Dagur


Dagur - 23.09.1986, Qupperneq 9

Dagur - 23.09.1986, Qupperneq 9
23. september 1986 - ÐAGUR - 9 Jþróttic Umsjón: Kristján Kristjánsson Þrátt fyrir snjóleysi, hefur okkar fremsta skíðafólk í alpa- greinum ekki setið auðum höndum í sumar. Skíðafólk í dag er farið að stunda heils árs þjálfun og í sumar hefur Haf- steinn Sigurðsson landsliðs- þjálfari skíðafólks verið með æfíngar fyrir íslenskt landsliðs- fólk. Nú ■ október fara A-lið karla og kvenna til Evrópu til æfinga. í síðasta tölublaði Skíðablaðsins drepur Haf- steinn Sigurðsson á helstu nýjungar varðandi landsliðs- mál og kemur þar margt for- vitnilegt í Ijós. Liðum fullorðinna hefur verið skipt í A-lið og endurnýjunarlið, E-lið. Mest hefur áherslan verið lögð á A-liðin. Einnig var á síð- asta ári byrjað með unglingalið að nýju, eftir nokkurra ára hlé. Framundan eru mörg stórmót hjá skíðafólki og má þar nefna, heimsmeistaramót í Crans Mont- ana í Sviss á næsta ári, 1988 eru Ólympíuleikar í Calgari í Kan- ada og árið þar á eftir, aftur heimsmeistaramót. Skíðasamband íslands hefur þá stefnu að senda keppnisfólk í þessi mót en markmiðið hefur samt breyst. í dag er ekki farið eftir árangri í mótum hér heima, heldur þeim árangri sem íslenkst skíðafólk nær í alþjóðamótum og aðeins tekið gilt ef árangur úr þeim er betri en það Iágmark sem skíðasambandið setur. Er þetta gert með það að markmiði að auka getuna og að íslenskt skíða- fólk geti blandað sér í keppnina um efstu sætin. Til þess að líkur á því að eign- ast afreksfólk á skíðum aukist þarf að vera með öll þessi lands- lið í gangi, þ.e. A-lið, E-lið og unglingalið. Það mun vera ákveðið að leiðin í A-liðin er í gegnum endurnýjunarliðin og er stefnt að því að auka mjög verk- efni fyrir þau lið á næstunni. Unglingaliðið verður í gangi nú, annað árið í röð. í fyrra voru valdir unglingar úr bæði 13-14 ára og 15-16 ára flokkunum en núna verður þessu breytt og í vetur verða eingöngu valdir unglingar úr 15-16 ára liðinu. Unglingaliðið er ekki landslið sem á að keppa á alþjóðamótum erlendis, heldur æfingahópur sem verið er að aðstoða við að æfa yfir lengra tímabil en þau eiga að venjast og búa þau þannig undir að koma inn í E-liðin og þaðan upp í A-lið. Það er þó ekkert sjálfgefið að þau sem hafa verið í unglingaliðum gangi upp í E- liðin. Það er alveg opið inn í E- liðin þó viðkomandi hafi aldrei farið í unglingaliðið og kemur þar árangur og ástundun einnig inn í myndina við valið. Á næsta tímabili koma fleiri þjálfarar inn í starfið hjá skíða- sambandinu en verið hefur og því ætti að verða hægt að sinna ung- linga- og E-liðunum betur en áður. Þegar hefur verið skipað í alpagreinalið Skíðasambands Islands tímabilið 1986-87 og í lið- unum eru eftirtaldir. A-lið karla: Daníel Hilmarsson D A-lið kvenna: Guðrún H. Kristjánsdóttir A Snædís Úlriksdóttir R Tinna Traustadóttir R E-lið karla: Guðmundur Sigurjónsson A Björn Brynjar Gíslason A E-lið kvenna: Bryndís Ýr Viggósdóttir A Ingigerður Júlíusdóttir D Anna María Malmquist A Unglingalið pilta: Ólafur Sigurðsson í Kristinn Svanbergsson A Kristinn Grétarsson í Valdimar Valdimarsson A Jón Harðarson A Bjarni Pétursson í Egill I. Jónsson R Jón Yngvi Árnason A Unglingalið stúlkna: Gerður Guðmundsdóttir Úí A Kristín Jóhannsdóttir A Þórdís Hjörleifsdóttir R Ásta Halldórsdóttir S Guðrún H. Kristjánsdóttir er ein þriggja í A-Iandsliði kvenna. Oflugt starf hjá skíðasambandinu - Von er á fleiri þjálfurum til starfa fyrir sambandið Daníel Hilmarsson er eini skíðamaðurinn í A-landsliði karla. