Dagur - 22.09.1986, Qupperneq 1
69. árgangur Akureyri, mánudagur 22. september 1986 176. tölublað
^ Skrifstofuhúsgögn,
skrifborð, tölvuborð.
prentaraborð, veggeiningar
og skifstofustólar
GÍSLI
J. JOHNSÉN SF.
GLERÁRGATA 20, AKUREYRI,S:(96)25004
Vatnsskortur
í Eyjafirði
- Margir lagt í vatnsveituframkvæmdir
„Það er farið að bera á vatns-
skorti á nokkrum bæjum hér í
kring og eru menn að gera
ráðstafanir með leit í fjallinu
hér fyrir ofan til að menn verði
ekki vatnslausir,“ sagði Þor-
steinn Ingólfsson bóndi í Gröf
Öngulsstaðarhreppi í Eyja-
firði.
Nokkuð hefur borið á vatns-
skorti í þessum hluta Eyjafjarðar
undanfarin ár. Sérstaklega er
þetta bundið þurrum sumrum og
haustum. Er nú svo komið að
góðir lækir eru þurrir og er því
farið að minnka verulega hjá
sumum bændum. Hafa þeir því
gripið til þess ráðs að fara út í
vatnsveituframkvæmdir sem í
flestum tilfellum hafa borið
nokkurn árangur.
áramót
„Þetta gengur allt samkvæmt
áætlun. Það á eftir að vinna
við brúna í svona þrjár vikur,
það er verið að steypa síðasta
bilið. Upp úr mánaðamótum
verður síðan hafist handa við
veginn vestan við brúna,“
sagði Franz Árnason fram-
kvæmdastjóri Norðurverks.
Norðurverk sér um það sem
eftir er af veginum að öðru leyti
en því að Vegagerð ríkisins sér
um lagningu bundins slitlags.
Franz sagði að ætlunin væri að
taka veginn í notkun strax upp
úr áramótum en sennilega yrði
hann þá aðeins með grófum
ofaníburði en þó vel ökufær.
Bundið slitlag sagði Franz að
yrði ekki lagt fyrr en næsta
sumar. ET
Þorsteinn sagði að á sínum bæ
væri verulega farið að draga úr
vatnsrennsli. Pess vegna hefði
verið nauðsyn að leggja vatns-
leiðslu sem verið væri að vinna
við núna. „Einnig höfum við yfir-
borðslæk sem hægt er að grípa til
ef allt annað þrýtur, svo ekki
þurfi að bera vatn í skepurnar.
En ég veit til þess að margir hafa
þurft að fara út í verulegar fram-
kvæmdir til að afla vatns fyrir bú
sín,“ sagði Þorsteinn. gej-
Sæplast hf. á Dalvík:
Híbýli fékk
verkefnið
„Það var ákveðið á stjórnar-
fundi fyrir skömmu að fela
Híbýli h/f á Akureyri byggingu
verksmiðjuhússins fyrir
Sæplast,“ sagði Pétur Reim-
arsson framkvæmdastjóri
Sæplasts á Dalvík, en það
fyrirtæki hyggst reisa nýtt
verksmiðjuhús undir starfsemi
sína.
Fjögur tilboð bárust í verkið
og var Híbýli með það lægsta,
eða 20 millj. 528 þúsund 646
krónur. Var tilboð Híbýlis 96,2%
af kostnaðarverði sem var 21
millj. 331 þús. 940 krónur. í
þessu verði felst nánast fullfrá-
gengið hús með frágenginni lóð
og bílastæðum.
Eftir að farið var yfir tilboðin
og þau reiknuð að nýju var tilboð
Híbýlis 20 millj. 728 þúsund
krónur. Næsta tilboð sem var frá
Tréveri og Tréverki var 1150 þús-
und krónum hærra. En það eru
fyrirtæki frá Dalvík og Ólafsfirði
sem buðu sameiginlega í verkið.
Voru uppi raddir þess efnis að
taka því tilboði þar sem æskilegt
væri að veita heimamönnum
það. „Mönnum þótti það of mikill
munur á tilboðum til að taka ekki
því lægsta,“ sagði Pétur.
Samkvæmt samningi á Híbýli
að skila húsinu um miðjan júní á
næsta ári. gej-
Leiruvegur
ökufær um
Písladagur VMA var á föstudaginn með miklum Loðaföllum
Ferskleikabónusinn:
„Merkari nyjung en
frjálst loönuverö
- segir Geir Zoéga hjá Krossanesi
Nú er vika liðin frá því loðnu-
verð var gefið frjálst og sýnist
sitt hverjum um þá lækkun
sem orðið hefur. Sjómönnum
finnst það mörgum einkenni-
legt að víðast hvar er verðið
hið sama 1750 kr. Krossanes-
verksmiðjan sker sig þó nokk-
uð úr og býður 1600 kr. en auk
þess svokallaðan ferskleika-
bónus sem hækkar verðið á
tonninu í 1760 kr. Kristján
Ragnarsson, formaður LIÚ,
segir það dæmafátt að full-
komnasta verksmiðjan sem
fær hæsta verð fyrir framleiðsl-
una borgi lægsta verðið og
ákvæðið um ferskleikabónus-
inn sé illskiljanlegt.
