Dagur - 23.05.1986, Blaðsíða 15
23. maí 1986 - DAGUR - 15
—hvað er að gerast?-
Dags-mótið í
kraftlyjtingum
Dansstúdíó
Alice með
vorsýningu
íSjallmumá
sunnudag
Dansstúdíó Alice heldur
vorsýningu sína í Sjallanum
á sunnudaginn klukkan
18.00. Þar koma fram allir
nemendur stúdíósins og sýna
árangur af vetrarstarfinu.
Alls eru það um 130
manns sem koma fram og
eru þeir á aldrinum frá 4-70
ára. Nemendum verður skipt
í hópa og koma fram um 40
börn í yngsta hópnum. Einn-
ig sýnir Richard Bradley, en
hann er kennari hjá Alice.
Sýningin er látin gerast í
New York og spannar allt frá
munaðarleysingjahæli til
glæsilegustu skemmtistaða
stórborgarinnar. Sýningar-
hópur sem getið hefur sér
gott orð, bæði á Akureyri og
víðar sýnir nýjan glæsilegan
dans. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Dags-mótið í kraftlyftingum
fer fram í Sjallanum á morg-
un laugardag og hefst kl. 13.
Akureyrarmótið í kraftlyft-
ingum fer einnig fram, sam-
hliða Dags-mótinu.
Margir af bestu kraftlyft-
ingamönnum . landsins
mæta til leiks að þessu sinni
og má þar nefna Torfa Ólafs-
son, Kára Elíson, Víking
Traustason og Flosa Jónsson
svo einhverjir séu nefndir.
Keppt verður í 7 flokkum
karla og 1 flokki kvenna.
Keppt verður um hinn
glæíjilega Dags-bikar en í
fyrra vann Kári Elíson
gripinn. Keppnin á mótinu
verður örugglega skemmti-
leg og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og hvetja kepp-
endur.
Fyrsta alvöru golfmót
sumarsins að Jaðri fer fram
laugardaginn 24. maí og
hefst kl. 8.30 og því lýkur á
sunnudag. Bílaleigan Orninn
og Flugleiðir halda mótið
sem 36 holu mót með fullri
forgjöf.
Mótið er opið fyrir alla
kylfinga á Norðurlandi.
Þetta er opnunarmót og
verður spilað á sumargrínum
og sumarteigum. Skráningu í
mótið lýkur í kvöld kl. 21.
Tórúdkar
á Dalvík
Kolbeinn Bjarnason flautu-
leikari og Páll Eyjólfsson gít-
arleikari halda tónleika í
Dalvíkurkirkju mánudaginn
25.5 klukkan 21.00.
Þeir félagarnir hafa haldið
tónleika á höfuðborgarsvæð-
inu undanfarið og hyggjast
nú leggja land undir fót. Dal-
vík er fyrsti áfangastaður
þeirra að þessu sinni. Kol-
beinn sagði að þeir ætluðu að
leika nýja og gamla, innlenda
og erlenda, þunga og létta
tónlist. Meðal höfunda eru
Eyþór Þorláksson gítarleikari
og Atli Heimir Sveinsson
tónskáld.
Skólaslit
Tónlistarskólans
Fertugasta og fyrsta starfsári
Tónlistarskólans á Akureyri
lýkur með skólaslitum í
Akureyrarkirkju föstudag-
inn 23. maí, er hefjast kl.
17.30.
Tónlistarskólinn átti 40
ára afmæli í janúar í vetur og
hefur þess afmælis verið
minnst á ýmsan hátt, m.a.
með fjölsóttum hljómsveit-
artónleikum í íþróttaskemm-
unni á Oddeyri á hvítasunnu-
dag. Á skólaslitunum verða
fjölbreytt tónlistaratriði,
nemendum afhentur vitnis-
burður og verðlaun, auk þess
sem fram fer styrkveiting úr
Minningarsjóði um Þorgerði
S. Eiríksdóttur.
Nemendur, forráðamenn
og annað áhugafólk er hvatt
til að fjölmenna og ljúka
árangursríku skólaári á
myndarlegan hátt.
ískmdsmótið
í knattspymu
I kvöld verða þrír leikir í 1.
deild íslandsmótsins í knatt-
spymu. ÍA og Víðir leika á
Ákranesi, ÍBK og Valur
leika í Keflavík og KR og
FH leika í Reykjavík. A
morgun áttu að vera tveir
leikir í 1. deildinni en þeim
hefur báðum verið frestað
vegna þriggja landa keppn-
innar sem hefst í Reykjavík
á sunnudag. Annarleikjanna
sem frestað var er viðureign
Þórs og ÍBV hér á Akureyri.
Hinn er leikur UBK og
Fram.
