Dagur - 16.09.1986, Síða 11
16. september 1986 - DAGUR - 11
Hestasport:
Gefur ferðafólki kost á að
fylgjast með göngum og réttum
I
Fyrirtækið Hestasport í Skaga-
firði sem annast hestaþjónustu
við ferðamenn auk þess að
skipuleggja iengri og styttri
ferðir á hestum, er nú að
brydda upp á þeirri nýjung að
gefa ferðafólki kost á að fylgj-
ast með göngum og réttum hér
á landi.
í ferð sem lagt verður í 16.
september og lýkur að kvöldi
þess 18. verður fylgst með göng-
um á Eyvindarstaðaheiði og rétt-
um í Stafnsrétt. Að sögn Magn-
úsar Sigmundssonar hjá Hesta-
sporti er þessi ferð skipulögð í
samráði við fjallskilastjórn Upp-
rekstrarfélags Eyvindarstaðaheið-
ar og kvaðst hann ekki vita til
þess að ferðafólki hefði verið gef-
inn kostur á að fylgjast með
göngum og réttum af hestbaki
Fró Stafnsrétt.
áður. Vart hefði verið við áhuga
ferðamanna fyrir slíkum ferðum
og bjóst Magnús við að þær ættu
framtíð fyrir sér. Þess má að lok-
um geta að enn er hægt að bæta
við fólki í þessa ferð. Upplýsing-
ar gefa Björn í síma 6020 og
Magnús í síma 6013. -þá
Fatasöfnun Rauða
krossins hafin
Vinnueftirlit ríkisins:
Gefur út
leiðbeininga-
bækling
- um lífræn leysiefni
Vinnueftirlit ríkisins hefur nýlega
gefið út leiðbeiningabækling og
veggspjald um lífræn leysiefni. I
bæklingnum er lögð áhersla á að
útskýra varasöm áhrif lífrænna
leysiefna á líkama og heilsu og
leiðbeina um hvernig hægt er að
varast þau. Á veggspjaldinu er
einnig lögð áhersla á aðvörun og
varúðarráðstafanir.
Helstu ástæður þess, að þetta
efni er gefið út og dreift á vinnu-
staði, eru þær að skaðleg heilsu-
farsáhrif lífrænna leysiefna eru
nú viðurkennd og hafa verið
rannsökuð og rædd um árabil er-
lendis. Efnin komast inn í líkam-
ann við innöndun og snertingu.
Sterk og langvarandi áhrif geta
valdið skemmdum á heila, tauga-
kerfi og fleiri líffærum. Slík áhrif
birtast í þreytu, sleni og
gleymsku - og stundum í höfuð-
verk og erfiðleikum við að ein-
beita sér.
Danska Vinnueftirlitið hefur
síðustu ár fengið yfir 1000 til-
kynningar árlega um meintar
heilaskemmdir á fólki sem hefur
unnið með lífræn leysiefni og þeir
skipta hundruðum þar í landi
sem fá staðfest á ári hverju að
þeir hafi hlotið heilsutjón af að
vinna með þau.
Vitað er að efnablöndur með
lífrænum leysiefnum eru notaðir
á mörgum vinnustöðum hér á
landi, s.s. við málun, lökkun,
límingu, litablöndun og við ýmiss
konar hreinsun og efnafram-
leiðslu og yfirborðsmeðferð á
framieiðsluvörum. Hins vegar
eru áhrif þeirra ekki nægilega
kunn hér á landi og varúðarráð-
stafanir víða í molum. Fyrirtæki
og félög iðnaðarmanna og verka-
fólks, sem efni bæklingsins og
veggspjaldsins varðar, fá hvort
tveggja sent næstu daga. Einnig
öryggistrúnaðarmenn og örygg-
isverðir í fyrirtækjunum.
Vinnueftirlit ríkisins veitir
leiðbeiningar um hvernig draga
má úr mengun andrúmslofts á
vinnustöðum og hollustuhátta-
deild stofnunarinnar annast
mengunarmælingar sé þess
óskað.
Fatasöfnun Rauða krossins er
hafin um allt land. Þegar hefur
mikið magn af fatnaði borist til
aðalstöðva félagsins í Reykjavík
og eins til margra deilda úti á
landsbyggðinni.
