Dagur - 20.02.1986, Qupperneq 9
20. febrúar 1986 - DAGUR - 9
-Jþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Körfubolti:
Tindastóll
stendur vel
- í 2. deildinni
Lið Þórs sem sigraði í Bautamótinu, ásamt þjálfurum, formanni knattspyrnudeiidar og framkvæmdastjóra deildarinnar.
Bautamótið í innanhússknattspyrnu:
Þórsarar sigruðu í mót-
inu fjórða árið í
Þórsarar héldu uppteknum
hætti á Bautamótinu í innan-
hússknattspyrnu sem fram fór
á dögunum. Þeir sigruðu í
mótinu og er það í fjórða skipt-
ið sem þeir gera það eða frá
upphafi. I fyrra unnu þeir
glæsilegan bikar til eignar og
eru þeir strax farnir að reyna
við þann nýja. Alls tóku 20 lið
þátt í mótinu, öll héðan að
norðan nema eitt, Grótta frá
Seltjarnarnesi.
Liðunum var skipt í fimm riðla
og komust tvö lið úr hverjum
riðli áfram í milliriðil. Liðin sem
komust áfram voru, úr a riðli Þór
a og HSÞ-b, úr b riðli Völsungur
a og KA b, úr c riðli KA a og
Laugaskóli a, úr d riðli Grótta og
Völsungur b og úr e riðli Þór b og
lögreglan. Liðum þessum var
skipt í þrjá milliriðla og voru þrjú
lið í tveimur riðlum og úr hvorum
komst eitt lið áfram og í þriðja
milliriðlinum voru fjögur lið og
úr honum komust tvö lið áfram í
úrslitakeppnina. Þegar leikjum
var lokið í milliriðlunum stóðu
fjögur lið eftir og áttu þau að
heyja úrslitakeppni þar sem allir
Mjög jöfn keppni var í pilta-
llokki á KA-mótinu í stórsvigi í
Hlíðarfjalli. í stúlknadokki var
sigurinn hjá Asu Þrastardóttur
öruggari.
Keppt var í flokki 13-14 ára og
• í piltaflokki börðust tveir KA-
menn um sigurinn, þeir Jóhann
Baldursson og Vilhelm Þorsteins-
son. Vilhelm stóð betur að vígi
eftir fyrri ferð en í síðari ferðinni
kepptu við alla. Liðin sem kom-
ust í úrslit voru, KA a, Grótta,
Völsungur b og Þór a.
Fyrsti leikurinn í úrslitunum
var á milli KA a og Völsungs b og
sigraði KA 3:2. Annar leikurinn
var á milli Gróttu og Þórs a og
sigraði Þór 4:2. Þar næst léku KA
a og Grótta og sigraði Grótta 3:1.
Síðan léku Þór a og Völsungur b
og sigraði Þór 3:0. Næstsíðasti
leikurinn var á milli Gróttu og
Völsungs b og sigraði Grótta í
þeim leik 3:1.
Þá var komiö að leiknuin sem
Það var hart barist þegar fram
fór í Grindavík næstsíðasta
„túrneringin“ í 3. flokki í
körfubolta. Tvö lið að norðan
léku í b riðli Þór og Tindastóll
ásamt UMFN og Haukurn og
kepptu þau um að komast upp
náði Jóhann betri tíma og dugði
það honum til sigurs en naumlega
þó. Jóhann var á 75,31 samanlagt
en Vilhelm á 75,43. í þriöja sæti
varð Sverrir Ragnarsson Þór á
79,85.
í stúlknaflokki sigraði Ása
Þrastardóttir Þór örugglega á
84,25, önnur varö Kristrún
Birgisdóttir KA á 86,31 og þriðja
Erna Káradóttir KA á 86,57.
allir biðu eftir, á milli a liða KA
og Þórs og voru fjölmargir áhorf-
endur rnættir í Höllina þegar úr-
slitaleikirnir fóru fram. KA-
menn byrjuðu af krafti og áður
en Þórsarar náðu að átta sig var
staðan orðin 2:0 fyrir KA. Þórs-
arar náðu svo tökum á leiknum
og sigruðu 4:2 og þar með á mót-
inu. Grótta varð í öðru sæti, KA
í þriðja sæti og Völsungur í því
fjórða.
Mót þetta fór mjög vel og
skipulega frarn og gekk vel í alla
í a riðil. En þegar ein „túrner-
ing“ er eftir geta aðeins þau lið
sem eru í a riðli unnið íslands-
meistaratitilinn.
í fyrsta leiknum léku Þór og
UMFN og sigraði Þór naumlega
85:82. í öðrum leiknum léku
Haukar og Tindastóll og sigruðu
Sauðkrækingar örugglega 85:61.
