Dagur - 20.02.1986, Síða 3
20. febrúar 1986 - DAGUR - 3
Lærði hjá Loftleiðum
envann aldrei hjá þeim
Skarphcðinn Magnússon flug-
virki var að bogra yfír púströri
sem fest var á stórt járnstykki.
Þetta var á viðgerðarverkstæði
Flugfélags Norðurlands á Ak-
ureyrarflugvelli.
„Ég er að sjóða púströr af
Astec,“ sagði Skarphéðinn. En
Astec, það er ein af flugvélum
F.N.
- Var það illa farið?
„Nei nei, þetta er venjulegt
viðhald."
- Skarphéðinn brosti þegar
hann var spurður um það hversu
lengi hann hafi unnið við flug-
virkjun. „Þá áttar maður sig á því
hversu gamall maður er,“ sagði
Skarphéðinn. „Það eru ein 20 ár
sent ég hef verið í þessu. Ég fór á
Ekkert
vegum Loftleiða til Bandaríkj-
anna 1966 að læra flugvirkjun.
Að vísu vann ég ekkert hjá Loft-
leiðum nema um það bil einn
mánuð sem ég var lánaður til
Noregs til að gera við DC-6 vélar
sem Loftleiðir og fleiri áttu þá.
Það var svo skrýtið að þeir hættu
að nota þessar vélar fljótlega eftir
að ég fór að vinna við þær. Svo
kom ég til Akureyrar og vann hjá
Tryggva Helgasyni flugmanni um
tíma. Þaðan fór ég til Reykjavík-
ur og var þar í 2 ár hjá Flugfélagi
íslands. Norður aftur og vann í
Slippstöðinni um tíma og svo til
Tryggva aftur. Þá hét flugfélagið
Norðurflug, sem síðan breyttist í
Flugfélag Norðurlands er Sigurð-
ur Aðalsteinsson, Jón Karlsson,
Torfi Gunnlaugsson, Jóhannes
Fossdal, Nils Gíslason og ég
keyptum félagið ásamt Flugleið-
um.“
- Hvernig gengur reksturinn,
eða má ekki spyrja?
„Það er óhætt að spyrja.
Reksturinn gengur vel.“
- Eru uppi hugmyndir um
flugvélakaup?
„Ekki á næstunni. Við höfum
nægan flugvélakost eins og er.“
- Nú stendur glæsileg Mits-
ubishi skrúfuþota lítið notuð í
flugskýli. Því er henni ekki flogið
í áætlunarflugi?
„Víst er hún glæsileg blessun-
in,“ sagði Skarphéðinn. „Þetta er
góð vél. en hentar okkur ekki á
áætlunarleiðum F.N. þess vegna
ætlum við að selja hana. Hins
vegar er hún góð á lengri leiðum.
hefur m.a. verið notuð í leigu-
flugi tii Grænlands.“
- Hvernig er framtíðin fyrir
F.N.?
Skarphéðinn glotti, „vonandi
björt". gej-
sjónvarp í
Svartárdal
Nú þegar rætt er um að nýjar
sjónvarps- og útvarpsstöðvar
taki jafnvel til starfa á árinu
fyrir Reykjavíkursvæðið fínnst
mörgum það andsk . . . hart
að ekki skuli vera hægt að
horfa á þessa einu ríkisreknu
sjónvarpsstöð sums staðar á
landinu.
í Svartárdal í Austur-Húna-
vatnssýslu sést ekki sjónvarp á
nokkrum bæjum og harl.a lítið á
öðrum og er ekki vitað til þess að
breyting verði þar á á næstunni
þrátt fyrir að kvartað hafi verið
við þá aðila sem með þessi mál
fara. Þykir ýmsum sem hér hafi
verið slælega að verki staðið þar
sem sjónvarpið er nú komið af
léttasta skeiðinu og ætti því að
vera orðið það vel þroskað að
það næði til allra landsmanna að
minnsta kosti ef borið er saman
við Rás tvö hjá útvarpinu sem
náð hefur hreint ótrúlegri út-
breiðslu á sínum fáu lífdögum.
Það er því von þeirra Svartdæl-
inga að einhver fari nú að ýta við
einhverju svo að úr þessu sjón-
varpsleysi þeirra verði bætt hið
allra fyrsta. G.Kr.
Sjallamálið:
Yfiriýsingar
frá stjóm og
endurskoðanda
Vegna blaðaskrifa og þráláts orðróms um misferli í rekstri veit-
ingahússins Sjalians á Akureyri, hafa blaðinu borist eftirfar-
andi yfirlýsingar, frá stjórn Akurs hf. og Þorsteini Kjartanssyni
hjá Endurskoðun Akureyri hf., sem annast hefur bókhald
Sjallans.
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að rekstur veitingahússins Sjall-
ans í nafni Akurs hf. hefur verið nteð eðliiegum hætti, þótt svo hann
hafi verið þungur á stundum. Bókhald hefur verið fært af löggiltum
endurskoðendum. Aðalfundir hafa verið haldnir með reglulegum
hætti og á þeini fundum hafa ekki komið fram athugasemdir.
I stjórn Akurs hf.
Þórður Gunnarsson,
Jón Kr. Sólnes,
Aöalgeir Finnsson.
Að gefnu tilefni skal staðfest, að bókhald Akurs ht'. hefur verið fært
hjá Endurskoðun Akureyri hf. ýmist af starfsmönnum okkar eða
starfsmönnum Akurs hf.
Ársuppgjör liafa verið unnin af Endurskoðun Akureyri hf. og er
ársuppgjör ársins 1985 á lokastigi.
Akureyri 18. febrúar 1986
Þorsteinn Kjartansson.
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ
Kviksandur
Höfundur: Michael V. Gazzo.
Þýðing: Ásgeir Hjartarson.
Leikstjóri: Þráinn Karlsson.
Sýningar í Freyvangi
fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld
kl. 20.30.
Miðapantanir í síma 24936. Miðasala við innganginn.
UMF Árroðinn býður öldruðum á Akureyri
á sýningu á leikritinu KVIKSANDUR
í Freyvangi á mánudagskvöldið 24. febrúar
kl. 20.30.
Ferð verður frá Húsi aldraðra kl. 19.45.
Miðaverð og akstur kr. 350,-
Pantanir eru teknar hjá Helgu Frímannsdóttur í Húsi
aldraöra, sími 23595 eða heima í síma 22468.
jóðmyn
Er eitthvað um að vera?
Viltu eiga það á myndbandi?
T.d. brúðkaup, afmæli, hátíðir og margt fleira.
Gerum einnig stutta skemmtiþætti, fræðslumyndir
og kynningarmyndir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Gerum föst verðtilboð ef óskað er. Fjölföldum og
vinnum úr efni sent þú hefur tekið.
Opið virka daga frá kl. 17-19, sími 26508.
Skrifstofan opin þriðjudaga og miðvikudaga
kl. 13.30-19. - Sími 26508.
SHARP
örbylgjuofhar
Örbylgjuofnar í úrvali.
Verð frá kr. 14.000.-
Sýnikennsla verður á SHARP örbylgjuofnum fyrir
eigendur SHARP ofna fimmtudaginn 20. febrúar kl.
20.00 í Hafnarstræti 91,4. hæð. Þátttakendur vin-
samlegast láti skrá sig í Járn- og glervörudeild.