Dagur - 27.02.1986, Qupperneq 1
69. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 27. febrúar 1986
40. tölublað
Trúlofunarhringar
afgreiddir
samdæaurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Nýi kjarasamningurinn:
Eykur kaupmátt
láqlaunafólks
um 7% á árínu
Drög að kjarasamningi Alþýðu-
sambands íslands, Vinnuveitenda-
sambandsins og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna var
staðfestur um kvöldmatarleytið í
gær. Það kemur svo í Ijós í dag,
hvort ríkisstjórnin er reiðubúin að
standa að þeim niðurfærsluað-
gerðum, sem gert er ráð fyrir i
samningunum. Þorsteinn Pálsson,
fjármálaráðherra, sagði í
gærkvöld, að sú leið sem samning-
urinn gerði ráð fyrir til kjarabóta
yrði skoðuð gaumgæfílega, þótt
samningurinn gerði ráð fyrir
nokkuð meiri kauphækkunum
heldur en miðað var við í tilboði
ríkisstjórnarinnar. Hann sagði, að
afstaða ríkisstjórnarinnar ætti að
liggja fyrir að loknum ríkisstjórn-
arfundi í dag.
f þeim drögum að kjarasamningi
sem nú liggja fyrir er gert ráð fyrir
5% launahækkun strax, 2,5% 1.
júní, 3% 1. september og 2,5% 1.
desember. Samtals eru þetta 13,6%.
Þá verða greiddar láglaunabætur.
Þeir sem hafa haft innan við 25 þ.kr.
á mánuði fá 3.000 kr. 15. apríl og
sömu upphæð 15. júní. Þeir sem hafa
haft laun á bilinu 25—30 þ.kr. fá 2.000
kr. á sama tíma og þeir sem hafa haft
30-35 þ.kr. fá 1.500 kr. Hér er miðað
við heildarlaun frá vinnuveitanda á
ákveðnu tímabili.
Samningstíminn er til ársloka og
þá er reiknað með að kaupmáttur
verði 3,5% hærri en hann var að
meðaltali á árinu 1985. Hjá þeim
lægst launuðu er reiknað með að
kaupmátturinn verði 7% hærri.
Ýmis önnur veigamikil atriði eru í
samningnum. Til dæmis fær fisk-
vinnslufólk flokkahækkanir vegna
námskeiða, fyrst um einn flokk í júní
og síðar um tvo flokka. Þá fær for-
eldri heimild til að vera heima hjá
veiku barni sínu í allt að 7 daga á ári.
Þá er í samningnum gert ráð fyrir
ýmsum niðurfærsluaðgerðum stjórn-
valda. Þar er reiknað með 150 m.kr.
lækkun á tekjuskatti, 300 m.kr.
lækkun á útsvari, vaxtalækkun strax
1. mars og síðan í takt við verð-
hjöðnun. Þá er reiknað með lækkun
á innflutningsgjöldum af bifreiðum,
heimilistækjum, grænmeti og fleiri
vöruflokkum. Einnig er reiknað með
lækkun á opinberri þjónustu. Þetta
kostar ríkissjóð 1.250 m.kr.
Húsnæðismál vega þungt í samn-
ingnum. Gert er ráð fyrir að verja
300 m.kr. til viðbótar í að hjálpa
þeim sem komnir eru í greiðsluþrot
vegna íbúðakaupa. Einnig er reiknað
með að bankar og sparisjóðir fram-
lengi skammtímalán sömu aðila til
allt að 10 ára. Þá er stefnt að því, að
þeir sem eru að byggja sína fyrstu
íbúð fái lánað til hennar 70% af
byggingarverði meðalíbúðar. Einnig
er reiknað með að breyta lögum hús-
byggingasjóðs á þann veg, að
umsækjendur fái lán í réttu hlutfalli
við skuldabréfakaup lífeyrissjóðs
lánsumsækjenda hjá byggingasjóðn-
um.
I kvöld frumsýnir Ungmennafélag
Skriöuhrepps gamanleikinn Ingiríöi
Oskarsdóttur, eöa Geiri Djók snýr
aftur eftir alllanga fjarveru. Leikurinn
er eftir Trausta Jónsson veöurfræöing.
Nánar um þennan gamanleik Trausta á
bls. 10-11 í dag.
Betri kjara-
samningur
en gerour
hefur verið í
langan tíma
—segir Sævar Frímannsson
hjá Einingu
„Þetta er tvímælalaust tíma-
mótasamningur,“ sagði Sævar
Frímannsson, formaður Ein-
ingar, í samtali við Dag í
gærkvöld.
