Dagur - 02.09.1986, Síða 12
Akureyri, þriðjudagur 2. september 1986
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er 24222
Fyrstu
réttir
norðan
heiða
- í Undirfellsrétt
Sl. sunnudag var réttað í
Undirfellsrétt í Vatnsdal og er
það hald manna að þetta séu
fyrstu réttir norðan heiða þetta
haustið.
Pað eru Áshreppur og Sveins-
staðahreppur sem smöluðu því fé
sem sótt hafði niður af Gríms-
tungu- og Haukagilsheiði að
Heiðargirðingu, en það mun um
langt árabil hafa verið vani að
smala þetta svæði um hálfum
mánuði fyrir aðalréttir.
Að sögn Ragnars Bjarnasonar,
bónda í Norðurhaga, var óvenju-
fátt í réttinni að þessu sinni og
taldi hann það stafa af því að
undanfarið hefði verið góð og
áfallalaus tíð og spretta hefði ver-
ið seint á ferðinni og heiðarnar
því lengur í sprettu en oft áður.
Aðspurður hvernig féð kæmi af
fjalli sagði Ragnar að sennilega
mætti segja að það væri í góðu
meðallagi, „en að vísu finnst
okkur alltaf að lömbin séu lítil í
þessari rétt,“ sagði Ragnar.
Aðalréttir verða 12. og 13.
september og mun það vera viku
fyrr en ætlað var samkvæmt fjall-
skilareglum. G.Kr.
LA sýnir
„Mar-
bletti“
„Það eru enn lausir endar
hvað varðar mannaráðningar
hjá okkur fyrir síðari verkefni
vetrarins og er ekki tímabært
að segja frá hlutum sem
kannski koma til með að breyt-
ast,“ sagði Pétur Einarsson,
leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Akureyrar, er hann var spurð-
ur um verkefni vetrarins hjá
félaginu.
Sagt hefur verið frá því áður að
æfingar hófust fyrir nokkru á
barnaleikritinu „Herra Hú“ og
verður það sýnt bráðlega.
Næsta verkefni þar á eftir er
revíukabarett sem heitir „Mar-
blettir“ og er eflir „Hina og
þessa“. „Pað verður ekki endi-
lega tekið á hinum venjulegu
dægurmálum í dag, heldur verð-
ur reynt að kortlcggja nútíma-
manninn, hvaða hugmyndir hann
hefur. Hluti af verkinu er þýddur
úr verki eftir finnskan höfund sem
heitir Bengt Alfors, en annað er
samið hér heima. Ég verð leik-
stjóri þessa verkefnis og leikend-
ur verða allir fastráðnir leikarar
félagsins auk nokkurra fleiri,"
sagói Pétur.
Tónlist og söngvar eru í
„Marblettum" og er fyrirhuguö
frumsýning 17. október. gej-
Eins og fram kemur í frétt hér til hliðar var réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal sl. sunnudag. Mynd: G.Kr.
Borun í
Reykjarhól
bar árangur
Allt útlit er fyrir góðan árang-
ur af borun eftir heitu vatni í
Reykjarhóli í Fljótum, sem
gerðar eru á vegum seiðaeldis-
stöðvarinnar Fljótalax. Á
fimmtudaginn varð vart við
mikið vatn í holunni og töldu
menn það vera allt að 20 sek.
lítrar. Það er 90 gráðu heitt og
sjálfrennandi. Þegar holan var
síðan mæld eftir helgina hafði
rennslið minnkað mikið og
mældist 8 sek. lítrar.
Holan sem er ríflega 400 metr-
ar á dýpt hafði aðeins verið fóðr-
uð 100 metra niður og töldu
menn að hrun í henni hefði vald-
ið þessu minnkandi vatnsrennsli.
í gær var von á rörum til að fóðra
holuna lengra niður eftir að hún
hefur verið hreinsuð.
Teitur Arnlaugsson, stöðvar-
stjóri við Fljótalax var ánægður
með árangurinn, þrátt fyrir þetta
minnkandi rennsli, sem hann
vonaði að væri aðeins í augna-
blikinu. Hann kvað stöðina hafa
haft 3 sek. lítra til umráða af
heitu vatni og þessi viðbót nú
myndi margfalda möguleika
stöðvarinnar á auknu seiðaeldi í
framtíðinni. Ekkert væri því til
fyrirstöðu að nær tvöfalda fram-
leiðsluna strax á næsta ári, eins
og áætlunin og byggingarfram-
kvæmdin nú við stækkun stöðvar-
hússins miðuðu að. þá
Sunnan-
blíða
„Nei, nei. Það er ekki komið
haust fyrir norðan og strax á
morgun fer að snúast í suðvest-
anátt hjá ykkur,“ sagði Unnur
Ólafsdóttir veðurfræðingur er
við ræddum við hana í gær.
