Dagur - 02.09.1986, Side 9
_/ýb róttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
2: september 1986 - DAGUR - 9
KA sigraði Þór
Þór og KA í 2. flokki Jéku fyrir
hclgina seinni leikinn í Akur-
eyrarmótinu í knattspyrnu.
Leikurinn fór fram á Þórsvell-
inum og lauk med sigri KA
2:1. Þór sigraði í fyrri leik lið-
anna 3:1 og því verður leikur-
inn í haustmótinu látinn gilda
um það hvort liðið vinnur titil-
inn í ár.
Leikurinn var nokkuð jafn í
fyrri hálfleik en lítið var um færi
hjá liðunum. í hálfleik var staðan
0:0.
í síðari hálfleik hresstust Þórs-
arar örlítið og fengu þá ágæt
marktækifæri. En Torfi Halldórs-
son hirti það sem á markið kom,
þar til á 75. mín. að Ólafur Þor-
bergsson skoraði með lúmsku
skoti frá vítateig.
KA-menn fóru þá í gang og
börðust vel. Skömmu eftir mark
Þórs jafnaði Ágúst Sigurðsson
fyrir KA með glæsilegri hjól-
hestaspyrnu í bláhornið. Þegar
aðeins fáar mínútur voru eftir
skoraði Grétar Pálmason af
stuttu færi og kom KA yfir. Úr-
slitin 2:1 fyrir KA og því fást úr-
slitin í þessum flokki ekki fyrr en
í haustmótinu.
Hraðmót unglinganefndar KSÍ:
Fram sigraði
Sigurvegarinn í minningarmótinu ásamt nokkrum þeirra er hlutu aukaverðlaun
Mynd: KK
Hraðmót unglinganefndar KSÍ
í knattspyrnu 3. flokks fór
fram á Akureyri um helgina.
Keppnin hófst á föstudag en
úrslitaleikirnir fóru fram á
sunnudag. Alls kepptu 8 lið,
leikið var í tveimur fjögurra
liða riðlum og leiktíminn var
2x35 mín.
Tvö liðanna sem upphaflega
ætluðu að vera með, ÍR og Hvöt
mættu ekki og því lék Þór með a
og b lið og einnig var sett saman
eitt lið frá Fram og KR.
í A-riðli léku KR, KA, Vík-
Skíðafólk
af stað
Starfsemi Skíðaráðs Akureyr-
ar er nú að hefjast. Undirbún-
ingsæflngar hjá 15 ára og eldri
hefjast miðvikudaginn 3. sept-
ember kl. 20 og eiga allir sem
ætla að vera með að mæta í
íþróttahúsið við Laugargötu.
Krakkar á aldrinum 13-14 ára
hefja æfingar miðvikudaginn 10.
september og eiga að mæta í
íþróttahúsið við Laugargötu
kl. 20.
Krakkar sem eru 12 ára og
yngri hefja æfingar um miðjan
september og verður það nánar
kynnt síðar. SRA hefur fasta
fundi á þriðjudögum og fara þeir
fram á efri hæð íþróttahússins við
Laugargötu. Allir þeir sem áhuga
hafa á því að vera með í starfi og
eflingu skíðaíþróttarinnar eru
velkomnir á fundi.
Æfingar skíðagöngumanna
verða kynntar um miðjan sept-
ember.
ingur og Þór b og fóru leikirnir
fram á KA-velli. í B-riðli léku
Þór a, Fram, Leiknir F og Fram/
KR og fóru þeir leikir fram á
Þórsvelli. Úrslitin í riðlakeppn- inni urðu þessi:
KR-Þór b ■ 7:0
Þór a-Fram/KR 5:0
KA-Víkingur 1:4
Fram-Leiknir 7:0
Þór b-Víkingur 0:2
Leiknir-Fram/KR 2:0
KR-KA 3:1
Þór a-Fram 2:3
KA-Þór b 2:1
Fram-Fram/KR 6:3
Víkingur-KR 1:0
Leiknir-Þór a 1:4
Á sunnudaginn var síðan
leikið um öll sætin átta. urðu þessi: Úrslitin
1.- 2. Fram-Víkingur 2:1
3,- 4. Þór a-KR 3:1
5,- 6. KA-Leiknir 7,- 8. Þór b-Fram/KR 7:1
Minningarmótið í golfi:
Fram/KR gaf
Lokaröðin varð því þessi. 1.
Fram, 2. Víkingur, 3. Þór a, 4.
KR, 5. KA, 6. Leiknir, 7. Þór b,
8. Fram/KR.
Jónína og Guðbjöm
unnu
- Þórhallur Pálsson sigraði án forgjafar í karlaflokki
Minnigarmótið í golfi fór fram
að Jaðri um helgina. Upphaf-
lega hét þetta mót Ingimund-
armótið en heitir nú Minning-
armótið og er haldið til
minningar um nýlátna félaga í
Golfklúbhi Akureyrar. Að
þessu sinni var Jóns G. Sólnes
minnst en hann var einn af öt-
ulustu félagsmönnum GA í
gegnum árin.
