Dagur - 20.02.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 20. febrúar 1986
málefni aldraðra.
a) Sambýlishús
með þjónustu
í þessum þjónustukjarna væri
unnt aö veita öryggi eins og
veitt er á dvalarheimilum.
Húsnæöiö gæti veriö í eign íbú-
anna, háð ákveðinni vernd gegn
hraski. Með byggingum sem
þessum myndi valt'relsi aldraðra
aukast, það .myndi draga úr þörf
fyrir dvalarheimili, jöfnuöur
milli bæjarhluta hvað aldur-
sdreifingu varðar mvndi aukast,
þjónustustofnanir nýtast betur
sem og íbúðarhúsnæði.
Verulegt hagræði væri af
þessu bæði fyrir Akureyrarbæ
og hina öldruðu. Akureyrarbær
gæti átt frumkvæði í þessu efni
eða stutt áforrn sem uppi hafa
vcrið um byggingu af þessu tagi
hjá Félagi aldraðra. Fram kem-
ur í könnuninni að stuðningur
bæjaryfirvalda gæti t.a.m. verið
í því fólginn að iáta í té lóð á
góðum stað, fella niður lóða-
gjöld, taka þátt í byggingar-
kostnaði, t.d. þjónustukjarn
ans, útvega framkvæmdalán.
gerast eigandi hluta íbúðanna
og að annast vernd gegn braski
með forkaupum.
Eins og fram hefur komið í
þáttum um málefni aldraðra hér
í blaðinu er bygging sem þessi
þegar komin á nokkurn
rekspöl, þ.e. teikningar liggja
fyrir og einnig hefur staður ver-
ið valinn undir byggingarnar við
Víðilund.
s
b) Ihlauparými
Það er algengt að aldraðir búa
við aðstæður sem allajafna eru
fullnægjandi, en duga ekki til á
vissum tímum. Margt getur þar
komið til, einbúi sem fer á
sjúkrahús en þarfnast hvíldar
eftir heimkomuna, einstakling-
ur sem býr hjá aðstandendum
og er þeim háður þannig að þeir
komast ekki í sumarleyfi vegna
umsjárskyldu sinnar. Þetta eru
með öðrum orðum tímabundnir
örðugleikar, sem krefjast vist-
unar um skamma hríð. Eins og
ástandið var á þeim tíma sem
könnunin var gerö, var ekki
möguleiki á íhlauparýmum og
tímabundnir umsjárörðugleikar
urðu oft til þess að til varanlegr-
ar vistunar kom, þar sem
skemmri vistun á dvalarheimili
var nánast ófáanleg.
Hvað íhlauparými varðar
hefur staðan ekki breyst mikið,
en þó þokast í áttina. Á Krist-
nesspítala er ætlunin að veita
hjúkrunarsjúklingum skamm-
tímadvöl í þeirri von að létti á
heimilum þeirra og þeim veitt
einhver úrlausn.
c) Dagvist
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar virtist sem rekstrar-
grundvöllur væri fyrir dagvist til
handa öldruðum. Með dagvist
er átt, að hinir öldruðu koma á
stofnun að morgni og dveljast
þar mestan hluta dagsins. Þeir
fá alla sömu þjónustu og þeir
sem á stofnuninni dvelja. Dag-
vist er það stig þjónustu sem
gengur næst dvalarheimilisvist-
un og það stig tekur við er
heimilisþjónusta megnar ekki
að sinna þörfum hins aldraða
heima fyrir.
í ráði er að dagvist verði viö
Dvalarheimilið Hlíð, í þjón-
ustubyggingu þeirri sem þar er í
byggingu. Einnig hefur eitt
pláss á Systraseli verið nýtt sem
dagvist. Með því að koma upp
dagvistum fyrir aldraða myndi
það stuðla að því að aðstand-
endum þætti fýsilegra að annast
aldraða í heimahúsum.
d) Endurhæfing
Með markvissri og alhliða
endurhæfingu má oft breyta for-
sendum aldraðra til eigin um-
sjár verulega. Með endurhæf-
ingu er átt við líkamlega, and-
lega og félagslega endurhæf-
ingu. I því sambandi kemur
margt til greina. Öldruðum
hættir til að einangrast, sam-
ferðafólkið fellur frá og for-
sendur þeirra til að bera sig eftir
félagsskap minnka. Alhliða
endurhæfingar er sérlega oft
þörf eftir ýmiss konar áföll,
sjúkrahúsvist og fráfall maka.