í 2. deild verður leikin
heil umferð um helgina. í
kvöld leika á Siglufirði KS og
KA og í Njarðvík leika
UMFN og Selfoss. Báðir
leikirnir hefjast kl. 20.00. Á
morgun verða þrír leikir og
þar af einn hér fyrir norðan.
Á Húsavík mæta Völsungar
liði Skallagríms kl. 14. I
Reykjavík mætast Þróttur og
Einherji og VíkingurogÍBÍ.
3. og 4. deildin fer af stað
um helgina. í 3. deild b leika
Leiftur og Reynir Árskógs-
strönd á Ölafsfirði á laugar-
dag kl. 14. 1 4. deild verða
þrír leikir fyrir norðan, á
Hofsósvelli leika á laugardag
Höfðstrendingur og UMFS í
e riðli og á sunnudag leika í
sama riðli Vaskur og Hvöt á
KA-velli. Á Húsavíkurvelli
leika Tjörnes og Austri R í f
riðli og á Lundarvelli leika
Núpar og HSÞ-b. Allir þessir
leikir hefjast kl. 14.
Sumarkápur - frönsk hönnun
Glæsilegar léttar
sumarkápur
úr krumpuefni.
dortc
thyDoe
Tvö snið,
fjórir litir.
Hafnarstræti 98 • Akureyri ■ Sími (96) 22214
Hvítar
bómullardragtir
og köflóttar
í bláum og
grænum lit.
Greiðslukort
Visa Eurocard
~Xíó/cu.wc5lun Stelnunnat.
Ný sending af
stúdents-
drögtum
Dönsk tískuvara frá
ssdesign
Hér með tilkynnum
við að
nöldursf.
á Akureyri hefur nú tekið að sér
þjónustu og söluumboð fyrir
Volkswagen og Audi bifreiðir á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Um leið fellur niður umboð Þórshamars hf. á
Akureyri fyrir Volkswagen og Audi bifreiðir en
fyrirtækið mun þó halda áfram að annast
þjónustu fyrir eigendur þessara bifreiða sem
þess óska.
Framboðslistar í Ólafsfirði
við bæjarstjórnarkosningar 31. maí 1986
D-listi Sjálfstæðisflokksins
1. Birna Friðgeirsdóttir, húsmóðir, Gunnólfsgötu 18.
2. Sigurður Björnsson, lögreglumaður, Túngötu 19.
3. Óskar Þór Sigurbjörnsson, skólastjóri, Túngötu 13.
4. Þorsteinn Ásgeirsson, framkvæmdastjóri, Aðalgötu 35.
5. Gísli Friðfinnsson, form. Sjómannafélags Ólafsfjarðar, Brekkugötu 17.
6. Gunnar Þór Magnússon, framkvæmdastjóri, Túngötu 9.
7. Þorsteinn Þorvaldsson, sparisjóðsstjóri, Túngötu 17.
8. Klara J. Arnbjörnsdóttir, húsmóðir, Aðalgötu 27.
9. Guðmundur Þór Guðjónsson, bankamaður, Strandgötu 21.
10. Snjólaug Jónmundsdóttir, hárgreiðslumaður, Bylgjubyggð 6.
11. Aðalheiður Jóhannsdóttir, húsmóðir, Hlíðarvegi 38.
12. Þorbjörn Sigurðsson, stýrimaður, Ægisgötu 12.
13. Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkakona, Syðri-Á.
14. Jakob Ágústsson, rafveitustjóri, Aðalgötu 25.
H-listi Vinstri manna
1. Ármann Þórðarson, útibússtjóri, Ægisgötu 1.
2. Björn Valur Gíslason, sjómaður, Bylgjubyggð 1.
3. Ágúst Sigurlaugsson, form. Óf.-d. Verkal.fél. Einingar, Gunnólfsgötu 12.
4. Gunnar L. Jóhannsson, skólastjóri, Hlíð.
5. Sigurbjörg Ingvadóttir, kennari, Hlíðarvegi 54.
6. Helga Magnúsdóttir, talsímavörður, Ægisgötu 3.
7. Jónína Óskarsdóttir, húsmóðir, Ægisgötu 10.
8. Jóhann Helgason, húsasmiður, Aðalgötu 29.
9. Ingi Vignir Gunnlaugsson, húsasmiður, Hrannarbyggð 12.
10. Björn Þór Ólafsson, íþróttakennari, Hlíðarvegi 61.
11. Árni Sæmundsson, sjómaður, Hlíðarvegi 69.
12. Ásdís Pálmadóttir, húsmóðir, Hrannarbyggð 9.
13. Helga Jónsdóttir, skrifstofumaður, Hrannarbyggð 8.
14. Guðbjörn Arngrímsson, húsvörður, Bylgjubyggð 53.
Kjörfundur hefst laugardaginn 31. maí nk. kl. 10.00 í félagsheimilinu Tjarnarborg og lýkur honum kl. 23.00.
Kjörstjórn Ólafsfjarðar.
tm