Dagur - 27.02.1986, Page 8

Dagur - 27.02.1986, Page 8
8 - DAGUR - 27. febrúar 1986 Guðmundur Guðlaugsson. ALLT spyr? Nýjar videóleigur hafa sporttið upp eins og gorkúlur undanfarin ár. Sú nýjasta þeirra er líklega Video-lif, en hún var opnuð fyrir vlku. Guðmundur Guðlaugsson 19 ára nemi rekur Video-líf mílli þess sem hann er í skólanum. ALLT fór á stúfana hérna um daginn og spjallaði við Guðmund... - Hvers vegna fórst þú út í þennan rekstur? „Ja, ég gef mikið fyrir að vera sjálfs míns herra og hef nú alltaf verið að dunda eitthvað meðfram skólanum. Svo langaði mig til að prufa eitthvað nýtt, ég hef mikla reynslu í þessum málum - hef t.d. verið með fatamarkað." - Nú ert þú ( skóla (málabraut M.A.) ásamt þvi að reka þessa leigu, - hefurðu nægan tima til að standa i þessu? „Ég geri nú minnst af þvi að læra, reyni að leggja aðaláherslu á ritgerðir og svo- lelðis. Annars hef ég reynt að læra á með- an ég hef verlð að vlnna hór, en það hefur bara ekki verið nógu mikill frlður, svo óg veit náttúrlega ekki hvort þetta muni ganga. En það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.“ - Er markaðurinn ekki orðinn mettaður af þessum videóleigum? „Jú hann er það líklega. En þó þessari leigu sé kannski ofaukið er ekki þar með sagt að hún farl á hausinn frekar en hinar. Það er náttúrlega samkeppni ( þessum business lika, - samt er ekki eins mlkið verðstríð hér á Akureyri og er i Reykjavík. Annars er leigan ágætlega staðsett og fint fyrir fólk að koma við hér í leiðinni þegar það er að versla." - Hvað hefur þú opið hér lengi? „Ég er nú mættur kl: 2.00 (þó opnunar- tími sé ekki auglýstur nema frá kl: 4.00) og er hér lengur en tfl tíu á kvöldin, það er ali- taf opið meðan Ijósin eru kveikt hérna.“ - Býður þú upp á góð kjör hér? „Ja, þú kemst ekki í bfó fyrir 150 kr. í dag. Svo langar mig að benda á mjög hag- stæð vikukort sem við bjóðum upp á hérna. Þau kosta 600 kr. og fyrir eitt svona kort er hægt að fá eina spólu á dag i fimm daga (þá hefur maður sparað 450 kall) og svo eru tvær fríar spólur að auki.“ - Hvað hefur þú margar videóspólur hér? „Það eru rúmlega 600 hér inni og svo hef ég eltthvað um 200 heima. Það er mikil- vægt að maður reyni að fylgjast með hvaða myndir á helst að panta og þess vegna gott að vinna sem mest sjálfur. Ég keypti nýjustu spólurnar hér innl (ný spóla í dag kostar um 5000 kr.) - á von á Police Academy og Starlos." - Hvað kostar að lelgja spólu? „Textuðu spólurnar eru á 150 kr. en ótextað efni er á 100 kr., það er mikið tekið af ótextuðu spólunum ef þær eru góðar - vitleysa að Akureyringar skilji ekkl ensku.“ - Að lokum hérna eln persónuleg - er ætlunin að verða rfkur? „Já, - ég hef verið kallaður “uppari" (ungur maður á upplefð).“ Blaðamaður spjallar við Guðmund f videóleigunni. Allt um Sólborq eystra, það er upptökusvæði okkar þó ekki komi allir þaðan. Meirihluti vistmanna er úr dreif- býli.“ - Er fólk hér til æviloka - eftir að það er einu sinni hingað komið? „Nei, það er mjög misjafnt, Pétur Sigurður Jóhannesson. þetta er þeirra heimili [ dag, - það er ekki farið út í neina aldursgreiningu þegar verið er að taka fólk hingað inn.“ - Við hvað er miðað þegar vistmönnum hér er skipt niður á misjafnar deildir? „Þá er fyrst og fremst farið eftir aldri og getu.“ - Hvernig er heimsóknar- tímunum háttað? „Það er mjög breytilegt hve- nær vistmenn fara heim og hve- nær foreldrar koma í heimsókn, en við leggjum áherslu á að tengslin við þá nánustu séu góð.“ - Hvernig er fjármálum van- gefinna háttað? „Ríkið borgar alla framfærslu þessa fólks. Fram að 16 ára aldr- inum fá vangefnir greiddar barnabætur, en þegar þeir eru komnir yfir 16 ára aldur eru þeim greiddar örorkubætur. Trygging- arstofnanir greiða einnig 2.700- 2.800 kr. til hvers einstaklings í vasapening mánaðarlega (fyrir utan laun sem sumir fá á vernd- uðum vinnustað).