Dagur - 13.02.1986, Page 9
13. febrúar 1986 - DAGUR - 9
JþróttiL
Bjarni Sveinbjörnsson er kominn á fulla ferð með Þór á ný eftir meiðsli og
verður með í Bautamótinu um helgina.
Bautamótið í innanhússknattspyrnu:
Þórsarar hafa
titil að verja
Það verða 20 lið sem munu
taka þátt í Bautamótinu í
innanhússknattspyrnu er fram
fer í Höllinni á laugardag og
sunnudag. Öll liðin eru héðan
að norðan nema eitt sem kem-
ur að sunnan en það er Grótta.
Keppt verður um nýjan veg-
legan bikar að þessu sinni en
Þórsarar unnu þann gamla til
eignar á mótinu í fyrra.
Liðunum hefur verið skipt í 5
riðla og lítur sú skipting þannig
út: í a riðli leika, Vaskur b, Vor-
boðinn a, Þór a og HSÞ-b. í b
riðli Völsungur a, Æskan, KA b
og Laugaskóli b. í c riðli leika
Vorboðinn b, KA a, Laugaskóli
a og Árroðinn b. í d riðli Reynir,
Völsungur b, Grótta og Árroðinn
a. í e riðli Magni, Þór b, lögregl-
an og Vaskur a.
Mótið liefst kl. 9 á laugardags-
morgun og verður leikið til kl. 19
og síðan verður mótinu fram-
haldið kl. 10 á sunnudag. Það
komast tvö lið áfram úr hverjum
riðli í úrslitakeppnina. Stefnt er
að því að sjálfur úrslitaleikurinn
fari fram ekki seinna en kl. 18 á
sunnudag ef allt fer að óskum.
Leiktími er 2x7 mín. og verða
leikmenn liðanna að standa klárir
á því að vera tilbúnir þegar þeir
eiga að leika svo ekki verði
óþarfa tafir.
Áhorfendur ættu að mæta í
Höllina því án efa verða margir
skemmtilegir leikir á dagskrá í
mótinu.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Þór og Völsungur leika fyrir sunnan í 3. deildinni:
„Okkur dugir ekkert
annað en sigur“
- segir Gunnar Gunnarsson þjálfari Þórs
Handboltalið Þórs og Völs-
ungs fara suður um helgina og
leika á Suðurnesjunum gegn
Reyni og ÍBK í 3. deildar
keppninni. Þórsarar eiga enn
góða möguleika á að endur-
heimta sæti sitt í 2. deild. Bæði
Þór og Völsungur nældu sér í 4
stig um síðustu helgi hér fyrir
norðan er þau sigruðu ÍH og
Ögra, tvö af lélegustu liðunum
í 3. deild.
Völsungar sigla lygnan sjó en
Þórsarar verða að ná sér í 4 stig
um helgina því annars er þeirra
draumur um sæti í 2. deild búinn
þetta árið. Ég sló á þráðinn til
Gunnars Gunnarssonar þjálfara
Þórs og spurði hann um leikina.
„Mér líst vel á að fara þarna
suður með sjó. Við eigum alveg
að geta unnið bæði þessi lið ef
leikmenn fara með réttu hugar-
fari í leikina. Það fara 4 lið beint
upp og við erum í 5. sæti í dag en
eigum eftir að keppa við öll efstu
liðin. Þannig að ég er mjög bjart-
sýnn enda þýðir ekkert annað.
Én það er alveg ljóst að þetta
hefst ekki nema með góðri sam-
vinnu allra leikmanna liðsins.“
- En það er alveg ljóst að
Þórsliðið vinnur engan leik gegn
þessum sterku liðum með svip-
aðri spilamennsku og gegn ÍH og
Ögra.
„Nei það er rétt og eins og ég
sagði eftir leikinn við ÍH að þá
áttum við að vinna þá með 10-15
marka mun á sæmilegum degi.“
- Nú virðist Hermann mark-
vörður vera sá leikmaður sem
hefur verið jafnbestur í liðinu í
vetur, hvað viltu segja urn það?
„Já Hermann hefur staðið sig
vel og það hefur Kristinn líka
gert í allflestum leikjunum. Þá er
ég nokkuð ánægður með að fá
Gunnar Gunnarsson til liðs við
okkur á nýjan leik.
Það er alveg klárt að við ætlum
okkur ekkert annað en 4 stig úr
þessari ferð og ef það tekst erum
við með mjög sterka stöðu fyrir
lokaátökin,“ sagði Gunnar að
lokum.
