Dagur - 26.05.1986, Blaðsíða 6

Dagur - 26.05.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 26. maí 1986 íþróttic 26. maí 1986 - DAGUR - 7 Umsjón: Kristján Kristjánsson Dags-mótið í kraftlyftingum: KS-menn sækja að marki KA en Haukur markvörður hreinsar frá. Mynd: þá. Siglfirðingar gáfust ekki upp - og náðu að jafna 2:2 gegn KA í 2. deildinni Áhangendum KS féll allur ketill við að sjá til sinna manna í fyrri hálfleik þegar KA kom í heim- sókn síðastliðið föstudagskvöld. Þá var aðeins eitt lið á vellinum, KA og hafði undirritaður þá á til- finningunni að þar væri 1. deild- arlið á ferð. KA-menn spiluðu virkilega vel og ákveðið í fyrri hálfleik en leikmönnum KS hafði ekki fallið allur ketiil í eld og það sýndu þeir og sönnuðu í síðari hálfleik. KA-menn náðu mjög fljótlega undirtökunum í leiknum og KS- menn virtust vera hálf vængbrotnir, enn án nokkurra af sínum bestu mönnum. Þeir söknuðu þeirra Björns Ingimarssonar, Óla Agnars- sonar, Jóns Kr. og Sigurgeirs Guð- jónssonar. KA-menn náðu forystu strax á 7. mín. er Þorvaldur Örlygs- son sendi langa sendingu fram völl- inn á Tryggva Gunnarsson sem lék á einn KS-ing, komst inn í teiginn og negldi boltann í hornið niðri án þess að Ómar Guðmundsson markvörður ætti möguleika á að verja. Akureyr- ingarnir tóku síðan öll völd á vellin- um sóttu linnulítið og oft skapaðist hætta upp við mark Siglfirðinga. Á 31. mín. náðu svo KA-menn að bæta um betur þegar að máttlaus sókn KS var brotin á bak aftur. Árni Þór Freysteinsson fékk þá sendingu inn fyrir vörnina og var ekkert að tvínóna við hlutina og rétt innan við vítateigslínuna negldi hann boltan- um í markið á sama stað og Tryggvi fyrr í leiknum. Litlu munaði svo að KA-mönnum tækist að bæta þriðja markinu við þegar Siglfirðingar sjálf- ir sendu boltann á Hinrik Þórhalls- son en Ómar náði að bjarga á síðustu stundu. Sóknir heimamanna í hálfleiknum voru mjög máttlausar, það var helst að Hafþór skapaði hættu þegar hann fékk boltann en hann var sá eini í liði KS sem líktist sjálfum sér. En eitthvað hafa KS-menn skraf- að saman í leikhléinu því greinilegt var í byrjun seinni háltleiks að þeir í knattspyrnu á föstudagskvöid höfðu heldur betur risið úr ösku- stónni. KA átti strax í vök að verjast og náði ekki að hrista af sér okið. Á 60. mín. leiksins ná Siglfirðingar svo að skora. Hafþór einlék skemmtilega upp kantinn og gaf fyrir markið þar sem gamli baráttuhundurinn Jakob Kárason var mætttur og hann sendi boltann í netið af markteig. Og KS- ingarnir brýndu enn vígtennurnar og tveimur mín. síðar tókst Gústaf þjálfara Björnssyni að jafna fyrir sína menn úr svipuðu færi og Jakob rétt áður. En KA-menn svöruðu með sókn- araðgerðum og minnstu munaði að þeim tækist að skora á 65. mín. þeg- ar Ólafur Ólafsson bjargaði á mark- línu. Siglfirðingar létu ekki hér við sitja og á 68. mín. á Hafþór skot í stöng frá markteig úr þröngu færi eftir góð- an samleik við ungan nýliða Gunn- leif Gunnleifsson. Síðustu 20 mín. var leikurinn svolítið þófkenndur og greinilegt að hvorugt liðið sætti sig við jafntefli. Það markverðasta sem gerðist á þessum leikkafla var að KA-menn björguðu á línu 10 mín. fyrir leikslok. En úrslit leiksins 2:2. Líklega er jafntefli ósköp sann- gjörn úrslit liðin áttu sitt hvorn hálf- leikinn og færin skiptust