Dagur - 16.09.1986, Page 3
16. september 1986 - DAGUR - 3
Þessi föngulegi hópur verður í eldlínunni hjá LA í vetur, leikarar, leikbús-
stjóri og tæknilið.
Feröakaup-
stefna
- fyrir ísland, Færeyjar
og Grænland
Leikfélag Akureyrar:
Fjölbreytt efnisskrá
- Fyrsta frumsýning 27. september
Fyrsta sameiginlega ferða-
kaupstefna Færeyinga, Græn-
lendinga og íslendinga fyrir
erlendar ferðaskrifstofur,
verður haldin í Laugardalshöll
19.-21. sept. nk. Búist er við
að á annað hundrað fulltrúar
frá a.m.k. 12 ríkjum komi á
sýninguna, en sýningaraðilar
verða sextíu frá Islandi, ellefu
frá Færeyjum og tólf frá
Grænlandi.
Það er Ferðamálanefnd norð-
vestursvæðisins sem stendur fyr-
ir þessu alþjóðlega kynningar-
átaki, en tilgangurinn er að vekja
áhuga erlendra ferðaskrifstofa á
hinum margþættu og fjölbreyti-
legu ferðamöguleikum á íslandi,
Grænlandi og Færeyjum. Fyrstu
tveir dagar ferðakaupstefnunnar
eru aðeins ætlaðir erlendum
ferðakaupendum. Á laugardag
og sunnudag verður hún opin
almenningi, sem fær kærkomið
tækifæri til að kynna sér ferða-
möguleika og þjónustu þessa
svæðis fyrir árið 1987.
Meðal söluaðila á kaupstefn-
unni eru íslensku flugfélögin,
gistihús, ferðamálasamtök lands-
fjórðunganna, ferðaskrifstofur,
hópferðaseljendur, bílaleigur,
Ferðaþjónusta bænda og fleiri
aðilar. Frá Færeyjum og Græn-
landi koma fulltrúar þarlendra
ferðaskrifstofa, gistihúsa, skipa-
og flugfélaga.
Erlendir ferðaskrifstofumenn
hafa fagnað þessu framtaki
Ferðamálanefndar norðvestur-
svæðisins, en þetta auðveldar all-
an undirbúning alþjóðlegs átaks í
sölu- og kynningarmálum fyrir
næsta ár. Ferðakaupstefnan
verður sett föstudaginn 19. sept.
nk. og meðal gesta við opnunina
verður forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir. Sölu- og samn-
ingamál ferðakaupenda og ferða-
sala fer fram á föstudag og laug-
ardag. Á sunnudag býðst ferða-
kaupendum kostur á þremur mis-
munandi dagsferðum um ísland,
þ.e. til Gullfoss og Geysis, Vest-
fjarða og Austfjarða.
Alþjóðlegar ferðakaupstefnur,
sem þessi, eru mjög algengar um
allan heim og hafa mikil áhrif á
ferðamáta og ferðasölu víðast
hvar. Með þessari ferðakaup-
stefnu næst til flest allra þeirra
aðila sem eru duglegir að selja
ferðir til landanna þriggja og
jafnframt til nýrra áhugasamra
ferðasöluaðila.
Einnig er búist við blaðamönn-
um sem skrifa um ferðamál, m.a.
frá þekktum ferðablöðum eins og
t.d. Stand-by, Take Off og
Travel Trade Gazette.
Á laugardag og sunnudag geta
landsmenn heimsótt ferðakaup-
stefnuna og fengið upplýsingar
um það sem er í boði á Islandi,
Grænlandi og Færeyjum í ferða-
málum og þjónustu. Þá verður
getraunaleikur og í verðlaun
verða t.d. ferðir um ísland og til
Færeyja og Grænlands, auk þess
gistinætur á hótelum. Boðið
verður upp á þjóðleg skemmti-
atriði, eins og færeyskan þjóð-
dansahóp.
Gert er ráð fyrir að þessi sam-
eiginlega ferðakaupstefna verði
haldin á eins eða tveggja ára
fresti í framtíðinni. Ferðamála-
nefnd norðvestursvæðisins var
stofnsett fyrir rúmu ári að tilhlut-
an Norðurlandaráðs. Formaður
nefndarinnar er Jónas Hallgríms-
son á Seyðisfirði, en starfsmaður
nefndarinnar er Reynir Adolfs-
son, á Egilsstöðum.
Starfsemi Leikfélags Akureyr-
ar er nú komin vel af stað og
27. september verður frumsýnt
fyrsta verkið af fimm á þessu
leikári. Þar er á ferðinni
barnaleikritið „Herra Hú“ eft-
ir finnska rithöfundinn Hannu
Mákelá.
Hannu skrifaði Herra Hú upp-
haflega sem skáldsögu og hlaut
fyrir hana verðlaun í heimalandi
sínu en bæði bókin og leikritið
hafa farið mikla sigurför víða um
lönd. Þýðandi leikritsins um
Herra Hú er Njörður P. Njarðvík
en Þórunn Sigurðardóttir mun
leikstýra verkinu. Leikmynd og
búningar eru eftir Gylfa Gíslason
en lýsingu gerir Ingvar Björns-
son. Leikendur í þessu verki eru
þrír: Skúli Gautason sem fer með
hlutverk Herra Hú, Inga Hildur
Haraldsdóttir og Einar Jón
Briem. Tónlistin í leikritinu er
eftir Sven Sid og munu þeir Krist-
inn Örn Kristinsson, Finnur Ey-
dal og Birgir Karlsson sjá um
flutning. Söngþjálfun annaðist
Þuríður Baldursdóttir.
