Dagur - 14.08.1986, Síða 3
14. ágúst 1986 - DAGUR - 3
Akureyri:
Hugmyndir um bygg-
ingu nýs líkhúss
„Málinu hefur verið hreyft
hérna, það hafa reyndar verið
margra ára vangaveltur um
þetta. Nú stendur til að skoða
þetta eitthvað betur en reynd-
ar snertir þetta ýmsa aðra
miklu frekar en spítalann,“
sagði Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, þegar
hann var spurður hvort til
stæði að reisa nýtt líkhús á
Akureyri.
Halldór sagði að Fjórðungs-
sjúkrahúsið hefði í reynd þjónað
stóru svæði sem því bæri engin
skylda til að gera. „Pörfin fyrir
nýtt líkhús er knýjandi, það er
Norðurlandaráð:
Fundað á
Norðurlandi
í gær og fyrradag var stödd hér
á Norðurlandi Efnahagsmála-
nefnd Norðurlandaráðs. Á ári
hverju heimsækir nefndin eitt
Norðurlandanna og kynnir sér
stöðu einhverrar veigamikillar
atvinnugreinar í tilteknu landi.
Og í þetta skiptið var það
ísland og landbúnaðurinn sem
m.a. var á dagskrá nefndarinn-
ar.
Á Akureyri var nefndarmönn-
um gefinn kostur á að skoða
skinnaverksmiðjuna Iðunni og
Mjólkursamlagið en auk þess var
ekið um sveitirnar í kring.
Þá var farið að Mývatni og
kynntur sá hluti atvinnulífsins
sem snýr að ferðamönnum í þeirri
sveit en síðan var laxeldisstöðin í
Kelduhverfi skoðuð og var það
staður sem norsku nefndar-
mennirnir höfðu mikinn áhuga á
að sjá.
í dag mun nefndin vera komin
til Reykjavíkur og þar verður líf-
tækniaðstaða íslenskra vísinda-
manna skoðuð sem og þróun
þessarar greinar á íslandi rakin.
En það mun vera íslendingum
mikið kappsmál að reist verði á
íslandi samnorræn líftæknistofn-
un. Hér á landi þykja náttúrleg
skilyrði fyrir slíka stöð mjög góð
og ekki gefa íslenskir vísinda-
menn starfsbræðrum sínum á
Norðurlöndunum neitt eftir.
alveg ljóst. Gamla líkhúsið er lít-
ið og lúið, ef svo má segja, og
aðstaðan í því er langt frá því að
vera nægilega góð, þ.e.a.s. til
þeirra hluta sem það er notað.
Sjúkrahúsið hefur þjónað miklu
fleiri aðilum en því ber því við
þurfum eingöngu að þjóna þeim
sem eru á spítalanum ef til þess
kemur. Við höfum hins vegar
haft opnar dyr fyrir aðra hér í bæ
og eins í nágrannasveitum ef við
höfum mögulega getað. Til þess
er húsið allt of lítið og aðstaða
ekki góð,“ sagði Halldór.
Þcssa dagana er nefnd í fæð-
ingu sem mun fjalla um málið.
Verður hún skipuð fulltrúum frá
Akureyrarbæ, kirkjugörðunum
og sjúkrahúsinu. Nefndin mun
fjalla um ýmsa möguleika og
skoða fyrirkomulag á öðrum
stöðum og leggja síðan niður-
stöðu sína fyrir stærri hóp sem
hún var búin til úr. í þeim hópi
eru m.a. sóknarnefndir og prest-
ar auk ýmissa annarra aðila sem
málið varðar. JHB
Hann var hrifinn af útlinunum á íslensku stúlkunum þessi útlendingur sem sést hér að verki á torginu. Mynd: rpb
—RITARI OSKAST-
hálfan eða allan daginn, til skemmri eða lengri tíma. Góð
vélritunar- og íslenskukunnátta áskilin. Skriflegum
umsóknum sé skilað inn í afgreiðslu Dags, merktum
„Lögfræðingur - ritari“
Benedikt Ólafsson, hdl.
Léttgeggjuð
útsala
á terlín og áklæðum
fímmtudag og föstudag
á Heklulager-
Frá 1 kr. metrinn.
Þetta er ekki
prentvilla
frá 1 kr. metrinn.
IDNADARDEILD
SAMBANDSINS
VERKMENNTASKOLINN
Á AKUREYRI
Innrítun
í öldungadeild
fer fram á skrifstofu skólans, húsi tæknisviðs við
Þórunnarstræti, til föstudags 22. ágúst kl. 13-17.
Kennslugjald fyrir haustönn, kr. 3400.- berað greiða
við innritun.
Kenndar verða almennar bóklegar greinar auk sér-
greina á þrem fyrstu námsárum viðskiptasviðs, ef
næg þátttaka fæst.
Skólameistari.
Það kemst
til skila í Degi
Áskrift og auglýsingar & (96) 24222^^
Útgerðarmenn -
Fiskverkendur
Til leigu BAADER 188 flökunarvél, BAADER 83
kolaflökunarvél og JACKSON 7 og 9 pönnu hrað-
frystitæki.
Leigist til lengri eða skemmri tíma.
Uppl. í síma 91-53886 milli kl. 12 og 13 og eftir kl. 19
á kvöldin.
METBÓK
Góð afkoma leyfír vaxtahækkun
Metbók hækkar um 1%
Ársávöxtun 16,1%
BÚNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI