Dagur - 02.09.1986, Side 11
2. september 1986 - DAGUR - 11
f Lára Pálsdóttir
Kveðjuorð
F. 13. mars 1912 - D. 24. ágúst 1986
Eitt sinn skai hver deyja, það fær
enginn umflúið. Nú er elsku
amma er horfin yfir móðuna
miklu, viljum við systkinin saman
reyna að skrifa fáein kveðjuorð.
Hugur okkar er á reiki, góðar
og ljúfar minningar leita fram,
við eigum erfitt með að tjá hug
okkar, það sækir að okkur trega.
Við sem ung erum, eigum
stundum erfitt með að skilja lífið
og tilveruna, við eigum erfitt með
að sætta okkur við, að sjá á bak
þeim er okkur eru kærir og þykir
vænt um.
Við erum þó farin að skilja að
lífið hér á jörðu er ekki eilíft, í
huga okkar systkinanna er mikið
þakklæti fyrir að hafa átt svo
hlýlega og góða ömmu, er ætíð
Víst heitir hún
Sandgerðisbót
-en Poliurinn hét Hofsbót
Vegna fréttar í blaðinu fyrir
stuttu um framkvæmdir í
Sandgerðisbót höfðu nokkrir
„gamlir“ Akureyringar sam-
band við undirritaðan og furð-
uðu sig á vanþekkingu hans á
gömlum örnefnum i bænum.
Astæðan var einföld, því sagt
hafði verið að hafnarstjórn
hefði samþykkt smíði fískverk-
unarhúsa í Bótinni.
Fyrir marga er Bótin aðeins ein
á Akureyri og staðsett þar sem
nú er miðbær Akureyrar og nán-
asta umhverfi, (þó aðallega það
sem nær sjónum er). Hins vegar
var átt við byggingu fiskverkun-
arhúsa í Sandgerðisbót, en hún
er eins og flestir vita norðan
Glerár, eða þar sem er framtíðar-
svæði fyrir smábáta Akureyringa.
Þar á nefnilega að byggja þéssi
fiskverkunarhús.
í örnefnaskrá sem Jóhannes
Óli Sæmundsson tók saman er
m.a. sagt, „Ástæðan fyrir því að
Glerá hefur ekki fengið að ráða
allt til sjávar er augljós, því að
fyrrum flæmdist hún sitt á hvað
um eyrarnar, allt frá Sandgerdis-
bót suður í Oddeyrarbót. “ Þarna
er Bótin (eina og sanna) nefnd
Oddeyrarbót. Á öðrum stað í
örnefnaskrá Jóhannesar segir,
„Torfunefið er þar austur af og
Oddeyrarbótin, sem var í krikan-
um efst við Eyrina, er löngu horf-
in undir uppfyllingu, götur og
hús. Hún náði þangað sem nú er
(hið ráðhúslausa) Ráðhústorg,
en þangað suður náði fyrrum
einn af ósum Glerár." Fleira er til
um Bótina og segir á einum stað,
„Elsta nafn sem vitað er um á
hinni einstöku ágætu höfn sunn-
an Oddeyrar er Hofsbót, ættað
frá einokunartímanum, en langt er
nú síðan Akureyrarpollur, eða
aðeins Pollurinn var fast nafn.“
Það eru því ýmsir fletir á þessu
máli og gaman að rifja það upp
hér. Ekki er mér örgrannt um að
einhverjir gamlir og grónir
„þorparar kalli Sandgerðisbót
bara Bótina. En Sandgerðisbót
heitir hún og gerir vonandi
áfram. Þettar er frekar rifjað upp
til gamans, en hitt að gera úr
þessu mál og var jafn gott að
blaðamanni var bent á staðreynd-
ir málsins. Hins vegar vissi hann
um nafn bæði Bótarinnar og
Sandgerðisbótar, en notaði ein-
ungis Bótina til styttingar til að
forðast óþarfa endurtekningu
nafnsins Sandgerðisbót í stuttri
frétt. gej-
var gott og ánægjulegt að heim-
sækja eða að fá í heimsókn.
Amma fræddi okkur um margt,
sem mun nýtast okkur vel á lífs-
leiðinni. Okkur systkinunum er
efst í huga þakklæti til þín, elsku
amma, fyrir allar samverustund-
irnar, þær munu geymast í
minningunni, bjartar og fagrar,
er aldrei fennir yfir.
Systkini kveðja ömmu með
virðingu og þökk fyrir allt og allt.
Elsku afi við biðjum algóðan
Guð að gefa þér mikinn styrk.
Það var bjartur sunnudagur,
24. ágúst, er Guð tók ömmu okk-
ar til sín, himnahliðið var opnað
upp á gátt er amma gekk þar inn.
Það er sterk huggun harmi
gegn að eiga bjartar og fagrar
minningar um elsku ömmu.
Hvíli amma í friði.
Magnús, Ásthildur, Ebba Kolla
og Ragnhildur.
Utsala
Vegna fjölda fyrirspurna opnum viö aftur
í dag Irisútsöluna í Grænumýri 10.
Aðeins þennan eina dag.
Allt á sama lága verðinu. Enn er úrval af
kvenblússum og metravöru.
Fatagerðin Irís
Óskum eftir að ráða
starfsfólk í
brauðgerð
karla og konur.
Vinnutími frá kl. 5-15.
Upplýsingar gefnar í Hrísalundi 3, ekki í síma.
Brauðgerð
Kr. Jónssonar.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarforstjóra vantar að dvalar- og sjúkra-
deild Hornbrekku, Ólafsfirði frá 1. nóvember.
Umsóknarfrestur til 20. september.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
96-62480.
Kennarastaða
Vegna forfalla er laus ein kennarastaða við Síðu-
skóla. Upplýsingar veita skólastjóri eða yfirkenn-
ari í síma 22588.
Skólastjóri.
Húsvíkingar - Þingeyingar
41585
er símanúmer Ingibjargar Magnúsdóttur
blaðamanns Dags.
Skrifstofan er að Stóragarði 3.
Opið frá kl. 9-11 f.h.
Frá stjórn
verkamannabústaða
Akureyri
Eftirtaldar íbúðir eru til sölu í verka-
mannabústöðum á Akureyri:
A. 5 herbergja raðhúsíbúðir í smíðum ca. 130
m1 við Fögrusíðu 11 C, Fögrusíðu 11 E,
Fögrusíðu 9 C og Fögrusíðu 15 C.
B. 3ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Keilusíðu
7 G, 94,1 m2.
C. 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Múlasíðu
3 H, 93,7 m2.
D. 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Smára-
hlíð 18 B, 58,7 m2.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
um verð, skilmála og rétt til kaupa á íbúðum í
verkamannabústöðum er að fá á skrifstofu
verkamannabústaða, Kaupangi v/Mýrarveg.
skrifstofan er opin frá kl. 13-15.30 virka daga,
lokað á föstudögum.
Umsóknarfrestur er til 22. september n.k.
Akureyri, 01. september 1986,
Stjórn verkamannabústaða, Akureyri.
Sporthúsidh,
DÚNÚLPUR
á dúndurgóðu verði
Efni: Sterk nylonefni með giansáferð.
Fylling: 100% dúnn.
Hetta: Dúnfyllt hetta sem hægt er að
fela inni í kraga.
Litir: Dökkblátt, rautt, grátt.
Stærðir: 128-140-152-164 (5-12 ára)
-L-XL-XXL.
128 og 140
M
n,