ég hef haft samband við bæði
forsætisráðherra og landbún-
aðarráðherra vegna vanda
kartöfluverksmiðjunnar á
Svalbarðseyri. Báðir lýstu yfir
vilja til þess að reyna að leysa
málin og þau eru í athugun, en
ekki er vitað hvað kemur út úr
því,“ sagði Hafþór Helgason,
fulltrúi hjá KEA sem hefur
eftirlit með rekstri kaupfélags-
ins á Svalbarðseyri eftir að
KEA tók reksturinn yfir.
Þórður Stefánsson hefur verið
ráðinn til að hafa yfirumsjón
með daglegum rckstri.
Nú eru 46 af fyrrverandi starfs-
mönnum Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar komnir í vinnu við rekstur-
inn. Má raunar segja að allir
starfsmenn KSP hafi byrjað störf
á ný nema 8 skrifstofumenn og 2
bílstjórar. Skrifstofuhald, þar
með bókhald og tölvukeyrsla,
hefur verið fært til skrifstofu
KEA á Akureyri. HS
„Við erum sko engir bófar!“ Og lögregluþjóninum virðist ekki líka illa félagsskapur þessara vígalegu drengja með alvæpni og hatt. Það er nú öskudagur!
Mynd: KGA.
löngardar á Akureyri
- „Útungunarstöð“ fyrir fyrirtæki
Hugmyndir eru uppi í At-
vinnumálanefnd Akureyrar
um að Akureyrarbær festi
kaup á húsnæði sem nýst
gæti sem iðngarðar fyrir fyrir-
tæki sem eru að hefja atvinnu-
rekstur. Húsnæðið sem stend-
ur til boða er við Fjölnisgötu
4b og er í eigu Aðalgeirs og
Viðars h/f. Er það um 350
ferm. að gólffleti.
Jón Sigurðarson formaður At-
vinnumálanefndar Akureyrar
sagði að þessar hugmyndir væru í
beinu framhaldi af því sem hefur
verið unnið í atvinnumálum á
Akureyri. Þar hefur verið auglýst
eftir nýjurn hugmyndum varð-
andi iðnað og fleira. Þær hug-
myndir hafa verið skoðaðar með
það fyrir augum hvort þær væru
arðbærar og mönnum gerð grein
fyrir því hvort hugmyndirnar
væru vænlegar til hagnaðar eða
ekki. Síðan hefur atvinnumála-
nefnd leiðbeint þeim aðilum sem
þess þurfa með í gegnum banka-
kerfi, lánastofnanir og veitt þann
stuðning sem nauðsynlegur er.
Hugmyndin um iðngarða kemur
svo í framhaldi af þessum athug-
unum.
Oft hefur verið talað um að
auðvelt væri að fá iðnaðarhús-
næði til leigu á Akureyri. Þegar
þeir hlutir voru athugaðir kom í
Ijós að svo er ekki. Þess vegna
hefur mönnum sem áhuga hafa á
að stofna til nýiðnaðar í bænum
gengið erfiðlega að fá húsnæði og
lagt allt sitt fé í húsakaup. þannig
að fyrirtækið hefur ekki getað
vaxið sem skyldi.
Það sem vakir fyrir atvinnnu-
málanefnd er að bærinn eigi
húsnæðið og leigi það síðan aðil-
um í iðnaði til 3-5 ára. Eftir þann
tíma verði þeir sjálfir að koma
Rækjuvinnslan Skagaströnd:
Selur rækju til
Marks og Spencer
Samningaviöræður standa nú
yfír á milli Rækjuvinnslunnar
á Skagaströnd og hins þekkta
fyrirtækis Marks & Spencer í
Énglandi um aö Rækjuvinnsl-
an selji fyrirtækinu 75-100
tonn af rækju á ári.
Verðið fyrir rækjuna yrði 10%
hærra en markaðsverð, enda ger-
ir enska fyrirtækið mjög miklar
kröfur varðandi vinnslu og gæði
rækjunnar. Þegar er byrjað að
vinna að ýmsum breytingum hjá
Rækjuvinnslunni til að fullnægja
kröfum enska fyrirtækisins, svo
fullvíst má telja að stutt sé í
undirritun samninga.
Rækjuvinnslan á Skagaströnd
mun vera langstærsti aðili á sölu
á rækju á innanlandsmarkaði og
er ekki gert ráð fyrir neinum
samdrætti hvað það snertir þó að
þessi samningur við Marks &
Spencer verði gerður.
Um síðustu áramót tók nýr
framkvæmdastjóri við hjá
Rækjuvinnslunni. Hann heitir
Heintir Fjeldsted. Hjá fyrirtæk-
inu starfa nú rúmlega 20 manns,
og eru unnin um 220 tonn af pill-
aðri rækju á ári. G.Kr.
sér í annað húsnæði. ..Það má
kalla þetta útungunarstöð fyrir
fyrirtæki. Það er mín tillaga að
það verði í höndum atvinnumála-
nefndar að úthluta húsnæðinu og
að nefndin aðstoði aðila sem vilja
taka húsnæði á leigu. Vinni með
þeirn og kanni rekstrargrundvöll
hvers fyrirtækis. Einnig að menn
fái ekki inni í iðngörðunum fyrr
en sá þáttur er á hreinu. í stuttu
tnáli að hjálpa mönnum til sjálfs-
bjargar." sagði Jón Sigurðar-
son.
Hrifnir
af leður-
fatnaðinum
Innbrot var framið í fyrrinótt
í Vélsmiðju Steindórs að
Frostagötu 6 á Akureyri.
Fyrirtækið hefur umboð fyrir
ýmsar vörur og meðal þess sem
þjófarnir höfðu á brott með sér
voru öryggishjálniar, tveir leð-
urjakkar, þrenn pör af leður-
hönskum og ýmislegt annað
smádót. Einnig komust þeir yfir
peningakassa sem innihélt 2.000
krónur og höfðu hann á brott
nteð sér.
Fengurinn bendir til þess að
hér hafi ungir piltar verið að
vcrki og reyndar tók það rann-
sóknarlögregluna á Akureyri
ekki mjög langan tíma að upp-
lýsa þetta mál. gk-.