Dagur - 22.09.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 22. september 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavlk vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðan_______________________________
Fiskveiðistjórnunin
hefur reynst vel
Eins og áður hefur verið bent á eru efnahagshorf-
urnar hér á landi mun betri en fyrri spár gerðu ráð
fyrir. Hagvöxtur verður töluvert meiri og megin-
ástæðan er aukinn afli og aukin framleiðsla sjáv-
arafurða. Meginskýringin á minnkandi viðskipta-
halla er mun meiri aukning útflutningsverðmætis
sjávarafurða en áður var gert ráð fyrir. Hagur botn-
fiskútgerðar er góður og betri en um langt árabil
og þar veldur mestu aukinn afli án þess að veiði-
skipum hafi fjölgað.
í raun ber flest að sama brunni, þegar leitað er
skýringa á því hvers vegna efnahagshorfurnar eru
betri nú en áður. Miðin við ísland hafa verið óvenju
gjöful, en það eitt segir ekki alla söguna. Á undan-
förnum áratugum hafa íslendingar sífellt veitt
meira og meira og notað við það stærri, fullkomnari
og dýrari flota. Að því kom að miðin þoldu ekki
ásóknina, en hin mikla og dýra fjárfesting var eftir
sem áður til staðar. Því varð að grípa í taumana.
Það var m.a. gert með þeim hætti sem áður hefur
ekki þekkst hér á landi. Settur var kvóti á afla-
brögðin. Fram að þeim tíma hafði aðgangur að
þessari auðlind sem sjórinn umhverfis landið er
verið frjáls öllum þeim sem hafa vildu. En fleira var
gert. Settar voru hömlur á fjölgun veiðiskipa og
stækkun flotans.
Nú hefur kvótakerfið á ný verið til umræðu.
Ráðuneyti, hagsmunaaðilar í sjávarútvegi og sjáv-
arútvegsnefndir Alþingis hafa orðið ásátt um að
framlengja lögin óbreytt til ársloka 1987. Sjávarút-
vegsráðherra telur þó að reynslan af núverandi
fiskveiðistjórn sé það góð að ástæða sé til þess að
framlengja meginatriði lagaákvæðanna til ársloka
1990.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hef-
ur mikið til síns máls. Reynslan af því kerfi sem
hann kom upp og náði allvíðtækri samstöðu um,
þrátt fyrir töluverða andstöðu í upphafi, hefur
reynst ákaflega vel og við erum m.a. að sjá þess
merki í batnandi efnahag þjóðarinnar. „Aðalatriðið
er að festa þarf fiskveiðistjórnunina í sessi með
ákveðnum hætti þannig að höfð sé stjórn á flotan-
um miðað við afrakstur fiskistofnanna. Ég tel að
ekki hafi komið fram neinar tillögur ennþá sem
geti leyst þetta kerfi í meginatriðum af hólmi. Ég
tel mikilvægt að hagsmunasamtök og aðrir fjalli
um það í tíma með hvaða hætti fiskveiðistjórnunin
verði í framtíðinni og að um það sé vitað nokkur ár
fram í tímann,“ segir Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, og undir það skal tekið. Þær ráð-
stafanir sem hann hefur þegar gripið til hafa
reynst ákaflega vel og stjórn hans á sjávarútvegs-
málunum hefur verið örugg og farsæl. HS
-viðtal dagsins_____________________
„Öflugri skákmenn
og breiddin meiri“
- Spjallað við Gylfa Þórhallsson skákmann,
formann Skákfélags Akureyrar og vegagerðarmann
Gylfi Þórhallsson skákmaður,
formaður Skákfélags Akureyr-
ar og vegagerðarmaður var
numinn brott af þjóðveginum
og drifinn í viðtal dagsins. Þar
sem lagning slitlags lá að mestu
leyti niðri eftir brotthvarf hans
lofaði ég að rekja úr honum
garnirnar á methraða svo verk-
ið gæti haldið áfram. Að þjóð-
legum sið spurði ég fyrst um
fæðingarstað og stund.
„Já, þú segir nokkuð. Ég er
fæddur 23. maí 1954 hér í bæ og
uppalinn í Innbænum. Hef reynd-
ar átt þar heima alla tíð og kunn-
að ágætlega við það.“
- Eins og skákmenn eru alltaf
spurðir: Hvenær byrjaðir þú að
tefla?
„Það er nú ekki gott að segja
um það. Jú, ætli ég hafi ekki byrj-
að á svipuðum tíma og ég byrjaði
í skóla, svona um 7 ára gamall.
En það var ekkert að ráði sem
maður tefldi fyrr en ég var 15-16
ára. Þá fékk ég bakteríuna fyrir
alvöru.“
- Hvernig var skáklífið í bæn-
um þá?
„Það var komið nokkuð gott
unglingastarf. Það var haldið
námskeið í Gagnfræðaskólanum
þegar ég var þar og var hann
Júlíus Bogason með það. Hann
var mikill og ötull skákmaður hér
á Akureyri, fremsti skákmaður
okkar í áraraðir. Hann vann þar
gott starf og það voru margir sem
héldu áfram í skákinni eftir nám-
skeiðið hjá honum. Ég gekk í
Skákfélag Akureyrar á þessum
tíma, upp úr 1970. Þá var þó
nokkur gróska í skáklífinu, skák-
félagið var starfrækt í Lands-
bankahúsinu."
- Hefur norðlenskum skák-
mönnum farið aftur síðan þá?