Því næst léku Þór og Haukar og í
þeim leik voru Haukamenn
sterkari á endasprettinum og
sigruðu 79:77. Þar næst léku
UMFN og Tindastóll og aftur
sigruðu Sauðkrækingar nokkuð
örugglega, nú 81:61. Síðan léku
norðanliðin Þór og Tindastóll og
enn sigraði Tindastóll örugglega,
í þetta skiptið 72:52. Síðasti
leikurinn var svo á milli UMFN
og Hauka og í þeim leik sigruðu
Njarðvíkingar naumlega 74:73.
Tindastólsmenn voru greini-
lega með sterkasta liðið og unnu
sér sæti í a riðli í síðustu urnferð-
inni. Hin liðin voru aftur á móti
mjög jöfn að getu og unnu þau
öll einn leik hvert. En það kom í
hlut Njarðvíkinga að falla í c riðil
þar scm þeir höfðu óhagstæðasta
stigahlutfallið þó ekki hafi mun-
að miklu.
Bjarni Össurarson leikmaður
Þórs lék á alls oddi í leikjunum í
röð
staði. Margir skemmtilegir leikir
sáust og var þetta kærkomin æf-
ing fyrir liðin sem eru að fara
suður um helgina að taka þátt í
íslandsmótinu innanhúss. Þór,
KA og KS leika öll í fyrstu deild
en Völsungur, Vaskur, Tinda-
stóll og Efling leika í þeirri 4. í
kvennaflokki leika KÁ, Þór og
KS og fengu stúlkurnar úr KA og
Þór einnig góða æfingu á Laugum
á dögunum er þar fór fram
keppni í innanhússknattspyrnu
eins og fram kemur annars staðar
á síðunni.
úrslit
Grindavík og skoraði fjöldann all-
an af stigum. Gegn UMFN skor-
aði Bjarni 41 stig, gegn Haukum
38 stig en gegn UMFT skoraði
Bjarni „aðeins" 18 stig. Sannar-
lega vel gert hjá Bjarna en hann
er þegar farinn að leika með
meistaraflokki þó ungur sé.
Lið Tindastóls er geysisterkt
og á vonandi eftir að blanda sér
alvarlega í baráttuna um íslands-
meistaratitilinn þegar síðasta
„túrneringin" fer fram í Haga-
skóla 4., 5. og 6. apríl næstkom-
andi.
Liö Tindastóls er orðið nær
öruggt með sæti í fjögurra
liöa keppni efstu liða í 2.
deild um sæti í þeirri 1. að
ári. Liðið sigraði KFÍ örugg-
lega um helgina í nýja
íþróttahúsinu á Sauðárkróki
með 90 stigum gegn 64.
Húnvetningar léku tvo leiki
gegn KFÍ og unnu þeir fyrri
leikinn með 69 stigum gegn 54
en töpuöu þeim seinni 50:59.
KFÍ liðið félist á að spila heima-
leik sinn á Húnavöllum. Sigur
Húnvetninga gegn KFÍ er fyrsti
sigur félagsins í 2. deildinni á
þessu keppnistímabili.
Liðið á aðeins eftir að leika
einn leik í 2. deildinni en það er
gegn Tindastóli og fer sá leikur
fram á Króknum 1. mars næst-
komandi.
Lið Tindastóls á þrjá leiki
eftir, liðið á eftir að spila erfiða
leiki gegn Borgnesingum og
Skagamönnum á Vesturlandinu
um næstu helgi og svo leikinn
gegn USAH heima 1. mars.
Kári Marísson, þjálfari Tinda-
stóls.
Mjög gott
skíðafæri
á Dalvík
Mjög gott skíðafæri er í
Böggvisstaðafjalli við Dalvík
og eru lyftur þar opnar seinni
part dags í miðri viku og um
aliar helgar.
Mjög gott veður hefur \erið í
vetur og hafa þeir á Dálvík að-
eins þurft að hafa svæðið lokað
einn og hálfan dag frá áramótum.
í fjallinu er ný Ivfta og hefur til-
koma hennar breytt aðstöðunni
til mikilla muna.
Vilja Dalvíkingar hvetja skíða-
fólk á Norðurlandi til þess að
korna og prófa þá aðstöðu sem
þeir hafa upp á að bjóða.
Laugamótið í innanhússknattspyrnu:
KA-stelpumar unnu
Þór í úrslitaleik
Á laugardaginn fór fram
Laugamótið í innanhúss-
knattspyrnu kvenna á Laug-
um í Reykjadal. Alls tóku 8
liö þátt í mótinu tvö frá Þór,
Nú frá KA, Laugskóli
IMA og Efling.
Fóru leikar þannig að a
lið KA sigraði í mótinu eftir
að hafa sigrað a lið Þórs í
úrslitaleik með 5 mörkum
gegn 4. A lið Þórs hafnaði
því í öðru sæti, Laugaskóli í
því þriðja og KA-b í fjórða
sæti. ÍMA varð í 5. sæti,
KA-c í því sjötta, Þór-b því
í sjöunda og Efling í áttunda
sæti.
Hnífjafnt í
piltaflokki
- í KA-mótinu í stórsvigi
„Túrnering“ í 3 flokki í körfubolta:
Tindastóll í