Dagur - 27.02.1986, Side 10

Dagur - 27.02.1986, Side 10
10 - DAGUR - 27. febrúar 1986 Landssambandið gegn áfengisbölinu um vímuefni: Hvert stefnir? Þórður Steindórsson og Guðmundur Steindórsson í hlutverkum Magnúsar Jónssonar og Páls Hu Hu Haraldssonar sem þama þykjast báðir vera Ingi- ríður Óskarsdóttir. Landssambandið gegn áfengisböl- inu hélt almennan fund um vímu- efnamál þriðjudaginn 18. febrúar sl. - Dr. Tómas Helgason próf- essor flutti erindi sem hann nefndi: Hvert stefnir í vímuefna- málum? - Hann sagði m.a.: „Ef marka má fjölmiðla mætti ætla að stefndi í verulegar ógöngur. Nærri daglega, eða í hverri viku a.m.k., má lesa fréttir af alls kyns slysum sem rekja má til notkunar vímuefna, stórfelldu smygli á áfengi, kannabis, amfetamín og öðrum enn hættulegri vímuefn- um. Á hinn bóginn eru fréttir af opnun nýrra veitingastaða, vænt- anlegum atkvæðagreiðslum um fleiri útsölustaði, áróðri fyrir bruggun og sölu bjórs og „bættri áfengismenningu. “ Ýmsar tölur renna stoðum undir þessa mynd. Á skrá fíkni- efnalögreglunnar eru t.d. 2.500 manns og 1.542 einstaklingar hafa verið viðriðnir innflutning, sölu og dreifingu á fíkniefnum (Ómar Kristmundsson, 1985). Þá hafa rúmlega 5.000 manns verið í meðferð vegna misnotkunar áfengis eða annarra fíkniefna á síðustu 10 árum. Þetta eru í sjálfu sér ógnvekj- andi tölur en ef betur er að gáð er þetta kannski líka teikn um við- brögð okkar til að mæta vágest- unum sem á okkur herja. Þ.e.a.s. þetta sýnir stefnu okkar í vímu- efnamálum sem er og hefur verið mjög ákveðin. Sú stefna hefur miðað að því að koma í veg fyrir notkunina eins og frekast er unnt, annars vegar með lögum og reglum og hins vegar með fræðslu. Sé ekki hægt að koma í veg fyrir notkunina algjörlega, eins og notkun áfengis, ér reynt að draga úr henni eins og frekast er unnt með ríkiseinkasölu, fáum útsölustöðum, háu verði og tak- mörkuðu framboði á tegundum. Þessi stefna er mjög svo í sam- ræmi við stefnu Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar sem leggur áherslu á að ekki verði hægt að ráða bót á afleiðingum áfengis- og annarrar fíkniefnanotkunar nema með ákveðnum aðhalds- aðgerðum sem miða að því að draga úr framboði og eftirspurn. Á sl. ári vannst nokkur varnarsig- ur, er bjórfrumvarpið náði ekki fram að ganga. Og enn hafa al- þingismenn verið svo lánsamir að bera það ekki fram að nýju.“ Síðan benti hann á eftirfarandi leiðir til úrbóta: 1. í samræmi við stefnu Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar, um að fjölga ekki tegundum á markaði og reyna að draga úr sölu áfengis og annarra fíkni- efna, ber að móta stefnu í vímuefnamálum þannig að dregið verði úr framboði s.s. nokkur kostur er. 2. Draga þarf úr eftirspurn með fræðslu og einnig þarf að fræða fólk til þess að það skilji nauðsyn á því að hafa strangar reglur sem miða að því að draga úr sölu og dreifingu efn- anna. 3. Sinna þarf almennri geð- vernd, sérstaklega meðal barna og unglinga. 4. Sérstaklega þarf að sinna áhættuhópum meðal barna og unglinga, en þeir koma m.a. frá uppleystum heimilum, úr fjölskyldum misnotenda, úr hópi barna sem oft skrópa úr skóla og eða ná lélegum ár- angri í skóla. 