Dagur - 02.09.1986, Page 3
2. september 1986 - DAGUR - 3
—Heimilið
Sýningarbás RARIK:
„Fólkí kennt að
spara í stað
þess að eyða“
„Sagt er að þetta sé eini
básinn, þar sem reynt er að fá
fólk til að spara í stað þess að
eyða,“ sagði Stefán Arngríms-
son hjá RARIK, en þeir hafa
einn athyglisverðasta básinn á
sýningunni Heimilið ’86. Þeir
leyfa fólki þar að prófa þrek-
hjól og gefa góð ráð til sparn-
aðar á rafmagni.
Tekin eru dæmi af sparnaði við
lýsingu, notkun þvottavéla, kæli-
skápa, frysta, eldavéla og ann-
arra heimilistækja. Einnig eru
sýnd dæmi um hvernig hægt er að
spara í húshitunarkostnaði. Hægt
er að ná allt að 20% sparnaði í
heimilisnotkuninni og allt að
25% í húshitun. Sem dæmi um
sparnað við lýsingu má nefna, að
mikill sparnaður felst í því að
nota ekki stærri perur en nauð-
synlegt þykir, hafa ljósa liti í
umhverfinu og slökkva ljós þegar
enginn er í herberginu. Hægt er
að spara 15% við notkun á
þvottavél, með því að skola fyrst
í köldu vatni, fylla þvottavélina
og velja rétt þvottakerfi. Sparn-
aður í kæliskápum næst með því
að hafa á honum hæfilegt hita-
stig, sem er 5 gráður, halda hon-
um hreinum og hafa þéttingar í
lagi. Hæfilegt frost í frysti er 18
gráður. Hann skal staðsettur á
svölum stað og nýttur vél, því
tómur frystir notar ekki minni
orku en fullur. Mikilvægur sparn-
aðarþáttur eldavéla er að nota
rétta gerð og stærð af pottum.
Með skipulagningu matseldar-
innar næst líka góður árangur.
Grillið er mjög orkufrekt. Hitið
því marga rétti samtímis. Notið
hitakönnur undir kaffið, þurrkið
þvott úti hvenær sem til þess viðr-
ar og látið það eftir ykkur að
slökkva á sjónvarpinu, þó að
útsending sé í gangi, svo lengi
sem þið eruð ekki að horfa á
útsendinguna. Við húshitun get-
ur oft verið mikilvægt að hafa í
huga að staðsetja ofna rétt, ein-
angra húsið vel og nota hitastilli
og hæfilegan hita. Séu þessi ráð
notuð, er hægt að spara þúsundir
króna á mánuði, hvað þá á ári.
Eða eins og RARIK orðar það:
Svona spörum við orku! -SÓL
Uppeldismálaþing
að Hrafnagili
- Kennarar á Eyjafjarðarsvæðinu fjalla um
stefnuna í skólamálum
Á morgun, midvikudag, hefst
uppeldismálaþing í Hrafnagils-
skóla við Eyjafjörð. Það er
Kennarasamband íslands sem
heldur þingið í samvinnu við
Bandalag kennara á Norður-
landi eystra, B.K.N.E.
Uppeldismálaþing hefur verið
árviss atburður hjá Kennarasam-
bandinu. Venjulega hefur ein-
ungis eitt stórt þing verið haldið
árlega, með þátttöku kennara
víðs vegar að af landinu. I ár er
þeirri venju breytt, þvf nú verða
uppeldismálaþingin fleiri og
smærri, jafnframt því sem þau
verða færð út í fræðsluumdæmin.
Þingið að Hrafnagili er fyrir
kennara á Akureyri og við
Eyjafjörð. Valgeir Gestsson for-
maður Kennarasambandsins set-
ur þingið. Framsöguerindi þings-
ins eru þrjú. Þau flytja Svanhild-
ur Kaaber, formaður Skólamála-
ráðs K.í. og Eria Kristjánsdóttir
uppeldisfræðingur en Benedikt
Sigurðarson skólastjóri Barna-
skóla Akureyrar og Elín Step-
hensen yfirkennari sama skóla
flytja í sameiningu framsöguer-
indi heimamanna. Að því loknu
fara fram pallborðsumræður þar
sem frummælendur, auk Sturlu
Kristjánssonar fræðslustjóra,
sitja fyrir svörum.