e) Dvalarheimilin
Könnunin leiddi í Ijós að dval-
arheimilin njóta verulegra vin-
sælda og stór hópur fólks kýs
þau öðru fremur til að leysa um-
sjárvanda sinn í ellinni. Vís-
bcndingar eru um að vistmenn
kjósi þó sjálfstæðar íbúðir inn-
an heimilanna. Niðurstöður
könnunarinnar virtust leiða í
Ijós að aldraðir höfðu fremur
neikvæða afstöðu til Skjaldar-
víkurheimilisins. Til þeirrar
staðreyndar þarf að taka tillit
með athöfnum, segir í niður-
stöðunum. Skjaldarvík virtist
eins konar neyðarúrræði aldr-
Margrét Þ.
Þórsdóttir
skrifar
Um könnun á högum
aldraðra á Akureyri
Þriðii hluti:
aðra. Ekki komu fram skýrar
ábendingar um hvers vegna, en
einhverju gæti ráðið hve úrleið-
is það er. Umsækjendur óttuð-
ust að þeir einangruðust enn
meir þar en á Hlíð. í könnun-
inni eru nefnd dæmi um það að
einmitt Skjaldarvík gæti boðið
upp á ýmsa kosti vegna legu
sinnar, svo sem möguleika
vistmanna að annast skepnur,
fara í róðra og stunda sveita-
störf. Með því að byggja upp
aðstöðu til þess fengi staðurinn
sjálfsagt aðdráttarafl í augum
margra umsækjenda.
f) Heimaþjónusta
Ein eindregnasta vísbendingin
sem könnunin gaf um óskir til
þjónustu var varðandi heimilis-
þjónustu og þá í víðum skiln-
ingi. aldraðir kjósa að fá aðstoð
heima við húsverk, aðdrætti,
sendiferðir o.s.frv. Það eru ein-
mitt þessi verk sem í fljótu
bragði láta ekki mikið yfir sér,
en samsöfnuð einn daginn
verða til þess að hinum aldraða
finnst sér ekki lengur fært að
búa einn utan stofnunar.
Heimahjúkrun er einn þáttur
heimilisþjónustu og virtist sem
efla þyrfti þá þjónustu verulega.
Nú er rekin öflug heimilisþjón-
usta og hefur fjölbreytnin aukist
mjög. í tengslum við heimilis-
þjónustuna er nú maður í fullu
starfi við að heimsækja aldrað
fólk og aðstoða það með eitt og
annað sem upp kann að koma
og er það stórt skref í áttina að
öflugri heimilisþjónustu.
g) Skipulag
í greinargerð um skipulag öldr-
unarmála kemur fram að skipu-
lag öldrunarþjónustu hafi verið
á margra höndum á Akureyri
og jafnvel gætt samkeppni á
milli aðila sem að henni standa
um takmarkað fjármagn, svo
nýting þess hafi á stundum ekki
orðið sem skyldi. Sömuleiðis
hafi samræmingu aðgerða verið
ábótavant. Bent er á brýna
nauðsyn þess að yfirstjórn þjón-
ustunnar verði samræmd og
færð á eina hendi. Gert er að til-
lögu að settar verði nýjar reglur
um inntöku á dvalarheimilin,
leitast við að auka samræmingu
heimilisþjónustu og heima-
hjúkrunar, félagsstarf á vegum
Félagsmálastofnunar og Félags
aldraðra nái betur til vistmanna
dvalarheimilanna og dvalar-
heimilisstjórn og félagsmálaráð
vinni í sameiningu að fram-
kvæmd sumra verkefna, eink-
um dagvistun, íhlauparýmum
og endurhæfingu.
Með tilkomu nýrra laga um
málefni aldraðra var þjónustu-
hópur aldraðra settur á laggirn-
ar, en markmið hans er að fylgj-
ast með heilsufarslegri og fé-
lagslegri velferð aldraðra, að
meta vistunarþörf aldraðra og
að sjá til þess að aldraðir fái þá
þjónustu sem þeir þarfnast.
h) Félagsstarf
í könnuninni kom fram mikill
áhugi á félagsstarfi aldraðra.
