Dagur - 22.09.1986, Side 12
Istess:
Framkvæmdum
miðar vel áfram
mjölskemmu og verið er að
steypa grunn undir starfs-
mannaaðstöðu“ sagði Guð-
mundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri ístess um fram-
kvæmdir fyrirtækisins í
Krossanesi.
Guðmundur sagði að fljótlega
væri von á mönnum heim úr
starfsþjálfun í Noregi. Hann
sagði að ekki væri búið að ganga
frá ráðningum en starfsmenn
yrðu 10-15 til að byrja með. Búið
er að kaupa allar vélar og er von
á næstu sendingu nú á næstu
dögum. Stýribúnaður er keyptur
frá Philips en rafhönnunin er öll
unnin hjá Raftákni á Akureyri.
Áætlað er að ístess hefji fram-
leiðslu strax í byrjun næsta árs en
fram að þessu hefur fyrirtækið
aðeins selt framleiðslu fyrir
Skretting a/s í Noregi sem á 46%
hlutafjár í ístess. „Við erum með
þessu búnir að byggja upp tals-
vert viðskiptanet sem við komum
síðan til með að nota fyrir okkar
framleiðslu. Þessi verksmiðja hér
kemur til með að framleiða að-
eins eina gerð fóðurs, svokallað
þanið fóður, en við komum til
með að flytja aðrar gerðir inn
áfram frá Noregi. Það er auðvit-
að ekkert sjálfgefið í þessu frekar
en öðru og auðvitað verðum við
að bera fyllstu virðingu fyrir okk-
ar keppinautum en ég held að við
séum ekki með neina vanmeta-
kennd“ sagði Guðmundur Stef-
ánsson að lokum. ET
band og skrá á nýjan leik. Nú
skrifa starfsmenn blaðsins á þess-
um stöðum allan sinn texta beint
inn á tölvu, rétt eins og blaða-
mennirnir á ritstjórn á Akureyri,
og senda tölvutextann síðan
beina leið með aðstoð aukatækis
við síma inn í sérstaka tölvu í
setningardeild Dagsprents. Þetta
tekur ekki nema örskotsstund og
geysimikill vinnusparnaður er af
þessari nýju tækni, auk þess
öryggis sem skapast.
Þetta er góður og gleðilegur
áfangi í starfsemi blaðsins, nú
þegar Dagur er senn eins árs sem
dagblað, en til dagblaðsins var
stofnað 26. september á síðasta
ári. HS
Það þurfti mikið að læra á stuttum tíma er blaðamenn Dags utan Akureyrar
komu til að læra á tölvurnar. Frá vinstri eru Ingibjörg Magnúsdóttir á Húsa-
vík, Gestur Kristinsson á Blönduósi og Þórhallur Asmundsson á Sauðár-
króki. Aftan við hann er Kristinn Kristinsson starfsmaður ACO sem sá um
kennsluna. Mynd: -gej
Fyrir helgina voru blaðamenn
Dags frá Blönduósi, Sauðár-
króki og Húsavík á námskeiði
á ritstjórn blaðsins á Akureyri,
þar sem þeir lærðu að með-
höndla tölvur og tilheyrandi
sendibúnað. Þessi tæki gera
blaðamönnunum á þessum
stöðum kleift að komast í beint
samband við móðurtölvu á rit-
stjórn blaðsins á Akureyri.
Með tilkomu þessarar tölvu-
tengingar er ekki lengur þörf á
því að senda fréttir, greinar og
annað efni með áætlunarbifreið-
um eða í gegn um síma, sem
starfsmenn á ritstjórn hafa til
þessa þurft að taka niður á segul-
Nýja verksmiðjan í Krossanesi.
Mynd: RÞB
Kartöflur í Eyjafirði:
Mikil uppskera og
góðar kartöflur
„Ég held að óhætt sé að segja
að kartöfluuppskeran sé góð í
ár og eru kartöflur mjög
góðar,“ sagði Þorsteinn Ing-
ólfsson bóndi í Gröf í Eyjafirði
er hann var spurður um upp-
skeruhorfur.