Á þessu uppeldismálaþingi svo
og þeim sem á eftir koma verður
aðallega fjallað um stefnuna í
skólamálum og segja má að upp-
eldismálaþingin séu beint fram-
hald af vinnu Skólamálaráðs
Kennarasambands íslands í þeim
efnum. Þinginu lýkur á miðviku-
dagskvöld.
Næsta uppeldismálaþing verð-
ur haldið 12. þessa mánaðar, fyr-
ir kennara í Þingeyjarsýslum.
Það verður haldið í Hafralækjar-
skóla. BB.
mm>
„Er ánægður með
viðtökumar“
—segir Birgir Steingrímsson framkvæmdastjóri Hlyns sf. á Húsavík
„Þessi skilti auka persónuleika
húsanna. Þau viðhalda og
minna fólk á nöfn á húsum sem
annars væru löngu gleymd
yngri kynslóðum og viðhéldust
aðeins í minni eldri kynslóða,“
sagði Birgir Steingrímsson
framkvæmdastjóri Hlyns sf. á
Húsavík, en Hlynur sérhæfir
sig þessa stundina í gerð tré-
skilta.
Fyrirtækið Hlynur sf. var
stofnað á Húsavík árið 1964 og er
því 22 ára gamalt. Það hefur gert
húsgögn, smíðað árabáta, gert
við hús og séð um viðhald þeirra
og smíðar nú skilti. „Fyrirtækið
gengur vel. Viðskiptin aukast
jafnt og þétt og við finnum fyrir
vaxandi eftirspurn aðila um allt
land. Það hefur verið hringt mik-
ið í fólk sem fjárfest hefur í
skiltunum okkar og það spurt
hvar skiltin fáist. Því er þá vísað
til okkar og svona hleður þetta
utan á sig. En það er erfiður bar-
dagi að reka iðnfyrirtæki í dag.
Samt getur maður ekki annað en
verið ánægður með viðtökurn-
ar," sagði Birgir. Eigendur Hlyns
sf. eru feðgarnir Steingrímur
Birgisson og Birgir Steingríms-
son. Hann sagði að sýningin
hefði hjálpað mikið til að auka
viðskiptin, og eftir sýninguna
væri eftirleikurinn auðvéldur.
Sem dæmi um hve viðskiptin hafa
tekið mikinn kipp á sýningunni.
er að venjulegur afgreiðslufrestur
skiltanna er 10 dagar til hálfur
mánuður, en á sunnudaginn voru
pantanirnar orðnar svo margar.
að afgreiðslufresturinn var orð-
inn minnst mánuður. -SÓL
Kennarar á Norðurlandi eystra
Uppeldismálaþing
KÍ boöar til uppeldismálaþings í samvinnu við BKNE
sem hér segir:
Miðvikudaginn 3. sept. að Hrafnagilsskóla fyrir kennara á
öllu Eyjafjarðarsvæöinu.
Föstudaginn 12. sept. að Hafralækjarskóla fyrir kennara í
Þingeyjarsýslum (austan Vaðlaheiðar).
Dagskrá þingsins 3. sept.:
1. Setning kl. 10.00: Valgeir Gestsson, formaður KÍ.
2. Stefnumörkun K( í skólamálum: Svanhildur Kaaber, formaður skólamálaráðs Kl’, flytur
erindi.
3. Aðalerindi: Erla Kristjánsdóttir, uppeldisfræðingur, flytur.
4. Skólastefna - hvað viljum við?: Benedikt Sigurðarson, skólastjóri, og Elín Stephensen,
yfirkennari, flytja.
Börn úr Tónlistarskóla Akureyrar flytja tónlist milli atriða fyrir hádegi.
Matarhlé.
5. Hópvinna.
Kaffihlé.
6. Pallborðsumræður: Frummælendur, fræðslustjóri og fleiri sitja fyrir svörum. Stjórnandi
umræðna: Trausti Þorsteinsson, skólastjóri.
7. Þingslit kl. 18.00: Valgeir Gestsson, formaður KÍ.
Kvöldverður.
Dagskrá þingsins 12. sept. nánar auglýst síðar.
Kennarar! Fjölmennið á þingin og takið þátt í umræð-
um og mótun skólastefnu.
Þátttaka tilkynnist Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra, sími
24655.
Nánar auglýst í öllum grunnskólunum.