Dagur - 22.09.1986, Síða 9
22. september 1986 - DAGUR - 9
Niðri í einum göngunum
stendur Illias með plasthjálm
ofan á túrbaninum. Hann er að
mæla geislunina með geigertelj-
ara. Niðri í þessum bræðsluofni,
þar sem hitinn er 50 stig á Cels-
ius, verður honum hugsað til
Timia, litla sveitaþorpsins síns í
miðju Air, með rennandi vatni
og pálmalundum. í raðhúsinu í
verkamannahverfinu hefur Illias
hvorki loftkælingu né önnur þau
þægindi, sem finnast í franska
hlutanum. En það er þó ekki það
sorglegasta við pappabæinn, sem
byggður hefur verið utan við evr-
ópska bæjarhlutann.
Inni í litlum garðinum situr
kona Illiasar og leikur við lítinn
kiðling. Hún tók hann með sér
frá Timia, segir Illias. Það eru
einu tengslin, sem þessi unga
kona hefur við fyrra líf sitt, þegar
hún gætti geita í fjólubláum
fjöllunum.
Flestir tuaregarnir vinna að-
eins tímabundið í einu í Arlit, en
öfugt við aðra íbúa Niger ganga
samskipti þeirra við hvítu yfir-
mennina vei. En þar á móti hefur
gamla viðhorfið til svertingjanna
blossað upp:
- „Ég get ekki unað því lengur
að láta hausa-fólkið segja mér
fyrir verkum. Ég vil láta sýna mér
virðingu. Ég held, að ég fari til
Líbýu, því að Gadhafi hefur lof-
að að hjálpa okkur gegn stjórn-
inni,“ segir Illias.
Hinn gamli draumur Gadhafis
um Bandaríki Sahels leynist enn
með mörgum tuaregum, sem
ekki geta fellt sig við vestræna
nútímastjórnarhætti Niger.
Marga þeirra er að finna í æfinga-
búðum hersins í Líbýu.
Þurrkurinn eyðileggur
hátíðarnar
Á heitum síðsumardegi berst
skerandi óp um loftið. 50 ljósleit
kameldýr taka á sprett og rykský
þyrlast upp. Stóru, dökku bou-
bou-arnir blakta í vindunum, og
þegar kameldýrin teygja úr öllum
fótum á sprettinum, er það líkast
því að þau dansi tango. í tíu
kílómetra fjarlægð nálgast tveir
keppinautar markið. 14 ára
drengur með rakaðan hvirfilinn
og hárvöndul, sem sveiflást út frá
hnakkanum, vinnur og tekur við
verðlaununum úr hendi héraðs-
stjórans í Agadez: 100.000
cfa-frönkum, eða sem svarar 12
þúsund íslenskum krónum.
Á hverju ári var þessa kamel-
dýrahlaups beðið með eftirvænt-
ingu. Það var einn markverðaðsti
viðburðurinn á þeim tíma, þegar
tuaregarnir söfnuðust saman og
héldu í suðvesturátt til að koma
dýrum sínum á beit á selturíkum
svæðum að haustinu.
Fyrir ríkisstjórnina var þessi
hefðbundna samkoma heppilegt
tækifæri til að telja þetta fólk,
sem alltaf var á hreyfingu og
erfitt að henda reiður á. Þeir
fengu líka tuaregana til að bólu-
setja dýr sín. Fulltrúar stjórnar-
innar komu vingjarnlega fram við
þessi tækifæri, létu í ljósi áhuga,
deildu út gjöfum - og fengu sjálf-
ir nokkra dýrshausa í staðinn.
Þannig var þetta allt til ársins
1983. En 1984 varð að hætta
þessum „salthátíðum“, vegna
þurrksins.
Þegar maður sér það samsafn
af lítilfjörlegum, gegnþurrum
jurtum, sem tuaregarnir bjóða
dýrum sínum, birtist hryggðar-
mynd af því hve alvarlegt áfall
hér hefur átt sér stað.
Til þess að gera skammt
undan, við Mammamet, hafa
eyðimerkurbúarnir endur fyrir
löngu notað klettafletina líkt og
teikniblokkir. Meira en fimm
þúsund myndir, sem greina frá
lífinu á þeim tíma, hafa verið
skráðar. Nógur efniviður til að
láta sig dreyma um þá tíma þegar
Sahara var græn.
