Dagur - 20.02.1986, Page 4
4 - DAGUR - 20. febrúar 1986
á IjósvakanurrL
Rás 1 kl. 21.15
„í hamrinum eitt-
hvað heyra menn
Jón Sigurðsson frá
Kaldaðarnesi og Ijóð hans.
Gunnar Stefánsson tekur
saman þátt í aldarminningu
Jóns
Á Rás 1 verður í kvöld kl. 21.15 þáttur um
Jón Sigurösson frá Kaldaðarnesi og Ijóð
hans. Gunnar Stefánsson tekur saman þátt-
inn í tilefni aldarafmælis Jóns sem er 18.
febrúar. Lesari meö Gunnari er Andrés
Björnsson.
Jón Sigurðsson gegndi um langt árabil
starfi skrifstofustjóra Alþingis. Hann er þó
enn kunnari fyrir bókmenntastörf sín. Þekkt-
ust þeirra eru þýðingar hans á nokkrum sög-
um Hamsuns, Viktoríu, Pan, Sulti og Að
haustnóttum. Síðasta þýðing Jóns á sögu
eftir hinn norska meistara var Benóní sem
hann lauk ekki, en Andrés Björnsson leiddi
þá þýðingu til lykta. Jón frá Kaldaðarnesi var
gott Ijóðskáld en lagði litla rækt við Ijóðagerð
á fullorðinsaldri. Frá æskuárum hans eru
nokkur afbragðskvæði sem verða lesin í
þættinum. Þá er varðveittur í safni útvarps-
ins flutningur hans á nokkrum kvæðum Jón-
asar Hallgrímssonar og fá hlustendur að
heyra rödd hans í þættinum.
lútvarpM
FIMMTUDAGUR
20. febrúar
11.10 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fróttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Um
kirkju og trú.
Umsjón: Gylfi Jónsson.
14.00 Miðdegissagan:
„Svaðilför á Grænlands-
jökul 1888" eftir Fridþjóf
Nansen.
Kjartan Ragnars þýddi.
Áslaug Ragnars les (9).
14.30 Á frívaktinni.
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15.15 Frá Suðurlandi.
Umsjón: Hilmar Þór Haf-
steinsson.
15.40 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fróttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlist tveggja kyn-
sloða.
Sigurður Einarsson sér um
þáttfnn.
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip.
Þáttur um listir og
menningarmál.
Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
Tónleikar • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
Háskólabiói - Fyrri hluti.
21.15 „í hamrinum eitthvað
heyra menn."
Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi og ljóð hans.
Gunnar Stefánsson tekur
saman þátt í aldarminn-
ingu Jóns.
Lesari með Gunnari:
Andrés Björnsson.
21.40 Einsöngur í útvarps-
sal.
Anna Júlíana Sveinsdóttir
syngur lög eftir Sigfús
Halldórsson, Sigvalda
Kaldalóns og Sigurð Þórð-
arson.
Jónas Ingimundarson leik-
ur á píanó.
22.00 Fréttir • Frá Reykja-
víkurskákmótinu
Dagskrá morgundagsins •
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma
(22).
22.30 Fimmtudagsumræð-
an - List og fjölmiðlar.
Stjórnandi: Stefán Jökuls-
son.
23.30 Kammertónleikar.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
FOSTUDAGUR
21. febrúar
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Undir regnbogan-
um" eftir Bjarne Reuter.
Olafur Haukur Símonarson
les þýðingu sína (9).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfróttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurð-
ur G. Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 „Sögusteinn."
Umsjón: Haraldur I. Har-
aldsson. (Frá Akureyri)
Irás 21
FIMMTUDAGUR
20. febrúar
10.00-12.00 Morgunþáttur.
Stjórnendur: Ásgeir Tóm-
asson og Kristján Sigur-
jónsson.
Hlé.
14.00-16.00 Spjall og spil.
Stjórnandi: Ásta R. Jó-
hannesdóttir.
16.00-17.00 í gegnum tíð-
ina.
Þáttur um íslenska dægur-
tónlist í umsjá Jóns Ólafs-
sonar.
17.0d-18.00 Einu sinni áður
var.
Bertram Möller kynnir vin-
sæl lög frá rokktímabilinu,
1955-1962.
Hlé.