“ - Fara vistmenn oft út að skemmta sér? „Það er mjög misjafnt, fer eftir getu þeirra. Þau fara í Dynheima á ákveðnum tímum og stundum í hin danshús bæjarins. - íþrótta- félagið EIK er starfrækt fyrir þroskahefta hér í bæ. Einnig eru saumaklúbbar. Þeir sem eru verst settir og þurfa mestan aðbúnað fá því miður minnst." Síðastliðinn mánudag lögðum við leið okkar upp á Sólborg til þess að tékka aðeins á lífinu þar. Við klöngruðumst þarna upp eftir - yfir klungur, kletta og nokkrar gaddavírsgirðingar, með þeim afleiðingum að Helga reif buxurnar sínar. Hvor þeirra? Hef ekki hugmynd, - en það var alla vega allt Ijósmyndaranum að kenna, hann vildi fara þessa leið. Við komumst loks á leið- arenda, gjörsamlega magnþrota. Uppi á Sólborg var okkur vel tekið og þar var bráðhresst lið sem var alveg til í nokkur viðtöl. Við spjölluðum við forstöðumanninn og einn vistmanna þarna upp frá. Einnig birtast hér viðtöl sem við tókum í innisundlaug Akureyrar. Guðmundur Þorvaldsson og Aðalheiður Pálmadóttir Guömundur býr heima hjá sér en Aöalheiður í sambýli í Beyki- lundinum. Við gómuðum þau í sundi og fengum þau til þess að svara nokkrum spurningum. - Hvernig er að búa í svona sambýli? A.: „Það ergott að búa í Beyki- lundinum. Við erum níu sem búum þar í þremur íbúðum." - Hvað gerið þið á daginn? A.: „Við erum að vinna uppi í Iðjulundi, það er fínt, við gerum allt mögulegt." G.: „Við gerum körfur og kerti og ýmislegt." - Eru margir sem vinna þarna? „Já, hellingur frá Sólborg og úr sambýlunum líka, svo náttúrlega krakkarnir sem búa heima hjá sér.“ - Eruð þið mikið í íþróttum? „Já, við erum í körfubolta, boccia og leikfimi. Við erum í íþróttafélaginu EIK.“ - En farið þið oft í sund? , „Já, við förum alltaf á laugar- dögum." - Farið þið mikið á böll? „Ekki mjög oft. Við förum bara í Sjallann og svo í Dynheima á hverjum sunnudegi." - Hlustið þið ekki mikið á tónlist? A.: „Jú, ég er alltaf með Rás 2 í útvarpinu og ef hún er leiðinleg spila ég bara spólur." G.: „Já, ég líka.“ - Horfið þið mikið á videó? A.: „Já, ég var til dæmis að horfa á eina mynd áðan.“ G.: „Já, dálítið." Við vildum ekki trufla þau meira frá sundinu svo við kvödd- um þessa bráðhressu krakka og brugðum okkur næst upp á Sólborg. Við náðum tali af rúmlega tvítug- um vistmanni á Sólborg, Pétri Sigurði Jóhannessyni. Pétur hafði keypt allar innréttingar sjálf- ur í herbergið sitt, sem var mjög snyrtilegt. - Hvernig líkar þér hér á Sólborg? „Mér finnst gott að vera hér, - er t.d. í ágætu herbergi." - Ertu búinn að vera lengi hér? „Nei, ekki mjög.“ - Hvað gerir þú á daginn? „Ég er alltaf í Hrísalundinum á vernduðum vinnustað og líkar vel. Ég vinn frá kl. 9-4 á daginn, fimm daga vikunnar og er þá að gera körfur og svoleiðis." - En hvað gerir þú í frístund- um? „Ég fer alltaf á þorrablót þegar þau eru haldin og í leikhús. Fór t.d. einu sinni á leikrit meö Bessa Bjarnasyni fyrir sunnan, þá var hann með bílinn... - það var gaman. Ég hef líka áhuga á mús- Guðmundur Þorvaldsson og Aðalheiður Pálmadóttir. Njáll H. Jónsson forstöðumaður. í innisundlaug Akureyrar. - Aðalheiður á næsta leik. ík og hef einu sinni farið í Sjall- ann og einu sinni í bíó. Síðan hef ég tekið tvær myndir á mynda- vél.“ - Ertu mikið í íþróttum? „Nú er hjólið bilað svo ég kemst ekki á það, en á sumrin hjóla ég mikið. Annars er ég í íþróttafélaginu EIK og fer í fót- bolta uppi í Laugargötunni. En ég fer aldrei í sund.“ - Lokaspurning - ferðu oft í ferðalög? „Nei, ég hef ekki ferðast rnikið." Njáll H. Jonsson forstöðumaður - Hver er vist-og starfsmanna- fjöldi hér? „Vistmenn eru 40 en starfs- menn sem eru um 63 talsins skipta með sér 70 stöðugildum." Gaman í sundi. - Hvernig var áður en þessi stofnun var byggð, hvert fóru vangefnir þá? „Þá voru flestir sem hér eru heima hjá sér. Kópavogshæli sem var þá landsstofnun - og er reyndar enn í dag, ásamt Sól- heimum í Grímsnesi voru einu hælin sem til voru.