Leiknar voru 36 holur með og
án forgjafar og var keppt í þrem-
ur flokkum, karla-, kvenna- og 2.
flokki. Keppnin var mjög jöfn og
skemmtileg en úrslitin urðu
þessi: '
■■ : - ■ >-;q Oiv tíiii
Karlar án forgjafar:
1. Þórhallur Pálsson GA 156
2. Konráð S.Gunnarsson GA 15’9
3. Sverrir Þorvaldsson GA 160
Karlar með forgjöf:
1. Ó’.i Már Guðmundsson GÖ 138
2. Jón Baldursson GE 143
3. Konráð S. Gunnarsson GA 143
Konur án forgjafar:
1. Jónína Pálsdóttir GA
2. Inga Magnúsdóttir GA
3. Rósa Pálsdóttir GA
Konur með forgjöf:
1. Jónína Pálsdóttir GA
2. Rósa Pálsdóttir GA
3. Inga Magnúsdóttir GA
176
188
208
146
156
160
Fyrirtækjakeppni í mini-golfi:
Hellusteypan sigraði
Sundfélagið Óðinn gekkst um
helgina fyrir keppni í mini-
golfí á milli þeirra fyrirtækja
sem studdu félagið við að
koma upp mini-golf brautun-
um, með því að kaupa auglýs-
ingar með nafni fyrirtækjanna
á brautirnar. Hvert fyrirtæki
Lið Hellusteypunnar sem sigraði í mini-golfinu um helgina.
sendi þriggja manna sveit og
hver keppandi lék einn hring.
Sveit Hellusteypunnar fór með
sigur af hólmi, lék á 106 höggum
samtals. í öðru sæti varð sveit
KEA á 121 höggi og í þriðja sæti
varð sveit Búnaðarbankans á 124
höggum. Aðrir sem tóku þátt í
keppninni voru Kaffibrennslan,
Landsbankinn, Iðnaðarbankinn
og sveit frá sundfélaginu. Einnig
áttu að mæta mæta sveitir frá
Slippstöðinni og Möl og sandi en
þær sveitir mættu ekki til leiks.
Sigurlaunin til starfsmanna
Hellusteypunnar eru veglegur far-
andbikar sem þeir varðveita til
næsta móts að ári. Auk þess voru
aukaverðlaun fyrir besta skor í
keppninni og þau hlaut Pétur
Guðjónsson frá Hellusteypunni.
Hann lék 9 holurnar á 30
höggum. Þá voru verðlaun í boði
fyrir að fara holu í höggi og voru
verðlaunin bifreið að eigin vali,
(leikfangabifreið). Einunt kepp-
anda tókst þetta en það var
Sverrir Jónsson frá Búnaðar-
bankanum og valdi hann sér fjór-
hjóladrifna jeppabifreið af gerð-
inni MAJORETTE.
Rekstur mini-golfsins hefur
gengið bærilega á þessu fyrsta
starfsári og hafa sex þúsund
manns komið og leikið hring. Nú
hefur verið lokað og hefst starf-
semin að nýju 1. júní næsta ár.
Sundfélagið Óðinn vill nota
tækifærið að þakka öllum sem
hafa heimsótt þá að sundlaug-
inni í sumar og vonast til að sjá
sem flesta næsta sumar.
2. flokkur, án forgjafar:
1. Guðbjörn Garðarsson GA 187
2. Oddur Jónsson GA 193
3. Ottó H. Guðmundsson GA 193
Oddur sigraði Ottó í bráða-
bana í keppninni um 2. sætið.
2. flokkur með forgjöf:
1. Guðbjörn Garðarsson GA 137
2. Ottó H. Guðmundsson GA 137
3. Eríkur Sveinsson GA 140
Þeir Guðbjörn og Ottó voru
jafnir í keppni með forgjöf en
Guðbjörn sigraði á betra skori
síðustu þrjár holurnar.
Þá voru einnig veitt mörg
glæsileg aukaverðlaun, eins og
t.d. að fara næst holu á nokkrum
brautum.
Það voru KEA og Landsbank-
inn sem gáfu verðlaun í mótinu.
Sveitakeppni GSf:
Karlalið
GA valin
Sveitakeppni Golfsambands
íslands fer fram um næstu
helgi. Karlasveitir GA leika í
2. deild og fer sú keppni fram
hér á Akureyri. A-sveit
kvenna leikur í 1. deild og
keppir á Grafarholtsvellinum
en B-sveitin leikur í 2. deild
hér á Akureyri.
David Barnwell valdi um
daginn kvcnnaliðin í keppnina
og þá sögðum við frá því hér í
blaðinu. Nú hefur hann einnig
valið í bæði karlaliðin og þeir
kylfingar sem vaidir voru eru, í
A-liðið, Björn Axelsson, Sverr-
ir Þorvaldsson, Þórhallur Páls-
son og Kristján Gylfason. í B-
liðinu eru þeir Árni S. Jónsson,
Ólafur Gylfason, Konráð S.
Gunnarsson og Jón Aðalsteins-
son. Til vara eru þeir Viðar Þor-
steinsson og Sigurður H.
Ringsted.