20.00-21.00 Vinsældalisti
hlustenda Rásar 2.
Páll Þorsteinsson kynnir
tíu vinsælustu lög vikunn-
21.00-22.00 Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíðsdótt-
ur.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00-00.00 Poppgátan -
úrslit.
Spurningaþáttur um tón-
list í umsjá Jónatans Garð-
arssonar og Gunnlaugs
Sigfússonar.
3ja mín. fréttir kl. 11, 15,16,
og 17.
RIKISUTVARPID
AAKUREYRI
17.03-18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.
Platon er einn af fáum öpum í veröldinni sem hefur haft gam-
an af aö renna sér á sleöa.
Emmanuel og Platon 3ja og 4ra ára. Þá þegar var Platon orðinn heil-
mikill kraftakarl sem vakti yfir hverju skref! „bróðuru síns og verndaði
hann fyrir ágangi ókunnugra.
í þetta sinn flettum við upp í myndaalbúm-
um franskrar læknisfjölskyldu og skoðum
myndir frá æsku Emmanuels, sem nú er 12
ára, og górillunnar Platons, sem er 13 ára.
í fyrstu var erfitt fyrir Emmanuel að sætta
sig við það að eftirleiðis gæti hann aðeins hitt
vin sinn og „fósturbróður“ í dýragarðinum.
En svona verður þetta víst að vera vegna þess
að stóri bróðir er orðinn 250 kíló - og er gór-
illa.
Minningarnar lifa þó og myndaalbúm fjöl-
skyldunnar segja söguna um þá reynslu að
einn fjölskyldumeðlima var górilla.
Þetta hófst fyrir 13 árum í Gabon í Vestur-
Afríku, þar sem franski læknirinn Jacques
Judes og kona hans Genevieve störfuðu.
# Stórkostleg
uppgötvun
Þeir eru víst ekki mjög
margir sem lesa Alþýðu-
blaðið að staðaldri. Það
má vissulega muna sinn
fifil fegri því eitt sinn var
það dagblað, lesið af al-
þýðu manna og stóð þá
undir nafni.
Sá er þetta ritar gluggar
oft í Alþýðublaðið þegar
tóm gefst til. Það getur
verið hressandi að láta
kratískan andvara leika
um sálina endrum og eins
- í hófi þó að sjálfsögðu.
í Alþýðublaðinu í gær var
flennistór fyrirsögn á bak-
síðu, enda var blaða-
manni mikið niðri fyrir.
Hann hafði gert mikla
uppgötvun. Fyrirsögnin
var svona:
KARLMENN HAFA AND-
LIT - KONUR HAFA
KROPP!
Hér með er þessari merku
staðreynd komið á fram-
færi við þá lesendur Dags
sem ekki vissu þettafyrir.
# Veiðisaga
Fyrst verið er að taia um
Alþýðublaðið er ekki úr
vegi að láta eina veiði-
sögu, tengda blaðinu,
fylgja með. Sumum kann
þó ef til vill að finnast hún
fáránleg.
Þetta er eiglnlega nokkurs
konar gáta: Veistu hvern-
ig þú átt að fara að því að
veiða krókódíl?
Farðu til Afríku og hafðu
með þér eftirfarandi
búnað: Vaðstígvél, sjón-
auka, Alþýðublaðíð
flísatöng og eldspýtu-
stokk. Síðan er ekkert eft-
ir annað en að finna eitt-
hvert vatn þar sem krókó-
díll er til staðar. Þú veður
út í vatnið f vaðstfgvélun-
um og buslar sem mest
þú mátt. Með því vekur þú
athygli krókódílsins. Síð-
an leggstu fyrir á bakkan-
um og ferð að lesa Al-
þýðublaðið. Krókódfliinn
kemur náttúrlega til þín
og fer að athuga hvað það
sé sem þú ert að lesa. Og
af því að það er Alþýðu-
blaðið, sofnar krókódíll-
inn svo til um leið. Þá
grípur þú sjónaukann og
beinir honum að krókó-
dílnum. Gættu þess vei að
sjónaukinn snúi öfugt.
Krókódíllinn virðist agn-
arsmár. Þú tekur hann
upp með flisatönginni og
setur hann f eldspýtu-
stokkínn.
Þrautín er leyst....