Dagur - 16.09.1986, Síða 1

Dagur - 16.09.1986, Síða 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 16. september 1986 172. tölublað FILMUHUSIÐ Hafnarstræti 106 Sfmi 22771 Pósthólf 198 .¥ 'f 'fW LádUku gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar kl. 16.30. Opið á laugardögum frá kl. 9-12. Útflutningur á ferskum fiski: „Eigum að vinna fiskinn hér heima“ - segir Gísli Konráðsson framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa „Eg hef ekki heyrt talað um frjálst fiskverð á annan hátt en þann að koma upp fiskmarkaði á suðvesturhorninu og reikna ekki með því að slíkt verði tek- ið upp hér hjá okkur,“ sagði Gísli Konráðsson forstjóri Ut- gerðarfélags Akureyringa er hann var spurður um hug- myndir varðandi fiskmarkað og frjálst fiskverð. Ég reikna með því að fiskverð verði áfram ákveðið af verðlags- ráði, en varðandi fiskmarkað, þá hentar slíkt betur þama suður frá. því þar er mikið framboð á fiski og mikið af kaupendum. Pað má Rússarnir sprengja „Þeir hafa verið að sprengja hér í landi Ytri-Tjarna að undanförnu og hefur allt leikið á reiðiskjálfi,“ sagði Benjamín Baldursson bóndi á Ytri- Tjörnum er hann var spurður um þær sprengingar sem fram- kvæmdar eru í vísindaskyni í Eyjafirði um þessar mundir. Mönnum þykir sem sumar sprengingarnar séu nokkuð öflugar, því margir hafa haft á orði að rúður skjálfi í húsum á Akureyri. „Eftir nokkrar spreng- ingar komu þeir til mín og báðu um leyfi og gat ég ekki neitað þeim um það, þar sem þetta er í vísindalegum tilgangi. Hins vegar er ég hræddur um borholur Hita- veitunnar, sem eru þarna rétt hjá, því Ijós sem eru í fjósloftinu hjá mér rugga mikið eftir spreng- ingarnar. Þess vegna held ég að þetta geti haft áhrif á holurnar sem eru mun nær,“ sagði Benja- mín. Sprengingar þessar eru þekkt aðferð við leit að olíu í jörðu. Skepnur virðast hræðast þessar sprengingar og eru hestar við- kvæmastir að þessu leyti.Vitað er að hestur við bæinn Bringu fæld- ist við eina sprenginguna og hljóp á girðingu og meiddist nokkuð. Wilhelm V. Steindórsson hita- veitustjóri á Akureyri sagði að þessar sprengingar væru Hita- veitunni óviðkomandi. Hins veg- ar hefðu vísindamennirnir fengið leyfi til sprenginga á svæði Hita- veitunnar eftir umræður sem beindust að því hvort mögulegt væri að sprengingarnar gætu skemmt borholur veitunnar. Er talið útilokað að slíkt gæti gerst. „Borholum Hitaveitunnar er því engin hætta búin vegna þessara sprenginga,“ sagði Wilhelm. Það er Orkustofnun sem vinn- ur með rússneska leiðangrinum að þessu verkefni sem standa mun fram á haust. gej- reikna með því að þá rífist inn- lendir og erlendir aðilar um fiskinn. Hér fyrir norðan er ekki um neitt slíkt að ræða, því við viljum ekki láta bjóða upp fisk- inn okkar. Við ætlum að vinna hann sjálfir. Mér líst ekki á þess- ar hugmyndir og það er mín pers- ónulega skoðun að við eigum ekki að flytja út neitt af ferskum fiski, heldur vinna hann hér heima og selja hann unninn í frosnu ástandi. Það þýddi að við mundum selja miklu meira af freðfiski og á miklu hærra verði en nú er gert. Með þessum út- flutningi verður minni eftirspurn eftir frosnum fiski,“ sagði Gísli. gej- Nemi á málmiðnaðarbraut VMA sést hé spreyta sig á verkefni.Mynd: rpb Atvinnuástand víða betra en í fyrra - Mjög gott ástand á Akureyri Nýlega kom út á vegum Vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins yflrlít um atvinnuástand í landinu. Þar kemur fram að í ágústmánuði sl. voru á landinu skráðir um 10 þúsund atvinnuleysisdagar sem samsvarar því að 465 manns hafi verið á atvinnu- leysisskrá allan mánuðinn. Það svarar til 0,4% af áætluðum mannafla. Þetta er minnsta at- vinnuleysi sem skráð hefur verið í einum mánuði á þessu ári. Ef litið er á tölur fyrir Norður- land sést að á Norðurlandi eystra er ástandið mun betra en á sama tíma í fyrra eða 1.709 atvinnu- leysisdagar nú á móti 4.209 í fyrra. Þetta er minnsti fjöldi í ágústmánuði síðan árið 1982. Á Norðurlandi vestra er ástandið ekki eins gott því þar eru tölurn- ar 605 núna en 549 