Dagur - 27.02.1986, Síða 3
27. febrúar 1986 - DAGUR - 3
Jónas Karlesson formaður boðveitunefndar við eitt af þeim tækjum sem teljast til boðveitu - tölvu. Mynd: KGA
Jónas Karlesson, formaður Boðveitu Akureyrar:
„Við megum ekki
dragast aftur úr“
„Starf boðveitunefndar hefur
fyrst og fremst verið fólgið í
að fylgjast með því hvað
hefur verið gert hjá öðrum
sveitarfélögum á sama vettvangi
og vera í sambandi við þá aðila
hjá Pósti og síma sem með
þessi mál fara innan þeirrar
stofnunar,“ sagði Jónas
Kariesson verkfræðingur sem
Flugleiðir bjóða nú Saga Class
farrými á öllum leiðum félags-
ins í millilandaflugi. Liðin eru
tæp tvö ár frá því félagið tók
upp farrýmisskiptingu, og þá
fyrst aðeins í áætlunarflugi til
Norðurlanda og Bretlands.
Síðan hafa aðrar áætlunarleið-
ir bæst við, og nú síðast á N.-
Atlantshafínu.
Saga Class farrými á N.-Atl-
antshafsleiðum er boðið þeim
farþegum sem greiða Saga Class
og Normal fargjöld. Tekin hefur
verið út sætaröð í þeim hluta vél-
anna sem ætlaður er Saga Class
farþegum, og aðrar raðir færðar
er formaður boðveitunefndar á
Akureyri.
Boðveitunefnd var stofnuð eft-
ir að Jón Sigurðarson bar fram
tillögu þess efnis í bæjarstjórn
Akureyrar. Kemur tillagan í
framhaldi af því sem gert hefur
verið í öðrum sveitarfélögum á
landinu. Mest hafa þessi mál ver-
ið til athugunar í Reykjavík og á
til svo rýmra verði um farþegana.
Einnig er aðeins tveim farþegum
úthlutað sætum í hverri þriggja
sæta röð þegar hægt er að koma
því við. Innritun farþega á Saga
Class fer fram við sérstakt innrit-
unarborð. Sérstakar veitingar eru
á Saga Class, og má t.d. geta þess
að farþegar á leið til Bandaríkj-
anna geta valið um tvo rétti sam-
kvæmt matseðli. Farþegum á
Saga Class er ekki gert að greiða
fyrir drykki. Þrátt fyrir þessa
auknu þjónustu á Saga Class hef-
ur að sjálfsögðu í engu verið
dregið úr þjónustu við aðra far-
þega.
Seltjarnarnesi. Einnig hafa Vest-
manneyingar sýnt þessum mál-
um nokkurn áhuga.
Þessi nefnd er sett á laggirnar
til að Akureyri dragist ekki aftur
úr í þessum efnum, því flest
stærri sveitarfélög hafa svipaða
nefnd starfandi innan sinna vé-
banda. Jónas Karlesson sagði að
nefndin ætti að undirbúa mörkun
stefnu bæjarstjórnar um málefni
fjölmiðlunar og boðveitu. Marg-
ar spurningar vakna þegar mál
boðveitna eru rædd. Á Akureyr-
arbær að stunda útvarps- og sjón-
varpsrekstur og standa fyrir kap-
allögnum um bæinn? Hvernig á
að taka á málum þeirra sem
sækja um leyfi til að reka útvarp
eða sjónvarp, með tilheyrandi
móttökudiskum og loftnetum? Á
að leyfa þessum sömu aðilum að
leggja kapla í götur og gangstétt-
ar?
Fleiri þættir en útvarp og sjón-
varp tengjast svokölluðum boð-
veitukerfum. Þar er um að ræða
lagnir fyrir upplýsingaöflun f
gegnum tölvur, t.d. tölvur í
heimahúsum og er það í rauninni
það sem átt er við með orðinu
boðveitukerfi, er menn geta sótt
upplýsingar í ákveðinn upplýs-
ingabanka í gegnum tölvur á
heimilum og fyrirtækjum. Einnig
er markmið boðveitunefndar að
kanna hvort bærinn eigi að taka á
móti erlendu sjónvarpsefni og
dreifa því til notenda. Staðbund-
ið útvarp og sjónvarp kemur líka
inn í myndina. T>áð er því margt
að athuga þegar boðveitumál eru
könnuð.