Annað verkefni félagsins verð-
ur revíukabarettinn „Marblett-
ir“. Hluti tónlistar og texta er eft-
ir Finnann Bengt Alfors en einn-
ig eru textar eftir Kristján frá
Djúpalæk og Pétur Einarsson við
innlend og erlend lög. Pétur mun
leikstýra verkinu og einnig sér
hann um gerð búninga og leik-
myndar. Ingvar Björnsson sér
um lýsingu. Verkið verður frum-
sýnt síðari hluta októbermánað-
ar.
Þriðja verkefni vetrarins verð-
ur síðan svokölluð leiklesin
dagskrá í tilefni af 70 ára afmæli
Kristjáns frá Djúpalæk. Dagskrá
þessi verður frumflutt síðari
hluta nóvembermánaðar senni-
Hesturinn Sleipnir:
Tvo mánuði
í sjálfheldu
„Hesturinn var í Snaga sem
kallaður er. Ég hélt við ætluð-
um að drepa hann á að ná hon-
um þaðan aftur á miðvikudag-
inn. Þetta er mjög erfitt hraun
yfírferðar og ég skil varla
hvernig hann hefur komist
þangað. Hann hefur sennilega
ekkert vitað hvert hann ætlaði,
það hefur gripið hann eitthvert
óskaplegt æði.“
Þetta sagði Baldur Jónsson
bóndi í Ysta-Hvammi af hestin-
um Sleipni sem gangnamenn
fundu í sjálfheldu syðst í Gjá-
stykki um næst síðustu helgi. Hest-
urinn hafði þá verið þarna á eins
konar eyju í hrauninu í um tvo
mánuði og hafði ekkert til hans
spurst síðan hann strauk úr Ysta-
Hvammi í byrjun júlí. Að sögn
Baldurs flumbraðist hesturinn
nokkuð víða en hann var vel á sig
kominn.
„Hann hlýtur að hafa komist í
eitthvert vatn því hann var ekki
svo mjög þyrslur. Ég get samt
varla ímyndað mér að þarna í
hrauninu myndist nokkrir
pollar." Sleipnir sem er fimm
vetra garnall kom í Ysta-Hvamm
í lok júní og átti að vera þar í
geymslu um sinn. Hann er lítið
taminn og að sögn Baldurs hljóp
hann tvisvar undan þeim út í
hraunið áður en hann gaf sig og
þeim tókst að koma á hann
böndurn. ET
lega í Sjallanum. Dagskráin ber
nafn síðustu ljóðabókar Kristjáns
„Dreifar af dagsláttu“ og er
samantekt og sviðsetning í hönd-
um Sunnu Borg. Þarna verða
verk Kristjáns flutt með söng,
leik og lestri á síðdegis- og kvöld-
sýningum.
í byrjun janúar hefjast sýning-
ar á leikritinu „Hvenær kemurðu
aftur rauðhærði riddari?" eftir
Mark Medoff sem Nemenda-
leikhúsið sýndi í fyrra. Þýðingu
gerði Stefán Baldursson, Pétur
Einarsson leikstýrir, lýsingu gerir
Ingvar Björnsson og leikmynd
Örn Ingi Gíslason.
Fljótlega upp úr áramótum
hefjast síðan æfingar á hinum
alkunna söngleik Fred Ebb
„Kabaret“. Tónlist er eftir John
Kander, Óskar Ingimundarson
þýddi. Söngleikurinn verður
frumsýndur um miðjan mars og
verður hann síðasta verkefni
vetrarins.
Sala aðgangskorta hefst í dag
þriðjudag í „Ánni“ við Skipagötu
og verður boðið upp á þriggja
sýninga kort en auk þess fá kort-
hafar verulegan afslátt á barna-
leikritið og leiklesnu dagskrána.
Sú nýbreytni verður nú tekin upp
að með kortunum fylgja leikskrár
sem verða sendar korthöfum
nokkru fyrir sýningar. Miðasalan
verður opin alla virka daga nema
mánudaga og síminn þar er
24073.
Leikfélag Akureyrar verður 70
ára 19. apríl á næsta ári og að
sögn Péturs Einarssonar leikhús-
stjóra verður haldið upp á afmæl-
ið þá en sjálf afmælisdagskráin
verður síðan næsta haust. Þá
kemur einnig út bók Haraldar
Sigurðssonar um sögu leiklistar á
Akureyri. ET
T
Klórþvegnar vinnubuxur.
Verð kr. 1.685.-
Kuldaúlpur á fullorðna.
Verð frá kr. 1.498.'
Barnapeysur. St. 4-8.
Verð frá kr. 516.-
Handklæði.
Verð frá kr. 198.-
Opið á laugardögum 9-12.
Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 • simi 22275
TOboð 30% aMáttur
30% afsláttur á herraullarstökkum
Takmarkað magn
Einnig tilboð á drengjabolum stærðir 8-16.
Verð frá kr. 890.-
SIMI
(96) 21400