í fyrra og 433 1984. Þegar bornir eru saman júlímánuður og ágústmánuður kemur í ljós að atvinnuleysisdög- um hefur fjölgað úr 605 í 629 á Norðurlandi vestra eða um 3% en á Norðurlandi eystra hefur þeim fækkað úr 2.354 í 1.709 eða um 27,4%. Ef skoðaðir eru ein- stakir staðir kemur í ljós að á Norðurlandi eystra minnkaði at- vinnuleysi milli þessara mánaða alls staðar nema í Ólafsfirði. Hlutfall kynjanna í þessu atvinnuleysi er mjög breytilegt eftir stöðum allt frá 0% upp í 100%. Að sögn Hauks Torfasonar á Vinnumiðlunarskrifstofu Akur- eyrar er ástandið mjög gott, næg atvinna í bænum og á stóru vinnustaðina vantar víða fólk. Haukur sagði að skólafólki hefði gengið vonum betur að fá at- vinnu og nú þegar það fólk hverf- ur í skólana losna störf þess. ET Samflot eða dreifðir samningar? ■ 9 f ■ ■* ■■■■■■■ f • tL m m r m m ■ ■ m . _ - X m r -Smærri félög ekki tilbúin að semja sjálf, segir Jón Karlsson—Óttast að misrétti aukist, segir Sævar Frímannsson Þar sem augljóst er að upp- síðustu samninga, en telur að „Mér þykir mjög ólíklegt að stokkun launakerfísins verður ekki verði undan því vikist að málin fari í þann farveg að hvert meginmál næstu samninga er íhuga vandlega hvort rétt sé að félag smátt eða stórt semji algjör- rökrétt að spyrja hvort dreifðir samningar séu ekki rétta svarið, jafnvel samningar ein- stakra verkalýðsfélaga við ein- stök fyrirtæki. Er ekki nauð- synlegt að gefa verkalýðsfé- lögunum hverju fyrir sig aðstöðu til að taka á málum í samræmi við staðbundnar for- sendur?“ Þetta skrifar Asmundur Stefánsson forseti ASI í leiðara nýjasta blaðs Vinnunnar. í leiðaranum segist Ásmundur ekki vilja gera lítið úr þeim umskiptum sem urðu við gerð síðustu samninga, en telur að ekki verði undan því vikist að íhuga vandlega hvort rétt sé að vinna að gerð næstu samninga á sama hátt. Launaskrið hefur vax- ið á síðustu árum og valdið mis- gengi á milli umsaminna kaup- taxta og þess kaups sem greitt er hjá fjölmennum starfshópum. Fólk í sömu störfum og sama byggðarlagi býr þannig við mik- inn launamun. Ásmundur segir þó að dreifðir samningar séu ekki annmarkalausir, en við þær aðstæður sem nú ríkja telur hann nauðsynlegt að íhuga vandlega hvort dreifðir samningar henti betur en samflot í væntanlegri samningagerð. lega heimafyrir. Mörg félög eru ekki í stakk búin til að takast á við það,“ sagði Jón Karlsson for- maður Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki. Jón sagði að í kringum árið 1960 hafi mis- munandi taxtar verið í gangi á Norðurlandi fyrir nákvæmlega sömu vinnu. Á þeim tíma var samið heimafyrir og kaupið því misjafnt eftir stöðum. „Og ég tel ekki æskilegt aö taka það upp aftur,“ sagði Jón. Jón sagðist telja að ef málið þróaðist þannig að farið yrði út í starfsgreinasamninga þá væri það af hinu góða. „Það eru talsverðar líkur á breytingum framundan, en á þessari stundu er ekki gott að sjá fyrir um hverjar þær verða.“ „Hugmyndin er jákvæð ef hægt er að fá atvinnurekendur til að semja sérstaklega án íhlutunar Vinnuveitendasambandsins. En ég óttast að það geti verið erfitt þar sem þeir eru bundnir af sín- um heildarsamtökum. Ég lít svo á að þetta gæti frekar gengið með góðum árangri á þenslusvæðum, en aftur á móti úti á landsbyggð- inni yrði þetta erfiðara þar sem atvinnuástand hér er oft mikið lakara,“ sagði Sævar Frímanns- son formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri. Sævar sagði þetta hættulega þróun fyrir alla. Vel stödd fyrir- tæki gætu greitt hærri laun en þau sem eiga í rekstrarerfjðleikum og gætu þar af leiðandi laðað til sín starfsfólk. Slík fyrirtæki gætu jafnvel liðið út af þar sem erfitt gæti reynst að fá fólk til starfa, fólk myndi leita þangað sem launin væru meiri. „Ég óttast líka að misrétti verkafólks aukist nái þessar hug- myndir fram að ganga. Þetta mis- rétti þarf að leiðrétta og það ger- ist ekki nema heildarsamtökin komi þar inn í, þeir sem betur mega sín verða að hífa þá lægst launuðu upp,“ sagði Sævar -mþþ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.