„Nei, þvert á móti. Þeim hefur
frekar farið fram. Þetta eru
öflugari skákmenn nú og breidd-
in miklu meiri. Á síðustu árum
hefur styrkleikinn dreifst niður á
breiðari aldurshóp. Menn voru
yfirleitt orðnir vel fullorðnir þeg-
ar þeir voru hvað sterkastir."
- Nú eigum við hvorki stór-
meistara né alþjóðlegan hér fyrir
norðan?
„Nei, að vísu ekki. Það er nú
svona. En Áskell Örn Kárason
fékk sinn fyrsta áfanga að FIDE
meistaratitli á alþjóðlega mótinu
á Húsavík. Pálmi Pétursson var
bara nokkrum stigum frá fyrsta
áfanga á Reykjavíkurskákmótinu
1984. Nú, Jón Garðar Viðarsson
tók þátt í tveimur alþjóðlegum
mótum í London í ágúst og stóð
sig mjög vel og vantaði aðeins
einn vinning í seinna mótinu til
að hljóta fyrsta áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli. Við vorum
einmitt að fylgjast með einvígi
Karpovs og Kasparovs í London
og var mjög gaman.“
- Er það aðstöðuleysi og bú-
seta sem hefur háð skákmönnum
okkar?
„Já, það hefur mikið að segja.
Hér tefla menn yfirleitt bara
svona innanbæjar, oftast við
sömu menn og þegar maður
kemst á toppinn hér þá kemst
maður ekkert lengra nema að
fara suður eða út. Hér staðnæm-
ast menn bara. Það fóru þrír af
okkar sterkari skákmönnum suð-
ur í fyrra, þeir Jón Garðar,
Áskell og Pálmi. Þeir hafa teflt
I
Þungt hugsi. Gylfi Þórhallsson að tafli.
mikið og bætt sig, sérstaklega Jón
Garðar sem var íslandsmeistari í
áskorendaflokki.“
- Bindið þið miklar vonir við
nýtt húsnæði skákfélagsins?
„Já, aðstaðan er fyrir öllu. í
húsnæði okkar að Þingvallastræti
18 hafa menn aðgang að töflum
og bókum. Við ætlum að hafa
námskeið fyrir unglinga á laugar-
dögum í vetur og skákmót verða
haldin reglulega. í október verð-
ur haustmót, þá fara menn að
undirbúa sig fyrir deildakeppnina
í Reykjavík. Þangað sendum við
tvö lið, eitt í 1. deild og unglinga-
sveit í 3. deild, en hana ætlum
við að vinna."
- Ég sá í Degi nýlega að þú
vilt ekki halda hér mót í sam-
vinnu við Jóhann Þóri Jónsson
hjá tímaritinu Skák. Ertu kom-
inn upp á kant við hann?
„Já, við höfum verið á önd-
verðum meiði undanfarin ár. Við
viljum ekkert fá hann norður og
svo er líka um fleiri skákfélög á
landsbyggðinni. Okkur finnst
miklu öruggara að halda skákmót
í samvinnu við Skáksamband
íslands. Maður veit aldrei hvar
maður hefur Jóhann Þóri.“
- Ég er áhugamaður um góða
vegi og veit að þú hefur verið að
leggja bundið slitlag um landið
síðan sumarið 1981. Geturðu
sagt mönnum frá þeirri athöfn?
„Ho, ho. Þú ættir nú að kann-
ast við starfið. Jæja, en þannig er
að eftir að búið er að mæla og
byggja vegina upp, setja burðar-
lag og jöfnunarlag og víbra vel
með valtara, þá er tjöru sprautað
á vegarkafla og möl dreift yfir
með þar til gerðum tækjum. Síð-
an þrýstir valtari mölinni niður í
tjöruna og bílarnir sjá svo um
afganginn, þjappa slitlagið og
loks er umfram möl sópað í
burtu. Þá er lagt annað lag ofan á
og athöfnin endurtekin.“
- Eru bílstjórar nógu tillits-
samir?
„Nei, alls ekki. Þeir aka of
hratt á nýlagðri klæðningunni og
þeyta mölinni í burtu áður en
hún nær að þjappast almenni-
lega. Sumir aka meira að segja
eins og vitlausir á meðan við
erum að vinna og skapast af því
stórhætta. Bílstjórar virða sjald-
an varúðarskiltin og eina ráðið
hefur verið að lögreglan sé með
radarmælingar á svæðinu. Það
verður að breyta lögum, setja
upp hraðahindranir eða eitthvað
í þeim dúr.“
- Hvar hafið þið verið í
sumar?
„Við höfum verið mikið á
Austurlandi, frá Bakkafirði suð-
ur að Breiðdalsvík, einnig á
Norð-Austurlandi og í Húna-
vatnssýslu. Ætli við höfum ekki
lagt eitthvað um 100 kílómetra í
sumar."
- Er ekki gaman að flakka um
landið og leggja góða vegi?
„Jú, það getur margt skemmti-
legt skeð og maður kynnist
mörgu."
- Ertu hættur að tefla Gylfi?
„Nei, það gengur illa að
minnka við sig. Þó er ég kominn
meira í félagsstarfið, hlúa að
yngri skákmönnum og gera
starfsemina markvissari og ná til
fleiri. Það má koma fram að við
verðum með opið hús á fimmtu-
dagskvöldum í vetur og menn
hvattir til að mæta.“
Jæja Gylfi, ég ætla ekki að
stöðva vegaframkvæmdir lengur
og þakka þér fyrir samtalið. SS