Dagur - 02.09.1986, Qupperneq 7
6 - DAGUR - 2. september 1986
2. september 1986 - DAGUR - 7
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Samstaða þing-
fulltrúa var
einstaklega góð
Á Fjórðungsþingi Norðlend-
inga sem haldið var á Siglufirði
um helgina var eins og alla
jafnan á slíkum þingum mikið
pappírsflóð. Mikill fjöldi mála
var lagður fyrir þingið til álykt-
unar og afgreiðslu og voru það
allt hin mikilvægustu mál fyrir
Norðlendinga.
Þingfulltrúar skiptust í nefndir
til að fjalla um hin ýmsu mál og
voru þær nefndir mjög misfjöl-
mennar. Sem dæmi má nefna að
um 30 fulltrúar voru í einni
nefndinni en ekki nema fjórir í
annarri. Sem dæmi um þau mál
sem voru til umfjöllunar á þing-
inu má nefna samgöngumál,
byggðamál, öryggismál sjó-
manna, atvinnumál og skólamál
og áfram mætti telja. Nefndastörf
tóku þvt' eðlilega nokkurn tíma
en það var fyrst og fremst umfang
málefnanna sem því olli en ekki
að ágreiningur væri með
mönnum. Það verður þvert á
móti að segjast að samstaða þing-
fulltrúa virtist vera einstaklega
góð þannig að þegar mál komu úr
nefndum til afgreiðslu voru það
fyrst og fremst minniháttar orða-
lagsbreytingai sem gera þurfti og
margar tillögur „runnu“ í gegn
um þingið strax.
Þetta þýðir þó engan veginn að
þingið hafi verið dauft né and-
laust, heldur var þetta vinnusamt
og samhent fólk sem vann ötul-
lega að sameiginlegum liags-
munamálum Norðlendinga.
Síðdegis á laugardag bauð
bæjarstjórn Siglufjarðar bæjar-
fulltrúum og gestum til kvöld-
verðar á Hótel Höfn. Þar var
slegið á léttari strengi í ágætri
veislu sem Kristján Möller forseti
bæjarstjórnar stjórnaði. Skömmu
áður en kvöldveröarboðinu lauk
kvaddi nýkjörinn formaður
Fjórðungssambandsins, Valtýr
Sigurbjarnarson bæjarstjóri í
Ólafsfirði sér hljóðs og þakkaði
þingfulltrúum góð störf og einnig
starfsfólki þingsins. Sérstakar
þakkir flutti hann Sigurði Gunn-
laugssyni sem var ritari þingsins,
en Sigurður sem er áttræður hef-
ur undanfarin 49 ár verið fundar-
ritari bæjarstjórnar Siglufjarðar
Hér fara á eftir helstu sarn-
þykktir þingsins.
Um málefni grunnskóla
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, fagnar ákvörðun mennta-
málaráðherra um endurskoðun
grunnskólalaga.
Við endurskoðun laganna er
varað við hugmyndum um að
færa stjórn grunnskólans með
einum eða öðrum hætti úr hönd-
um sveitarstjórna.
Þingið beinir því til þeirrar
nefndar, sem annast endurskoð-
un laganna, að þegar á næsta
Alþingi fáist leiðréttingar á
fjármálasamskiptum ríkis- og
sveitarfélaga varðandi rekstur
grunnskólans og bendir á í því
sambandi:
1. Kostnaðarskipting á viðhalds-
kostnaði skólamannvirkja fari
eftir skiptingu á eignahlutum
ríkis- og sveitarfélaga.
2. Ríkið taki þátt í greiðslu
orkukostnaðar í þeim skóla-
hverfum sem þurfa að búa við
óhagkvæma orkugjafa.
3. Ríkið greiði að öllu leyti
kostnað við akstur grunn-
skólanemenda í dreifbýli.