Nefnt er að félagsstarfið hafi
goldið aðstöðuleysis, en með
tilkomu húss Félags aldraðra
hafi þar orðið breyting á. Nú fer
fram í húsinu fjölbreytileg starf-
semi bæði á vegum Félagsmála-
stofnunar sem og Félags aldr-
aðra og er aðsókn mjög góð.
i) Dreifibréf
Áhugi kom fram í könnuninni
á einhvers konar undirbúningi
undir efri árin t.d. með nám-
skeiði. Ýmsir viðburðir á efri
árum framkalla kreppur og
krefjast nýrrar aðlögunar, sem
undirbúa mætti með t.d. nám-
skeiðum. Þá er mikilvægt að
öldruðum sé vel ljóst, hvaða
þjónusta stendur þeim til boða
og hvernig eigi að nálgast hana.
í niðurstöðum er gerð tillaga
um bæklinga eða dreifibréf sem
send yrðu til eldra fólks jafnótt
og það kæmist á tiltekið aldurs-
ár þar sem gerð yrði grein fyrir
þjónustu við aldraða á Akureyri
og leiðum til að nálgast hana.
i) Skattaívilnanir
Á það hefur verið bent, að
skattaívilnanir til þeirra sem
hafa aldraða á heimilum sínum,
kynni að hafa þau áhrif að fleiri
kysu að annast aldraða foreldra
eða frændfólk í heimahúsum,
enda yrði það fjárhagslega auð-
veldara. Hér er um verkefni
löggjafans að ræða, en í niður-
stöðukafla er því varpað fram
hvort ekki væri ráðlegt að vísa
erindi þessu að lútandi til
þingmanna kjördæmisins.
k) Hverfismiðstöð
Við göturnar, Ægisgötu, Hrís-
eyjargötu, Eyrarveg, Sólvelli og
Víðivelli er tiltölulega mikið af
húsum sem henta öldruðum vel.
Við þessar götur bjuggu er
könnunin fór fram 132 íbúar af
319, sem voru 62ja ára eða
eldri.
Fram kemur sú hugmynd að
halda þessum götum fyrir eldra
fólk, með beinum eða óbeinum
aðferðum. Bæjaryfirvöld eða fé-
lagasamtök gætu hlutast til um
að aldraðir hafi forkaupsrétt á
íbúðum á viðkomandi svæði.
Einnig er bent á að með því að
koma upp þjónustu fyrir aldr-
aða á svæðinu hafi það að-
dráttarafl fyrir þá sem eru að
búa sig undir efri árin.
Lokaorð
Að lokum er gerð grein fyrir því
að allmargir aldraðir sem þátt
tóku í könnuninni, óskuðu eftir
aðstoð varðandi atvinnu. Ýmist
við útvegun léttrar vinnu, t.d.
hluta dagsins eða við tilfærslu úr
erfiðri vinnu sem farin er að of-
bjóða viðkomandi í léttara
starf. Þá er einnig fjallað lítil-
lega um þann skort á hjúkrun-
ar- og langlegurýmum sem er á
Akureyri. En á því sviði er sár-
asti vandinn á sviði öldrunar-
þjónustu á Akureyri. Það er
Ijóst að á dvalarheimilunum
sem og í heimahúsum dvelja
aldraðir sem í rauninni ættu að
vistast á hjúkrunardeild. Sam-
kvæmt athugun sem gerð var á
þörf fyrir langlegurými á Eyja-
fjarðarsvæðinu vantar á milli 40
og 50 langlegurými nú þegar til
að fullnægja þörfinni nokkurn
veginn. Samkvæmt sænskum
staðli sem sannreyndur hefur
verið hér á landi hefur komið í
ljós að þörf á hjúkrunarrými sé
70 rúm á hverja 1000 íbúa 70
ára og eldri. Þá blasir við okkur
að um aldamótin næstu, eða eft-
ir aðeins 14 ár vanti 127 pláss
fyrir hjúkrunarsjúklinga á þjón-
ustusvæði FSA. Er ekki mál til
komið að hugleiða það aðeins
nánar? Ekki bara aö hugsa um
það, heldur staðfesta hugsanir
sínar í athöfnum. Gera eitt-
hvað. -mþþ