nokkuð jafnt. Það var Hafþór Kolbeinsson sem var hetja KS-inga í þessum leik. Það má líkja honum við vin í eyðimörk- inni því svo sannarlega var KS-liðið eins og magnþrota eyðimerkurfarar í fyrri hálfleiknum. Og t.d. áttu KA- menn alla skallabolta í þeim hluta leiksins. Björn Sveinsson, Baldur Benónýsson og Gunnleifur Gunn- leifsson sem kom inná í byrjun seinni hálfleiks voru einnig góðir. í KA-liðinu voru þeir bestir Tryggvi Gunnarsson, Erlingur Krist- jánsson og Þorvaldur Örlygsson. Dómaratríóið úr Reykjavík dæmdi leikinn frekar illa t.d. virtist hagnaðarreglan ekki til í leikreglum dómarans. -þá Vikingur stigahæstur og vann Dags-bikarinn Dags-mótið í kraftlyftingum fór fram í Sjallanum á laugar- dag. Samfara Dags-mótinu fór Akureyrarmótið í kraftlyfting- um fram. Það var heimskauta- bangsinn Yíkingur Traustason sem vann Dags-bikarinn að þessu sinni. Hann hlaut 454,5 stig en Kári Elíson sem vann gripinn í fyrra hlaut 453,4, þannig að það var mjótt á mununum. Torfi Ólafsson mætti til keppni og hann stóð fyrir sínu. Þá var einn kven- maður á meðal keppenda Kristjana ívarsdóttir og setti hún tvö íslandsmet í 60 kg flokki. Aðalsteinn Kjartansson sem einnig keppir í 60 kg flokki setti tvö íslandsmet unglinga. Nokkrir ungir kraftlyftinga- menn kepptu á sínu fyrsta móti að þessu sinni og sýndu margir skemmtilega takta. Úrslit í ein- stökum flokkum urðu þessi, fyrst kemur árangur í hnébeygju, síð- an í bekkpressu, þá í réttstöðu- lyftu og loks samanlagður árang- ur: Kvennaflokkur, 60 kg flokkur: Kristjana ívarsd. Karlaflokkar: 60 kg flokkur: Aðalst. Kjartanss. 75 kg flokkur: Kári Elíson Pálmi Bragason Jónas Helgason 85 kg flokkur: Ingi Jóhann Valsson Þorvaldur Vestmann Gunnar Magnúss. 90-55-102,5-247,5 kg 145,5-65,5-180-390 kg 227,5-157,5-260-645 kg 145-100-200-445 kg 155-80-175-410 kg 185-100-195-480 kg 170-90-200-460 kg 155-97,5-202,5-455 kg 185-120-257,5-542,5 kg 185-140-217-542,5 kg 260,5-150-250-660 kg 150-85-190-425 kg Vfldngur Traustason var stigahæstur á Dags-mótinu á laugardag. Mynd: KK 90 kg flokkur: Örn Traustason Pétur Broddason 100 kg flokkur: Flosi Jónsson Friðbjörn Benediktss. 125 kg flokkur: Víkingur Traustas. 335-207,5-330-872,5 kg Plús 125 kg flokkur: Torfi Ólafsson 345-190-360-875 kg Þrír stigahæstu einstaklingarnir í Akureyrarmótinu urðu þeir Vík- ingur Traustason, Kári Elíson og Flosi Jónsson. Leiftur vann Reyni Leiftur sigraði Reyni Árskógs- strönd í 3. deildinni í knatt- spyrnu í Ólafsflrði á Iaugardag með tveimur mörkum gegn engu. Leiftursmenn lékju undan nokkuð sterkum vindi í fyrri hálf- leik. Sigurbjörn Jakobsson skor- aði þá fyrir Leiftur og þannig var staðan í hálfleik. í byrjun síðari hálfleiks bætti Sigurbjörn við öðru marki fyrir Leiftur úr víti eftir að Óskari þjálfara var brugðið innan vítateigs. Reynismenn fengu tækifæri til að minnka muninn skömmu fyrir leikslok er þeim dæmd var víta- spyrna sem þeir misnotuðu. Jónas Hallgrímsson (nr. 10) hefur skallað knöttinn í mark Skallagríms. Mynd: AB Völsungur sigraði Skallagrím sannfærandi - 3:0 í 2. deild í knattspyrnu á laugardag Völsungar unnu Skallagrím sannfærandi á Husavíkurvelli á laugardag í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu með þremur mörkum gegn engu. Eftir slakan fyrri hálfleik lifn- aði vel yfir leiknum í