4. Fræðsluskrifstofum og
fræðsluráðum verði falin
ábyrgð og umsjón með fjár-
hagsviðskiptum ríkis- og sveit-
arfélaga um rekstur grunn-
skóla svo tryggja megi hag-
kvæmt skipulag. Hlutverk
menntamálaráðuneytisins
verði einkum fólgið í yfir-
stjórn og eftirliti með fram-
kvæmd skólamála í landinu.
5. Sett verði skýr ákvæði í
grunnskólalögin um samstarf
sveitarfélaga um skólarekstur
m.a. með tilliti til ákvæða
sveitarstjórnarlaga um byggð-
asamlög.
Um framleiðslustjórn í
landbúnaði
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, telur að á meðan fram-
leiðslustjórnun í landbúnaði er
nauðsynleg, þá verði hún að ná
til allra búgreina, þannig að sam-
ræmis verði gætt um fjölbreytt
framboð landbúnaðarvara og
heildarmarkmiði framleiðslu-
stjórnar verði náð. Jafnframt lýs-
ir þingið stuðningi við setningu
svæðabúmarks."
Um landnýtingaráætlun
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, beinir því til fjórðungs-
stjórnar að hún sjái um að fram
fari ítarleg kynning á áliti land-
nýtingarnefndar fyrir næsta
fjórðungsþing."
Dreifbýlisnefnd sambands
Isl. sveitarfélaga
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, beinir því til Sambands ísl.
sveitarfélaga að á vegum þess
starfi áfram dreifbýlisnefnd, sem
tilnefnd er af landshlutasamtök-
um sveitarfélaga. 1 trausti þess
felur þingið fjórðungsstjórn að
tilnefna af hálfu Fjórðungssam-
bands Norðlendinga tvo menn í
nefndina sinn úr hvoru kjördæmi
og varamenn þeirra.“
Átak í samgöngumálum
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, hvetur til þess að hagstætt
verðlag á olíuvörum á heims-
markaði verði nýtt til að auka
framlög til vegagerðar í landinu,
einkum til lagningar bundins
slitlags, þannig að þessara áhrifa
gæti til frambúðar, með bættu
vegakerfi.
Um hafnarmál
Stórauka verður framlag ríkisins
til hafnarframkvæmda. Niður-
skurður fjármagns til þeirra und-
an farin ár hefur orsakað mikinn
samdrátt framkvæmda og nauð-
synlegs viðhalds og stefnir
afkomu margra byggðarlaga sem
byggja tilveru sína á svávarfangi í
verulega hættu.
Hér er ekki um sparnað að
ræða heldur frestun á vanda sem
eykst með hverju ári og verður
ekki við unað lengur.
Gera verður átak í uppbygg-
ingu flugvalla og öryggisbúnaðar
þeirra og væntir þingið þess að
séð verði fyrir sérstöku fjármagni
til þessa verkefnis, sem miðist við
fullbúna áætlunarflugvelli, svo að
þeir standist öryggiskröfur og að
þeir verði lagnir bundnu slitlagi.
Stjórnsýslumiðstöðvar
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, felur fjórðungsstjórn að
knýja á um að gerðar verði sér-
stakar ráðstafanir af hálfu hins
opinbera til að stuðla að upp-
byggingu stjórnsýslumiðstöðva á
landsbyggðinni. Þingið fagnar
samþykkt stjórnar Byggðastofn-
unar 10. júlí sl. um þau mál.
Millistjórnstig
Þingið telur brýnt að sett verði
löggjöf um millistjórnsýslustig
sem sæki vald sitt til kjósenda í
beinum kosningum. Þetta stjórn-
sýslustig fái sjálfstæða tekju-
stofna og hafi umsjón með þorra
þeirra verkefna sem nú eru í
höndum ríkisvaldsins og eðlilegt
er að fela lýðræðiskjörinni
heimastjórn.
Fræðsla
sveitarstjórnarmanna
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, styður hugmynd Sambands
ísl. sveitarfélaga um að komið
verði á námskeiðum fyrir fram-
kvæmdastjóra sveitarfélaga og
sveitarstjórnarmenn í samvinnu
við landshlutasamtökin.