(Illustrerct Videnskab 6/86. - Þýð. Þ.J.)
j, Minning
T Lára Pálsdóltir
Fædd 13.3.1912 - Dáin 24.8.1986
Mig setti hljóða einn fagran
sunnudagsmorgun seint í ágúst-
mánuði, amma var dáin. Aldrei
fyrr hafði verið svo erfitt að horf-
ast í augu við staðreyndir, en
svona er lífið. Amma hafði verið
mér sem móðir í þau tæpu tutt-
ugu ár sem við áttum saman.
Þetta voru yndisleg ár sem ég
mun aldrei gleyma og ég mun
búa að þeim ævilangt því amma
kenndi mér margt og miðlaði
gamalli reynslu sinni á svo marg-
an hátt.
Það var alltaf sól í kringum
ömmu, hún var glaðleg, yndisleg
og hlýleg. Alltaf var gott að
koma í Oddeyrargötuna þar sem
amma og afi stóðu á stigapallin-
um og tóku á móti mér og öllum
sem þangað komu með hlýjum
opnum örmum. Alltaf áttu þau
tíma fyrir okkur. Ég mun aldrei
geta fullþakkað þennan tíma sem
við áttum saman.
Það yndislegasta sem lítil börn
sem stór geta átt eru stundir með
ömmu og afa, þær eru eins og
dýrmætur fjársjóður.
Elsku afi minn þetta eru erfiðir
tímar núna en verum sterk. Ég
og litla systir mín viljum þakka
ömmu fyrir allt sem hún gerði
fyrir okkur. Við geymum yndis-
legar minningar í hjörtum okkar.
Guð geymi elsku ömmu...
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Þín Fríða.
Skotveiðimenn
Tvíhleyptar haglabyssur
átta gerðir. Verð frá kr. 22.900,00
Pumpur
tvær gerðir. Verð frá kr. 39.140,00
Einhleypur
tvær gerðir. Verð frá kr. 7.150,00
Haglaskot í flestum gerðum. Riffilskot cal
22,22 magnum, 22 hornet, 222,22-250, og
243 einnig haglaskot í cal 22
Komið og skoðið Sjón er sögu ríkari
ÍBI Eyfjörð
Hjateyrargöhi 4 ■ simi 22275
SAI þýðuf lokksfélag
Akureyrar
heldur aðalfund fimmtudaginn 25. september nk.
í Strandgötu 9, kl. 20.30. ~
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga.
Aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Útboð - Raflagnir
ístess hf., Glerárgötu 30, Akureyri óskar eftir til-
boðum í raflagnir í fóðurverksmiðju sem verið er
að byggja í Krossanesi.
Útboðsgögn verða afhent hjá Raftákni hf., Glerár-
götu 34, Akureyri frá kl. 14.00 þriðjudaginn 23. sept.
nk. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 3.
okt. nk. kl. 11.00 fyrir hádegi.
Glerárgata30
600 Akureyri
Island
® (9)6-26255
Raðhús ti! sölu
át hæð vlð Múlasíðu 30-38
Verð 2.250.000.
íbúðirnar seljast fokheldar.
Bílastæði malbikuð, húsið frágengið að utan
Furuvöllum 5
Akureyri
LGEm^VIDAR
H
GGINGAVERKTAKAR
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SIMI 26844
Allir í sólina
í vetur
Kanarí- og Madeirabæklingarnir komnir.
Bókanir í fullum gangi - Frábært verð.
FERÐASKRIFSTOFA
AKURFYRAR
RÁBHÚSTORGI 3 ■ SÍMI 25000.
Bílakaup
Áætlað er að kaupa um 120 bíla fyrir ríkisstofnanir
árið 1987. Lýsingu á stærðum og útbúnaði bílanna
er að fá á skrifstofu vorri og þurfa þeir bifreiðainnflytj-
endur, sem vilja bjóða bíla sína að senda verðtilboð
og aðrar upplýsingar til skrifstofunnar fyrir 24. októ-
ber nk.