þeim síð- ari og þá komu mörkin þrjú. Yfirburðir Völsunga í síðari 4. deild: Vaskur og Hvöt gerðu jafntefli Vaskur og Hvöt gerðu marka- laust jafntefli í fyrsta leik lið- anna í 4. deildinni í knatt- spyrnu í gær. Vaskarar léku mun betur og þrátt fyrir að hafa sótt lengstum í leiknum tókst þeim ekki að finna leiðina í mark Hvatar. Leikurinn fór fram á malarvelli KA við Lundarskóla. Þriggja landa keppnin í knattspyrnu: fsland tapaði fyrir íriandi Halldór Áskelsson lék wel gegn Irum í gær. íslenska knattspyrnulandsliðið tapaði fyrir því írska á Laugar- dalsvellinum í gær með einu marki gegn tveimur. Leikurinn var fyrsta viðureignin í þriggja landa keppninni sem nú fer Konráð sigraði ömgglega á fyrsta alvörumótinu að Jaðri Sigurvegararnir á Bflaleigumótinu í golfi um helgina. Jón Þór, Konráð og Þórhallur. Mynd: KK Fyrsta alvöru golfmótið á svæði Golfklúbbs Akureyrar fór fram um helgina. Var það svokallað Bflaleigumót en það voru Bflaleiga Flugleiða og Bflaleigan Örninn á Akureyri sem gáfu verðlaunin í mótinu. Leiknar voru 36 holur með forgjöf. Aðstæður voru mjög góðar og veðrið var með skásta móti. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin og einnig voru veitt verðlaun þeim kylfingi er næst færi holu í höggi á 18. braut. Konráð Gunnarsson sigraði af miklu öryggi á mótinu á 134 höggum. Konráð vann einnig aukaverðlaunin fyrir að fara næst holu í höggi á 18. braut. í öðru sæti varð Jón Þór Gunnarsson á 144 höggum og í þriðja sæti varð Þórhallur Pálsson á 145 höggum eftir bráðarbana við Guðmund Sigurjónsson. Leikið var í fyrsta skipti í vor á sumargrínum og sumarteigum og var það mál manna að völlurinn væri í nokkuð góðu lagi og þá sérstaklega grínin. fram í Reykjavík. Fyrri hálfleikur þótti vel leik- inn af báðum liðum og þeir Pétur Pétursson, Arnór Guðjonsen, Halldór Áskelsson, Sigurður Jónsson og Gunnar Gíslason fóru oft á tíðum á kostum. Það voru írarnir sem tóku for- ystu í fyrri hálfleik með marki frá hinum stóra og sterka leikmanni United, McGrath sem skoraði af stuttu færi. Arnór Guðjonsen jafnaði fyrir ísland með góðu marki af löngu færi skömmu fyrir hlé. Leikurinn dapraðist mjög í síð- ari hálfleik og sérstaklega fóru íslensku leikmennirnir að gefa eftir. Átti íslenska liðið ekki umtalsverð marktækifæri í hálf- leiknum. Það var svo Gerry Daly sem skoraði sigurmarkið á 84. mín. úr þvögu eftir hornspyrnu. írska liðið sýndi ekki neina snilldartakta en þó eru margir snjallir leikmenn í liðinu. íslenska lék vel í fyrri hálfleik en leikur liðsins datt alveg niður í þeim síðari, það var aðeins Gunnar Gíslason sem lék vel all- an leikinn. AE/Reykjavík Alfreð Gíslason. Alfreð meiddur Alfreð Gíslason handknatt- leiksmaður hjá Essen í Þýska- landi meiddist í leik með liði sínu gegn Lemco í þýsku deild- inni á laugardag. í samtali við Dag í gær sagði Alfreð að óhappið hefði skeð strax á fyrstu mín. leiksins. Hann hafi verið að stökkva upp fyrir framan vörn Lemco og hafi þá að öllum líkindum tognað illa á kálfa. Læknar Essen segja að annað hvort sé um slæma tognun í kálfanum að ræða eða þá að rifnað hafi vöðvafesting í kálfan- um. Þeir hallast þó frekar að tognun. Alfreð sagði að þetta þýddi viku til 10 daga stopp fyrir sig en eins og komið hefur fram í frétt- um er lið Alfreðs, Essen þegar orðið þýskur