Endurskoðun
skipulagslaga
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, leggur til að frumvarpi til
skipulagslaga, sem sent hefur
verið fjórðungsstjórn til umsagn-
ar, verði breytt í veigamiklum
atriðum. í því sambandi minnir
þingið á fyrri samþykktir um að
Skipulag ríkisins stofni til útibúa
eða kostaðir séu sérstakir skipu-
lagsráðgjafar í tengslum við
landshlutasamtökin, sem starfi
jöfnum höndum fyrir Skipulag
ríkisins og einstök sveitarfélög.
Þingið felur fjórðungsstjórn að
láta í té nánari umsögn um frum-
varpið.“
Endurskoðun
byggingalaga
„Fjórðungsþing Norðlendinga
Valtýr Sigurbjörnsson nýkjörinn formaður sleit þinginu og þakkaði þingfulltrúum góð störf.
Svipmyndir af gestum í veislu bæjarstjórnar Siglufjarðar.
Kristján Möller forseti bæjarstjórnar
stjórnaði dagskránni sem boðið var
upp á í veislunni sem Siglufjarðar
kaupstaður bauð til að loknum
þingstörfum.
Rafmagnið fór af þegar fundir hófust að nýju að loknu maíarhléi á föstu-
dagskvöld og voru sumir að grínast með að þetta hefði verið gert viljandi til
að hægt væri að koma fram þeim málum sem ekki þyldu dagsins Ijós.
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, fagnar ákvörðun félags-
málaráðherra um að endurskoða
bygginalögin, einkum ákvæði
þeirra er fjalla um byggingaeftir-
lit. Þingið felur fjórðungsstjorn
að láta í té nánari umsögn."
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, skorar á ríkisstjómina að
beita sér fyrir breytingum á lög-
um um Byggðastofnun þannig að
fram komi vilji Alþingis um hvar
stofnunin skuli vera.“
Staðsetning
Byggðastofnunar
„Fjórðungsþing Norðlendinga
Endurskoðun
tekjustofnalaga
„Fjórðungsþing Norðlendinga
Magnús Sigurjónsson fráfarandi formaður Fjórðungs-
sambandsins.
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986 telur nauðsynlegt að álagn-
ingarstigar tekjustofna sveitar-
félaga séu lögbundnir. Þingið
styður huginyndir um að hækka
hlutdeild aukaframlags í tekjum
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Bendir þingið á nauðsyn þess
að í lögunum séu viðmiðunar-
ákvæði um nýtingu allra tekju-
stofna sveitarfélaga, þegar auka-
framlag er ákveðið.
Áskell Ginarsson flytur ræðu
á fjórðungsþinginu.
Fjórðungsþingið telur eðlileg-
ast að Jöfnunarsjóður sveitar-
félaga hafi sjálfstæðan tekju-
stofn, sem innheimtur sé í tengsl-
um við tekjustofna ríkisins, en
verði ekki háður skattastefnu
ríkisins á hverjum tíma, sem
hluti skatttekna ríkisins.
Fjórðungsþingið felur fjórð-
ungsstjórn að láta í té nánari
umsögn um frumvarpið."
Endurskipulagning
flugleiðakerfisins
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, telur óhjákvæmilegt að
endurskipuleggja flugleiðakerfið
innanlands.
Fjórðungsþingið bendir á þá
staðreynd að landshlutaflugfélög-
in hafi sýnt það í störfum sínum
að þau séu hlutverki sínu vaxin
og því sé einsýnt að fela þeim
nýjar flugleiðir.
Framtíðarskipan
iðnráðgjafa
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, skorar á iðnaðarráðherra
að beita sér fyrir því að sett verði
til frambúðar löggjöf um iðnráð-
gjöf í landshlutunum, þar sem
núgildandi lagaákvæði falla úr
gildi um næstu áramót. í lögun-
um verði heimild til greiðslu
launaframlaga vegna þriggja iðn-
ráðgjafa á Norðurlandi. Þingið
fagnar framkomnum hugmynd-
um um stofnun útibús frá Iðn-
tæknistofnun íslands á Akureyri
og hvetur iðnaðarráðherra til þess
að konta því í framkvæmd sem
fyrst.“
Stuðningur byggða við
atvinnuþróunarsjóði
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, telur með skýrskotun til
laga um Byggðastofnun þurfi að
leita eftir stuðningi Byggðasjóðs
við atvinnuþróunarsjóði iðnþró-
unarfélaganna, sem væru nógu
öflugir til að sinna fjárframlögum
og lánum til tilraunaverkefna og
undirbúningsverkefna á Norður-
landi.