Hann sagði að uppskera væri
nokkuð misjöfn eftir görðum.
„Til dæmis er ég með sandgarð
að hluta og er ekki eins gott upp
úr honum og moldargörðunum.
Það er allt upp í tuttuguföid upp-
skera úr moldinni. Ég tel að um
fimmtánfalt sé meðaluppskera,“
sagði Þorsteinn. Hann taldi að
bændur væru almennt ánægðir
með uppskeruna og væri þurr-
viðri í sumar að þakka þessi góða
uppskera.
„Ég tel að aðalvandamálið sé
að losna við kartöflurnar. Það er
því mjög mikilvægt að kartöflu-
verksmiðjan á Svalbarðseyri fari
sem fyrst í gang,“ sagði Þor-
steinn.
Sömu sögu var að fá úr Höfða-
hverfinu, en þar er einnig mjög
góð uppskera. Bændur þar eru að
flýta sér við upptökuna því haust-
verkin í búskapnum, auk kart-
öfluupptökunnar eru að ná
hámarki. gej-
Dagur:
Ritstjórnin
tölvutengd
- milli Blönduóss, Sauðárkróks,
Húsavíkur og Akureyrar
„Byggingarframkvæmdum
miðar vel og verið er að reisa á
fullu. Það er vinnuflokkur frá
hollensku framleiðendunum
sem er að setja upp vélarnar og
fljótlega verður farið að klæða
stálgrindina. Þessu á að vera
lokið fyrir jól. Einnig er búið
að steypa undirstöður undir
Hrísey:
Atvinnu-
ástand
gott
„Atvinnuástand í eyjunni hef-
ur verið mjög gott það sem af
er. Það er búin að vera vinna
allt árið og mjög mikil vinna
lengst af. Aflabrögð hafa verið
góð hjá þeim sem lengra sækja
og í sumar hefur verið töluvert
af aðkomufólki hér í vinnu“
sagði Guðjón Björnsson sveit-
arstjóri í Hrísey.
í Hrísey búa um 300 manns og
starfa flestir viö útgerð. Þó sagði
Guðjón að um 50 manns hefðu
atvinnu af öðru en útgerðinni.
„Á fyrstu átta mánuðum þessa
árs hafa ferðast tæplega þrjátíu
þúsund manns með ferjunni en
allt árið í fyrra voru það 33
þúsund. Það er töluverður ferða-
mannastraumur út í eyjuna. Á
þessum sama tíma hafa verið
flutt rúm 1700 tonn af vörum og
aukningin á vöruflutningum frá í
fyrra er um 1,5 tonn á dag,“
sagði Guðjón um rekstur Hrís-
eyjarferjunnar. Reksturinn er
styrktur af ríkinu en að sögn
Guðjóns gengur hann þokkalega
miðað við svona útgerð. Þess má
geta að nú er kominn farsími í
ferjuna og er númerið 22211.
ET.
Útvarp:
Breytingar
á dagskrá
Fram kom á fundi útvarpsráðs
sl. föstudag að breytinga er að
vænta á útsendingartíma
útvarps og sjónvarps um næstu
mánaðarmót. Hlustendum
norðaustanlands gefst þá færi á
að hlýða á Rás 2 milli íd. 17 og
18 þar eð Svæðisútvarpið mun
senda út milli kl. 18 og 19 I
staðinn fyrir frá 17-18.30 eins
og nú tíðkast.
Helstu breytingar aðrar eru
þær að Rás 2 mun senda út milli
12 og 14, þó með samtengdar
fréttir við Rás 1. Sjónvarp hefst
kl. 18 virka daga og fréttir færast
fram til 19.30. Ekki er um að
ræða lengingu á sjónvarpsdag-
skránni, heldur er áætlað að
ljúka útsendingu fyrr á kvöldin.
SS