„Það er heppilegt að gera
samning sem þennan núna, á
sama tíma og olíuverð fer lækk-
andi en fiskverð hækkandi. Ég
trúi að þessi kúvending í kjara-
baráttunni verði launafólki til
góðs, sérstaklega þeim lægst
launuðu. Ef ríkisstjórnin stendur
við sín fyrirheit, þá er ég viss um
að þetta eru betri kjarasamningar
en gerðir hafa verið um langan
tíma. Það eru allir búnir að gefast
upp á því að berjast fyrir kjara-
bótum í prósentum, sem síðan
velta jafnharðan út í verðlagið og
koma engum til góða,“ sagði
Sævar Frímannsson. - GS
Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri um kjarasamningana:
Ný stórkostleg tilraun
til aukinna kjarabóta
„Ég hygg að í þeim samnings-
drögum sem nú liggja fyrir sé
fólgin stórkostleg tilraun til
þess að fást við kjaramál og þá
um leið efnahagsmál og verð-
bólgu, á algerlega nýjan hátt á
íslandi,“ sagði Valur Arnþórs-
son kaupfélagsstjóri.
Valur sagðist fagna þessari til-
raun fyrir sitt leyti og taldi það
stórkostlegt ef takast mætti að ná
niður verðbólgunni svo afgerandi
sem þarna er stefnt að. Það hlyti
að verða mikill léttir fyrir at-
vinnulífið, fyrir launþega og fyrir
heimilin í landinu ef takast mætti
að ná vöxtum mikið niður á
skömmum tíma eins og stefnt er
að í samningsdrögunum.
„Það er hins vegar ekkert
launungarmál að í þeim miklu
Áfram
S.-Kórea
Helsti möguleiki íslenska
landsliðsins að komast í milli-
riðil heimsmeistarakeppninn-
ar í Sviss byggist nú á því að
hinir óþekktu leikmenn S.-
Kóreu nái að sigra Tékka á
morgun eða gera við þá jafn-
tefli.
Þetta er staðreynd eftir úrslit
gærdagsins í C-riðli þar sem
Island vann Tékka 19:18 í æsi-
spennandi viðureign og Rúmen-
ar náðu aðeins að vinna S.-Kór-
eu með eins marks mun 22:21.
Einn þeirra sem trúir á sigur
S.-Kóreu yfir Tékkóslóvakíu er
Ljubo Lazic þjálfari KA sem
lýsti þessu yfir í Bern f gærkvöld
við blaðamann Dags, Kristján
Kristjánsson.
Sjá nánar umfjöllun um gang
mála í Sviss á tveimur síðum í
blaðinu í dag.
Bls. 12-13
Ljubo Lazic trúir á sigur S.-Kór-
eu yfir Tékkóslóvakíu.
launahækkunum sem samnings-
drögin gera ráð fyrir, samfara
fastgengisstefnu, er býsna hart
sorfið að vissum grundvallarat-
vinnuvegum í útflutningi. Þar á
ég sérstaklega við fiskvinnsluna.
Umtalsverð hækkun launakostn-
aðar hlýtur að stefna afkomu
hennar í ákveðna óvissu. Þar
kemur þó vaxtalækkunin á móti
og ef einnig kemur til aukinn afli
ir hugsanlegt að fiskvinnslan
verði ekki mjög hart úti. Þó þarf
tvímælalaust að skoða hennar
mál áður en langt líður.“
Valur sagðist hafa meiri
áhyggjur af öðrum grundvallarat-
vinnuvegi í útflutningi, þ.e. ullar-
iðnaðinum, sem rekinn hefur
verið með miklum halla að
undanförnu.
„Ullariðnaðurinn þolir enga
kostnaðarhækkun og þótt vaxta-
lækkun komi á móti, dugar hún
hvergi nærri til að rétta af hans
rekstursgrundvöll. Ef ekki verð-
ur gripið til sérstakra ráðstafana
til styrktar ullariðnaðinum, beint
eða óbeint, þá mun hann fara um
koll á örskömmum tíma. Með
öðrum orðum mun hann þurrkast
út. í ullariðnaðinum starfa hátt á
annað þúsund manns og fluttar
eru út ullarvörur fyrir á annan
milljarð króna á ári. Það yrði því
mikið áfall ef ullariðnaðurinn
færi í rúst en það mun hann gera
í kjölfar þessara samninga ef ekki
verður gripið til mjög róttækra
aðgerða honum til styrktar,"
sagði Valur Arnþórsson að
lokum. BB.
Avísana-
misferli
vaxandi
Að undanförnu hefur kærum vegna
ávísanamisferlis fjölgað verulega
hjá rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri. í gær bárust tvær slíkar kærur,
vegna ávísana sem gefnar höfðu
verið út án þess að innistæður væru
til fyrir þeim. Önnur þeirra var upp
á 80 þ.kr., en hin upp á 43 þ.kr.
Þeir sem kærðu höfðu tekið við
ávísunum sem greiðslu og síðan selt
þær í banka. Þegar í ljós kom að
ekki voru til innistæður fyrir þeim
krafði bankinn seljendur ávísan-
anna um endurgreiðslu, eins og
gangurinn er í slíkum málum.