Geir Zoéga framkvæmdastjóri
Krossanesverksmiðjunnar sagði í
samtali við blaðið að það hefði
ekki verið neinn hörgull á ioðnu
til verksmiðjunnar og yfirleitt
væri það góð loðna sem þeir
fengju.
Það er fráleitt að við borgum
lægsta verðið því við borgum ívið
hærra en aðrir, ef við fáum ferska
og góða loðnu. Lélegri loðnan er
að sjálfsögðu miklu verðminna
hráefni fyrir okkur og ég treysti
mér ekki til að borga meira en
1600 kr. fyrir það. Ef ekki líður
allt of langur tími milli veiða og
löndunar og menn þrífa skipin þá
á ekki að vera neitt mál að koma
að landi með gæðahráefni. Þeir
sem vita upp á sig eitthvað eru þá
ekkert að koma til okkar heldur
fara eitthvað annað. Sum skip
koma alltaf með skemmt hráefni
að landi.
Ég vil meina að það að farið sé
að tala um gæðamat á bræðslu-
fiski sé miklu merkari nýjung en
að vera með frjálst verð. Enda
erum við þeir einu sem tökum
sjálfstæða ákvörðun um þetta,
hinir fylgja bara Síldarverksmiðj-
um ríkisins," sagði Geir að
lokum. Sjá nánar á bls. 3. ET
Ólæti við
Ljósvetningabúð
Á laugardagskvöld var haldinn I ar og fólks sem reyndi að hindra
dansleikur í Ljósvetningabúð.
Rúmlega 100 manns sóttu
dansleikinn. Ólæti og átök
urðu utan við húsið meðan á
dansleiknum stóð og voru unn-
ar skemmdir á lögreglubifreið
frá Húsavík. Upptök ólátanna
voru þau að maður sem varð
valdur að skemmdarverki inn-
an dyra var færður út úr húsinu
af dyravörðum og afhentur
lögreglu.
Til átaka kom milli lögreglunn-
að maðurinn væri fluttur í lög-
reglubílinn. Talsverðar skemmd-
ir voru unnar á bifreiðinni m.a.
sparkað í hliðar hennar, ljós
brotið, hurð skekkt og mun við-
gerð kosta einhverja tugi þús-
unda að sögn lögreglunnar. Fjór-
ir menn voru handteknir vegna
þessa máls við Ljósvetningabúð
og einn á Húsavík síðar um nótt-
ina. Alls gistu því fimm manns
fangageymslu lögreglunnar.
IM/SS
Ólafur bekkur ÓF-2:
Hundrað milljón kr. „klössun1
„Vænlegri kostur en að kaupa nýtt skip,“ segir Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri
„Allir hluthafar í félaginu
heimiluðu stjórn Útgerðarfé-
lags Ólafsfjarðar að auka
hiutafé félagsins um 12 millj-
ónir króna. Að aukningu
standa Bæjarsjóður Ólafs-
fjarðar, Hraðfrystihús Ólafs-
ijaröar og Magnús Gamalíels-
son,“ sagði Valtýr Sigurbjarn-
arson bæjarstjóri í Olafsfirði.
Upphaflega var áætlað að bær-
inn yki sitt hlutafé um 4 milljónir,
en nýtir sér aukningu upp á 2
milljónir. Hraðfrystihúsið og
Magnús Gamalíelsson auka sitt
hlutafé um 5 milljónir hvor aðili.
Með þessari aukningu á hluta-
fé breytast eignahlutföll í félag-
inu nokkuð, þar sem eignarhlutar
skipust í 3 jafna hluta áður.
Félagið á togarann Ólaf bekk
sem gerður hefur verið út frá
Ólafsfirði undanfarin ár. Ólafur
bekkur er einn af japönsku tog-
urunum svokölluðu og er kominn
nokkuð til ára sinna og þarf því
að endurnýja hann. Er það talinn
mun vænlegri kostur en byggja
nýtt skip. Til þess að lánardrottn-
ar opni ábyrgðir fyrir fram-
kvæmdunum fóru þeir fram á
hlutafjáraukningu í félaginu.
Valtýr sagði að fyrirhugaðar
væru miklar breytingar á Ólafi
bekk. „Skipta þarf um vél, taka
upp spil, lengja skipið og endur-
nýja allan búnað. Þetta verður
sem nýtt skip á eftir,“ sagði
Valtýr. Kostnaður við breyting-
arnar er áætlaður um 100 millj-
ónir króna. gej-