Dagur - 13.02.1986, Síða 8
8 - DAGUR - 13. febrúar 1986
Vorhugur í „bæjarkörlum":
Sandur og drasl
í niðurföllunum
Peir voru aö vinna vorverk
„bæjarkarlarnir" sem við hitt-
um fyrir utan Súlnaberg í blíð-
unni fyrir skömmu. Þar voru
Randver Gunnarsson og Þórður
Kárason með „götusópara"
bæjarins. Ekki var verið að
sópa þarna, heldur voru þeir
með kraftmikla sugu sem þeir
settu ofan í niðurföll.
„Jú, það er kominn hálfgerð-
ur vorhugur í mann þegar veðr-
ið er svona gott,“ sagði Þórður.
„Þrátt fyrir það þarf að hreinsa
niðurföll á veturna eins og á
vorin.“ Þeir félagar taka fyrir
eina og eina götu og hreinsa
niðurföll hennar. „Það er sand-
ur eftir veturinn og alls konar
drasl sem safnast í niðurföllin.
Þó sérstaklega þegar miklar
hlákur hafa verið," sagði
Randver.
Mikill kraftur er í sugu þeirra
félaga, því þegar blaðamaður
prófaði kraft hennar og lét aðra
höndina fyrir opið skall hún á
rörið og ætlaði að fara inn í það.
Þá hlógu Randver og Þórður og
sögðu að margir hefðu prófað
þetta og farið eins. En þá var
það bara næsta niðurfall og svo
næsta og næsta. gej-
!
Akureyringar - nærsveitamenn
-getraun
Vegleg verðlaun
Verðum með kynningu á Damíxa blöndunar-
tækjum föstudaginn 14. febrúar.
Einnig kynnum við Damixa „baðvörur“ svo sem
handklæðahengi, rúlluhaldara og fleira.
Sérstakur kynningarafsláttur.
Verið velkomin.
Byggingavörudeiid
Glerárgötu 36.
Ályktun kennara
í sveitarskólum
Mánudaginn 10. febrúar var
haldinn fundur kennara úr eftir-
töldum skólum að Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði: Grenivíkur-
skóla Grunnskóla Svalbarðs-
strandarhrepps, Laugalands-
skóla, Grunnskóla Saurbæjar-
hrepps, Grunnskóla Hrafnagils-
hrepps, Hrafnagilsskóla og Þela-
merkurskóla.
Fundurinn gerði eftirfarandi
samþykkt um réttindamál
kennara og lögverndun starfsins.
Starfsfundur kennara haldinn
að Hrafnagilsskóla 10. febrúar
1986, beinir þeirri eindregnu á-
skorun til menntamálaráðherra
Sverris Hermannssonar, að hann
leggi nú þegar fram á Alþingi
frumvarp um lögverndun starfs-
heitis kennara og kennarastarfs-
ins. í því sambandi vill fundurinn
árétta að lögverndun kennara-
starfsins er einsf meginforsenda
þess að kennarar fái réttlát laun
fyrir störf sín.
Með því móti einu verður
komið í veg fyrir það ófremdar-
ástand sem er að skapast, að
fjöldi kennara sækir í önnur bet-
ur launuð störf, þannig að til
þurrðar horfir í stéttinni.
Fundurinn gerði eftirfarandi
samþykkt sem send var í skeyti til
fjármálaráðherra sama dag.
Fundur kennara úr Grenivík-
urskóla, Grunnskóla Svalbarðs-
strandarhrepps, Laugalands-
skóla, Grunnskóla Saurbæjar-
hrepps, Grunnskóla Hrafnagils-
hrepps, Hrafnagilsskóla og Þela-
merkurskóla haldinn að Hrafna-
gilsskóla mánudaginn 10. febrúar
1986, krefst þess að fjármálaráð-
herra jafni nú þegar þann launa-
mun sem er milli kennara í HÍK
og KÍ.
Ennfremur skorar fundurinn á
fjármálaráðherra að veita kenn-
urum strax fullan samnings- og
verkfallsrétt. Það hlýtur að flokk-
ast undir sjálfsögð mannréttindi
að 3000 manna samtök launþega
hafi rétt til að semja um kaup sitt
og kjör.
Ljóst er að ef ekkert verður
gert í samningsréttar- og launa-
málum kennara á næstunni neyð-
ast kennarar til að segja upp
störfum sínum og leita í betur
launuð störf. Ekki getur slíkt
orðið til framdráttar menntamál-
um í landinu.