í fyrra efndi Rauði krossinrt
líka til fatasöfnunar og þá bárust
tæplega áttatíu lestir af mjög
góðum fatnaði, bæði á fullorðna
og börn. Fötin sem söfnuðust í
fyrra voru send til Afríkuríkja og
til Nicaragua eftir að búið var að
ganga þannig frá þeim að sam-
ræmist reglum sem Alþjóða-
rauðikrossinn setur, en það var
gert í Danmörku. Samvinna var
milli RKÍ og danska Rauða
krossins um flokkun og pökkun
fatnaðarins og eins flutninginn.
Undanfarnar vikur hafa félag-
ar úr Ferðafélagi Skagfirðinga
unnið að brúun Fossár á Hofs-
afrétti sem er mikill farartálmi
á leiðinni vestur að Ingólfs-
skála, skála ferðafélagsins.
Hefur undanfarnar vikur verið
unnið að byggingu sökkla und-
ir brúna. Brúin, stálbitabrú
með timburgólfi, sem verður
fær öllum bílum, var fengin hjá
Vegagerðinni en hún var áður
á Grjótá á Höfðaströnd. Verð-
Þetta kostar allt mikla vinnu og
talsvert fé. Þannig eru þau föt
sem send hafa verið á vegum
RKÍ metin á um þrjár milljónir
króna og bendir allt til að í ár
verði kostnaðurinn ekki minni.
Af hálfu félagsins hefur þess
ekki verið krafist að fólk legði
fram fé með fötum sem það gefur
en hitt má vera ljóst að með því
að gera það létta gefendur mjög
mikið undir og veita mikilsverð-
an stuðning um leið og tryggt er
að unnt verður að senda héðan
meira magn en annars væri hægt.
Áætlaður kostnaður við fata-
sendingar á vegum félagsins í ár
er um 50 krónur á hvert kíló-
gramm.
ur hún flutt í heilu lagi fram
eftir.
Að sögn Friðriks Jónssonar
stjórnarmanns í ferðafélaginu
vantar tilfinnanlega sjálfboðaliða
fremra til að hægt sé að ljúka
verkinu sem fyrst, en vonandi
yrði hægt að vígja brúna á næst-
unni. Hann kvað Fossá vera
jökulkvísl, sem léti lítið yfir sér á
þessum árstíma, en á vorin og
sumrin gæti hún verið skaðræðis-
fljót. „Hún vex ótrúlega hratt,“
sagði hann. -þá
Ingólfsskáli, skáli ferðafélagsins við vestanvert Lambahraun.
Mynd: Ingvar Sighvatsson.
Ferðafélag Skagafjarðar:
Vinnur að brúun Fossár
Æskulýðsráð Akureyrar óskar að ráða
umsjónarmann
í félagsmiðstöð Glerárskóla.
Um er að ræða 1/3 hluta starf í átta mánuði.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu æskulýðs-
ráðs sími 22722 eða Dynheimum, sími 22710.
Umsóknarfrestur er til 22. september nk.
Æskulýðsráð Akureyrar.
Síldarvinna
Maður vanur síldarvinnu óskast strax.
Niðursuðuverksm. K. Jónsson & Co hf.,
sími 21466.
Okkur vantar
bifvélavirkja og
rafvélavirkja
til starfa sem fyrst.
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut,
Akureyri, sími 22700.
Starfsfólk
Viljum ráða starfsfólk tii afgreiðslustarfa sem
fyrst. Hafið samband við eiganda, ekki í síma.
Verslunin Garðshorn,
Byggðavegi 114, Akureyri.
Bókari
Óskum eftir að ráða bókara í fullt starf.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra
og í afgreiðslu fjármáladeildar KEA.
Skriflegum umsóknum ber að skila tii starfs-
mannastjóra ekki síðar en 24. sept. nk.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða skrifstofumann, karl eða
konu.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra
og í afgreiðslu fjármáladeildar KEA.
Skriflegum umsóknum ber að skila til starfs-
mannastjóra fyrir 19. sept. nk.
Heilsdagsstarf.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Framsóknarfélag Húsavíkur
heldur almennan
félagsfund
fimmtudaginn 18. sept. kl. 20.30 í Garðari.
Dagskrá.
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Framboðsmál.
3. Bæjarmálefni.
4. Önnur mál.
Mætið vel og takið með ykkur nýja félaga
Framsóknarfélag Húsavíkur.