Dagur - 20.02.1986, Blaðsíða 11
20. febrúar 1986 - DAGUR - 11
-orð í belg.
Eg hætti mér
undir vöndinn
Þegar ég skrifaði smágrein, sem
birtist í Degi 3. þ.m. er greindi
frá því á hvern hátt fyrsti þáttur
sjónvarpsins: Spjallað við lista-
menn orkaði á mig, gekk ég þess
ekki dulinn, að þátturinn kynni
að snerta aðra á annan hátt, en
hann snerti mig.
Satt að segja var mér það alls
ekki á móti skapi, að það sem
virtist liggja til grundvallar vali
manna í þáttinn fengi ofurlitla
umfjöllun. En það verð ég að
segja, að mér fannst það nálgast
ofmat á þessum greinarstúfi að
mér skyldi veitast valkyrja með
reiddan hirtingarvönd og það svo
tíð högg að ekki féllu færri en 10
högg í það stuttri grein og styðst
ég þá við það hversu oft nafn mitt
er nefnt. Þess er þó rétt að geta,
að högg þau voru mér fremur
léttbær.
Meginefni greinarinnar geng-
ur út á það, að mikla fyrir lesend-
um fáfræði mína, fákunnáttu og
fordóma. Við þessu á ég að sjálf-
sögðu afskaplega fá svör. Án efa
á ég að baki stórum færri stundir
á skólabekk en Jóna Sigurgeirs-
dóttir og væri sá mælikvarði lagð-
ur til grundvallar því, hvort menn
væru viðræðuhæfir eða ekki, ætti
ég trúlega að þegja. En þrátt fyrir
takmarkaða þekkingu og litla
skólagöngu, hefur mönnum hér á
landi til þessa, liðist að hafa eigin
skoðanir og það enda skoðanir,
sem ekki hafa átt samleið með
skoðunum annarra og ég hef
helst í hyggju að neyta þess réttar
hér eftir sem hingað til, enda þótt
ég hætti mér undir vöndinn.
Þrátt fyrir það að grein mín
hefur valdið höfundinum
hneykslan, fannst mér ég eiga
margt ósagt. Til dæmis lét ég
ógert að nefna þátt spyrjandans
Megasar. í>ó lít ég svo á að Bubbi
Mortens sé í mörgu tilliti spor-
göngumaður hans og hugsanlega
á Megas hlutdeild í þeirri niður-
lægingu, sem Bubbi hefur gengið
í gegnum. Báðum hefur forsjón-
in miðlað miklum hæfileikum, en
báðir hafa að minni hyggju mis-
notað þá. Þá fannst mér engin
þáttarprýði að því, að spyrjand-
inn skyldi meðan á þættinum stóð
að staðaldri meðhöndla vindling
og reykja þegar færi gafst.
J.S. telur fráleitt að aðdáendur
Bubba hafi tekið hann sér til
fyrirmyndar í háttum og líferni.
En í sömu málsgrein getur hún
þess, að hann hafi varað ungt
fólk við hættunni, sem af vímu-
efnunum stafaði væntanlega með
árangri. Okkur greinir naumast á
um það að líferni Bubba hafi
tæpast verið til fyrirmyndar, eins
og hann lýsti því sjálfur. Hitt
virðist okkur greina á um hvort
meira megi sín, fordæmi eða for-
Óskar
Sigtryggsson
skrifar:
tölur. Ég hallast hiklaust að því
að í fordæmi felist þyngri ábyrgð.
Fortölur manns, sem sýnt hefur
vafasamt fordæmi, getur verið
virðingarverð viðleitni til að
draga úr þeim skaða sem orðinn
er, en hann verður ekki bættur
með þeim.
Túlki greinarhöfundur hið al-
menna viðhorf til þessa máls,
þarf ekki eins mikið áræði og lát-
ið er í veðri vaka til að Upplýsa
alþjóð um fyrra líferni, enda þótt
það hafi verið á þann veg, að
siðalögmál væru fótum troðin og
farið á svig við lögin, einungis ef
sá hinn sami telur sig hafa sagt
skilið við fyrra líferni og ráðlegg-
ur öðrum að halda sig frá slíku.
Geri hann það er hann upphaf-
inn.
í grein J.S. segir: „Þegar fólk
lendir í óreglu, þá er engu utan-
aðkomandi um að kenna. Það er
fólkið sjálft sem kemur sér í
þetta.“ Síðari lið þessara tilvitn-
uðu orða er ég sammála, en dreg
hinn fyrri í efa. Éj> er hiklaust
þeirrar skoðunar að fordæmið,
umhverfið og almenningsálitið
séu þeir þættir sem mestu valda.
Vissulega er engum gert að
skyldu að neyta vímuefna. Að-
ferðin til að ánetjast þeim ekki er
einungis sú að neyta þeirra
aldrei, vera bindindissamur.
Meinsemdin er sú, að bindindis-
semi á sér allt of fáa formælendur.