Já við skulum bara vona að
Völsungar ætli sér það sama því
það kæmi sér einnig vel fyrir Þór
ef Völsungar vinna annan eða
báða leikina.
Gunnar Gunnarsson þjálfari og leikmaður Þórs segir að það komi ekkert
annað en sigur til greina í leikjum Þórs um helgina. Mynd: KGA
Lokaundirbúningur fyrir HM í Sviss:
Tveir leikir
við Norðmenn
Mikið að gerast
hjá skíðafólki
- mót á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Akureyri um helgina
Skíðafólk verður á fleygiferð
um helgina. Hér fyrir norðan
verða bikarmót í svigi, stór-
svigi, göngu og stökki og fara
Kvennaknattspyrna:
Lauga-
mótið
- á laugardag
Laugamótið í innanhússknatt-
spyrnu kvenna verður haldið
á laugardaginn kemur á Laug-
um í Reykjadal. Alls taka átta
lið þátt í mótinu, Þór a og b,
KA a og b, ÍMA, KS, Lauga-
skóli og Efling.
Keppnin hefst í kringum há-
degi og verður mótið klárað á
laugardaginn. Það er Lauga-
skóli sem heldur mótið. Liðið
sem sigraði í fyrra á þessu
móti var a-lið Þórs.
þau fram víðs vegar á Norður-
landi. Þar má nefna Dalvík,
Ólafsfjörð, Siglufjörð og Ak-
ureyri.
Á Dalvík verður keppt í karla-
og kvennaflokki í svigi og stór-
svigi á laugardag og sunnudag og
einnig verður bikarmót á morgun
föstudag en það er mót sem varð
Þorvaldur Jónsson frá Ólafsfirði ís-
landsmeistari í skíöastökki.
að fresta í Reykjavík um daginn.
Á morgun hefst keppni kl. 14 en
kl. 11 á laugardag og sunnudag.
Á Siglufirði verða bikarmót í
svigi og stórsvigi í flokki 15-16
ára unglinga á laugardag og
sunnudag og er reiknað með að
þau byrji kl. 11 báða dagana.
Samt sem áður gæti það komið
upp að ekki yrði hægt að halda
mótið á Siglufirði vegna þess
hversu veðurfar hefur verið
óhagstætt undanfarna daga. Ef
það kæmi upp á er Akureyri vara-
keppnisstaður og færi mótið þá
fram á Akureyri á sama tíma.
Á Ólafsfirði verður mikið að
gerast um helgina. Á laugardag
verður bikarmót í skíðagöngu í
karla- og kvennaflokki, í flokki
pilta 17-19 ára og í flokki stúlkna
16-18 ára. Á sunnudag verður
bikarmót f skíðastökki og einnig
verður punktamót í göngu í sömu
flokkum og á laugardaginn.
Á Akureyri verður KA-mót í
stórsvigi á laugardag í flokki
13-14 ára og hefst keppnin kl. 11.
Islenska handknattleikslands-
liöið leikur um helgina tvo
leiki við Norðmenn í Reykja-
vík. Annað kvöld í Laugar-
dalshöll og á laugardag í Selja-
skóla. Eru þetta síðustu
leikirnir sem íslenska liðið
leikur fyrir sjálfa úrslitakeppn-
ina í Sviss sem hefst 25. febrú-
ar.
Landsliðinu hefur oftast geng-
ið vel með Norðmenn og á liðið
að vinna báða leikina án mikillar
fyrirhafnar. Einhver meiðsli eru í
íslenska liðinu um þessar mundir
en vonandi kemur það ekki að
sök þegar til Sviss kemur. Þorgils
Óttar leikur með spelku um hnéð
og virðist það ganga sæmilega
upp. Það væri það versta sem fyr-
ir liðið gæti koinið ef Þorgils yrði
óvígur í Sviss en við vonum það
besta.
Þorgils Óttar Mathiesen.
Getraunakeppni i
fjölmiðla I
Derby-Sheffield Wed. 2 2 2 2 2 1 2
Luton-Arsenal X 1 1 1 i X 1
Peterboro Brighton 2 1 2 X 2 2 X
Southampton-Millwall 1 1 i 1 1 i 1
Tottenham-Everton 2 X X 2 X X X
York-Liverpool 2 2 2 2 2 2 2
Blackburn-Crystal Palace i 1 1 1 1 2 1
Fulhain-Charlton. 2 X 2 1 2 2 2
Hull-Shrewsbury 1 1 1 1 1 1 X
Leeds-Barnsley 1 1 1 1 1 X 1
Middlesbro-Grimsby 2 X 1 2 X 1 2
Wiinbledon-Stoke 1 1 X 1 I 1 X