Dagur - 01.07.1986, Page 7
1.JÚIÍ 1986- DAGUR -7
Það voru sprækir krakkar sem dval-
ið höfðu í sumarbúðum UlVfSE að
Arskógi. Allir búnir að borða ótil-
greindan fjölda af pylsum og frönsk-
um kartöflum. Sumir fengu sér
rabarbara í eftirmat. Mvmlir: bv
Okkur leiðist aldrei
- sögðu Sigríður, Kolbrún, Katrín og Snjólaug
„Það er skemmtilegast á hest-
baki,“ sögðu þær Sigríður,
Kolbrún, Katrín og Snjólaug
sem voru í sumarbúðunum að
Árskógi. Sigríður er 13 ára og er
frá Uppsölum í Öngulsstaða-
hreppi, Kolbrún er 10 ára og
kemur úr Kópavoginum, Katr-
ín er 14 ára, Akureyringur og
Snjólaug er 10 ára frá Víði-
gerði í Hrafnagilshreppi.
„Það er ofsalega gaman að
vera í sumarbúðunum og það
sem er skemmtilegast er að fara á
hestbak. Það er fullt af góðum
hestum hérna. Nei, við erum
ekki neitt hræddar við þá. Við
erum svona fjörutíu mínútur til
klukkutíma á hestbaki í einu. Já,
við hleypum hestunum stundum.
Það er rosalega gaman.“
Þær Sigríður, Kolbrún, Katrín
og Snjólaug sögðust fara í sund á
hverjum degi og það væri ákaf-
lega þægilegt. „Svo höfum við
líka verið dálítið í frjálsum
íþróttum og fótbolta.“
- Leiðist ykkur ekkert á
kvöldin?
„Nei, okkur leiðist aldrei. Við
spilum Kana og „10“. Yfirleitt
förum við seint að sofa. Hvað
seint? Svona einhvern tíma eftir
miðnætti. Einu sinni fórum við
að sofa klukkan hálf þrjú um
nóttina!"
Á meðan við vorum að ræða við
stelpurnar stóðu nokkrir strákar í
linapp í kringum þær og voru
voða fyndnir og skemmtilegir.
Við báðum stelpurnar að lokum
um álit á strákahópnum. „Æi,
þeir eru bara ágætir.“ -mþþ
Bara eitt leiðinlegt:
Yið erum að
faraheim
ámorgun!
- sögðu þær Björg og Jónína sem sögðu
að væri ofsagaman í sumarbúðunum
„Það er algjört æði að vera
hérna,“ sögðu þær Björg Birg-
isdóttir og Jónína Garðars-
dóttir, en þær eru 13 og 14 ára
og eru frá Hrafnagili og Akur-
eyri. Þær voru í sumarbúðum
UMSE í Árskógi og virtust
skemmta sér hið besta. Enda
sögðu þær í opinskáu einkavið-
tali eftir að hinu formlega við-
tali lauk, að þær væru mestu
pæjurnar á svæðinu.
„Það sem er skemmtilegast
hérna er hestamennskan. Við
erum búnar að fara á hestbak
þrisvar sinnum og vildum gjarnan
fara oftar. Gæðingar? Já, það eru
nokkrir gæðingar hérna. Og við
náttúrlega farið á bak á þeim.“
Stelpurnar sögðust hafa verið í
sumarbúðunum í fyrra og „við
komum örugglega næsta sumar ef
aldurstakmarkið verður hækkað!
Björg og Jónína sögðust hafa
stundað frjálsar íþróttir og
„sýndum rosa góðan árangur".
Á kvöldin sögðust þær spiia
Kana og „10". „Við segjum oftast
svona 8 slagi," sögðu þær.
- Það er sem sagt ekkert
leiðinlegt.
„Jú, eitt.“
- Hvað er það?
„Við erum að fara heim á
morgun!“
-mþþ
„Súr? Nei, bara góður.“ Rabarbarablöðkur eru til margra hluta nytsamleg-
ar. Hér þjóna þær hlutverki sólhlífar.