Dagur - 23.09.1986, Síða 5
23. september 1986 - DAGUR - 5
skólanum á Akureyri hafa
löngum verið rómaðar athafn-
ir, hverjum busa til ómetanlegs
gagns. Verkmenntaskólinn
lætur ekki sitt eftir liggja við að
stuðla að betra mannlífi og eru
nýnemar kallaðir píslir og
vígsla þeirra kallast písla-
dagur. Nemendur í fjórða
bekk, sem gengið hafa leiðina
til aukins þroska, taka píslirn-
ar að sér og þvo af þeim hvers
kyns fávisku sem ekki á heima
í menntastofnun sem þessari.
Píslirnar fara í píslagöngin,
þar sem lítillega er þjarmað að
þeim. Þá er höfði þeirra dýft í
vatnsker, en af einhverjum
ástæðum fóru sumir á bólakaf
á föstudaginn og jafnvel mátti
sjá fjórðu bekkinga svamla í
kerinu. Enda eru sumir ný-
nemanna alls engar píslir,
heldur þrautreyndir menn úr
einnig að kyssa undur fallega,
vota og glansandi...skó, eða
stígvél, sem búið var að smyrja
með skóáburði. Einhverjum
þótti athöfnin sú ekki árenni-
leg og vildu skorast undan, en
þeim var dyggilega hjálpað af
eldri nemendum sem ýttu þeim
til móts við blautan kossinn.
Enginn má vera útundan, það
er honum sjálfum fyrir verstu,
því óvígður nemandi er ekki
líklegur til afreka.
BÆNDUR
SKURÐGRÖFUR, STOKKAHLÖÐUM
Getum bætt við okkur meiri verkefnum í greftri og
vatnsleiðslum
Einar í síma 31169 Rafn í síma 31149
Loftventill
Ný gerð af loftventlum
Hentar vel í allar bygging-
ar, verslanir, banka, íbúð-
arhús og söluskála.
Gamla hjaragluggavanda-
málið úr sögunni.
Plast- og
málmgluggar
Hclluhrauni 6, Hafnarfirði • S.
Kysstu skóinn vinur!
atvinnulífinu sem ætla að ná
sér í gráður.
Hvað um það þá hlutu allir
sína vígslu. Píslirnar þurftu
Lesið yfir nýnemum.
Vetrarnámskeið
hefst 29. sept (12 vikur)
Jazzdans:
Frá 7 ára aldri. Byrjendur og framhald
Jazzleikskóli:
Fyrir 4-6 ára börn. j ^
Leikræn tjáning - söngur - dans ^ .
Jazzleikfimi:
Styrkjandi æfingar - teygjur —^ þrek/
Hressilegir tímar, lífleg músík. >
Byrjendur og framhald. á
Róleg alm. leikfimi: £ *
Styrkjandi æfingar - teygjur -
Aerobic:
Að hætti hússins JPif
Kennarar:
Alice Johanns.
Terrence Mason, New York
Innritun í síma 24979 fiá kl. 18-21
Skírteinaafhending og greiðsla laugardaginn 27. sept. og sunnudaginn 28
sept. frá kl. 16.00-18.00 eh.
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
högni________________________
Keppur í sláturtíð
Eins og allir vita er það óum-
breytanlegt eðli högna að fara á
flakk öðru hvoru. Auðvitað er
Högni ekki laus við þessa
áráttu, þótt ekki fylgi breim, svo
teljandi sé. Brá hann undir sig
betri fætinum og fór á flakk.
Ekki er þó ætlunin að segja
ferðasöguna á þessum vett-
vangi, en þegar heim var snúið
lágu ein sex þjóðlönd gömlu
Evrópu að baki. Eitthvað eftir-
minnilegt? Jú, eiginlega allt og
þá ekki síst þessi gríöarlegi
fjöldi útlendinga sem þarna er
og maður er alls staðar aö reka
sig á.
Þótt flakki fylgi oft ævintýri er
samt alltaf best að koma heim.
Og það verður að segjast eins
og er, að mikil er undrunin að
komast að því að allt hefur hér
gengið nokkurn veginn sinn
vanagang, þrátt fyrir fjarveru
mikilvægrar og ómissandi pers-
ónu. Eða eins og skáldið sagði:
Lífeðlisfræðingar líta svo á, -
að líf geti blómgast þótt þú farir
frá.
Hinu er svo ekki að leyna, að
óþægilegt var að komast að
því, heimkominn, aö búið var
að flakka af sér berjatímann og
nærri því kartöflutímann líka.
Huggun var það harmi gegn að
sláturtíðin var ekki liðin.
Annars var það undarleg
upplifun, að sjá þessar árstíða-
bundnu íslensku „tíðir“ í stans-
lausri nútíð þarna úti. Mér var
sagt að í sunnanverðri Evrópu
standi berjatíminn allt árið, -
eða eins og kerlingin á að hafa
sagt: Ber allt árið. Og kartöflu-
uppskerutíminn er þrisvar eöa
fjórum sinnum á ári, enda ekki
ræktaðar rauðar íslenskar. En
þó slær sláturtíðin öllu við. Ekki
eru þó fjalla- eða vegalömb
leidd þarna til slátrunar en þó
stendur sláturtíðin allan ársins
hring. Eitthvað virðast þó þessir
slátrunarglöðu menn ruglaðir í
ríminu, því að þarna virðist vera
jöfnum höndum aflífað, skepn-
ur og menn. Og þvi er ekki að
neita, að stundum þótti ónefndri
norrænni hetju, nóg um, þegar
blöð, útvarp og sjónvarp voru
að lýsa ósköpunum.
Að sjálfsögðu höfðu vinir og
vandamenn hér heima, stórar
og þungar áhyggjur af Högna
þarna úti, heyrandi stööugt
voðafréttir í fjölmiðlum um
manndráp og hryðjuverk. Það
var því ekkert undarlegt að
gömul frænka hefði sína skoð-
un á „sisvona heimshorna-
flakki á þessum síðustu og
verstu tímum." Enda heilsaði
hún með þessum orðum:
„Jæja, kominn heim og það lif-
andi.“ Og svo bætti hún við:
„Varstu ekkert hræddur um að
verða drepinn þarna úti í öllum
látunum?“ „O, sei sei nei, -
svaraði hetjan heimkomna, -
eða hvað munar svo sem um
einn kepp í sláturtíðinni?"
Högni.