Fjórðungsþingið beinir því til
fjórðungsstjórnar að fylgja þessu
máli eftir í samvinnu við iðnþró-
unarfélögin.“
Rekstrargrundvöllur
atvinnuveganna
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, leggur áherslu á að útflutn-
ingsatvinnuvegunum verði
tryggður rekstrargrundvöllur og
telur að reynsla síðustu ára bendi
eindregið til þess að saman fari
jákvæð byggðaþróun í landinu og
hagstæð afkomuskilyrði útflutn-
ingsgreinanna."
Efling ferðamanna-
þjónustu
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, telur eðlilegt að Ferða-
málasamtök Norðurlands hafi
forystu um samræmingar- og
kynningarstarf á sviði ferðamála
og hafi jafnframt veg og vanda að
ráðningu sérstaks ferðamálafull-
trúa fyrir Norðurland. Þingið
leggur áherslu á að starf ferða-
málafulltrúa landshlutanna verði
tryggt nteð lögum og að veitt
verði launaframlög til þessarar
starfsemi af fjálagafé eða úr
ferðamálasjóð.“
Efling þjónustu
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, skorar á landsbyggðar-
menn að efla þjónustugreinar
heima fyrir með framtaki ein-
staklinga, félaga og sveitarfélaga.
Bendir fjórðungsþingið á
nauðsyn víðtækrar samstöðu
með gagnkvæmum viðskiptum
innan byggðasvæða og landshluta
til að efla viðskipti og framleiðslu
heima fyrir.
Jafnframt verði stuðlað að því
að þeir sem hyggja á atvinnu-
rekstur njóti jafnræðis um fjár-
magnsfyrirgreiðslu af hendi lána-
stofnana, hvar sem þeir búa á
landinu.“
Um orkufrekan iðnað
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, tekur undir þá kröfu að
næsta verkefni í orkufrekum iðn-
aði verði á Norðurlandi, en bend-
ir jafnframt á nauðsyn þess að
Norðlendignar haldi vöku sinni,
varðandi könnun á öðrum iðnað-
armöguleikum t.d. lífefnaiðn-
aði.“
Um fískirækt og
nýtingu jarðhitans
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið í Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, telur brýnt að stuðlað sé að
uppbyggingu fiskeldis í landinu,
m.a. nteð tilliti til jarðhitans.
Mælir þingið með framkomn-
um hugmyndum Orkustofnunar
um skipulegar rannsóknir á
möguleikum til fiskeldis á
Norðurlandi og telur eðlilegt að
sveitarfélögin eða aðrir hags-
ntunaaðilar leggi fram 15%
kostnaðar við það verkefni að því
tilskyldu að 65% fáist á fjárlög-
urn og 20% sé framlag Orku-
stofnunar."
Um háskólakennslu
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, skorar á alþingismenn
Norðlendinga að hlutast til utn að
á fjárlögum 1987 verði fjárveiting
til háskólanáms á Akureyri, í
tengslum við Háskóla íslands eða
til sjálfstæðrar háskólakennslu.
Þingið beinir því til mennta-
málaráðherra að ráðinn verði
starfsmaður til að undirbúa
kennslu á háskólastigi á Akureyri
með það fyrir augum að regluleg
háskólakennsla verði hafin eigi
síðar en 1987.