“ - Hvaðan koma flestir hingað? „Sólborg þjónar Norðurlandi Sólborg. Texti:Helga Kristjánsdóttir og Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir- Myndir: Gísli Tryggvason - Hvernig er aðbúnaður? „Hann er í þokkalegu ástandi. Það er alltaf verið að endurnýja eitthvað hér og reynt að sjá til þess að þau hafi sama aðbúnað og aðrir. - Hjálpartækin skipta miklu.“ - Er það vel launað starf að vinna hér? „Það er ekki vel borgað í dag, en launin eru þó „á réttri leið“. Það er vaktavinnan sem heldur kaupinu uppi.“ - Hvernig heldur þú að þeim Kði? „Sumir gera sér grein fyrir því að þeir fá ekki að ráða sér eins mikið sjálfir og venjulegt fólk. Þau eiga að njóta sama réttar og aðrir - og verið er að vinna að því, þó það sé ekki framkvæmanlegt í dag.“ - Er þreytandi að vinna innan um þetta fólk? „Nei alls ekki, þau eru fólk eins og aðrir - og eru ekki meira þreytandi en annað fólk.“ - Er nægilega gott bruna- varnakerfi hér? „Ríkið sér um brunavarnirnar. Það eru fullkomnar brunavarnir í tveimur deildum núna og góðar lagnir í tengibyggingu. En í eldra húsinu eru brunavarnir sem voru samþykktar á sínum tíma, það er ekki samtengt brunavarnakerfi hér, en þó fannst fnér allt of sterkt tekið til orða í Degi um þessi mál. Það er ekki rétt gagn- vart foreldrum.“ - Verða einhverjar breytingar hér á næstunni, - var ekki veriö að byggja hér? „Jú, það er sundlaug í bygg- ingu hér. En hún stendur „hrá og grá“, því enn hefur aöeins tekist að gera hana fokhelda. Þetta er frekar dýr æfingalaug vegna inn- réttinga og annast nauðsynlegs útbúnaöar, - hún er komin upp í 4 milljónir í dag. Ríkiö tók að sér að byggja hana haustið ’84, síð- an þá hefur staðið á fjárveitingu. En Styrktarfélag vangefinna sem hóf byggingaframkvæmdina hef- ur talað um að gera átak til að Ijúka framkvæmdum. Hingað til hafa sumir vistmenn farið í Sund- laug Akureyrar á ákveðnum timum. Einnig fáum við að fara út á Þelamörk 4 daga vikunnar. En þessar hefðbundnu sundlaugar eru þó slæmar að því leyti hve mikið er um tröppur og slíkt sem verður til þess að þeir verst settu komast hvergi í sund - eða vatn sem þeir geta fengið að hreyfa sig í. Einnig liggur fyrir að koma fyrir vinnustofum hér þar sem vistmenn geta fundið sér eitthvað til afþreyingar yfir daginn, - það er nauðsynlegt fyrir þá að hafa eitthvað við að vera.“ - Eitthvað að lokum? „Ég tel mikilvægt að almenningur í þjóðfélaginu líti á þessa hópa fatlaðra sem eru vangefnir - sem þjóðfélags- þegna sem eiga að njóta sömu réttinda og aðrir." 27. febrúar 1986 - DAGUR - 9 ^spurning vikunnar________________ Hverja telur þú vera ástæðuna fyrir tapi islendinga gegn Suður-Kóreu- mönnum í heimsmeistara- keppninni í handknattleik? Gunnar Gíslason: Ja, ég sá nú ekki leikinn. Ég held að þeir hafi bara verið allt of sig- urvissir. Þeir eiga að fara létt með að vinna þessa menn. Þetta var bara ekki þeirra dagur. Þórarinn Guðnason: Kóreumenn voru bara miklu betri og íslendingarnir spiluðu eins og fífl. Kóreumenn komu langt út á móti þeim í vörninni og þeir breyttu sínu skipulagi ekkert eftir því. Annars er það engin skömm að tapa fyrir þessum mönnum, þeir eru þrælgóðir. Níels Halldórsson: Þeir voru að spila við betra lið, það er ofureinfalt. Kóreumenn eru með léttleikandi lið og miklu sneggri en íslendingar. Reyndar sýndist mér af leiknum að dóm- ararnir tækiu ekki tillit til líkams- byggingar Islendinga og dæmdu á þá ruðning fyrir hluti sem hinir komust upp með. Annars finnst mér fráleitt þegar menn eru að tala um þjóðarsorg í þessu sambandi, þeir töpuðu leik en fórust ekki í flugslysi. Trausti Harðarson: Æi, ég hef ekkert vit á þessu. Vörnin var allt of léleg hjá Islend- ingum og Kóreumenn voru miklu sneggri. Ég held að ástæðan sé einfaldlega sú að íslendingar eru ekki nógu góðir. Sigurður Aðalgeirsson: Ég missti nú af leiknum en krakk- arnir mínir sögðu mér að Kóreu- menn hefðu einfaldlega verið miklu betri, bæði sneggri og lipr- ari. Það er ekkert um þetta að segja, við erum ekki bestir og því eðlilegt aö við töpum stundum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.