Dagur - 22.09.1986, Síða 11
22. september 1986 - DAGUR - 11
Athugasemd
- við yfirlýsingu
Gunnar Sólnes lögfræðingur
birti yfirlýsingu í Degi síðast-
liðinn föstudag vegna skrifa
undirritaðs um bæjarþingsmál-
ið nr. 131/1981: Rúnar Þór
Bjömsson gegn Rúnari Gunn-
arssyni, Baldri EUertssyni og
H-100.
Það gleður mig að Gunnar
Sólnes skyldi láta eitthvað frá
sér fara um mál þetta en ég vil
þó gera nokkrar athugasemdir
við yfirlýsingu hans.
í yfirlýsingu sinni tíundar hann
helstu málavexti og eru þeir í öll-
um atriðum þeir sömu og í grein
þeirri sem ég skrífaði um málið.
Þar kemur ekkert það fram sem
ekki var í grein minni né heldur
sýnir Gunnar fram á að ég hafi
mistúlkað eða rangfært einstök
atriði.
Engu að síður fullyrðir Gunnar
í lok yfirlýsingar sinnar að undir-
ritaður „hafi ekki talað við neina
þá aðila sem hafa undir höndum
upplýsingar um þetta mál, því
fyrir utan órökstuddar dylgjur og
fleipur þá virðist umrædd blaða-
grein skrifuð af slíkri vanþekk-
ingu að með eindæmum er.“
Ég skal viðurkenna að ég er
ekki löglærður maður og skrifa
þar af leiðandi um málið af minni
þekkingu en Gunnar Sólnes. Við
samningu umræddrar blaðagrein-
ar kynnti ég mér þó alla málavöx-
tu ítarlega og hafði samband við
fjölmarga aðila sem málinu
tengjast; að öðrum kosti hefði ég
varla borið gæfu til að skýra rétt
frá atburðarásinni.
Mér finnst það síst í anda lög-
fræðinga að tala um „fleipur,
órökstuddar dylgjur" og fleira,
án þess að styðja þær fullyrðingar
rökum. Ég vísa þeim því alfarið
til föðurhúsanna.
Sú staðreynd stendur eftir að
lögfræðingur Lögmannafélagsins
hefur lagt fram fjárnámsbeiðni í
H-100 vegna þessa máls. Ef víð-
feðmi þess umboðs, sem Magnús
Þórðarson lögfræðingur hafði frá
skjólstæðingi sínum, væri óvé-
fengjanlegt, hefði Lögmanna-
félagið væntanlega ekki farið
þessa leið, heldur kosið að reiða
fram veskið og greiða úr Ábyrgð-
arsjóði Lögmannafélagsins. Sá er
mergurinn málsins.
Akureyri 19. september 1986.
Bragi V. Bergmann,
ritstjórnarfulltrúi.
Borgarbíó
Karatemeistarinn
The Karate Kid part II.
mánudag kl. 6
Ath. Myndin Karatemeistarinn
verður ekki sýnd á 9 sýningu
„Beverly Hills“
mánudag kl. 9
Miðapantanir og upplýsingar f
sfmsvara 23500.
Utanbæjarfólk sími 22600.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Áshlíð 7, Akureyri, þingl. eign Friðriks
Friðrikssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar hdl. og
Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26.
sept. 1986 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Glerárgötu 34, vörugeymslu á baklóð, A-
hl„ Akureyri, þingl. eign Kjartans Bragasonar, fer fram eftir
kröfu Steingríms Þormóðssonar hdl., Verslunarbanka íslands,
Útvegsbanka Islands og Bæjarsjóðs Akureyrar, á eigninni
sjálfri föstudaginn 26. sept. 1986 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986,
á fasteigninni Grenilundi 15, Akureyri, þingl. eign Hauks Þórs
Adólfssonar, fer fram efti kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á
eigninni sjálfri föstudaginn 26. sept. 1986 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Gaddfreðið í
Frigor
Góðan mat þarf að geyma vel. Ef fjölskyldan á frystikistu
getur hún gert hagkvæm matarinnkaup. En það er líka
hagkvæmni að velja Frigor, ekki aðeins vegna hins lága
verðs, heldur einnig þar sem Frigor hefur með áralangri
reynslu hér á landi sýnt og sannað ágæti sitt.
tæknileqafíu.pplýsing'ar
Hæö
Breidd
B 200 B
B 380 B 460
SIMI
(96)21400
uciim u9
glervörudeild
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 110. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 og 11. og
15. tbl. 1985 á fasteigninni Tungusíðu 2, Akureyri, þingl. eign
Bernharðs Steingrímssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar
Landsbanka (slands, bæjargjaldkerans á Akureyri, Bruna-
bótafélags íslands, Hreins Pálssonar hdl. og Ævars Guð-
mundssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. sept. 1986
kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Hallgilsstöðum, Arnarneshreppi, þingl. eign
Skúla Torfasonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og
Búnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 26. sept.
1986 kl. 17.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 45. og 48. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Óseyri 16, Akureyri, þingl. eign Varar hf„ fer
fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. sept. 1986 kl.
16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 107. og 108. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985, á fasteigninni Strandgötu 19, e.h. Akureyri, talinni eign
Ólafs Hilmarssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands-
banka íslands, Jóns Kr. Sólnes hrl„ Gunnars Sólnes hrl. og
Bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn 26. sept.
1986 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Strandgötu 19, neðri hæð, Akureyri, þingl.
eign Videó-Akureyri sf. fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á
Akureyri og Guðjóns Á. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri föstu-
daginn 26. sept. 1986 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Bókhald -
Tölvuvinnsla
Við auglýsum eftir starfsmanni í hálft starf til
bókhaldsstarfa og tölvuvinnslu.
Reynsla í bókhaldi nauðsynleg.
Upplýsingar veittar í síma 23811.
___Endurskoðunarstofan
TORG h.f.
Ráðhústorg3, 600Akureyri
sími 23811
Atvinna
Vantar nokkrar konur til starfa nú þegar eða
seinna, mikil vinna, bónus.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
K.Jónsson og Co h.f.,
Niðursuðuverksmiðja.