5. Nauðsynlegt er, að áður en fólk er sent á meðferðarstofn- anir fari fram greining á mis- notkuninni og öðrum vanda sem misnotandinn á í til þess að gera sér grein fyrir hvers konar meðferðar er þörf. í þessu skyni er m.a. brýn nauðsyn að vinna bráðan bug á því að koma unglingageð- deild í rekstur. 6. Meðferð. Eins og við grein- inguna þarf að koma til fagleg þekking geðlækna, geðhjúkr- unarfólks, sálfræðinga, félags- ráðgjafa og annarra. 7. Félagsleg aðstoð við húsnæð- isútvegun, fjölskylduáætlanir, frístundaiðkanir o.s.frv. 8. Ýmsar aðrar aðgerðir sem geta miðað að vímuefnalausu lífi. 9. Enginn má hafa fjárhagslegan ávinning af framleiðslu, inn- flutningi eða sölu á áfengi eða öðrum fíkniefnum. (Fréttatiikynning) „Ekki mikið átakahlutverk" —segir Arnsteinn Stefánsson sem leikur forseta bæjarstjórnar Elsti leikarinn í hópnum heitir Arnsteinn Stefánsson. Ég hafði heyrt að það væri orðið langt síðan hann kynntist leik- listinni fyrst af eigin raun og bað hann að segja mér frá því. Hann setti sig í sögumanns- stellingar og sagði að það gæti nú tekið lengri tíma að segja þá sögu en ég hefði til að hlusta. En við ákváðum þá að fara fljótt yfir sögu. „Ég byrjaði ungur. Þá var starfandi í hreppnum félag sem hét Bindindisfélagið Vakandi. Það starfaði á svipuðum grunni og ungmennafélögin gerðu þá og Arnsteinn Stefánsson í hlutverki forseta bæjarstjórnar Flæðiskers. gera enn. Það setti upp talsvert mörg leikrit og ég lék í nokkrum þeirra. Síðan hætti ég þessu. Fé- lagið var lagt niður og ég steig ekki á svið í 21 ár. Árið 1974 var sett hér upp leikrit sem vantaði margt fólk í. Þá var ég beðinn að vera með og lét til leiðast. Síðan þá hef ég oft- ast verið með.“ - Hvert er þitt hlutverk að þessu sinni? „Ég er aðeins kynnir. Það er ekki mikið átakahlutverk,“ segir Arnsteinn og brosir. „Ég hef alltaf haft ákaflega mikinn áhuga á leiklist og þótt gaman að vera með, ekki síst þessi seinni ár þegar ég er að vinna með fólki sem gæti eins verið börn eða barnabörn mín.“ Hér má reyndar skjóta því að, að dóttir Arnsteins tekur einmitt þátt í þessu verki. „Ég hef þá trú að það sé hollt að taka þátt í svona löguðu, ekki síst fyrir yngra fólkið. Þetta gerir það hæfara til að takast á við önnur erfið verkefni í lífinu." í mörgu að snúast - hjá Hermanni Árnasyni formanni ieiknefndar Hermann Árnason er formað- ur leiknefndar Ungmennafé- lags Skriðuhrepps og hefur átt í ýmsu að snúast á undanförn- um vikum. Eða er ekki svo? „Jú, svona aðeins,“ segir Hermann, hógværðin sjálf upp- máluð. „Ég hef samt stundum verið í vinnunni. Við erum nú fleiri í nefndinni og höfum hjálpast að en það er nóg samt. Það hefur þurft að út- vega ýmislegt efni, fólk til að vinna að uppfærslunni o.fl.“ - Hvernig líst þér á leikritið hjá félögum þínum? „Það verður orðið gott áður en yfir lýkur.“ - Þú leikur ekki sjálfur? „Nei, ég hef aldrei leikið." - En langar þig að leika? „Nei.“ Þetta var bæði snöggt og af- dráttarlaust svar og þar með lauk okkar samtali. ífFA Tilboð í versluninni á Fox-kexi Margar tegundir Einnig: Silkience shampoo og -hárnæring Tilboðsverð Úr glæsilegu kjötborði til helgarinnar Nautakjöt ★ Kálfakjöt ★ Folaldakjöt, nýtt og reykt Svínakjöt, nýtt og léttreykt með 15% afslætti Verslið hagstætt Kjörbúð KEA Sunnuhlíð

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.