Dagur - 20.02.1986, Qupperneq 1
69. árgangur Akureyri, fímmtudagur 20. febrúar 1986 35. tölublað
Trúlofunarhringar
afgreiddir
samdægurs
GULLSMIÐIR '
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Lögreglurannsókn
á rekstri Sjallans
Á þriðjudaginn hófst umfangs-
mikil rannsókn á rekstri Sjall-
ans á vegum rannsóknarlög-
reglunnar á Akureyri. Unnið
hefur verið að rannsókninni
nær slcitulaust síðan og seint í
gærkvöld voru rannsóknarlög-
reglumenn enn að störfum.
Rannsóknin mun hafa hafist
vegna ábendinga og uppsafnaðra
upplýsinga rannsóknarlögregl-
unnar. Margir hafa verið kallaðir
til yfirheyrslu, en enginn hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald vegna málsins, samkvæmt
upplýsingum rannsóknarlög-
reglumanns í gærkvöld. Að öðru
leyti var engar fréttir að hafa af
gangi málsins, hvorki hjá rann-
sóknarlögreglunni né bæjar-
fógetaembættinu. - GS.
Smygl eða
ekkí smygl?
- Yfirlýsingar stangast á
Fréttir Dags í gær um hugsan-
legt misferli í Sjallanum á Ak-
ureyri hafa vakið mikil við-
brögð hjá fólki og hafa ýmsar
viðbótarupplýsingar bæst við.
Meðal þeirra upplýsinga sem
um er að ræða eru ákveðnar
fullyrðingar um sölu á smygl-
uðu kjöti og viðbótarupplýs-
ingar sölu smyglaðs áfengis og
misferli í miðasölu. Jafnframt
hafa blaðinu borist yfírlýsingar
frá endurskoðanda og stjórn
Akurs hf. sem birtast á blað-
síðu 3 í blaðinu í dag.
Einn aðili til viðbótar sagði í
samtali við Dag í gær að hann
hefði í höndum sannanir fyrir því
að það hefði tíðkast lengi í Sjall-
anum áður en hann brann, að
tvíselja aðgöngumiða og svíkja
þannig stórar fjárfúlgur undan
skatti. -yk.
Skiptir
Sjallinn
Hafa aðgöngumiðar að Sjallanum verið tvíseldir?
Mynd: KGA.
eigendur?
Eins og fram kemur í blaðinu í dag
er rekstur Sjallans á Akureyri
undir smásjánni, eftir þrálátar
sögusagnir um misferli í rekstrin-
um. Skuldir hússins eru miklar,
ábyggilegar heimildir segja 85-90
m. kr. Stærstu lánardrottnar eru
Iðnaðarbankinn og opinberir
sjóðir. Auk þess skuldar Sjallinn
verulegar upphæðir til ríkissjóðs,
Kaupfélags Eyfirðinga, Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar og fleiri við-
skiptaaðila.
Stofnkostnaður við endurbyggingu
Sjallans var mikill og reksturinn hef-
ur ekki gengið sem skyldi. M.a. af
þessum ástæðum hefur skemmtistað-
urinn verið falur. Ýmsir aðilar hafa
komið til greina sem kaupendur. Aö
undanförnu hafa Rúnar Gunnarsson
og Baldur Ellertsson. eigendur
H-100, verið ..heitastir". Samningur
um kaup þeirra á meirihluta hluta-
bréfa í Akri hf. hefur verið í burðar-
liðinum. m.a. vegna þrýstings frá
Iðnaðarbankanum. En hvað gera
þeir í Ijósi þeirrar rannsóknar sem nú
fer fram?
„Það byggist á því hvað þarna er
að gerast, en það er ljóst að það
verður ekki úr kaupurn af okkar
hálfu. fyrr en hægt er að ganga að
hreinu borði." sagði Rúnar Gunnars-
son. - GS.
Utgerðarfélag Akureyringa
Aðili sem unnið hefur í Sjall-
anum fullyrti í samtali við Dag að
þar hefði verið selt smyglað kjöt
og nefndi sem dæmi að þann 26.
október síðastliðinn, sem var
fyrsti vetrardagur, hafi verið
matreiddar og bornar á borð fyrir
matargesti smyglaðar nauta-
lundir. Á þessum tíma hafi verið
nánast útilokað að fá íslenskar
nautalundir og heimildamaður
blaðsins kvaðst hafa séð kjötið
tekið upp úr pakkningum með
erlendum merkingum, þannig að
það hafi ekkert farið á milli mála
að þarna væri urn smyglað kjöt
að ræða.
