Dagur - 01.07.1986, Síða 2

Dagur - 01.07.1986, Síða 2
2-DAGUR-1. júlí 1986 _w'ðfa/ dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari._____________________________ Nýi meirihlutinn tekur við góðu búi Málefnasamningur nýs meirihluta í bæjar- stjórn á Akureyri hefur nú séð dagsins ljós. Varla verður sagt að þar komi fram stórhuga hugmyndir um uppbyggingu í bænum, held- ur er að langmestu leyti byggt á því sem þeg- ar höfðu verið teknar ákvarðanir um. Byggt er á því uppbyggingarstarfi sem unnið hefur verið að síðasta kjörtímabil. í bókun framsóknarmanna vegna málefna- samningsins segir m.a. að ástæða sé til að benda á að um það sé einhugur að síðasta bæjarstjórn hafi skilað af sér góðu búi og fjármál bæjarins hafi verið í góðu lagi í lok síð- asta kjörtímabils. „Þessi nýi meirihluti hefur því gott bú til að byggja á öflugan bæjarrekst- ur og félagslega þjónustu á næsta kjörtíma- bili. Það sést á málefnasamningnum að þurft hefur óákveðið og loðið orðalag í mörgum greinum samningsins til þess að hægt væri að samræma skoðanir meirihlutaflokkanna, þannig að þeir gætu báðir skrifað undir plaggið. Atvinnumálakaflinn ber vott um að reynt verði að halda áfram þeirri uppbyggingu á fjölbreyttara atvinnulífi í bænum, sem unnið var að í síðustu bæjarstjórn með góðri for- göngu einhuga atvinnumálanefndar. Töfra- lausnirnar í atvinnumálum sem svo mjög voru boðaðar fyrir kosningar hafa gufað upp eftir kosningarnar . . . Þau markmið sem fram koma í málefna- samningnum eru flest þau sömu og sett voru fram í stefnuskrá framsóknarmanna fyrir kosningar og raunar í stefnuskrám allra flokk- anna, svo um þau málefni ætti að geta verið nokkur einhugur. Það verður að fá að koma í ljós hvernig meirihlutinn vill vinna að fram- kvæmd málefnasamningsins og þróun hans.“ í bókun framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar segir ennfremur: „ Við framsóknar- menn munum vinna að framgangi og styðja öll þau mál sem við teljum vera til hagsbóta okkar bæjarfélagi, hverjir svo sem skipa hinn svokallaða meirihluta. Því munum við leita stuðnings og styðja alla þá sem að því vilja vinna með okkur. Þá munum við einnig halda uppi málefnalegri gagnrýni á það sem við teljum að betur megi fara." Þá er látin í ljósi sú ósk að við lok þessa kjörtímabils geti núverandi bæjarstjórn skilað af sér enn betri bæ en við var tekið. í dag, 1. júlí, á Landsbanki íslands 100 ára afmæli. Af- mælisins verður minnst með ýmsum hætti víðs vegar um landið og ýmislegt hefur raun- ar þegar verið gert. Hinn 1. júní fór fram afmælisskákmót, 7. júní var Landsbankahlaupið háð, gefnar hafa verið út tvær bækur, lokið við heimildakvik- mynd um sögu og starfsemi bankans, sleginn minnispen- ingur, svo eitthvað sé nefnt. Útibú Landsbankans eru á 12 stöðum í Reykjavík og útibú og afgreiðslur á 29 stöðum á land- inu. Á Akureyri er stærsta úti- búið. Útibússtjóri er Helgi Jónsson. Helgi segir hér örlítið „Kann vel við mig á Akureyri“ - segir Helgi Jónsson, útibússtjóri Landsbankans Landsbankinn er 100 ára í dag og Helgi á 40 ára starfsafmæli frá sjálfum sér og hvað gert verð- ur á Akureyri í tilefni afmælisins. „Petta útibú hérna tók til starfa 18. júní 1902 í Hafnarstræti 2, þar sem það var í 2 ár. Nú er jietta langstærsta útibúið á land- inu og héðan eru rekin 2 útibú, annað er Brekkuútibú og hitt er á Raufarhöfn. Fyrsti útibússtjóri hér var Júlíus Sigurðsson sem var frá stofnun útibúsins til 30. júní 1930.“ - Hvað verður gert hér í tilefni dagsins? „Pað byrjar með því að lúðra- sveit spilar þegar bankinn verð- ur opnaður í dag. Það verður boðið upp á veitingar í all- an dag, kaffi, kökur, öl, gos og sælgæti. Það verður líka opið á milli 5 og 7, þá leikur lúðrasveitin aftur og veitingar verða á boðstólum. Þetta er það sem er boðið upp á fyrir vini og velunnara bankans og ég vona bara að sem flestir láti sjá sig og haldi upp á afmælið með okkur. En síðan býður bankaráðið starfsfólkinu og mökum þeirra til Reykjavíkur á sýningu sem þar er í tilefni afmælisins. Þess má líka geta að öll börn sem fæðast þennan dag fá afmælisgjöf frá bankanum, 2500 kr. innistæðu á kjörbók." Það er stór dagur hjá Helga á fleiri en einn veg í dag. Hann á 40 ára starfsafmæli, hóf störf í útibúi Landsbankans á Selfossi 1. júlí 1946. Þar starfaði hann þar til hann tók við stöðu útibússtjóra á ísafirði 1. janúar 1972. Þar var hann í 5 og Vi ár eða til 1. júlí 1977 er hann fluttist til Akraness. Fyrir réttu ári, eða 1. júlí 1985, tók hann síðan við útibúinu á Akureyri. Helgi segist telja sig Selfyssing, en eigi ættir að rekja um allt land. Hann var spurður hvernig honum líkaði á Akur- eyri. „Mér líkar vel. Þegar maður er á svona flakki eins og ég hef verið á verður manni að líka vel alls staðar. Það er líka búin að vera sunnlensk veðrátta hér síðan ég kom og þar til nú fyrir stuttu, þannig að viðbrigðin hafa ekki verið mikil. En ég kann vel við bæinn, starfið og alla þá sem ég hef þurft að eiga samskipti við, viðskiptavini sem aðra.“ - „Er mikið starf að vera úti- bússtjóri í þessu útibúi? „Já, það er það. Þetta er stærsta útibúið og hér vinna 65 manns og 5 á Raufarhöfn. Við erum með öll stærstu fyrirtækin á Akureyri í viðskiptum, KEA, Iðnaðardeildina, Slippstöðina, Útgerðarfélagið og K. Jónsson. Við erum með 70% af útlánum í bænum, en samt vantar alltaf peninga. Um áramótin voru heildarútlán 1.975.800.000 kr. en heildarinnlán 899.200.000 kr. Þarna vantar því mikið upp á sem við sækjum annað.“ - Að lokum, geta allir fengið lán hjá bankanum? „Kannski ekki allir. En það fá allir lán hérna sem sem eru í við- skiptum við bankann og sýna að þeir eru borgunarmenn fyrir því. Það eru frekar góð skil á lánum hérna, sem merkir það að við- skiptavinir eru traustsins verðir.“ -HJS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.