Og þeir fáu, sem leggja sig í þá
hættu að mæla með bindindis-
serni eru gjarnan hafðir að skot-
spæni, þeir sæta fordómum.
Það er ekki langt síðan ég
heyrði virtan prófessor segja að
áfengisneysla íslendinga væri
mesta böl okkar, ekki síst vegna
þess, að áfengið væri ætíð fyrsti
vímugjafinn sem neytt væri og
undanfari annarra og skaðvæn-
legri efna. Enda þótt hér sé óum-
deilanlega um gagnmerkan mann
að ræða er engan veginn víst að á
hann sé hlýtt af þeim, sem gert
hafa það að sínum trúarbrögð-
um, að þeir einir skuli fjalla um
vímuefnamál, sem fallið hafi fyrir
þeim og hlotið uppreisn.
Vissulega er það þakkarvert
þegar menn sem hafa verið háðir
vímuefnum og af þeint sökurn
lagt í rúst sitt eigið líf og líf
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri
Fundarboð
Aðalfundur féfagsins verður haldinn í Alþýðu-
húsinu Skipagötu 14, laugardaginn 22. febrúar
kl. 13.00 stundvíslega.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Kjaramál (heimild til vinnustöðvunar).
4. Fjármál.
5. Önnurmál. Stjórnin.
þeirra, sem láta þá sig einhverju
varða, bæta ráð sitt og hverfa frá
óreglu. En ég tel ástæðulaust
að þeir séu þar með leystir frá að
bera ábyrgð á því sem orðið er.
Ég viðurkenni að í þessu viðhorfi
mínu felast umræddir „fordómar
og afbrýðisemi“, en ég ætla ekki
að biðjast afsökunar á þeim. Það
er næsta kynlegt, að ekki skuli
fullt eins mega taka mark á orð-
um manns, sem varar við voða
sem hann ber skynbragð á en hef-
ur sniðgengið, eins og þess sem
vitandi vits hafði kastað sér út í
háskann en hugsanlega bjargast
fyrir annarra atbeina.
Til er orðtak, sem hljóðar
eitthvað á þessa leið: Byrgja skal
brunninn áður en barnið dettur í
hann. Mér finnst þetta þörf
'áminning, sem nú er því miður of
lítill gaumur gefinn þegar rætt er
um vímuefnabölið.
Það eru ekki mörg ár síðan að
þeir voru litnir hornauga, sem
ömuðust við því að reykt væri
hvar sem var. Þá hefði fáa rennt
grun í það að upp yrðu risin á
þessu ári samtök, sem hefðu það
takmark að útrýma tóbaksreyk-
ingum hér fyrir árið 2000, en nú
hefur skaðsemi tóbaksreykinga
sannast svo áþreifanlega, að jarð-
vegur hefur skapast fyrir slík
samtök og ég vona sannarlega að
þau nái settu marki.
Ég er þess fullviss að það yrði
þjóðinni til ómetanlegrar ham-
ingju, ef almenningsálitið snerist
á sama hátt gegn neyslu vímu-
efna og það virðist vera að snúast
gegn reykingum.
Ef til vill eiga eftir að skapast
skilyrði fyrir samstöðu um útrým-
ingu „mesta bölsins“, vímuefna-
neyslunnar.
Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis
óskar eftir starfsmanni
á skrifstofu félagsins í hálfsdags starf.
Skriflegar umsóknir sem geta um menntun og
fyrri störf sendist félaginu fyrir febrúarlok.
Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis
pósthólf 552. Skipagötu 14, Akureyri.
Bónus - Frystihús
Vantar vant starfsfólk viö snyrtingu og pökkun.
Næg vinna. Góö verbúð.
Upplýsingar veitir verkstjóri í síma 94-3612.
Hraðfrystihúsið hf., Hnífsdai.
Stjórnarkjör
Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri auglýsir hér
með eftir listum varðandi kjör stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs fyrir árið 1986, að viðhafðri allsherjarat-
kvæðagreiðslu. Ber samkvæmt því að skila listum
skipuðum fimm aðalmönnum og fjórum til vara í
stjórn og varastjórn. Átta mönnum í trúnaðar-
mannaráð og fimm til vara. Fimm mönnum í samn-
inganefnd og einn til vara. Tveimur endurskoðend-
um og einum til vara. Allt miðað við fullgilda félags-
menn. Hverjum lista skulu fylgja skrifleg meðmæli
80 fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á skrif-
stofu félagsins Skipagötu 14 eigi síðar en kl. 17
föstudaginn 28. febrúar 1986. Listi stjórnar og trún-
aðarmannaráðs liggur frammi á skrifstofu Iðju Skipa-
götu 14.
Akureyri 20. febrúar 1986.
Stjórn og trúnaðarmannaráð Iðju.
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður að Hótel KEA
föstudaginn 21. febrúar
og hefst kl. 20.30.
Góð verðlaun.
Allir velkomnir. ... ,.
Framsoknarfelag Akureyrar.
^ y h \ K H * H h H H \ •! \ H H \ *. \