Dagur - 13.02.1986, Side 10
10 - DAGUR - 13. febrúar 1986
Tilboð óskast í verbúð ásamt
nokkru af veiðarfærum og
áhöldum í Sandgerðisbót. Uppl.
í síma 21822 milli kl. 18.30 og
20.00.
Útsalan heldur áfram.
Mikið af góðu gaini, góður afslátt-
ur. Ámálaðar myndir í ramma og
án ramma, einnig pakkningar.
Fullt af alls konar garni fínt og
gróft. Tískulitir. Annie garnið í 12
litum kr. 73,- dokkan. Hjarta Solo,
tískulitir, kr. 100,- dokkan og
margar fleiri garn sortir.
Póstsendum.
Verslun Kristbjargar,
Norðurbyggð 18, sími 23799.
Opið frá 1-6 og
10-12 á laugardögum.
4ra herb. íbúð á Brekkunni til
leigu frá 1. mars. Uppl. í síma
25708.
Reglusaman mann vantar litla
íbúð strax. Uppl. í síma 21400
(158).
Sala
Svartur Suzuki Fox, árg. ’84 til
sölu. 4ra gíra, grind og dráttar-
kúla, ek. 23 þús. km. Uppl. í síma
26408.
Vil kaupa Cortinu árg. '70 eða
eldri. Uppl. í síma 24987 eftir kl.
18.00.
Til sölu Honda Accord, árg. '80.
Uppl. gefnar i síma 24235 fyrir kl.
4 á daginn.
Jörð til sölu.
Grund í Svarfaðardal ásamt bú-
stofni og vélum. Á jörðinni er íbúð-
arhús 140 fm, fjós fyrir 26 kýr
ásamt hlöðu, fjárhús fyrir 150 fjár
og 8 hross. Ræktað land, 35 hekt-
arar. Upplýsingar gefur Haraldur
Hjartarson í síma 61548.
Skák
Skákmenn.
Munið febrúarhraðskákmótiö í Ár-
skógi, laugardaginn 15. febrúar kl.
13.30. Teflt verður í tveim
flokkum. Gleymið taflinu ekki
heima.
Skakfelag U.M.S.E.
Blómabúðin \
Laufás
Sunnuhlíð
auglýsir
Höfum tekið
upp mjög mikið sjh:*
úrval af
íslensku keramiki
Mjög falleg vara.
Blómabúðin Laufás
Sunnuhlíð.
FUNDIR
MESSUR
Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur.
Afmennur fundur kl.
19.30 í kvöld.
Félagsmál.
Stjórnin.
SAMKOMUR
Hjálpræðishbrinu,
Hvannavölluni 10.
Föstudaginn 14. febr-
úar kl. 17.00, „opið
hús" fyrir börn. Kl. 20.00, æsku-
lýðurinn. Laugardaginn 15. febr-
úar kl. 20.00, kvöldvaka í umsjá
æskulýðsins, happdrætti og veit-
ingar. Sunnudaginn 16. febrúar kl.
13.30, sunnudagaskóli. Kl. 20.00,
almenn samkoma. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Glerárprestakall.
Barnasamkoma í Glerárskóla
sunnudaginn 16. febrúarkl. 11 fh.
Pálmi Matthíasson.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Munið biblíulesturinn á Möðru-
völluin nk. föstud. 14. febrúar kl.
21.00. Allir velkomnir.
Skjaldarvík. Guðsþjónusta nk.
sunnudag 16. febrúar kl. 14.00.
Sóknarprestur.
ATHUGIB
HVjTASUfímiRKJAn V/5KARD5HLÍÐ
Fimmtud. 13. febrúar kl. 20.30,
bænasamkoma. Sunnud. 16. febr-
úar kl. 11.00, sunnudagaskóli.
Kl. 20.30, almenn samkoma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnusöfnuðurinn.
Minningarkort Möðruvallakirkju í
Hörgárdal fást í Bókaverslun Jón-
asar og hjá sóknarprestinum
Möðruvöllum.
Grýtubakkahreppur - Grenivík.
Munið eftir minningarspjöldum
Steinunnar Sigursteinsdóttur. Til
sölu hjá Eydísi í Litluhlíð 2g, sími
21194.
Minningarsjóður Rannveigar og
Jóns Sigurðssonar til styrktar
æskulýðsstarfi Hjálpræðishersins.
Minningarspjöldin fást hjá Her-
mínu Jónsdóttur, Strandgötu 25b
og Hjálpræðishernum, Hvanna-
völlunt 10.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
LETTIH
x
HESTAMANNAFÉLAGID LÉTTIR
Slotnað 5 nov 1928 P O Bo« 348 ■ 602 Akureyn
Mig vantar vinnu eftir kl. 4 á
daginn. Allt kemur til greina. Van-
ur skrifstofuvinnu og tölvum. Einn-
ig vanur verkamannavinnu. Er
með stúdentspróf frá Verslunar-
braut. Uppl. í síma 24573 eftir kl.
16.00.
Handavinna.
Heklugarn stórar og litlar dokkur.
Margar tegundir, hespugarn 200
gr. Ódýrir prjónar og smávörur,
prjónateygjutvinni. Blúndur í
mörgum breiddum og litum. Ódýrt
kögur, skábönd. teygja, svört og
hvít, margar breiddir. Strigi, filt í
mörgum litum og margt fleira.
Póstsendum.
Verslun Kristbjargar,
Norðurbyggð 18, sími 23799.
Opið frá 1-6 og
10-12 á laugardögum.
Get tekið að mér börn i pössun,
hálfan eða allan daginn. Helst
eldri en 2ja ára. Er í Síðuhverfi og
með leyfi. Uppl. frá kl. 18.00-
20.00 í síma 26057.