Fjórðungsþingið felur fjórð-
ungsstjórn að fylgja málinu eftir
og gæta hagsmuna Norðlendinga
í þessu máli jafnt við stjórnvöld
og þá aðila sem menntamálaráð-
herra felur að undirbúa málið.“
Samræmd lagasetning um
framhaldsnám
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, fagnar því að menntamála-
ráðherra skuli hafa skipað nefnd
til að undirbúa samræmda laga-
setningu um allt framhaldsskóla-
nám í landinu. Bendir þingið á
það fjárhagslega misrétti, sem er
ríkjandi á milli sveitarfélaga um
greiðsluskyldur sveitarfélaga
vegna framhaldsmenntunar.
Þingið telur að kanna þurfi
kosti og galla þess að ríkið yfir-
taki alfarið rekstur framhalds-
skólanna eða sveitarfélögum
verði gert kleift fjárhagslega að
eiga aðild að rekstrinum og þá
sitji öll sveitarfélög í landinu við
sama borð. í þessari könnun þarf
að gera grein fyrir áhrifum á hag
og aðstöðu nemenda er þeir
þurfa að sækja nám í franthalds-
skólum utan sinnar heimabyggð-
ar.
Verði sá kostur valinn að fela
ríkinu rekstur allra framhalds-
menntunar séu tryggð áhrif
heimaaðila við skipan skóla-
nefnda.“
Jöfnun aðstöðu til að
sækja framhaldsnám
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30 ágúst
1986 telur aðkallandi að jafna
fjárhagslegan aðstöðumun
nemenda í dreifbýli til að sækja
núverandi dreifbýlisstyrkir séu
ófullnægjandi og nái alls ekki því
markmiði að jafna eðlilega
aðstöðu nemenda til að stunda
framhaldsnám.
Þingið skorar á alþingismenn
Norðlendinga og menntamála-
ráðherra að beita sér fyrir stór--
auknum framlögum á næstu fjár-
lögum til þessa verkefnis og hlut-
ast til um að settar verði í lögin
fastar reglur um þessa námsað-
stoð.“
Menningarhátíð
Norðlendinga
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, beinir því til Menningar-
samtaka Norðlendinga að kanna
möguleika á reglulegum menn-
ingarhátiðum á Norðurlandi og
fagnar fyrirheiti menntamálaráð-
herra um fjárhagsstuðning við
þess konar hátíðir."
Ríkisútvarpið á Akureyri
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, tekur undir þau markmið
útvarpsstjóra að útsendingar
Svæðisútvarpsins á Akureyri nái
til alls Norðurlands. Jafnframt er
skorað á Ríkisútvarp og Póst- og
símamálavfirvöld að ráðast þegar
í þær tækniumbætur, sem gera
þarf til að sendingar svæðisút- •
varpsins nái vestur um Norður-
land og austur um til byggða í
Þistilfirði og á Langanesi. Væntir
þingið þess að þetta verkefni
korni til framkvæmda á næsta ári.
Fjórðungsþingið telur að
samhliða bættum sendinga-
skilyrðum þurfi að leggja áherslu
á frétta- og efnisöflun í hinum
dreifbýlli byggðum Norðurlands.
Þannig að um samfellt norðlenskt
útvarp verði að ræða með veru-
legri þátttöku í efni aðalrásar
hljóðvarps."
Sjónvarpsdeild á Akureyri
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, ítrekar fyrri ábendingar um
að fast starfslið verði ráðið á veg-
um sjónvarpsins með aðsetur á
Akureyri, sem sinni verkefnum
um allt Norðurland í samstarfi
við fréttaritara og heimamenn.
Þannig verði norðlensku frétta-
efni veittur greiðari aðgangur að
fréttaþáttum sjónvarpsins."
Um öryggismál sjómanna
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Siglufirði 29.-30. ágúst
1986, vekur athygli á að bæta
þarf ástand í öryggismálum sjó-
manna úti fyrir Norðurlandi. í því
sambandi er m.a. bent á að nauð-
synlegt er að bæ;a fjarskipti við
báta á innanverðunt Húnaflóa og
víðar og koma upp öryggisþjón-
ustu við flotann með staðsetn-
ingu þyrlu norðanlands."