Santi heimildamaður fullyrðir
einnig að í Sjallanum hafi verið
selt smyglað áfengi og bendir sér-
staklega á að auðvelt hefði verið
að koma smygluðu áfengi í sölu
með því að blanda því í svonefnt
bjórlíki.
Dana Jóhannsdóttir, barþjónn
og trúnaðarmaður framreiðslu-
fólks í Sjallanum, hafði hins veg-
ar eftirfarandi að segja um
meinta sölu smygiaðs áfengis í
Sjallanum: „Ég fullyrði að það er
útilokað að þessi saga um sölu á
smygluðu áfengi í þetta skipti
sem nefnt er sérstaklega í grein
Dags 19. febrúar, sé sönn né
heldur önnur skipti, þessi ár sem
ég hef unnið í húsinu.“
sækir um 350 m. kr. lán
- Milljónirnar eru hugsaðar til kaupa á nýju skipi og til að breyta Sléttbak í frystiskip
Útgerðarfélag Akureyringa
hf. hefur sótt um 350 m. kr.
lán til Fiskveiðasjóðs, til að
kaupa nýjan togara og til að
láta breyta Sléttbak í frysti-
togara. Úmsóknarfrestur um
lán úr sjóðnum rann út sl.
mánudag.
„Við viljum halda öllum dyr-
um opnum, til að stækka og
endurbæta okkar skipastól. Þess
vegna sóttum við um þetta lán,
áður en umsóknarfrestur rann
út,“ sagði Sverrir Leósson,
stjórnarformaður Útgerðarfé-
lagsins, í samtali við Dag. Hann
sagði jafnframt, að viðræður
hefðu staðið yfir við Slippstöð-
ina, um fyrirhugaðar breytingar á
Sléttbak, jafnframt því sem beð-
ið væri eftir tilboði frá Slippstöð-
inni um smíði á nýju skipi.
„Við verðum að vera tilbúnir
til að taka fast á árunum, því ég
er sannfærður um að vaxtar-
broddurinn í atvinnulífi bæjarins
er í sjávarútveginum. Við teljum
okkur eiga inni loforð frá stjórn-
I völdum um nýtt skip og kvóta, í I um láta reyna á það loforð. Við I okkur er lofað." sagði Sverrir
| staðinn fyrir Sólbak. Og við vilj- | viljum að staðið sé við það sem | Leósson. - GS.
Lögbirtingablaðið í gær:
43 uppboðsauglýsingar
af Eyjafjarðarsvæðinu
43 fasteignir á Akureyri,
Dalvík, Hjalteyri, Hrísey og
Saurbæjarhreppi voru aug-
lýstar í Lögbirtingablaðinu í
gær. Þessar eignir verða
boðnar upp þann 14. mars
n.k. ef eigendur gera ekki skil
á skuidum sínum fyrír þann
tíma.
Af þessum 43 eignum eru 34
á Akureyri, 5 á Dalvík, 2 á
Hjalteyri og ein í Hrísey og
Saurbæjarhreppi. Lang oftast er
um íbúðarhúsnæði að ræða en
fyrirtæki eiga hlut að máli í 7 til-
fellum.
„Það eru erfiðleikar alls
staðar, því miður. En ég held
að ástandið hér sé ekkert verra
en annars staðar,“ sagði Elías I.
Elíasson bæjarfógeti á Akureyri
er hann var spurður hvort aug-
lýsingarnar væru óvenju margar
að þessu sinni.
Bæjarfógeti sagðist reyna að
vera ekki of oft með þessar aug-
lýsingar og freistaðist því
kannski til að safna þeim svolft-
ið saman. Hins vegar segði
fjöldi uppboðsauglýsinga ekki
alla söguna. Talsvert margir
kipptu sínum málum í liðinn og
dyttu þvf út áður en til uppboðs
kæmi.
„Mér sýnist í fljótu bragði að
11 aðilar af þessum 43 hafi nú
þegar „gengið út“ og þeim á ef-
laust eftir að fjölga. En ég held
að uppboðsauglýsingar á þessu
svæði séu ekkert algengari en
annars staðar á landinu, þótt ég
hafi ekki kannað það sérstak-
lega,“ sagði Elías. BB.