Dagur - 24.02.1986, Side 5
þetta of mikið, því þá er það of
gott,“ sagði Alli.
Hljómsveitin er búin að æfa
nokkurn tíma og spilaði m.a. á
árshátíð starfsmanna KEA á
Dalvík fyrir stuttu. „Þrumu-
stuð,“ sögðu þau öll. Næst ætla
þau að spila fyrir félaga í A.A.-
samtökunum. „Pað er svolítið
öðruvísi, en mjög gaman,“ segir
Helena. Hljómsveitarmenn ætla
að spila saman í sumar og fara
jafnvel til Reykjavíkur að spila á
Hótel Sögu eins og þau hafa gert
undanfarin sumur. Annars ræður
eftirspurnin hvert farið er. „Við
höfum verið að spila frá Snæfells-
nesi austur á Dalatanga," segir
Finnur, „alltaf fjör.“ Næsta lag.
Litfríð og ljóshærð eftir Emil
Thoroddsen, rólegt og gott fyrir
síðasta dans þið vitið. Svo kom
þrumu rokksyrpa með Dave
Clarke Five-lögum. Nokkur lög í
röð. Alli byrjaði að raula og spila
hljóma. Jónsi tók til á gítarinn
líka. Nonni sló svo taktinn með,
Finnur teygði sig í bassann og
Helena tók hljóðnemann. Allt í
einu var Dave Clarke syrpan
komin á fullt og rokkið í algleym-
ingi. Sem sagt þetta rann nokkuð
vel. „Ég þarf að læra röðina bet-
ur svo þetta gangi betur,“ segir
Alli. Það er samþykkt og skipt er
um lag og Mary Lou tekin létti-
lega. Svona gengur þetta fram til
klukkan hálf ellefu. Svo er bara
að fara í spilamennsku á böllum
fyrir þá sem hafa samband. Eitt
er víst að nóg er af alls konar
fjörugum lögum og reyndar
rólegum líka. Takk fyrir spila-
mennskuna Hljómsveit Finns
Eydal, Helena og Alli (og Jón og
Jón.) gej-
24. febrúar 1986 - DAGUR - 5
■' V . ................................
Anna-María, Theodora litla og
? Það kemur í Ijós með vorinu,
hvernig þessi meðganga tekst
og hvort það verður stúlka eða
drengur sem lítur dagsins Ijós í
fjölskyldu fyrrverandi Grikkja-
konungs.
Eitt barn
enn á
óskalistanum
Anna-María fyrrum Grikkja-
drottning er ófrísk í níunda
sinn. Barnið sem verður það
fimmta í röðinni fæðist með
vorinu. Þrátt fyrir að hún hafi
misst fóstur fjórum sinnum,
gerir Anna-María samt þessa
tilraun til þess að Theodora
litla, sem fædd er 1983, fái ein-
hvern til að leika sér við. Þess
má til gamans geta að Theo-
dora var níunda barnabarn
Ingiríðar ekkjudrottningar,
litla sumarbarnið verður því til
þess að fylla tuginn.
Hér sést Lana, sem heiðurs-
gestur á einhverri stjörnuhátíð
í Hollywood. Fastur fylgdar-
sveinn hennar, Eric Root er
einnig hárgreiðslumeistarinn
hennar - og tekst greinilega
bara vel til.
/
Astog
andlitshftingar
Ástin og það að fara reglulega í
andlitslyftingar heldur mér ungri
segir Lana Turner, 65 ára unglamb,
sem blómstrar í nærveru vinar síns
Eric (Root). Hann fékk hana til að
hætta í brennivíni og töflum fyrir
nokkrum árum og það hafði þau
góðu áhrif að hún fékk hlutverk í
Falcon Crest.
JiögnL
Málshættir og spakmæli voru hér á
árum áður talin nauðsynleg og
æskileg, enda óspart notuð af
lærðum og leikum og til þeirra vitn-
að við hátiðleg tækifæri, En allt er í
heiminum hverfult og nú í seinni tíð
hafa inörg þessi spakmæli verið
eyðilögð eða afbökuð af misvitrum
mönnum, sem ekkert hafa kunnaö
með þetta að fara.
Hér áður fyrr var sagt um
skömmustulega menn, að þeir
væru eins og „laminn hundur". Þá
var líka vel þekktur málshátturinn:
Enginn verður óbarinn biskup. Það
var svo um daginn að ég heyrðí
ungan mann lýsa skömmustuieg-
um manni með þessum oröum:
Hann var bara eins og lúbarinn
Mór var kennt i æsku, og trúði
því að „oft væri vit f vænum haus“.
Seinna var svo fullyrt í mín eyru að
„heimskur er jafnan höfuðstór". Og
þegar súrmatur alls konar, slátur
sviðasulta og hrútspungar, var
geymt i einni tunnu, köfuðu bænd-
ur með hönd upp að öxlum niður í
tunnuna, segjandi sem svo: Oft er
á botninum best. En fljótlega gekk
þessi sannleikur sér til húðar og nú
var sagt: Sjaldan er á botninum
betra.
Illu er best aflokið, sagði full-
orðna fólkiö, þegar maður vildi
helst geyma heimalærdóminn
þangað til seinna, - eða aldrei. Ef
reka á ungviðið til heimanáms í
dag, stendur ekki á svarinu: Frestur
er á illu bestur. Er nema von að
venjulegt fólk verði ruglað á öllum
þessum ruglingi. Mér er nær að
halda að fólk sé smátt og smátt
hætt að taka nokkurt mark á spak-
mælum af þessum sökum og sjá
allir að þetta er af hinu illa.
Það var haft eftir einum spak-
mæltasta manni sem mælt hefur á
okkar máli að „bú er landstólpi11.
Þetta þótti vel og drengilega mælt
auk þess að vera sannleikur. Var
enda til þessa vitnað við hátíðleg
tækifæri. En ekkert fær að vera í
friði. Nú hamast misvitrir menn,
sem gleymt hafa uppruna sínum, i
því aö breyta þessu orðtaki. Sér
ekki fyrir endann á þessari iðju, -
enda orðasmiðir hvorki djúpvitrir
eða spakmæltir. Þeir hafa þó sent
frá sér orðtak, sem talsvert er vitn-
að til í ræðu og riti: Fækkum
bændum. En ætli það eigi ekki fyrir
þessu orðtaki að liggja, líkt og
mörgum áður, að afbakast og
verða merkingarlaust með árunum.
Mér dettur í hug: Fjölgum bústólp-
um, fækkum landstólpum.
Högni.
Aðalfundur
Aðalfundur Hestamannafélagsins Funa verður haldinn
í barnaskólanum á Laugalandi föstudagskvöldið 28.
febrúar kl. 21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Bændur
Norðurlandi
Fræðslu- og kynningarfundur um heymetisverkun
verður haldinn í Lautinni, Hótel Akureyri þriðjudag-
inn 25. febrúar kl. 20.30.
Á fundinn mætir John Backon frá A.O. Smith
framleiðanda Harvestore-turnanna.
Kaffiveitingar.
Globus hf. Reykjavík
Dragi, Akureyri
Glæsilegur veitingasalur
Heppilegur fyrir veislur og árshátíðir
fyrir allt að 60 manns.
Tökum einnig að
okkur köld borð
fyrir fermingarveislur.
Restaurant Laut
sími 22527.
20% afsláttur
af öllum
ullarjökkum
og stökkum.
Einnig tilboð
á herra
terlínbuxum.
2 litir.
Verð aðeins
kr. 1.100.-
'riooV/
x<^<>
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskritt og auglýsingar S (96) 24222^^