Dagur


Dagur - 27.02.1986, Qupperneq 12

Dagur - 27.02.1986, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 27. febrúar 1986 _____________________________íþróttÍL____________________ „Ég er við öllu búinn“ - segir þjálfari Rúmena Kristján Arason bestur en fyrir lenska liðsins og ég skil ekki þann leik taldi ég að Alfreð hvers vegna hann var ekki með,“ Gíslason væri besti maður ís- sagði Pana. KK-Sviss. Ljubo Lazic: „ísland spilaði vel.“ Ljubo Lazic: „Þeir léku með hjartaniT „Ég er við öilum búinn þegar við mætum íslendingum í riðlakeppninni,“ sagði Lascar Pana þjálfari rúmenska liðsins á HM í samtali við Dag í gærkvöld, en Island mætir Rúmeníu annaö kvöld. „Ég veit að íslenska liðið er mun betra lið en það var gegn S,- Kóreu, sá leikur var slys hjá ís- lenska liðinu og við megum hafa okkur alla við til þess að vinna ísland. Það veikir mitt lið að Stinga gekkst undir aðgerð vegna Agamálin virðast vera í lagi hjá S.-Köreanska liðinu á HM í Sviss. Eftir sigur liðsins gegn Islandi í fyrrakvöld fóru liðsmenn, þjálf- arar og fararstjórn upp á áhorf- endapalla til þess að fylgjast með leik Tékka og Rúmena. Sátu þeir í hnapp og voru nokkrir Islend- ingar þar nærri. kinnbeinsbrot hér í morgun og leikur sennilega ekki meira með hér fyrr en þá í næstu viku.“ - Hverjir verða heimsmeistar- ar að þínu mati? „Ég vil ekki segja neitt um það á þessu stigi, við skulum tala saman 8. mars. Júgóslavar standa óneitanlega vel eftir sigurinn á Sovétmönnum en það getur ým- islegt gerst enn.“ - Hver finnst þér vera besti maður íslenska liðsins hér á HM? „í leiknum gegn Kóreu var stjóri S.-Kóreu fór að deila út sígarettum meðal leikmanna liðs- ins á áhorfendapöllunum. Var farið laumulega með þetta svo ekki sé meira sagt og þess vand- lega gætt að þjálfarinn yrði einsk- is vís. Skammturinn á mann var 2 sígarettur og e.t.v. hefur þetta verið „bónus“ liðsstjórans til leikmanna fyrir sigurinn. KK-Sviss. Á meðal áhorfenda á leik íslands og Tékkóslóvakíu í gærkvöld var júgóslavneski handknattleiksþjálfarinn Ljubo Lazic sem þjálfað hefur lið KA í vetur. Hann var á miklum spretti í leikslok með löndum sínum en mér tókst þó að fá hann til að segja nokkur orð. „ísland spilaði vel og strákarn- ir léku svo sannarlega með hjart- anu,“ sagði Ljubo og bætti við að sér hefði fundist tékkneska liðið leika illa. „Guðmundur Guð- mundsson lék mjög vel í þessum Úrslit leikja á HM í Sviss til þessa og staðan í riðlunum fjórum er nú þessi: A-riðiIl: A.-Þýskaland-Kúba 28:24 Júgóslavía-Sovét 26:22 A.-Þýskaland 1 1 0 0 28:24 2 Júgóslavía 1 1 0 0 26:22 2 Kúba 1 0 0 1 24:28 0 Sovétríkin 1 0 0 1 22:26 0 í kvöld leika í þessum riðli Júg- óslavía:Kúba og Sovétríkin:A.- Þýskaland. B-riðill: V.-Þýskaland-Pólland 21:20 Sviss-Spánn 15:15 V.-Þýskaland-Spánn 18:14 Sviss-Pólland 18:17 V.-Þýskaland 2 2 0 0 39:34 4 Sviss 2 11 0 33:32 3 Spánn 2 0 1 1 29:33 1 Pólland 2 0 0 2 37:39 0 leik og Kristján Arason lék bæði vel og skynsamlega og möguleik- ar íslands hafa aukist. Persónulega held ég að Kóreu- menn vinni Tékka, mér sýnist það á öllu. En mér er spurn: Hvers vegna lék Alfreð ekki meira með í þessum leik? Það skil ég ekki.“ - Fannst þér eðlilegt að hafa Þorgils Óttar á varamannabekkn- um allan tímann? „Það var eðlilegt að Þorbjörn væri á línunni. Tékkarnir spiluðu af miklum krafti og það þarf sterka menn á línuna," sagði Ljubo og var rokinn. KK-Sviss. C-riðiU: Ísland-S.-Kórea 21: 30 Rúmenía-Tékkóslóvakía 23: 18 Ísland-Tékkóslóvakía 19: 18 Rúmenía-S.-Kórea 22: 21 Rúmenía 2 2 0 0 45:39 4 S.-Kórea 2 10 1 51:43 2 ísland 2 10 1 40:48 2 Tékkóslóvakía 2 0 0 1 36:42 0 D-riðiIl: Danmörk-Ungverjaland 21:25 Svíþjóð-Alsír 24:18 Svíþjóð 1 1 0 0 24:18 2 Ungverjaland 1 1 0 0 25:21 2 Danmörk 1 0 0 1 21:25 0 Alsír 1 0 0 1 18:24 0 í kvöld leika í þessum riðli Danmörk:Alsír og Ungverja- land:Svíþjóð. Hveiju spá þeir um næstu leiki? Hverjir eru möguleikar íslands á að komast í milliriðil á HM í Sviss? Við fengum 4 Akureyringa sem fylgjast vel með handknatt- leik til þess að velta þeirri spurn- ingu fyrir sér en þeir eru Jóhann Karl Sigurðsson formaður hand- knattleiksdeildar KA, Þorleifur Ananíasson fyrirliði KA, Gunnar M. Gunnarsson þjálfari og leikmaður Þórs og Sigbjörn Gunnarsson í Sporthúsinu sem alltaf fylgist vel með í heimi íþróttanna. En hvað sögðu þessir heiðursmenn? Þorleifur Ananíasson: „Ég vona auðvitað að Kóreu- mennirnir vinni Tékkana og okk- ar menn komist áfram. Miðað við leik þeirra gegn okkur og aðeins eins marks tap gegn Rúmeníu eiga þeir vel að geta unnið Tékka. Þeir eru snjallir Kóreu- mennirnir og ég er hreint ekki viss um að ísland hefði unnið þá þótt íslenska liðið hefði átt góðan leik.