meistari nú þegar tvær umferðir eru eftir. Lið hans er ennþá með í bikarkeppninni og ætlar sér einnig stóra hluti þar. Þess má að lokum geta að leiknum gegn Lemco á laugardag lyktaði með jafntefli. hálfleik voru slíkir að liðið hefði vel getað skorað tylft marka til viðbótar. Dómgæslan var nokk- uð undarleg, þannig dæmust tvö mörk af Völsungum sem bæði sýndust fyllilega lögleg. Fyrstu 10 mín. voru Skallagrímsmenn betri. Þeir byrjuðu með látum án þess þó að skapa sér nein veru- lega hættuleg færi. Þrjú horn í röð cg skot af löngu færi sem Þorfinnur varði laglega, var það næsta sem Borgnesingar komust til að ógna marki heimamanna. Kristján Olgeirsson átti fyrsta markskot Völsunga, á 20. mín. hættulítið skot af löngu færi. Skömmu síðar átti Vilhelm Fredriksen fyrnafast skot sem hafnaði í hliðarnetinu. 10 mín. fyrir leikhlé voru Völsungar á ferð með laglega sókn. Góður bolti var var sendur fram kantinn á Jónas, hann sendi áfram á Kristján en gott skot hans var vel bjargað á línu. Á markamín. fengu Völsungar hornspyrnu. Boltinn barst til Vilhelms sem snéri sér við og skaut góðum bolta í markhornið niðri. Dómar- inn dæmdi markið af, taldi Villa rangstæðan, hæpinn dómur í meira lagi. Vilhelm komst í gott færi í upphafi síðari hálfleiks eftir langa fyrirgjöf Kristjáns. Á 55. mín var Kristján enn með fyrir- gjöf og Jónas Hallgrímsson nýtti sér góða sendingu og skallaði í netið af 10 m færi. En dómarinn dæmdi markið af eftir að illa staðsettur línuvörður hafði veif- að Jónas rangstæðan. Mikil mistök þar sem einn Borgnesing- ur var að minnsta kosti metra fyr- ir innan. Svavar Geirfinnsson sem nýkominn var inná átti hörkuskot sem var vel varið. Eina færi Borgnesinga í hálfleiknum kom á 58. mín. þegar Árni Gunnarsson skaut yfir. Sókn Völsunga þyngd- ist og það sem eftir lifði leiks fór að mestu leyti fram í vítateig Borgnesinga. Birgir Skúlason brá sér í sóknina og skallaði yfir eftir langt innkast. Á næsta korteri komu mörkin þrjú. Jónas Hallgrímsson skallaði laglega í netið á 61. mín. eftir hornspyrnu. Þremur mín. síðar komust Völsungar í stórsókn varnarmaður Skallagríms ætlaði að skalla frá en boltinn fór í Svein Freysson þaðan barst bolt- inn að markteigshorni þar sem Svavar Geirfinnsson átti í litlum vandræðum með að skora. Á 77. mín. var Birgir Skúlason í góðu færi en hitti boltann illa. Fjórum mín. síðar átti Björn Olgeirsson fyrnafast skot af löngu færi en naumlega framhjá. Þriðja markið kom á 78. mín. Mikill darraðar- dans í markteig Borgnesinga. Heimi Sveinssyni mistókst að hreinsa, Jónas náði boltanum skot hans varið, Svavar fylgdi vel á eftir og skoraði af stuttu færi. Völsungar léku vel í síðari hálfleik en lítið reyndi á varnar- mennina. Bestir í liðinu voru Jónas Hallgrímsson, Kristján Olgeirsson og Sveinn Freysson. Skallagrímsmenn voru daprir í þessum leik og eiga fyrir höndum erfitt sumar. AB Staðan Staðan í 1. deild íslandsmóts- ins í knattspyrnu er þessi: IA-Víðir ÍBK-Valur KR-FH FH UBK KR ÍA Fram Víðir Þór Valur ÍBK ÍBV 3 2 3 3 2 3 2 3 3 2 1 0 0 0 0 0 0 0 6:3 2:0 5:1 3:1 2:1 2:3 3:3 5:3 1:7 0:7 Markahæstir: Ingi B. Albertsson.FH Valgeir Barðason.ÍA Bjöm Rafnsson,KR Hlynur Birgisson,Þór Jón Þ. Jónsson,UBK 0:1 0-4 1:1 7 6 5 4 4 4 3 3 0 0 3 3 2 2 2

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.