Unnur sagði að síðari hluta
dags í dag færi vindur að verða
suðvestlægur og síðan yrði sunn-
anátt á morgun og eftir það væri
ekki útlit fyrir breytingar alveg á
næstunni. Það er því ekki annað
að sjá en að framundan sé þokka-
legasta veður ef svo fer sem
horfir. gk-,
Þessi tveggja metra háa appelsína mun á næstu dögum hvetja menn til að
drekka meiri Blöndu.
Mjólkursamlag KEA:
„Appelsína"
kynnir „Blöndu“
„Sala á Blöndu hefur gengið
vonum framar en við ætlum að
reyna að auka hana enn með
þessu uppátæki,“ sagði Júlíus
Kristjánsson hjá Mjólkursam-
lagi KEA aðspurður um hlut-
verk „appelsínu“ einnar
mikillar sem kynnt var fyrir
blaðamanni.
„Hugmyndin kom frá Samveri
h/f en Hallmundur Kristinsson
leikmyndasmiður hjá L.A. sá um
hönnun og smíði.“ „Appelsína"
þessi er um tveir metrar á hæð og
öll hin fullkomnasta því hún er
búin hátalarakerfi sem hún notar
til að kynna Blönduna og spjalla
við fólk. Fyrsta kynningin með
þessu nýja sniði verður í KEA
Hrísalundi á föstudaginn en auk
þess að sjá um kynningar í versl-
unum mun „appelsínan" sem enn
hefur ekki hlotið nafn heimsækja
barnaheimili og fleiri staði. Vafa-
laust kunna börnin vel að meta
þetta uppátæki þeirra í samlag-
inu og fróðlegt verður að sjá við-
brögð frá öðrum neytendum. Að
lokum vildi Júlíus koma því á
framfæri að ef menn hafa gott
nafn á gripinn mega þeir gjarnan
hafa samband við þá samlags-
menn. et
Siglfirðingar
skora á Flugleiðir
- að endurskoða áætlunarflug til Sauðárkróks
Bæjarráö Siglufjarðar hefur
beint þeim eindregnu tilmæl-
um til innanlandsdeildar Flug-
leiöa að falla frá fyrirhuguöum
brottfarartíma í vetraráætlun á
flugleiðinni Reykjavík - Sauð-
árkrókur þ.e. kl. 18.30 á
þriðjudögum og föstudögum
og breyta brottfarartímanum
þannig að ekki verði farið frá
Reykjavík seinna en kl. 14.00
þessa daga.
Ástæða þessarar áskorunar er
sú að framangreindir dagar eru
þeir einu í vikunni sem veginum
á milli Sáuðárkróks og Siglu-
fjarðar er haldið opnum að vetr-
arlagi, en snjómokstri lýkur kl.
17.00 þessa daga. Með fyrirhug-
uðum brottfarartíma Flugleiða
frá Reykjavík er ekki unnt að
tengja áætlunarferðir á landi frá
Siglufirði við þetta flug eins og
verið hefur til fjölda ára og þar
með brestur einn öruggasti sam-
göngumöguleiki Siglfirðinga við
höfuðborgina yfir vetrartímann.
„Það er ljóst að okkur munu
ekki nýtast þessar samgöngur, ef
af þessu verður verður rútan á
ferðinni á milli þessara staða á
kvöldin eftir að snjóruðningstæki
eru farin af svæðinu og það telj-
um við ekki fýsilegan kost,“ sagði
Kristján L. Möller á Siglufirði.
Hann sagðist vonast til að Flug-
leiðir endurskoðuðu þessa áætlun
þannig að Siglfirðingar gætu
áfram notað þjónustu þeirra.
Sæmundur Guðvinsson blaða-
fulltrúi Flugleiða sagði að fram í
febrúar yrðu sáralitlar breyting-
ar, en hægt yrði að breyta brott-
för frá Reykjavík um 45 mínútur.
Frá febrúarbyrjun verður brott-
för breytt og farið verður frá
Reykjavík kl. 14.45.
„Annars er þetta spurning um
að athuga hvort Vegagerðin geti
breytt sínum áætlunum, það hlýt-
ur að koma fleirum að gagni. Það
er vonlaust fyrir okkur að senda
allar vélar héðan um hádegi,“
sagði Sæmundur -mþþ