Dagur - 27.02.1986, Page 11
I
27. febrúar 1986 - DAGUR - 11
„7 ár,
234 daga og
6 klukkustundir
í ástarsorg"
Unnur Arnsteinsdóttir leikur
systur Katrínar, Sigríði. Þetta
er í þriðja skipti sem Unnur
leikur með Ungmennafélagi
Skriðuhrepps. Áður hefur hún
leikið í Getraunagróða og
„Góðir eiginmenn sofa
heima“. Hvernig kona er Sig-
ríður?
„Hún er óttalegt þunnildi. Ég
held að það sé of langt á milli
eyrnanna á henni. Hún hefur ver-
ið í ástarsorg í 7 ár, 234 daga og 6
klukkustundir frá því að hún sá
Geira síðast. Svo þekkir hún ekki
þann sem hún elskar þegar hann
kemur aftur heldur tekur annan í
misgripum."
- Hefur einlífið þá gert hana
svona?
„Ja, hún var svo yfir sig ást-
fangin að „þetta lokaðist bara
inni í henni,“ eins og Geiri orðar
það á einum stað í leikritinu.
Ég segi bara fyrir mig að sem
betur fer skil ég hana ekki eða
hennar hugsanagang. En það er
hægt að hafa gaman af henni.“
Þarna syngja þær saman systurnar, Katrín og Sigríður um það hvert manns-
efni Sigríðar ætti að vera.
Jirt*
isM
Leikarar, leikstjóri og starfsfólk sýningarinnar.
- Ungmennafélag Skriðuhrepps frumsýnir í
kvöld Ingiríði Óskarsdóttur
í kvöld frumsýnir Ungmenna-
félag Skriðuhrepps gamanleik-
inn Ingiríði Óskarsdóttur sem
er gjörsamlega græskulaus
gamanleikur í afturúrstefnu-
stíl, eftir Trausta Jónsson.
Þetta leikrit var fyrst sett upp
af Ieikdeild Skallagríms í Borg-
arnesi í fyrra og hlaut það fá-
dæma góðar undirtektir, enda
er höfundur verksins annálað-
ur húmoristi. Þetta er annað
leikritið sem hann skrifar, hið
fyrra hét Sveinbjörg Hallsdótt-
ir og var fyrst sýnt árið 1976 í
Borgarnesi.
Ingiríður Óskarsdóttir, eða
Geiri Djók snýr heim eftir all-
langa fjarveru, fjallar um heim-
komu Geira Djók í heimabyggð
sína á Flæðiskeri. Inn í það
blandast ýmsir skrýtnir atburðir
og er söguþráðurinn mjög flók-
inn og viðamikill.
„Inn í þetta blandast ýmsir at-
burðir úr fortíð, nútíð og
framtíð,“ sagði leikstjórinn, Pét-
ur Eggerz, við blaðamann. „Þeg-
ar upp er staðið er því svarað
hver Ingiríður Óskarsdóttir er.“
Leikarar eru tíu og í leikritinu
eru engin áberandi aðalhlutverk
þó að vitaskuld séu þau mis-
viðamikil. Leikarar eru: Dagný
Kjartansdóttir, Þórður Stein-
dórsson, Unnur Arnsteinsdóttir,
Guðmundur Steindórsson,
Sigurður Þórisson, Örn Þórisson,
Gunnhildur Sveinsdóttir, Sveinn
Jóhannesson, ívar Ólafsson og
Arnsteinn Stefánsson.
Ég spurði leikstjórann hvort
hann hefði fengist við að leik-
stýra áður.
„Nei, ég hef ekki leikstýrt
svona uppfærslu áður. Ég er hins
vegar kunnugur þessu fólki sem
tekur þátt í þessari uppfærslu því
ég hélt fyrir þau námskeið í fyrra-
vetur.“
- Ert þú nokkuð kominn með
frumsýningarskrekk?
„Það er farinn að fara svona
fiðringur um mann en það er ekki
nema eðlilegt og ég get a.m.k.
sofið fyrir því, enda ekki á öðru
von þegar vinnudagurinn er jafn
langur og hann hefur verið þessa
síðustu daga.“
„Agætis-
kerling“
—segir Dagný Kjartansdóttir
um Katrínu forstjórafrú
í hlutverki Katrínar Kristleifs-
dóttur er Dagný Kjartansdótt-
ir. Katrín er eiginkona Magn-
úsar forstjóra á Flæðiskeri en
er dálítið skotin í þingmannin-
um, Páli Hu. Hu. Haraldssyni.
Ég spurði Dagnýju hvort hún
hefði leikið áður með Ung-
mennafélagi Skriðuhrepps.
„Nei, þetta er í fyrsta skipti
sem ég kemst alla leið. Ég hef
tvisvar byrjað að æfa með félag-
inu en orðið frá að hverfa áður en
til frumsýningar kom af heilsu-
farsástæðum. En ég lék áður með
Leikfélagi Dalvíkur á meðan ég
bjó á Dalvík.“
„Geiri Djók er
hálfgerður
ærslabelgur’
- segir Sigurður Þórisson
Sá sem leikur Geira Djók heit-
ir Sigurður Þórisson. „Ekki sá
sem keypti sýninguna hjá
LA,“ tók hann strax fram.
Hvernig fýr er Geiri Djók?
„Ég veit það varla. Þetta er
hálfgerður ærslabelgur sem hefur
sérstaklega gaman af því að
gabba fólk.“
- En getur það ekki komið
honum í koll?
„Jú, en hann er svo snjall að
hann reddar sér alltaf út úr
hlutunum.“
- Flytur hann okkur nokkurn
boðskap?
Pétur Eggerz leikstjóri.
Myndir: KGA
- Hvernig líkar þér við Katr-
ínu?
„Þetta er ágætiskerling, finnst
mér. Hún er forstjórafrú og ég
held að henni þyki það bara
ágætt. Hún hefur líka æskuástina
í bakhöndinni. Það hlýtur að
vera ægilega gaman.“
- Ertu farin að kvíða fyrir
frumsýningu?
„Já, það er alltaf svolítill
skrekkur í manni þegar frumsýn-
ing nálgast en hann er nú ekki
meiri en svo að ég get hugsað
mér margt verra. Það er svona
sambland af tilhlökkun og kvíða
sem togast á í manni.
„Ætli hann sé ekki blessunar-
lega laus við það. Hann er bara
Geiri Djók og ég held að nafnið
sjálft lýsi persónunni best.“
- Hefur þú leikið áður?
„Já, þetta er í annað skiptið
sem ég leik. í fyrra tók ég að mér
aðalhlutverkið í verkinu sem þá
var sýnt.“
- Var það ekki stór biti að
kyngja?
„Ég held að þá hafi það reddað
mér að ég vissi ekki hvað ég var
að gera. Mig langaði bara að
prófa að leika og ég býst við að
ég hafi fengið bakteríuna. Ætli
ég losni nokkuð við hana eftir
það.“
Sigurður Þórisson, Örn Þórisson og Gunnhildur Sveinsdóttir í hlutverkum
Geira Djók sem þama þykist vera Sæmundur Súkk, Sæmundar Súkk sem
þykist vera Brynjólfur brennuvargur og Ragnheiðar Reynisdóttur sem þyk-
ist vera rannsóknarlögreglumaður. Dálítið flókið.