/ " - —*
GENGISSKRANING
12. febr. 1986
Eining Kaup Sala
Dollar 41,720 41,840
Pund 59,132 59,302
Kan.dollar 29,861 29,947
Dönsk kr. 4,7892 4,8030
Norsk kr. 5,6750 5,6914
Sænsk kr. 5,5974 5,6135
Finnskt mark 7,8776 7,9003
Franskurfranki 5,7501 5,7667
Belg. franki 0,8622 0,8646
Sviss. franki 21,1348 21,1955
Holl. gyllini 15,6161 15,6610
V.-þýskt mark 17,6406 17,6913
ítölsk líra 0,02592 I 0,02600
Austurr. sch. 2,5100 2,5173
Port. escudo 0,2718 0,2726
Spánskur peseti 0,2803 0,2811
Japanskt yen 0,22404 I 0,22468
írskt pund 53,422 53,576
SDR (sérstök
dráttarréttindi) 46,8731 46,0072
| Símsvari vegna gengisskráningar:
91-22190.
Leikféíoy
Akureyrar
eftir Halldór Laxness.
Laugard. 15. febrúar kl. 20.30.
Sunnud. 16. febrúar kl. 20.30.
Miðaverð kr. 450,-
Myndarlegur hópafsláttur.
Miðasala opin í Samkomuhúsinu
alla daga nema mánudaga
frá kl. 14-18 og
sýningardaga fram að sýningu.
Sími í miðasölu:
(96) 24073.
Haraldur Ásgeirsson
prentari
Fæddur 6. apríl 1945 - Dáinn 31. janúar 1986
Hinsta kveðja
Hvað er skammlífi?
Skortur lífsnautnar,
svartrar svefnhettu
síruglað mók.
Oft dó áttræður
og aldrei hafði
tvítugs manns
fyrir tær stigið.
Hvað er langlífi?
Lífsnautnin frjóva,
alefling andans
og athöfn þörf.
Margoft tvítugur
meira hefur lifað
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
Hvað er skammlífi spyr Jónas
Hallgrímsson, og sú spurning
vaknar hjá mér er ég kveð þig
vinur fyrir fullt og allt, rétt rúm-
lega fertugan. Sé notuð á þig
mælistika Jónasar er ljóst að þú
varst í raun langlífur, og lífs-
nautnin og athafnaþráin ráku þig
áfram til að reyna sífellt eitthvað
nýtt.
Ég kynntist þér fyrst fyrir tut-
tugu árum og þá varstu ólgandi af
lífsgleði, og nú er ég kveð þig
finnst mér sem þú hafir ekki elst
um einn einasta dag sfðan þá.
Alltaf sami strákurinn. Hafir þú
átt þér að leiðarljósi einkunnar-
orð, hlýtur það orð að hafa verið
þátttaka. Alls staðar varst þú
reiðubúinn til þátttöku, en vildir
aldrei vera hlutlaus áhorfandi.
Þér bauðst sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar árið 1966 og sagðir í
gamni að þú vildir ekki annað
sæti en baráttusætið. Það kom
öllum á óvart, en þó mest þér að
þú hlaust sætið. Þá var ekki ann-
að en að hella sér út í kosninga-
baráttuna, og njóta þess sem hún
bauð upp á. Um þau málalok má
segja að þú féllst en hélst velli, og
varst fyrsti varamaður í bæjar-
stjórn Akureyrar eitt kjörtíma-
bil, og hafðir gaman af.
í Svifflugfélagi Akureyrar áttir
þú glæstan feril og varst fyrir-
ferðarmikill í ársskýrslum félags-
ins um árabil, ekki vegna þess að
þú sæktist eftir vegtyllum úr
þeirri áttinni, heldur vegna þess
að frá þér og þínu svifflugi var
jafnan eitthvað skemmtilegt að
frétta sem átti erindi í þær
skýrslur. Svifflugfélag Akureyrar
mun örugglega halda nafni þínu
lengi á lofti.
Leiðir okkar skildu 1975 er
þú fluttir suður, en ég var svo
lánsamur að kynnast þér á nýjan
leik fyrir þremur árum, og þá
hitti ég ekki fyrir svefnugan segg
heldur þann síkáta æringja sem
allir vildu þekkja og alla þekkti
án manngreinarálits. Allir flug-
áhugamenn á Akureyri þekktu
þig og virtu Halli minn og við
erum svo stórum fátækari án þín
enda voru öll aukaherbergi með-
al flugáhugamanna hér í bæ köll-
uð Hallaherbergi og öllum þótti
heiður að hýsa þig eins og þú
hýstir okkur svo oft er við vorum
staddir í Reykjavík.
Ég kveð þig vinur með sökn-
uði, en minningar um þig eiga ör-
ugglega eftir að laða fram bros
þó síðar verði.
Um leið og ég færi þessar fá-
tæklegu línur á blað viljum við
María nota tækifærið og votta
unnustu Haraldar, Maríu Ragn-
arsdóttur og aðstandendum hans
öllum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Bragi Snædal.
Frá Glerárskóla Akureyri
Vegna forfalla
vantar kennara
í íslensku og dönsku í 7. og 9. bekk frá 1. mars
nk.
Upplýsingar gefa skólastjóri í símum 21395 og
21521 og yfirkennari í símum 25086 og 25795.
Vilberg Alexandersson, skólastjóri.
Móðir okkar og tengdamóðir,
SOFFÍA GUNNLAUGSDÓTTIR,
frá Syðri Reistará,
er andaðist 4. febrúar verður jarðsungin að Möðruvöllum í
Hörgárdal laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sel I Akureyri.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
börn og tengdabörn.