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Þórarinn vann og skorar á Eyjólf Þórarinn B. Jónsson sigraði Skúla Ágústsson í getraunaleiknum um helgina. Þórarinn var með 4 leiki rétta á móti aðeins 1 leik hjá Skúla. Þórarinn heldur því áfram og hann hefur skorað á Eyjólf Ágústsson bróður Skúla en eins og Þórarinn orðaði það, þá ætlar hann að taka þá bræður í gegn, hvem af öðrum, næstu vikur. Eyjólf- ur er mikill aðdáandi Liverpool en þeir eru ekki á seðlinum að þessu sinni. En við skulum líta á spá þeirra: Þórarinn: Eyjólfur: Coventry-Watford 2 Luton-Man.City 2 Man.United-Chelsea 1 Norwich-Newcastle x Nottm.Forest-Arsenal 1 Oxford-Charlton 1 Q.P.R.-Leicester 1 Sheff.Wed.-West Ham 2 Tottenham-Evcrton 2 Wimbledon-Southampton x Birmingham-Ipswich x Sunderland-Stoke x Coventry-Watford 2 Luton-Man.City 1 Man.United-Chelsea 1 Norwich-Newcastle 1 Nottm.Forest-Arsenal 1 Oxford-Charlton x Q.P.R.-Leicester 1 Sheff.Wed.-West Ham 2 Tottenham-Everton x Wimbledon-Southampton 1 Birmingham-Ipswich x Sunderland-Stoke x Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög- um svo enginn verði nú af vinningi. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1 X-2 1-X-2 Knattspyrna: Akureyrar- og Haust- móti KRA lokið Nú er knattspyrnuvertíðinni hér á Akureyri lokið þetta árið, að undanskildum leikn- um á milli landsliða Islendinga og Tékka sem skipuð eru leik- mönnum 21 árs og yngri sem fram fer á Akureyrarvellinum á fímmtudaginn kemur. Akur- eyrarmót og haustmót hefur verið í gangi í sumar og haust á vegum KRA og hafa KA og Þór att kappi í þeim mótum í öllum flokkum og í 1. flokki karla var Vaskur einnig með. Keppnin í flokkunum var yfir- leitt jöfn og spennandi. í Akur- eyrarmótinu var leikin tvöföld umferð nema í meistaraflokki karla. Það kom fyrir að eftir tvö- falda umferð í Ak-móti voru liðin jöfn að stigum í sumum flokkum og því réðust úrslitin í þeim flokkum ekki fyrr en í haustmóts- leikjunum. Dagur mun nú næstu daga birta úrslit leikjanna í sumar og haust og birta nokkrar myndir af ungum Akureyrarmeisturum. I 6. flokki A, varð Þór Akur- eyrarmeistari, liðið sigraði KA 2:1 í báðum leikjunum. í 6. flokki B varð Þór einnig meistari, liðið sigraði 1:0 í fyrri leiknum en 2:1 í þeim síðari. í 6. flokki B varð KA meistari, Þór sigraði 2:0 í fyrri leik liðanna en í þeim síð- ari snéri KA dæminu við og sigr- Að undanförnu hafa menn velt því fyrir sér hvort Hvöt eigi möguleika á því að spila um 3. deildar sæti við Leikni frá Reykjavík, þar sem Skalla- grímur hafí gefíð leikinn við IBÍ í 2. deild og falli þar með í 4. deild en ekki 3. deild. í reglugerð KSÍ um knatt- spymumót, kemur ekkert fram um það að ef lið gefur 1 leik í aði 3:0. Liðin voru því jöfn að stigum og því var það leikurinn í haustmótinu sem skar úr um það hvort liðið varð meistari. Þar hafði KA betur og sigraði nokk- uð örugglega 3:1. Leikjum A og B liðanna í haustmóti lauk báð- um með 2:2 jafntefli. Við höfum þegar birt myndir af Akureyrarmeisturunum í 6. flokki. deildakeppni verði það dæmt í 4. deild. Hvergi kemur heldur afdrátt- arlaust fram að mörk skoruð gegn liði sem gefur síðan leik skuli tekin af liðunum, aðeins að markamismunur reiknist ekki af leikjunum, séu lið jöfn. Það kem- ur því hvergi fram að leikmenn sem skorað hafa gegn Skalla- grími í sumar missi mörk sín. Þó er til fordæmi fyrir því. Hvöt áfram í 4. deild

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.