“ - Hvað um möguleika okkar gegn Rúmeníu? „Við skulum ekki afskrifa þann möguleika að strákarnir geti náð í stig í þeirn leik, þeir leika oftast best þegar við minnstu er búist af þeim. Ég vil meina að við eigum 40% mögu- leika gegn Rúmenum. Gunnar Gunnarsson: „Verður maður ekki bara að vera bjartsýnn? Ég held að fyrst að Rúmenar rétt mörðu Kóreumenn munu Kóreuleikmennirnir alv.eg geta unnið Tékka. En eigum við ekki bara að segja að okkar menn geti allt eins tekið stig af Rúmenum. Það getur allt gerst í þessu og fyrir keppnina spáði ég að við myndum vinna Kóreu en gera jafntefli við Tékka. Þetta er allt óútreiknanlegt en það sakar ekki að vera bjartsýnn." Jóhann Karl Sigurðsson: „Ég álít að Tékkar komi til með að vinna Kóreu þannig að vonir okkar um að komast áfram eru bundnar við það að okkar mönn- um takist að taka stig af hinum frægu leikmönnum Rúmena. En því miður, ég tel litlar líkur á því að það verði raunin þannig að sennilega kemur það í okkar hlut að leika um 13.-16. sætið. Það sem ég tel að helst gæti bjargað okkur er að Rúmenar hreinlega vanmeti okkar menn og ísland hitti á toppleik.“ Sigbjörn Gunnarsson: „Ég set allt mitt traust á Kóreu- menn, að þeir nái að gera jafn- tefli við Tékka eða sigra þá, við eigum að mínu mati ekki mögu- leika gegn Rúmenum. Ég hef ekki til þessa haft niikla trú á S.-Kóreu sem handknattleiks- þjóð og held að Tékkar konii sterkir til leiks, gegn þeim, ákveðnir í að sigra. En þó vona ég auðvitað að Kórea vinni og bið um sigur þeirra.“ Það vakti mikla athygli er liðs- 1. deild í körfubolta: Fellur Þór? Það verður að duga eða drep- ast fyrir strákana í körfu- knattleiksliði Þórs um helg- ina er þeir leika síðstu leiki sína í 1. deildinni að þessu sinni. Andstæðingur Þórs er Reynir frá Sandgerði og leika liðin tvo leiki, á föstudagskvöld kl. 20 og á laugardag kl. 14. Báðir leikirnir verða í íþróttahöllinni. Staða Þórs er mjög alvarleg í deildinni en liðið er í neðsta sæti ásamt Reyni og ÍS. Það gæti því farið svo að Þór félli ef liðið vinnur ekki báða leikina um helgina því þá væri Reynir á grænni grein og ÍS hefur vinn- inginn í innbyrðisviðureignum sínum gegn Þór. Þórsliðinu hefur lengst af gengið vel á heimavelli sínum en síðustu leikir sem voru gegn ÍS töpuðust þó báðir. En nú er að duga eða drepast ef hlut- skipti liðsins á ekki að verða 2. deild næsta vetur. Hvað gerist í Sviss? Það er óhætt að segja að spenn- an varðandi það hvort ísland kemst í milliriðil í úrslitakeppni HM hér í Sviss hafi enn aukist í gærkvöld er leikið var í C-riðli. Sigur íslands yfir Tékkóslóvak- íu 19:18 og hinn naumi 22:21 sigur Rúmena yfír hinur óút- reiknanlegu leikmönnum S.- Kóreu gera það að verkum að nú eru það aðeins Rúmenar sem eru öruggir með að komast áfram en hinar þjóðirnar þrjár berjast um tvö laus sæti. Þar standa Kóreumennirnir mjög vel að vígi með sína markatölu og þeir þola að tapa með nokkrum mun fyrir Tékk- unum. Von íslands eru hins vegar bundnar við það annars vegar að Kóreumenn taki stig af Tékkunum, ef þeir gera jafn- tefli eða sigra er ísland komið áfram. Hinn möguleikinn er sá að ísland taki stig af Rúmenum, ef það gerist þá eru okkar menn komnir áfram, sama hvernig viðureign Tékka og Kóreu- manna fer. Það eru því blikur á lofti í íslenskum handknattleik þessa dagana, og um fátt annað er meira rætt manna á meðal en hverjir séu möguleikar okkar manna. Menn ættu að vera við öllu búnir því ef það sem telja verður líklegast gerist, að Rúm- enar vinni okkar menn og Tékkar vinni Kóreu þá leikur ísland um 13.-16. sætið f keppninni. Fengu tvær sígarettur! Úrslit - Úrslit

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.