Nýlega barst bæjarráði fyrir-
spurn frá Pétri Péturssyni vegna
Vídeólundar á Akureyri þess
efnis hvort heimilt væri að setja
upp tréstaur við Tjarnarlund sem
síðan ætti að festa á móttökudisk
fyrir sjónvarpsefni. Bæjarráð vís-
aði málinu til boðveitunefndar.
Jónas Karlesson formaður sagð-
ist ekki líta svo á að það væri
hlutverk nefndarinnar að taka
ákvörðun um úthlutun einstakra
leyfa í þessum efnum. Hann tók
líka fram að miklar framfarir
væru í málum útvarps og
sjónvarps, þannig að það sem
þótti mjög gott fyrir 1-2 árum
þætti jafnvel úrelt í dag. „Alla
þessa þætti og margt fleira þarf
að skoða mjög gaumgæfilega,“
sagði Jónas. gej-
Nú er líka hægt að komast til New York á „Saga Class“. Mynd: - GS
Flugleiðir:
„Saga Class“ á
öllum utanlandsleiöum
Toshiba örbylgjuofninn fæst hjá okkur
Verið velkomin og kynnist því hvemig hsgt er að matreiða allan venjulegan mat i Toshiba örbylgjuofninum
á ótrúlega stuttum tíma. Hvers vegna margir réttir verða betrí úr Toshiba ofninum en gömlu eldavélinni.
Og þér er óhstt að láta börnin baka.
Og síðast en ekki síst. Svo þú fáir fullkomið gagn af ofninum þínum höldum við matreiðslunámskeið fyrir
eigendur Toshiba ofna.
Nýkomin búsáhöld fyrir örbylgjuofna
SIEMENS
Þvottavélar, eldavelar, ísskápar
og fleira, einnig smá heimilistæki
í úrvali
til dæmis:
Hitateppi:
Tilvalin gjof handa pabba og mömmu
eða afa og ömmu.
Einnig kaffikönnur,
handhrærivéiar ásamt fylgi-
hlutum, brauðristar með hita-
grind, eggjasjoðarar,
straujárn með og án gufu,
hraðgrill og ótal margt fleira.
Tótu barnastóllinn
Sérstaklega hentugur og þægilegur í flutningi.
PETRA
Blomberq
þvottavélar, ísskápar
og eldavélar.
Viðurkennd gæðavara.
2ja ára ábyrgð.
smá heimilistæki i úrvali.
Hýjung t.d. hrabsuðukanna,
nytsöm til margra hluta.
0
NÝLAGNIR
VIDGEROIR
VERSLUN
Búsáhöld í úrvali
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400
Verslið hjá fagmanni.
Höfum flutt
jámsmíðaverkstæði okkar í nýtt húsnæði
að Frostagötu 1a.
Tökum að okkur alla nýsmíða- og viðgerðarvinnu.
Járntækni hf. sími 26804.
Ingiríður Óskarsdóttír
Gamanleikur í þremur þáttum
eftir Trausta Jónsson veðurfræðing.
Leikstjóri Pétur Eggerz.
Sýningar Melum föstudag 28. febrúar og
sunnudag 2. mars kl. 21.00.
Miðapantanir í síma 26792 milli kl. 15 og 17
sýningardagana.
UMF Skriðuhrepps.
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ
Kviksandur
Höfundur: Michael V. Gazzo.
Þýðing: Ásgeir Hjartarson.
Leikstjóri: Þráinn Karlsson.
Sýningar í Freyvangi
Sýningar föstudagskvöld 28. febrúar og
laugardagskvöld 1. mars kl. 20.30.
Síðustu sýningar í Freyvangi.
Miðapantanir í síma 24936. Miðasaia við innganginn.
Flugáhugamenn
Akureyri og nágrenni
Vélflugfélag Akureyrar efnir til fundar í Sjallanum
laugardaginn 1. mars kl. 14.00, fundurinn er öllum
opinn og eru allir sem áhuga hafa á flugi hvattir til að
mæta.
Sýndar verða myndir m.a. Red Arrows, Northrop,
o.fl. einnig slides myndir úr safni PPJ.
Kynnt verður fyrirhuguð hópferð til Parísar um
hvítasunnuna.
Um kvöldið verður boðið upp á kalt borð í Kjallaranum og
eru flugáhugamenn hvattir til að mæta kl. 19.00 stundvís-
lega.
Vélflugfélag Akureyrar.