Dagur - 20.02.1986, Síða 5
20. febrúar 1986 - DAGUR - 5
Hver hefði trúað því að þetta gæti ekki varað að eilífu?
Svona hittast þeir í dag, með hinn þykka glervegg apa-
búrsins á milli sín.
Platon átti sitt sæti við matarborðið.
Þau tóku á móti barni inn-
fæddrar konu, sem gekk mjög
erfiðlega að fæða og í þakklætis-
skyni færði faðirinn læknishjón-
unum pínulítinn górilluunga.
Þetta var eins og að borga fyrir
barnið með öðru barni.
Unginn litli varð eins og einn
af fjölskyldunni og hlaut hið
virðulega nafn Platon. Þegar
hjónin fluttu heim til Frakklands
vegna þess að Emmanuel var á
leiðinni, flutti Platon með.
Jacques og Genevieve settust
að í Bretange og Platon virtist
fullkomlega sætta sig við sín nýju
heimkynni. Þegar Emmanuel
fæddist, varð Platon sjálfskipuð
barnfóstra hans. Hann gætti
þessa litla Ijóshærða „bróður“
síns og passaði að enginn kæmi
nálægt honum nema foreldrarnir.
Æska Emmanuels var stór-
kostleg, eins og albúmin vitna
um. Þeir „bræður" voru óað-
skiljanlegir, þeir léku sér saman,
sváfu saman og borðuðu saman.
Þetta var of gott til að vara,
Platon var fullur af lífsþrótti og
stækkaði mjög ört. Það kom að
því að hann varð að fara í dýra-
garðinn. Það var útilokað að hafa
hann heima.
Nú býr Platon í dýragarðinum
í Rive-de-Gier og Emmanuel
heimsækir hann einu sinni í mán-
uði. Þaðan sem hann er á bak við
þykkt gler getur Platon ekki
þekkt litla „bróður“ sinn. Enda
er aldrei að vita hvað gerðist ef
hann þekkti hann. En minning-
arnar getur enginn tekið frá
Judes-fjölskyldunni.
rrr
Bændur
Norðurlandi
Fræöslu- og kynningarfundur um heymetisverkun
veröur haldinn í Lautinni, Hótel Akureyri þriöjudag-
inn 25. febrúar kl. 20.30.
Á fundinn mætir John Backon frá A.O. Smith
framleiðanda Harvestore-turnanna.
Kaffiveitingar.
Globus hf. Reykjavík
Dragi, Akureyri
Áhrífamikill auglýsingamiðill
Reykvíkingar
með Svartá
Nýlega voru undirritaðir samn-
ingar á milli Stangveiðifélags
Reykjavíkur og landeigenda
að Svartársvæðinu um veiði-
réttindi í Svartá.
Að sögn Péturs Hafsteinssonar
veiddust rúmlega 350 laxar á
svæðinu í fyrra auk talsverðrar
silungsveiði. Pétur sagði að tölu-
legar hækkanir frá fyrra ári væru
um 33% á Svartársvæðinu.
G.Kr.
Akureyringar
Norðlendingar
Kaldsólum hjólbarða
fyrir
vörubíla og jeppa.
Reynið viðskiptin.
Gúmmívínnslan hf.
Rangárvöllum, Akureyri.
sími (96) 26776.
Aðalfundur
Ungmennafélags Framtíðar veröur haldinn í
Laugaborg laugardaginn 22. febrúar nk. kl.
14.00.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Ungmennafélagar og allir þeir sem áhuga hafa á
starfsemi félagsins eru hvattir til aö mæta á
fundinn.
Stjórnin.
Tilkynning
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki
hefur tekið að sér sölu á II flokks steinull
fyrir Steinullarverksmiðjuna hf.
Viðskiptavinir eru beðnir að snúa sér til
Byggingavörudeildar K.S. á Eyri sími
95-5200.
Ullin er nothæf sem varma- og hljóð-
einangrun en uppfyllir ekki þærströngu
kröfur sem verksmiðjan gerir til I flokks
einangrunar.
L
=miM
Bílbeltin skal að
sjálfsögöu spenna
í upphafi feröar.
Þau geta bjargaö lífi í
alvarlegu slysi og
hindrað áverka I minni
háttar árekstrum. Hnakka-
púöana þarf einnig aö stilla
i rétta hæð.
Steinullarverksmiðjan hf.
Einnig tilboð
á herra
terlínbuxum.
2 litir.
Verð aðeins
SÍMI
(96)21400
20% afsláttur
af öllum
ullarjökkum
og stökkum.